Morgunblaðið - 22.09.1959, Side 23
Þriðjudagur 22. sept. 1959
MORGXJTSBL 4Ð1Ð
23
Jóhann
Vilhelm
Lindherg
Minningarorb
JOHAN VILHELM LINDBERG
andaðist að morgni þess 16. þ. m.
í Elliheimilinu hér í bæ eftir tæp
lega tveggja ára vanheilsu.
Lindberg var fæddur 11. júní
1882 í Hilleröd í Danmörku.
Hann lærði húsasmíði og stóð síð
an fyrir byggingu nokkurra húsa
i fæðingarbæ sínum.
Þegar hann hafði lokið námi
og sinni herskyldu, lagði hann
land undir fót og fór fótgangandi
með félaga sínum suður Þýzka-
land, Sviss og Austurríki. Unnu
þeir fyrir sér á mismunandi verk-
stæðum í ýmsum bæjum á leið-
inni og kynntu sér ýmislegt í iðn
sinni. Þetta var háttur ungra
manna á þeim tíma, en með því
voru þeir að stækka sjónarsvið
sitt með tilliti til framtíðarinn-
ar.
En enginn ræður sinum nætur
stað, stendur einhvers staðar og
forlögin höguðu því á þann veg
að Lindberg gerði ekki húsbygg-
ingar að ævistarfi sínu.
Árið 1916 kom hann fyrst tiJ
íslands en þá sem gestur, en 1919
kom hann hingað alkominn, og
undi vel sínum hag hér, að því
bezt varð séð.
Hann byrjaði fyrst hér vinnu
í kjötbúð fyrst í Milnerskjötbúð
og síðar hjá Frederiksen heitnum.
En fljótlega gerðist hann umboðs
sali og ferðaðist þá mikið um
landið fyrr á árum.
V. Lindberg varð vel til vina
hér, enda alltaf hressilegur í við-
móti og hrókur alls fagnaðar
þegar því var að skipta.
Að endingu vil ég þakka Lind-
berg fyrir marga góða stund og
oft góð reynds manns ráð.
Björn Guðmundsson.
I. O. G. T.
St. Verðandi nr. 9.
Fundur í kvöld kl. 8,30. — Æ.t.
&
Hjartanlega þakka ég öllum þeim, er minntust mín á
sjötugs afmæli mínu.
Magnús Magnússon, Lykkju.
Hjartans þakkir færi ég öllum, sem heiðruðu mig með
heimsóknum, gjöfum og skeytum í tilefni af fimmtugs
afmæli mínu.
Guð blessi ykkur öll.
Guðlaug Gísladóttir
Hjartans þakkir til fjölskildu minnar venslafólks og
frændfólks og annara góðra vina, sem glöddu mig með
skeytum, gjöfum, blómum og heimsóknum á sjötugs
afmæli mínu 29. ágúst s.l. og gerðu mér daginn ógleym-
anlegan.
Lifið öll heil. .
Steinunn Gestsdóttir, Ásgarði 117.
Innilegar þakkir til barna minna, vina og vandamanna,
er heiðruðu mig á sextugsafmæli mínu 6. þ.m., með heim-
sóknum, gjöfum og árnaðaróskum.
Jóliann Hjaltason.
Hugheilar hjartans þakkir færum við hjónin börnum
okkar, tengdabörnum og barnabörnum, systkinum og
öllum vinum og ættingjum, fyrir stórhöfðinglegar gjaf-
ir og vinsemd alla okkur sýnda á sextugs og sjötugs-
afmæli okkar 14. og 1. þ.m.
Guð blessi ykkur öll.
Theodóra Stefánsdóttir, Þormóður Sveinsson
Innilegar þakkir til allra fjær og nær, sem sýndu mér
vináttu og heiðruðu mig á áttræðisafmæli mínu þann
16. sept. s.l. með heimsóknum,. símskeytum og gjöfum.
Guð blessi alla góða vini.
Brynjólfur Brynjólfsson
frá Litlalandi, Vestmannaeyjum.
Skrifstofur vorar,
Hafnarstræti 5 verða lokaðar vegna jarð-
arfarar miðvikudaginn 23. sept. frá kl. 9
f.h. til 1 e.h.
OLÍUVERZLUN ÍSLANDS H.F.
VKIPAUTGCRB RIKISINS
SKJALDBREIÐ
fer vestur um iand til Akureyr-
ar mánudaginn 28. þ.m. — Tekið
á móti flutningi á morgun til
Tálknafjarðar og áætlunarhafna
á Húnaflóá og Skagafirði og Ól-
afsfjarðar. Farseðlar seldir ár-
degis á laugardag.
SKAFTFELLINGUR
fer til Vestmannaeyja í kvöld.;
Vörumóttaka daglega. *
Unnusti minn,
SKCLI JClIUSSON
andaðist á Landspítalanum þann 20. september.
Fyrr hönd aðstandenda.
Björg Sigurðardóttir
Móðir okkar
BJÖBG GUÐMUNPSDÓTTIB
frá Felli,
lézt í Bæjarsjúkrahúsi Reykjavíkur föstudag. 18. þ.m.
Jarðarförin auglýst síðar.
Emelía Heigadóttir, Birgir Helgason.
Útför mannsins míns,
ÞÖBHALLS SIGTEYGGSSONAB
fyrrverandi kaupfélagsstjóra
fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 23. þ.m. kl.
2 e.h. Athöfninni verður útvarpað.
Kristbjörg Sveinsdóttir
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við andlát
og jarðarfö- sonardóttur minnar,
HELGU SIGURÐAEDÓTTUB
Gísli Sigurðsson og ættingjar
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarð-
arför
ÓLAFfU GUÐMUNDSDÓTTUB
Skipasundi 60
Sérstaklega viljum við þakka stjórnendum og starfs-
fóiki Kassagerðar Reykjavíkur, ættingjum hennar og
vinum.
Ketill Kristvinsson, Guðjón Sigurjónsson
GUÐMUNDUB MAGNCSSON
trésmiður, Goðalandi Vestmannaeyjum
andaðist á Landspítalanum aðfaranótt 21. þ.m.
Aðstandendur
Móðir okkar
ÞÖBEY INGIBJÖBG JÓNSDÓTTIB
lézt að Elli- og hjúkrunarheimilinu Sólvangi, 20. þ.m.
Jarðarförin auglýst síðar.
Kristín Benediktsdóttir, Gunnar Einar Jakobsson
magnCs jónsson
rafvirki, Langholtsvegi 202
andaðist á Landakotsspítala laugard. 19. sept.
Fyrir mína hönd og barna hins látna og annarra vanda-
manna.
Sigríður Bjarnadóttir
FRC STEFANlA SIGUBÐSSON
andaðist á heimili okkar í Bronxville, New York, laug-
ardaginn 19. þ.m. Jarðarförin fer fram frú Lútersku
kirkjunni, Selkirk í Manitoba, Kanada, fimmtudaginn
24. september.
Elín og Hannes Kjartansson
Útför föður míns,
HELGA JÓNASSONAR
frá Brennu,
fer fram frá Dómkirkjunni, miðvikudaginn 23. sept. kl.
2 e.h.
Atli Helgason
Jarðarför móður okkar
ÖNNU JÓNSDÓTTUB,
sem lézt 15. þ.m. fer fram frá Fossvogskirkju fimmtud.
24. þ.m. kl. 1,30.
Guðrún Scheving, Hansína Scheving
Sigurrós Scheving, Sigurlína Scheving,
Haligrímur Scheving.
Útför eiginmanns míns og föður,
BRYNJÓLFS ÓLAFSSONAR
Hverfisgötu 41, Hafnarfirði
fer fram frá Þjóðkirkjunni miðvikudag. 23. þ.m. kl.
2 e.h. Bóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim, sem vildu
minnast hins^ látna, er bent á Minningarspjöld Styrktar-
félags fatlaðra og lamaðra.
Guðrún Arnadóttir, börn, fóstursonur og tengdaböm
Útför eiginmanns míns, föður okkar og fósturföður,
ÁBNA BERGSSONAR
' fyrrum kaupmanns í Ólafsfirði,
fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 23. sept. n.k.
kl. 10,30 f.h. Athöfninni verður útvarpað.
Jóhanna Magnúsdóttir, Magnús Arnason,
Gunnar Amason, Kristinn Árnason,
Brynjólfur Sveinsson.
Hjartkær sonur okkar og bróðir
SIGURÐUR RUNÖLFUB BJABNASON
Hverfisgötu 85
andaðist af slysförum 20. þ.m.
Svanhvít Svala Kristbjörnsdóttir,
Bjami Sigurðsson og systkin.
Alúðar þakkir fyrir sýnda samúð við útför föður mins
SKABPHÉÐINS JÓNSSONAB
Sérstaklega þakka ég þeim, sem hjúkruðu honum I
langvarandi veikindum
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna
Bergþóra Skarphéðinsdóttir
Hjartans þakkir færum við öllum þeim mörgu, sem
sýndu okkur samúð og vináttu við fráfall og jarðarför
elskulegs eiginmanns míns, föður okkar og tengdaföður
SIGURÐAB P. GUÐBJARTSSONAB,
bryta,
Esther H. Ólafsdóttir, Lára Sigurðardóttir,
Bára Sigurðardóttir, Guðm. G. Pétursson,
Ólafur Sigurðsson, Auður Gunnarsdóttir,
Halldóra Sigurðardóttir, Guðm. J. Þórðarson,
Jónas Sigurðsson, Helga Benediktsdóttir,
Helga Sigurðardóttir, Hallbjöm Þórarinsson