Morgunblaðið - 22.09.1959, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 22.09.1959, Blaðsíða 16
16 MORCTHVBLAÐIÐ Þriðjudagur 22. sept. 1959 Raðhús til sölu Álfhólsvegur 30 í Kópavogi er til sölu. Á 1. hæð eru 2 stofur og eldhús. Á 2. hæð eru 3 svefnherbergi, bað og geymsla. Einnig er þvottahús, kynding og geymsla I sameiginlegri viðbyggingu fyrir húsasamstæðuna. Húsnæðið er til sýnis kl. 7—9 í kvöld og næstu kvöld. Fasfeignaskrjrstoían Laugavegi 28. — Sími 19545 Sölumaður: Guðm. Porsteinsson ÞvotiamaZur úskasf Aðstoðarmann við þvottastörf í þvottasal Þvottahúss Landspítalans, 25—45 ára, óskast nú þegar. Umsóknir með upplýsingum um aldur og fyrri störf óskast sendar til skrifstofu ríkisspítalanna, Klappar- stíg 29, Box 43, fyrir 26. sept næstkomandi. SKRIFSTOFA RÍKISSPÍT ALANNA Hefi opnað tannlœkningastofu mína að Hverfisgötu 50 Eingöngu tannréttingar Viðtalstími 13,30—15 nema laugardaga. Sími 14723 Þórður Eydal Magnússon tannlæknir MINEHVA Kvennblússan f æ s t í Sextugux Erlendur Björnsson SVÍFUR að hausti — hauststörfin 1 hefjast — réttir byrja. Réttirnar hafa einatt veitt nokkra tilbreytni í líf fólksins í sveitum landsins. Þær eru eins- konar uppskeruhátíð. Á réttardaginn fyrir tæpum 50 árum hafði flokkur fólks, konur og karlar úr Biskupstungum safn azt saman uppi á klettunum ofan við réttirnar við Tungufljót. Drætti fjárins var langt komið. Fólkið var glaðlegt í bragði þenn- an dag. Þó bar það merki mikilla anna eftir langan vinnudag sum- arsins. Svo langt sem ég man hafa Tungnamenn einatt skemmt sér við söng, er þeir komu saman, enda oft góðir raddmenn í hópi þeirra. í þetta sinn hafði Björn á Brekku kvatt sveitunga sína til söngsins og stjórnaði honum. Meðal söngfólksins var 12 ára drengur, bjartleítur, djarflegur, státinn strákur. Björt og skær söngrödd þessa drengs vakti nokkra athygli. Hér var að vaxa á legg vænt- anlegur hreppstjóri Tungnamann anna, Erlendur Björnsson á Vatns leysu. Á þessu sumri varð Erlendur sextugur. Þó seint sé, tel ég rétt að minn- ast þess með nokkrum hætti op- inberlega, því þess er hann verð- ugur, en hitt veit ég líka að hann kysi helzt að láta það kyrrt liggja. Erlenaur er fæddur að Torfa- stöðum í Biskupstungum 21 .júlí 1899. Faðir hans var Björn Björnssonar á Brekku í Bisk. Móðir Erlendar var Guðrún Er- lendsdóttir bónda í Arnarholti í sömu sveit. Björn á Brekku faðir Erlendar var vel metinn, félagslyndur og þótti hvarvetna aufúsugestur. Var hann um skeið bæði oddviti og hreppstjóri sveitarinnar. Hann var kvæntur Jóhönnu Björnsdótt- ur úr Ölfusi. Var hún mikilhæf kona. Naut Erlendur hjá henni athvarfs, sem góðrar móður. Erlendur ólst upp í föðurgarði og dvaldi jafnan heima unz hann kvæntist Kristínu Sigurðardóttur frá Vatnsleysu. Reistu þau bú að Vatnsleysu (vesturbænum) árið Mafráðskona óskast strax að Heimavistarskólanum Jaðri. Uppl. hjá skólastjóranum, Nóatúni 32, eftir hádegi í dag. Skrifsfofusfúlka Þekkt heildsölufyrirtæki í Miðbænum óskar að ráða til sín skrifstofustúlku nú þegar eða 1. okt. Vélrit- unar- og enskukunnátta nauðsynleg. Tilboð leggist inn á afgr. Mbl. fyrir föstudag 25. sept. n.k. merkt: „Góð laun — 4742“. Stúlka óskast í brauða- og mjólkurbúð 5 tíma vinna. Upplýsingar í síma 33435. Efri hœð og ris Á hæðinni eru 4 herbérgi og eldhús, en 3 herbergi og eldhús í risi. — Selzt í einu lagi eða hvort fyrir sig ÓLAFUR ÞORGRÍMSSON, hrl. Austurstræti 14. — Sími 15332 Eignarlóð við Laugaveg T I L S Ö L U Á lóðinni er lítið timburhús. ÓLAFUR ÞORGRÍMSSON, hrl. Austurstræti 14. — Sími 15332 6 herbergja íbúð tilbúin undir tréverk til sölu nú þegar. ÓLAFUR ÞORGRlMSSON, hrl. Austurstræti 14. — Sími 15332 1922 og hafa búið þar siðan í sam- býli við Þorstein Sigurðsson bróð ur Kristínar. Erlendur naut ekki annarrar skólafræðslu en þeirrar, sem veitt var á þeim tímum með lög- boðinni farkennslu til fermingar. Þessi skamma skólavist hefur reynzt honum notadrjúg vegna eðlisgreindar, athygli og sjálfs- aga. Erlendur gerðist snemma velstarfandi ungmennafélagi, og ætla ég að sá félagsskapur hafi reynzt honum skóli, sem mörgum öðrum, og leitt hann til nokkurs þroska. Eríendur tekur ungur við hreppstjórn, virtist hann þegar vandanum vaxinn og hlaðast því á hann margháttuð störf, vegna sveitarfélagsins, bæði heima fyrir og út á við. Hefir hann ekki brugð izt trúnaðinum sem honum hefur verið sýndur. Heldur hann því vel virðing allri og trausti manna. Erlendur er fastlyndur og laus við flysjungshátt, skapríkur en þó stilltur vel. Glaður í vinahópi, söngvin sem faðir hans. Leikur vel á orgel og er því oft tilkvadd- ur sem forsöngvari við messu- gjörð og aðra kirkjulega athöfn. Kristín kona hans er og góð söng kona svo sem hún á kyn til. Vatnsleysuheimilanna beggja vil ég svo minnast því að mér finnst þau hafa verið arinn söngs og félagslífs um langt skeið hér í sveit. Erlendur hefir húsað vel jörð sína. Stór tún teygja s:g suður frá bænum fram með ásnum sem bærinn stendur undir. Allt ber heimilið myndarsvip og vitnar um húsráðendur. Þau hjón hafa eignazt 5 börn, . eru fjögur á lífi, öll myndar fólk: Björn bóndi í Skálholti, Sigurður bóndi á Vatnsleysu, Sigurlaug, gift og búsett í Reykjavík og Magnús ókvæntur heima. Á Vatnsleysu er oft gestkvæmt, því margur á erindi við hrepp- stjórann. Ég ætla að það sé almæli að þar sé gott að koma og njóta hlýju og rausnar þeirra hjóna. Ég þakka Erlendi og fjölskyldu hans allri fyrir góð kynni á liðn- um árum. Ég þykist og vita, þó ekki hafi ég umboð til þess, að sveitungar hans allir vilji þakka honum fyrir unnin störf og sam- fylgd á liðnum árum og óska honum og fjölskyldu hans bless- unar í framtíðinni. Réttardagur Tungnamanna er á miðvikudaginn 23. sept. n. k. Fyrir nokkru voru réttirnar fluttar lengra ofan með fljótinu. Þær standa nú i Vatnsleysulandi á mólendi á bug við Tungufljót, undir birkivöxnum ás. Réttastæð ið er hið fegursta og réttirnar sjálfar þokkalegar, þó sumt sé hjáleitt í gerð þeirra miðað við umhverfi og ætluð not. Nú ganga ekki Tungnamenn á bergstall á réttardag eins og á leiksvið til söngs, heldur syngja þeir nú við réttarvegg, steypta stólpa og járn grindur. en söngurinn hljómar allt eins vel og áður. Ný syngur roskinn hreppstjór- inn djúpan bassa, Fljótið niðar á flúðum, lengra undan en þó skammt. Kveður fossinn Faxi (Vatnsleysufoss) þungum rómi: íslands er það lag. Sigurður Greipsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.