Morgunblaðið - 31.10.1959, Page 2
2
MORCUNBLAÐIÐ
Laugardagur 31. okt. 1959
Hópur unglinga játar
á sig fjölda innbrota
RANNSÓKNARLÖGREGLUNNI
hefur tekizt að upplýsa 24 inn-
brot, sem unglingar á aldrinum
16—18 ára, hafa framið hér í
bænum, nú í þessum mánuði.
Skýrði Njörður Snæhólm rann-
aóknarlögreglumaður, blöðunum
frá þessu í gær. Þjófnaðir þess-
ir eru að mestu leyti á sælgæti
og gosdrykkjum. Hafa piltarnir
herjað á marga söluturna og sæl-
gætissölur, ekki aðeins hér í
Reykjavík heldur og austur á
Hvolsvelli. Einnig hafa þeir í
nokkrum tilfellum stolið vörum,
t.d. bílaviðgerðarverkfærum, og
útvarpstækjum. Nokkrum sinn-
um stálu þeir bílum, t.d. einum
af bílum rannsóknarlögreglunn-
ar. Loks voru svo innbrotsþjófn-
aðir, þar sem þeir stálu peningum
og var hæsta upphæðin 1200 kr.
Við þessa þjófnaði voru pilt-
amir mjög oft tveir saman,
stundum þrír en flestir voru
þeir 6 saman við innbrot.
Á sælgætinu og gosdrykkjun-
lun gæddu þeir sér og buðu þá
oft vinkonum sínum að gæða sér
á veizluföngunum. Vörur sem
þeir stálu, reyndu þeir að selja
og koma í peninga.
Sá piltanna sem athafnasam-
astur hefur verið er aðeins 16
ára og hefur hann tekið þátt í
Þeir komu með
verkefnið heim
á Mað
» RANNSÓKNARLÖGREGLU-
MENN frá þeirri deild er fjallar
um árekstra og hvers konar um-
ferðarmál, þurftu ekki að fara
langt til þess að gera sínar at-
huganir í sambandi við bílaá-
rekstur er varð síðdegis í gær.
Maður á sendiferðabíl var á
leið í skrifstofu sakadómara til
þess að ná í sakavottorð til end-
umýjunar ökuleyfis síns. Var
hann rétt að koma að Fríkirkju-
vegi 11, þar sem skrifstofurnar
mi, er óhappið vildi til. Hugðist
hann leggja bílnum að gangstétt-
inni, en þá kom á móti honum
nýlegur, fallegur Opelbíll, og
skipti engum togum, að bílarnir
rákust saman. Kom framendi
Opelbílsins á vinstri hlið sendi-
ferðabílsins. Kastaðist sendiferða
bíllinn á annan bíl sem kyrr-
stæður var.
Að sjálfsögðu var lögreglurann
sókn málsins eigi lokið í gærdag
og því engu slegið föstu um hvor
ökumannanna hæri ábyrgð. Nær-
staddir kváðu augljóst að báðir
ættu þama nokkra sök, sendi-
ferðabíllinn fyrir að sveigja svona
snögglega að gangstéttinni og
hinn bílinn myndi hafa ekið eitt-
hvað of hratt. Ekki fengust rann-
sóknarlögreglumenn til að stað-
festa þetta álit en hitt sögðu þeir,
að þetta væri ekki í fyrsta skipti
sem „viðskiptavimir“ kæmu með
verkefnin svona heim á hlað.
10 innbrotsþjófnuðum, næstur
honum er 18 ára piltur, sem tekið
hefur þátt í 9 innbrotum. Hefur
hann aldrei áður komizt undir
manna hendur. Alls er um að
ræða 14 pilta sem hér eiga meiri
og minni hlut að máli. Ekki var
þó um neinn skipulagðan bófa-
hring að ræða, því ekki voru
nein kynni á milli margra pilt-
anna. Ekki kom það fram við
lögreglurannsókn, að þeir hefðu
verið undir áhrifum áfengis er
þeir fóru í þessa þjófnaðarleið-
angra, en innbrotin voru flest
framin í kringum miðnætti. Hið
síðasta var framið 21. þessa mán-
aðar.
700
STYKKISHÓLMI, 29. okt —
Þa9 vakti helzt athygli á kosn
ingardaginn að elzti íbúi
Stykkishótms, frú María
Andrésdóttir, koin á kjörstað
létt í spori og kvik í heyfing-
um og teinrétt eins og fyrr.
Var hún í fylgd með Ingi-
ára — og kaus
björgu dóttur sinni. Fannst
okkur þetta svo einstæður at-
burður í Stykkishólmi að við
fengum Ágúst Sigurðsson til
þess að taka af henni myndir
og koma þær hér nú fyrir at-
menningssjónir. Á annarri
myndinni er gamla konan að
koma í fylgd með dóttur sinni.
Á hinni (sjá forsiðuna) er hún
að leggja sitt lóð á vogarskál-
ina og setja seðilinn í atkvæða
kassann.
Mörgum er kunnugt um,
hve Maria hefir borið ellina
vel og öllum Islendingum
minnisstætt er hún talaði í
útvarpið á 100 ára afmæli sínu
í sumar. Gat enginn merkt
það á málrómnum að þarna
færi 100 ára gömul kona. Allt
af er jafn gaman að spjalla
við Mariu, minnið er einstakt,
hún er jafnan hress í geði og
létt | fasi. Hún fylgist með
öUu, sem fram fer, af sama
áhuganum og fyrir mörgum
áru og leggur góðu lið. Hún
á dýrmæta reynslu að baki og
hafa margir notið hennar leið
sagnar. Öllum, sem henni
kynnast, þykir vænt um hana
og er það ekki nema eðlilegt,
sUk er hennar framkoma og
viðmót. — Á. H.
Rennsli í ám mælt
með geislaefnum
I ÁGÚSTMÁNUÐI síðastliðnum voru gerðar hér á landi í tilrauna-
skyni rennslismælingar með geislavirkum efnum í Seljalandsá
undir Eyjafjöllum á vegum Kjamfræðinefndar íslands, en hingað
til hafa straumhraða-mælingar eingöngu verið notaðar hér á landi.
— í fréttatilkynningu frá Kjarnfræðinefnd segir svo um þessar
mælingar:
Farnir á þing
Norðurlandaráðs
I ÖÆRMORGUN fóru héðan
flugleiðis til Stokbhólms fulltrú
ar íslands á þing Norðurlands-
ráðs sem að þessu sinni er hald-
ið i Stokkhólmi.
Fulltrúarnir sem fóru í morg-
un, voru kjörnir í Norðurlanda-
ráð eftir ályktunum Alþingis.
á síðasta reglulegu þingi. Þeir
sem fóru voru: Bernharð Stef-
ánsson, Hannibal Valdimarsson
Magnús Jónsson, Sigurður
Bjarnason. Sigurður Ingimund-
arson fer í dag á þennan fund
og maetir þar í stað aðalmann*
og varamanns Alþýðuflokksins
þeirra Emils Jónssonar og Gylfa
Þ. Gíslasonar.
Ritari nefndarinnar er Frið-
jón Sigurðsson skrifstofiustjóri
Alin
„Eykyndill44 minn-
ist 25 ára starfs
SLYSAVARNARDEILDIN „Ey-
kyndill", Vestmannaeyjum er
var stofnuð 25 marz 1934 ætlar
að halda upp á 25 ára afmæli
sitt með hófi £ Sjálfstæðishús-
inu í Vestm. eyjum í kvöld laug
ardag. Aðal hvatamaður að
stofnun deildarinnar var Páll
Bjarnason, skólastjóri.
Deildin hefur imnið mikið
og merkilegt starf í þágu
slysavarna, svo sem með þv£ að
koma upp radiomiðunarstöð í
Vestmannaeyjum, byggja skip-
brotsmannaskýli á Faxaskeri og
leggja mikið fé aí mörkum til
Slysavarnafélags íslands og þar
með styrkja slysavarnir alsstað-
ar á landinu. eins og markmið
félagsskaparins er. Formaður
Eykindils er frú Sigríður Magn-
úsdóttir, gjaldkeri, Katrín Árna-
dóttir og ritari, Kristjana Óla-
dóttir.
Einn þátturinn I undirbúnings-
rannsóknum fyrir virkjunarfram
kvæmdir er að afla áreiðanlegra
upplýsinga um vatnsrennsli á
viðkomandi stöðum. Settir eru
upp síritandi vatnshæðarmælar
og með nokkrum nákvæmum
mælingum á straumhraða og
þverskurði árinnar fæst sam-
bandið milli vatnshæðar og
rennslis. Að vetrarlagi, þegar ís
og krap er í ám, getur þessi mæli
aðferð brugðizt.
Einföld aðferð
Á Genfarráðstefnunni 1958 um
friðsamlega hagnýtingu kjam-
orkunnar kom m. a. fram eitt er-
/ dag er
í Stúdenfaráö
kosiðy [1
1 —aíJí A U
í DAG fara fram kosningar til stúdentaráðs. Kosið er
í Háskólanum og hefst kjörfundur kl. 14 og lýkur kl.
20. Stuðningsmenn VÖKU, félags lýðræðissinnaðra
stúdenta, eru hvattir til að kjósa snemma og snúa sér
tii kosningaskrifstofu VÖKU í félagsheimili V.R.,
Vonarstræti 4, símar 19877 og 11779, með upplýsingar
vegna kosninganna.
LISTI VÖKU ER D-LISTINN.
indi um aðferð, til að nota geisla-
virk efni til rennslismælinga.
Höfuðkostur þessarar aðferðar er
fólginn í því, hve einföld hún er
í framkvæmd. Ákveðnu magni af
geislavirku efni er hellt í vatns-
fallið, sem mæla á, og nokkru
neðar, er geislavirka efnið hefur
blandazt vel árvatninu, er mæld
heildargeislavirknin, annaðhvort
með mæli á staðnum eða með því
að taka sýnishorn og mæla þau
síðar. Heildargeislavirknin gefur
til kynna rennslið, hvernig sem
árfarvegurinn og þverskurður
hans er, hvort sem streymið er
lygnt eða með hringiðum. Að-
ferðina má að sjálfsögðu einnig
nota við mælingar á rennsli í
pípum, hvort heldur þær inni-
halda lofttegundir eða vökva.
Fossinn tók litbreytingum
í ágúst sl. voru gerðar í til-
raunaskyni rennslismælingar
með geislavirkum efnum, og til
samanburðar voru notaðar
straumhraðamælingar. Tilraunin
fór fram við Seljalandsá undir
Eyjafjöllum. Um 100 m fyrir of-
an Seljalandsfoss var geislavirku
joði — 131 — hellt í ána, og um
vita hér um bil hvenær geisla-
50 m neðan vegarins voru tekin
sýnishom á flöskur. Til þess að
virka efnið færi framhjá hafði
áður verið fimdinn tíminn, sem
litarefni var að berast sömu leið.
Mjög kröftugt litarefni (kalium
permanganati) var fyrst bland-
að í ána, og gaf það henni sterk-
an, rauðan lit, svo að jafnvel
fossinn tók einnig litbreytingum.
Geisluvirku vatnssýnishornin
voru mæld í Eðlisfræðistofnun
Háskólans. Báðar mæliaðferð-
irnar, þ. e. straumhraðamæling-
in, sem framkvæmd var af
Vatnamælingadeild Raforku-
málastjórnarinnar, og geislunar-
mælingin gáfu sömu niðurstöður.
Mun Vatnamælingadeildin vænt
anlega taka upp þessa nýju að-
ferð við rennslismælingar að
vetrarlagi.
Eins og áður er sagt, má nota
geislavirk efni til mælinga á
rennsli í pípum. í ágúst sl. var
einnig framkvæmd ein slik til-
raun til reynslu. Blandað var ör-
litlu af joði-131 í 28 tommu
leiðslu frá Gvendarbrunnum og
geislunin mæld nokkru neðar og
fékkst þannig rennslið.
Til skýringar skal þess getið, að
geislamagnið, sem sett var í vatn
ið, var svo lítið, að það --var al-
gjörlega óskaðlegt, og getur auk
þess ekki safnazt fyrir, því að
það eyðist um helming á hverj-
um átta dögum.
Kynþáttastríðið
NEW YORK, 30. okt. — Noregur,
Danmörk, fsland og Svíþjóð hafa
í sameiningu og ásamt nokkrum
öðrum ríkjum komið fram með
áiyktunartillögu þar sem afstaða
S.-Afríkustjórnar £ kynþáttamál
inu er hörmuð. en sérnefnd Alls-
herjarþingsins tekur þetta vanda
mál nú til meðferðar.
Þá segir i öðrum fregnum, að
eftirlitsnefnd S. Þ. hafi samþykkt
ályktunartillögu þar sem at-
hygli aðildarríkjanna var vakin
á því, að heppilegt gæti reynzt
að leggja deilumál S.-Afríku-
stjórnar og S.-Vestur Afríku fyr-
ir alþjóðadómstól. Munu 52 ríki
hafa greitt tillögunni atkvæði,
en 4 á móti. Fulltrúar 17 ríkja
sátu hjá.
Til Longholts-
solnoðar
ÞAÐ eru mörg erfið handtök og
margs konar viðleitni huga og
handar, sem liggja að baki kirkju
byggingum og safnaðaruppbygg-
ingu í Reykjavík nútimans.
Skyldu annars nokkra aðra en
þá, sem reyna að renna grun í
hvílíkt starf það er, að koma
upp kirkjum, sem kosta milljónir
með öllum búnaði, aðeins af fórn-
um og áhuga örfárra einstaklinga
ásamt stuðningi frá bæjarsjóði,
þegar gömul og gróin samtök
og söfnuðir gera lítið betur en
standa upprétt undir reksturs
kostnaði sinna kirkna.
Þetta gerist nú samt og finnst
víst fáum nema sjálfsagt að njóta
kirkjubygginganna og þess
starfs, sem í þeim er unnið. þótt
hinum sömu detti vart í hug að
fórna miklu til þeirra.
Kvenfélög safnaðanna vinna
yfirleitt betur en nokkur önnur
samtök að því að koma upp kirkj
um og gera þær þannig úr garði
að heiður þyki að í smáu og stóru.
Eitt slíkra félaga er Kvenfélag
Langholtssafnaðar. Hefur það allt
frá stofnun unnið gott og fórn-
fúst starf að framförum hins
unga safnaðar í Voga og Lang-
holtshverfi. Má sannarlega meta
slíkt vérk með því að efla félagið
til framkvæmda eftir föngum.
Mætti segja, að margar hendur
ynni létt verk, ef safnaðarfólk
tæki sig saman um að styðja við-
leitni kvenfélagsins í þessu menn-
ingarmáli hverfisins.
Um þessa helgi verður hin ár-
lega merkjasala kvenfélagsins í
sókninni og heiti ég á alla að
taka vel á móti þeim, sem selja
og láta sjá, að hér sé vakandi
áhugi og skilningur fyrir þeirri
stofnun, sem Langholtskirkja
ásamt viðbyggðu félagsheimili
hlýtur að verða öllum þeim, sem
hér munu búa um langa frarn-
i tíð. Árelíus Níelsson.