Morgunblaðið - 25.08.1959, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 25.08.1959, Blaðsíða 6
6 M O R C V1S B L 4 Ð1Ð Þriðjudagur 25. ágúst 1959 Helmingur aðflutn- ingsgjalda af timbri gangi til skógræktar Frá aðalfundi Skógræktarfélags íslands að Hólum AÐALFUNDI Skógræktarfélags íslands lauk sl. laugardagskvöld. Áður hefur verið sagt frá störfum fundarins á föstudag. Á föstudagskvöld var svo kvöidvaka, eins og venja er á þessum fundum. I>á voru veitt svonefnd skógræktarverðlaun, en sr. Haraldur Hope gaf hingað í fyrra þrjá silfurbikara, með þeim fyrirmælum, að þeir yrðu veitt- ir þeim, sem hefðu sýnt sérstak- an dugnað í skógræktarmálum. Þeir sem fengu verðlaunin að þessu sinni voru: Guðni Sigurðs- son á Akureyri, 77 ára gamall, sem hefur mætt í hverja skóg- græðsluför, sem farin hefur ver- ið; Kristján Jakobsson, póst- maður í Reykjavík, fyrir mik- inn skógræktaráhuga og störf í Heiðmörk; Jósep Jóhannesson, kennari við Skógaskóla, sem hefur sýnt mikinn áhuga og dugnað við skógræktarkennslu. Sr. Haraldur Hope sendi enn bikara í ár og úthlutað var silf- urbikar til frú Geirlaugar Jóns- dóttur og Þórðar Pálmasonar, kaupfélagsstjóra í Borgarnesi, fyrir forgöngu og frábæran dugnað í skógræktarmálum Borgfirðinga. Næsta dag hélt fundurinn áfram. Þá fór fram stjórnarkosn- ing og voru endurkjörnir í stjórnina þeir Herman: Jónas- son, alþm., og Haukur Jörunds- son, en til vara var kosinn Jó- hann Hafstein, bankastjóri. Aðr- ir í stjórninni eru þeir Valtýr Stefánsson, Einar Sæmundssen og Hákon Guðmundsson. F»n.d- inum lauk með því að gengið var um skógræktarland Skóg- ræktarfélags Skagfirðinga á Hól- um. Rómuðu fundarmenn frá- bæran aðbúnað á Hólum hjá skólastjórahjónunum. Frá Hólum var haldið síðdegis á laugardag og farið í Varma- hlíð og skógræktarstöðin skoðuð þar. Þaðan var haldið til Sauðár- króks, en þar hélt sýslunefnd Skagfirðinga, bæjarstjórnin á Sauðárkróki og Skógræktarfélag Skagfirðinga fulltrúum og gest- um á aðalfundinum hóf, auk ýmissa heimamanna. í hófinu afhenti Hákon Bjarna son, skógræktarstjóri, Bænda- skólanum á Hólum að gjöf fjöl úr 40 ára gömlu lerkitré. Hér á eftir fara nokkrar álykt anir, sem samþykktar voru á aðalfundi Skógræktarfélags ís- lands á Hólum í Hjaltadal: Affflutningsgjöld af timbri Með því að reynslan hefur sýnt að unnt sé að rækta hér á landi mestan hluta þess timburs, sem þjóðin þarf að nota í framtíð- inni, ályktar aðalfundur Skóg- ræktarfélags fslands, haldinn að Hólum 21. og 22. ágúst 1959, að hér sé um svo mikla þjóðarhags- muni að ræða, að bæði sé rétt og skylt að eigi minna en helmingur allra aðflutningsgjalda af timbri verði látinn ganga til skógræktar. Skattaívilnun Aðalfundyr Skógræktarfél. fsl. telur að nauðsynlegt sé að beina senr mestu fjármagni til skóg- græðslu. En sökum þess, live langur tími líður frá gróðursetn- ingu til skógarhöggs lítur fundur- inn svo á, að þeir sem leggja fram fjármagn til skógræktar eigi að fá framlög sín dregin frá skattskyldum tekjum við næsta framtal til skatts. Felur fundur- inn stjórn félagsins að vinna að því, að slík skattaívilnun verði tekin í lög. Skógræktarstyrkur Aðalfundur Skógræktarfél. fs- lands telur, að skógrækt hér á landi hafi gefið þá raun, að sjálf- sagt sé að skóggræðsla á lög- býlum eða öðrum lendum, sem hæfar eru til skóggræðslu, njóti ræktunarstyrks úr ríkissjóði á sama hátt og aðrar jarðræktar- framkvæ~mdir, bæði að því er varðar girðingar og gróðursetn- ingu. Felur fundurinn stjórn fé- lagsins að ganga ríkt eftir því við ríkisstjórn og Alþingi að slíkar styrkveitingar verði teknar í lög. Laun ráðunautar Aðalfundur Skógr.fél. íslands telur það réttlætismál, að ráðu- nautur Skógræktarfélags fslands fái laun úr ríkissjóði á sama hátt og héraðsráðunautar búnaðar- sambandanna. Leggur hann fyrir stjórn félagsins, að fylgja fast eftir þeirri kröfu við ráðherra skógræktarmála og Alþingi, enda verður það ekki hrakið, að skóg- græðsla er síst þýðingarminni fyrir þjóðarbúið en önnur rækt- un. Gagnkvæm kynnl. Aðalfundur Skógr.fél. fslands beinir því til héraðsskógræktar- félaganna, að þau kosti kapps um gagnkvæm kynni t.d. með heim- sóknum hvers til annars og öðr- um þeim samskiptum, sem verða mætti til eflingar starfsemi þeirra. Gróffurvernd. Aðalfundur Skógræktarfél. fs- lands áréttar ályktun fyrri funda um það, að þess verði vandlega gætt í allri löggjöf, sem varðar nýtingu og meðferð lands, að settar séu hömlur við því, að jarðvegseyðing eða gróðurspjöll eigi sér stað, enda á það að vera skylda hvers manns að skila land inu því, sem hann hefur fengið til varðveizlu og nota a.m.k. jafn- góðu í hendur næstu kynslóðar. Síl dveiðiskýrsl a Fiskifé! agsins SKÝRSLA Fiskifélagsins yfir aflamagn þeirra síldveiðiskipa sl. laugardagskvöld, sem afla fengu í síðustu viku. — Þau skip, sem ! - i skrifar úr daglego lífínu , Sat makindalega í hægindastól. Eiginmaður skrifar: „ITONAN min er satt að segja JA. ekki vön að koma flatt upp á mig með neitt. Ég er búinn að vera kvæntur henni í nærri 20 ár, og eftir þánn tíma er maður hættur að láta sér bregða við smámuni. það hljóta þó að vera einhver takmörk fyrir því hvað má bjóða eiginmanni af snöggum geðshræringum. Þarna sat ég makindalega í hægindastól með púða við bakið og gömlu inniskóna á fótunum. Að baki mér heyrðust daufir tónar síðdegisútvarpsins og ég var niðursokkinn í að lesa frétt- irnar í Morgunblaðinu. Allt í einu var kyrrðin rofin af spurningu, sem virtist koma einhvers staðar að úr fjarlægð. Það rumdi eitthvað í mér. Það átti að láta í ljós óánægju mína með þessa truflun-Spurningin var endurtekin með vaxandi styrk- leika, þangað til það hafði náð undirmeðvitund minni, að þetta voru ekki bara þessi venjulegu hljóð, sem konan gefur frá sér, heldur orð. Og það orð, sem mynduðu heila setningu með ó- þolinmæðislegum spurnartón i endann. — Nú, hvað finnst þér?, spurði konan mín einhvers staðar utan í miðri stofunni. Hrökk upp viff óvænta sýn. EG lagði frá mér blaðið, eins og sæmir góðum eiginmanni. Og svo rétti ég mig upp í stólnum með einum hnykk og starði opn- um augum á leiksýninguna, sem fram fór á stofugólfinu hjá mér, með konunni minni í aðalhlut- verkinu. Hún sat fremst á stólbrúninni á einum borðstofustólnum, sem hún hafði stillt á mitt gólf, hafði krosslagt fæturna og dinglaði leggjunum. Hnén á henni, sem ekki hafa sézt að degi til, í háa herans tíð, ef þau hafa þá nokkum tíma séð dagsljósið, blöstu við mér. — Hvað í ósköpunum . . .?, var það eina, sem ég gat stunið upp. — Ertu ekki búinn að lasa blaðið? spurði konan mín á móti og barðist við að halda jafnvæg- inu á stólbrúninni með stuðning aðeins af annarri tánni. — Pilsin eru að styttast. Hefurðu ekki veitt því athygli, að ég er búin að sitja hér beint á móti þér síð- an um hádegi og hef stytt kjólinn minn. Nú, hvað finnst þér? — Heldurðu ekki elskan mín, að það sé ekki átt við kornungu stúlkurnar með grönnu leggina eigi að stytta kjólana sína? vogaði ég mér að segja. — Vitleysa. Þú ert nú alltaf svo gamaldags. Og ég, sem hafði alltaf svo fallega fætur. Það sögðu allir. Agalega smart. EG hætti mér ekki út í frekari rökræður. Ef allir segja það, þá duga ekki nein mótmæli. Ég efast bara um að allir segi það núna. En það þori ég ekki að segja. Ég var guðsfeginn að geta grafið mig aftur bak við Morg- unblaðið. Skömmu seinna heyrði ég framan úr anddyrinu, þar sem síminn er, að konan mín sagði: — Ert það þú, elskan? Veiztu bara, ég er búin að stytta bláa kjólinn minn . . . alveg upp fyrir hné. Það er agalega smart. eru hætt og höfðu akki aukið aflamagn sitt í vikunni eru ekki tekin með. Ágúst Guðmundsson, Vogum 2725 Akurey, Hornafirði 2345 Álftanes, Hafnarfirði 6204 Arnfirðingur, Reykjavík 10966 Ársæll Sigurðsson, Hafnarfirði 7298 Ásbjörn, Akranesi 3414 Ásbjörn, ísafirði 2767 Áskell, Grenivík 7415 Askur, Keflavík 7715 Auður, Reykjavík 3232 Baldur, Vestmannaeyjum 3309 Baldvin Þorvaldsson, Dalvík 5901 Bergur, Vestmannaeyjum 3669 Bergur, Neskaupstað 3555 Bjarmi, Vestmannaeyjum 2995 Bjarmi, Dalvík 9121 Bjarni Jóhannesson, Akranesi 3936 Björg, Neskaupstaö 5331 Björgvin, Dalvík 11055 Björn Jónsson, Reykjavík 7470 Búðafell, Búðakauptúni 6604 Böðvar, Akranesi 4771 Dalaröst, Neskaupstað « 3831 Draupnir, Suðureyri 2984 Dux, Keflavík 1295 Einar Hálfdáns, Bolungarvík 10252 Einar Þveræingur, Ólafsfirði 4854 Erlingur III., Vestmannaeyjum 3425 Erlingur IV, Vestmannaeyjum Fagriklettur, Hafnarfirði Farsæll, Gerðum Faxaborg, Hafnarfirði Faxavík, Keflavík Fjalar, Vestmannaeyjum Freyja, Vestmannaeyjum Freyja, Suðureyri Freyr, Suðureyri Friðbert Guðmundsson, Suðureyri 2972 Frigg, Vestmannaeyjum 4817 Fróðaklettur, Haínarfiröi 2308 Fylkir, Akranesi /78 Garðar, Rauðuvík 4817 Gissur hvíti, Hornafirði 8601 Gjafar, Vestmannaeyjum 5541 Glófaxi, Neskaupstað 7594 Goðaborg, Neskaupstað 1426 Grundfirðingur II., Grafarnesi 5712 Guðbjörg, Sandgerði 7184 Guðfinnur, Keflavík 7001 Guðm. á Sveinseyri, Sveinseyri 10668 Guðm. Þórðarson, Gerðum 3476 Guðm. Þórðarson, Reykjavik 11383 ■GAMALT norskt máltæki Ssegir, aff regn viff brúðkaup ■tákni auffæfi. Þaff átti vel viff ! á laugardaginn, þegar Anne ■ Marie Rasmussen giftist : Steven Rockefeller í Kristian- j sand kl. 2 eftir ísl. tíma í aus- : andi rigningu. Athöfnin tók 22 jmínútur og 30 sekúndur og aff : henni lokinni var hin norska j „Öskubuska" orffin ein af ; auffugstu konum heimsins. I j kirkjunni rúmuffust aðeins j 110 manns, en þúsundir : manna dreif aff úr öllum átt- j um til aff sjá ungu brúðhjón- : in. Viffstaddir voru 200 blaffa- j menn og ljósmyndarar frá : fjölmörgum löndum. Myndin j er tekin eftir brúffkaupiff, þeg- : ar hinn ungi brúffgumi kyssir j brúffina fyrsta hjónabands- í kossinn. Fyrir aftan þau j standa frú Rockefeller eldri, ; faffir brúffarinnar, móffir j hennar og Rockefeller ríkis- ; stjóri. Aff baki þeim standa j svo systkini brúðarinnar og ; svaramenn Stevens. 3625 5957 4126 13873 4994 6317 3056 3308 955 Gullfaxi, Neskaupstað 9028 Gullver, Seyðisfirði 7217 Gunnólfur, Ólafsfirðt 4218 Gunnvör, ísafirði 2920 Gylfi II., Rauðuvík 3696 Hafbjörg, Vestmannaeyjum 3175 Hafbörg, Hafnarfirði 5654 Hafdís, Vestmannaeyjum 1979 Hafnarey, Breiðdalsvík 3097 Hafnfirðingur, Hafnarfirði 3354 Hafrenningur, Grindavik 9020 Hafrún, Neskaupstað 4954 Hafþór, Reykjavík 7588 Haförn, Hafnarfirði 9117 Hagbarður, Húsavík 3693 Halkion, Vestmannaeyjum 3573 Hamar, Sandgerði 3823 Hannes Hafstein, Dalvík 4888 Heiðrún, Bolungarvik 7584 Heimaskagi, Akranesi 5085 Heimir, Keflavík 4769 Helgi, Hornafirði i 74 Helgi Fióventsson, Húsavík 4167 Helguvík, Keflavik 6417 Hilmir, Keflavík 9212 Hólmanes, Esk* irði 9417 Hólmkell. Rifi 2752 Hrafn Sveinbjarnarson, Grindavík 9431 Hrafnkeil, Neskaupstað 2276 Huginn, Reykjavik 7471 Hugrún, Bolungarvík 2714 Ingjaldur, Grafarnesi 3170 Jón Finnsson, Garði 7880 Jón Jónsson, Óiafsvík 4768 Jón Kjartansson, Eskifirði 13996 Jón Trausti, Raufarhöfn 5651 Júlíus Björnsson, Dalvík 4491 Kambaröst, Stöðvarfirði 5657 Kap, Vestmannaeyjum 1605 Kári, Vestmannaeyjum 2465 Keilir, Akranesi 7004 Kópur, Keflavik 5554 Ljósafell, Búðakauptúni 5906 Magnús Marteinsson, Neskaupstað 5158 Marz, Vestmannaeyjum 7226 Mímir, Hnífsdal 3552 Mummi, Garði 5792 Muninn, Sandgerði 5210 Muninn II., Sandgerði 4415 Nonni, Keflavík 4515 Ófeigur III., Vestmannaeyjum 5123 Framh. á bls. 19.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.