Morgunblaðið - 17.10.1959, Síða 23
Laugardagur 17. okt. 1959
MORCUNBLAÐIÐ
23
Tónleikar
í Austurbæjarbíói
FIMMTUDAGINN 8. okt. voru
haldnir tónleikar í Austurbæjar-
bíói í tilefni af 10 ára afmæli
Þýzka alþýðulýðveldisins. Voru
hér á ferðinni Ina-Maria Jeuss,
sópransöngkona, Max Jansen,
tenórsöngvari, Werner Schulz,
fiðluleikari, og Dieter Brauer,
píanóleikari.
Það fer að verða nokkur vandi
að senda hingað listamenn til tón
leikahalds. Við erum svo góðu
vanir úr austri og vestri og suðri,
að áheyrendur hér hætta hvað
líður að kalla allt ömmu sína.
Megum við vera hér nokkuð á
verði, svo að við föllum ekki fvr-
ir því „sensationella" og verðum
sljóir. Hér voru engir afburða-
menn að verki, en gott músík-
fólk, sem flutti list sina af
smekkvísi og kunnáttu og var túð
geðþekkasta í allri framkomu.
Því miður gat ég ekki hlustað
á alla tónleikana (var sjálfur að
spila þetta kvöld), en það sem ég
heyrði, færði mér heim sanninn
um það að hér voru góðir menn
á ferðinni. Fiðluleikarinn Wern-
er Schulz er prýðisgóður og gagn-
menntaður fiðluleikari; líkt er að
segja um píanóleikarann Dieter
Brauer, sem lék „32 tilbrigði" eft-
ir Beethoven af smekkvísi og
næmum skilningi. Tenórsöngvar-
inn Max Janssen hefur fremur
litla rödd, en hann beitti henni
af kunnáttu, og sama er að segja
um sópransöngkonuna Ina-Maria
Jeuss, sem er þó meiri söngvari,
en var ekki sem bezt fyrirkölluð.
Það er eitt sem ekki er lengur
hægt að komast hjú- að minnast
á: Hin endalausu „prógrömm".
Gildir þetta orðið nær alltaf beg-
ar erlendir listamenn koma hir.g-
að. Hér voru t. d. tvö prógrömm
gerð að einu. Þetta er óviturlegt
og þreytir oft, jafnvel þó um göf-
ugustu list sé að ræða. Hef ég
heyrt ágætt músíkfólk kvarta
undan þessu, og með réttu. Þarf
að athuga þetta framvegis. Hálfur
annar klukkutími er hámark, ef
hlustað er með athygli. Undan-
tekning frá þessu er þó þegar
risaverk, svo sem óratoríur eða
óperur eru fluttar.
Listafólkinu þýzka var mjög
vel tekið, og var salurinn nær
fullskipaður.
P. L
—- Mávur
Framhald af bls. 1.
me* 26 farþega innanborðs. Um
leið og flugvélin sveif niður á
brautarendann flaug upp mikill
hópur máva, sem setið hafði á
brautinni — og sogaðist fugl inn
í einn hinna fjögurra hreyfla.
Flugstjórinn varð þess ekki var,
•n þegar flugvélin hafði numið
staðar tók hann eftir blóðslettum
við innsogsop hreyfils nr. 2 — og
ræsti hreyfilinn aftur til þess að
prófa hann.
Hreyfillinn hitaði sig þá óeðli-
lega mikið og ályktaði flugstjór-
inn Hörður Sigurjónsson, að
mávur hefði sogazt inn og stíflað
loftrásina að einhverju leyti.
Flaug hann flugvélinni á þremur
hreyflum til Lundúna til athug-
unar hjá Rolls-Royce verksmiðj-
unum, en skildi farþegana eftir.
Hin Viscount Flugfélagsms,
Hrímfaxi, var þá sendur frá
Reykjavík til þess að sækja far-
þegana. Var síðan lagt upp frá
Glasgow um kl. 10.30 á fimmtu-
dagskvöld og komið heim kl. að
ganga tvö um nóttina. Töfðust
farþegarnir af þessum sökum í 9
stundir í Glasgow.
Lagfæring á Gullfaxa gekk vel
í London. Hreyfillinn var látinn
ganga hratt í góða stund — og
hreinsaði hann út úr sér mávinn
án þess að skemmdir yrðu. Kom
Gullfaxi heim um hádegisbilið í
gaer.
Sigurður H. Guðmundsson (t. v.) og Guðjón Sigurðsson við bát
sinn í Bátalónsskipasmíðastöðinni í Hafnarfirði.
VopnlirSin grarnir otj
háturinn þetrra
FREGNIN um samskipti hitma
ungu Vopnfirðinga, hálfbræðr-
anna Guðjóns Sigurðssonar og
Sigurðar Hólm Guðmundssonar
við oddvita hreppsnefndarinnar á
Vopnafirði, sem sagt var frá í
blaðinu í gær, hefur að vonum
vakið athygli. 1 stuttu samtali við
Mbl. í gær, sagði Sigurður, að sér
væri ókunnugt um hvað valdið
hefði því að þeim var skyndilega
synjað um hreppsábyrgð á láni,
sem þeir þurftu að taka vegna
bátsins. Það hefði að vísu komið
fram í skeyti, sem hann fékk
hingað til Reykjavíkur að aust-
an, að synjunin hefði orðið „þin
vegna“, eins og í símskeyti stóð
frá oddvitanum. Kvaðst Sigurður
hafa leitað eftir skýringum á
þessu orðalagi, sem gefið hefði
sér ástæðu til margvíslegra heila-
brota. Ekki væri sér kunnugt um,
að hann hefði gerzt brotlegur við
einn eða neinn eða hreppsnefnd-
ina. Væru í skeytinu dylgjur,
sem væntanlega kæmi skýring á
innan tíðar. Ekki hefði tekizt að
fá hana í símtali austur. Ég bíð
eftir bréfi. En hver veit nema
það komi aldrei fram, eins og
fyrirheitin um hreppsábyrgðina,
sagði Sigurður.
Kvöldvaka
á Akranesi
SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN á Akra
nesi halda kvöldvöku að Hótel
Akranesi, sunnudaginn 18. okt.
klukkan 9 síðd.
Ávörp flytja: Jón Árnason,
Sigurður Ágrústsson, Friðjón Þórð
arson og Ásgeir Pétursson.
Leikararnir Lárus Pálsson,
Klemens Jónsson og Valur Gísla-
son skemmta með upplestri og
gamanþáttum.
Að lokum verður stiginn dans.
Allir stuðningsmenn D-listans
eru velkomnir. Vitja skal að-
göngumiða að Vesturgötu 48 uppi
eftir hádegi í dag og á sunnudag.
Aðgangur er ókeypis.
U ngling
vantar til blaðburðar við
Álfhólsveg
JHovgMtttÞI&frifr
Sími 22480.
Borðstofuhúsgögn
Eik, birki, teak og maghony.
Lágt verð, góðir greiðsluskilmálar.
Trésmidjan Víðir
Innilega þakka ég öllum þeim er sýndu mér vinarhug á 75 ára afmæli mínu. Högni Guðnason, Laxárdal.
Ég færi mínar hjartanlegustu þakkir til bar a minna tengdabarna og annarra skyldmenna og vina fyrir gjafir, blóm og skeyti, einnig margvíslega vináttu, sem mér hlotnaðist á áttræðis afmæli m£nu hinn 18. fyrri mán. Ég bið guð að blessa ykkur öll. Guðbjörg Sigurðardóttir Nýlendugötu 21.
Þakka innilega hlýjar hugsanir, gjafir og kveðjur á sjötugsafmæh mínu. Tryggð og virrátta eldri og yngri nemenda og aðstandenda þeirra í garð Kvennaskólans í Reykjavík, fæ ég aldrei fullþakkað. Ragnheiður Jónsdóttir.
Ég þakka af heilum hug öllum þeim, sem glöddu mig á áttræðisafmæli mínu með vinarþeli og góðum gjöfum. Sérstakar þakkir vil ég færa Kvenfélagi Grindavíkur og hreppsnefnd Grindavíkurhrepps fyrir rausn og höfðings- skap í minn garð. Ingibjörg Jónsdóttir, Garðhúsum, Grindavík.
Hjartans þakkir til allra vandamanna og vina, sem glöddu mig með heimsóknum, skeytum og gjöfum á sjötugsafmæli mínu 8. október s.l. Guð blessi ykkur öll. Margrét Rögnvaldsdóttir. Hrólfsstöðum, Skagafirði.
Hjartanlega þakka ég öllum þeim, sem á einn eða annan há,tt sýndu mér vinarhug á 60 ára afmælinu 9. október s.l. Guð blessi ykkur öll. Karólina Signrðardóttir, Vestmannabraut 73, Vestmannaeyjum.
Frú ÓLAFÍA JÓNSDÓTTIR Rauðarárstíg 28, lézt í Landsspítalanum föstudaginn 16. þ.m. Vandamenn.
Aðfaranótt 16. þ.m. lézt í Landsspítalanum AÐALSTEINN GUÐMUNDSSON Krossamýrablett 15. Jarðarförin ákveðin síðar. Móðir og börn hins Iátna.
Sonur okkar og bróðir, INGIMAR VILHJÁLMSSON drukknaði 13. þ.m. við Hjörsey á Mýrum. Bergsteinunn og Villijálmur Guðmundsson og systkini hins látna. Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við útför móður okkar og tengdamóður FRlÐAR LÁRUSDÓTTUR Búastöðum, Vestmannaeyjum. Börn og tengdaböm.
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðar för mannsins míns og föður okkar. BJÖRNS BRYNJÓLFSSONAR frá Skeiðháholti. Þórunn Guðmundsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn.
Útför eiginmanns míns, föður og tengdaföður EINARS JÓNASSONAR hafnsögumanns, fer fram frá Fossvogskirkju, mánudaginn 19. þ.m. kl. 3 eftir hádegi. Isafoid Einarsdóttir, dætur og tengdasynir.