Morgunblaðið - 31.10.1959, Síða 20
VEÐRIÐ
SV kaldi — Skúrir.
Samtal
við Friðrik Ólafsson. Sjá bls 18.
Laugardagur 31. október 1959
Snarráður maður
kom í veg fyrir slys
UM fjögur leytið i gser bjargaði
snarráður maður maður barni frá
limlestingu eða dauða á Rauðar-
árstígnum. Þetta atvikaðist þann-
ig, að maðurinn, Agnar Einars-
son, sýningarstjóri hjá Stjörnu-
bíói var á gangi eftir Rauðarár-
stígnum og var kominn að bið-
stöð strætisvagnanna við Rauðar-
árstíg, er lítill drengur á áttunda
ári, kom hlaupandi eftir gangstétt
arbrúninni, án þess að lí^a til
vinstri eða hægri, og skall á Agn-
ar með þeim afleiðingum að hann
féll á götuna, rétt í þann mund,
að strætisvagn bar þar að. Lenti
drengurinn undir vagninum milli
fram og aftur hjólanna. Agnari
Varðukaffi
ValhöII í dag
S STJÖRN Landsmálafélagsms
• Varðar hefur ákveðið, að
j Varðarkaffið hefjist að nýju S
S að loknu sumarhléi og verður ■
S
3—5 S
s
s
j fyrsta Varðarkaffi að þessu
i sinni í Valhöll í dag kl.
S s.d.
j Fyrir tæpum þremur árum ,
^ tók stjórn Varðar upp þá ný- s
S breytni í félagsstarfinu að )
S gefa Varðarfélögum og öðru '
■ Sjálfstæðisfólki kost á því aff s
S koma saman á laugardögum )
S til síðdegiskaffidrykkju í fé- •
} Iagsheimili Sjálfstæðismanna s
| Valhöll. s
S Tilgangurinn með þessari ■
) starfsemi er að gefa mönnum s
S tækifæri til þess að hittast til S
S nánari kynna og viðræðna um ■
J sameiginleg áhugamál. s
( Varðarkaffið er nú orðinn S
S vinsæll Iiður í félagssarfi |
$ Varðar og vill stjórn félags- ■
S ins eindregið hvetja Varðar- s
i félaga og annað Sjálfstæðis- S
^ fólk til að mæta.
S Einhverjir af forustumönn- (
) um Sjálfstæðisflokksins munu S
i mæta í Varðarkaffinu hverju ■
S sinni. s
í S
tókst á síðustu stundu að þrifa
drenginn upp af götunni, áður en
afturhjólin færu yfir hann.
Drengnum varð ekki meint af
fallinu og tók sér far með sama
strætisvagni heim til sín.
Stöðuveitingin
vakti enga furðu
f TILEFNI af grein í Morgun-
blaðinu 30. okt. varðandi veit-
ingu póstmeistaraembættisins í
Reykjavík. Vill stjórn P.F.Í. taka
fram eftirfarandi:
Umrædd stöðuveiting hefur
ekki vakið neina furðu innan
póstmannastéttarinnar eins og
umrædd grein gefur til kynna.
Hinn nýskipaði póstmeistari hef-
ur unnið manna mest að málefn-
um póstmannastéttarinnar og
stofnunarinnar, og hyggur Póst-
mannafélagið því gott til sam-
starfs við hann.
Allir umsækjendurnir eru starfs
menn í P.F.f. og eiga langan og
víðtækan starfsaldur að baki.
(Frá Póstmannafélaginu).
Þessi mynd er af togaranum Vetti frá Eiskifirði, sem strandaði við Nýfundnaland á dögunum._
Vötfur skemmdist mikiö
Stöðvaði allar skipaferðir um hafnar-
mynnið í heilan sólarhring
EINS og frá var skýrt í Mbl.
í gær, strandaði togarinn
Vöttur frá Eskifirði fyrir ut-
an St. Johns á Nýfundnalandi
fyrr í vikunni. — Nánari
fregnir hafa nú borizt af þess-
400 þús. kr. komu inn
fyrir landhelgismerki
í GÆR átti Mbl. tal við Lúðvík^
Guðmundsson, framkvæmda-
stjóra samtakanna „Friðun miða
— Franatíð lands“ og spurði hann
frétta af merkjasölunni kosn-
ingadagana.
Skýrði Lúðvík svo frá, að þeg
ar væri fengin vissa fyrir því.
að selzt hefðu merki fyrir rúm-
lega 400 þúsund kr. Enn vantaði
þó skilagrein frá allmörgum stöð
um og mætti því búast við því,
að þessi upphæð ykist talsvert.
Lúðvík Guðmundsson kvað
það hafa verið áberandi hve
áhugi manna fyrir þessu hefði
verið mikill úti á landsbyggðinni.
Balletflokkurmn
kernur í dag
BANDARÍSKI ballettflokkur-
inn kemur til Reykjavíkur í dag
um kl. 4 síðdegis með Constell-
ation flugvél frá hollenzka flug-
félaginu KLM. Kemur flokkur-
inn beint frá Lissabon, en allur
farangur hans mun hafa komið
til Keflavíkur í gær með banda
rískri herflugvél.
Vatnið í stóru holunni getur
hitað upp híbýli 1500 manna
ENN er unnið við stóru borhol-
una við Nóatún, og er rennsli
hennar nú rúmir 6 lítrar á sek.
af um 147 stiga heitu vatni, þar
sem vatnið kemur inn í hana,
en hitastigið verður tæplega
Óformlegar viðrœður
við formenn flokka
EINS og skýrt var frá hér í
blaðinu í gær eru enn engar
viðræður hafnar um væntan-
lega stjórnarmyndun.
Mbl. frétti hins vegar, að
forseti íslands hafi undan-
farna daga átt óformlegar við
ræður við formenn flokka um
viðhorfin að kosningum Iokn-
um og í samtali við blaðið í
gær, staðfesti forsetaritari, að
þetta væri rétt.
Forsetaritari tók aftur á
móti fram, að að sjálfsögðu
mundi forseti Islands ekki
hlutast til um stjórnarmynd-
un fyrr en núverandi ríkis-
stjórn hefði sagt af sér.
hærra en 140 stig, þegar vatnið
er komið upp úr holunni, að því
er Gunnar Böðvarsson skýrði
blaðinu frá í gær. Sagði Gunnar,
að vatnið í holunni ætti sam-
kvæmt útreikningi að nægja til
að hita upp híbýli 1500 manna,
eða til að hita upp 150 hús af
venjulegri stærð. Holan er 2200
metra djúp, og mun vera dýpsta
hola í heimi, og hitastig vatnsins
er það hæsta, sem fengizt hefur
hér á landi. Ekki hefur verið
kostur á að mæla allar holurnar,
sem stóri borinn hefur borað
vegna þess, að engin ræsi eru á
milli holanna. En af þeim ár-
angri, sem náðst hefur með stóru
holuna, er augljóst, sagði Gunn-
ar Böðvarsson að lokum, að hægt
er að sækja heita vatnið miklu
dýpra en áður hefur verið gert.
um atburði. Skipið var á leið
út úr höfninni sl. þriðjudags-
kvöld, er það strandaði á
grynningum, svonefndum
„Pancake Rock“, rétt innan
við hafnarmynnið. Orsök ó-
happsins mun hafa verið bil-
un á stýrisútbúnaði, en mikil
þoka var á og þungur sjór, er
þetta gerðist.
* Á FLOT AF SJÁLFSDÁÐUM
Það var ekki fyrr en undir
kvöld á miðvikudag, að Vöttur
komst aftur á flot — fyrir eigin
vélarafli. Hafði hann þá lokað
höfninni í St. Johns í nær sólar-
hring, en, eins og fyrr segir,
strandaði skipið rétt við innsigl-
inguna, og þar sem hún er frem-
ur þröng, þótti ekki þorandi að
önnur skip færu þar um, á með-
an Vöttur var á strandstaðnum.
Á skipinu var 32 manna
áhöfn, og voru sumir þeirra flutt
ir í land fljótlega, en nokkrir
voru áfram um borð til þess að
undirbúa að koma skipinu á flot
aftur á háflóði. Skip voru til
taks í grenndinni, ef á þyrfti að
halda. Allir eru skipsmenn heilir
á húfi og ómeiddir. — Vöttur var
tekinn upp í slipp þegar á mið-
vikudagskvöld til þess að rann-
saka skemmdirnar, sem eru all-
miklar. Mikill hluti botnsins er
mjög dældaðúr, og einnig lösk-
uðust skutur og stýri mjög. —
Er athugun hafði farið fram á
skemmdunum, var Vöttur tek-
inn úr dráttarbrautinni, en mun
verða tekinn upp aftur í næstu
viku til viðgerðar.
★ ÓHEPPNIN ELTIR
Fréttamaður blaðsins vestra
átti í gær tal við einn af áhöfn
Vattar, Árna Pétursson, og lýsti
hann því, hvernig óheppnin
hefði elt skipið í þessari veiði-
för, allt frá því að siglt var frá
Hafnarfirði: — Skömmu eftir að
við létum úr höfn, urðum við að
snúa við aftur vegna óhapps,
sagði hann. — Við reyndum aft-
ur, en eftir að við höfðum verið
aðeins skamma stund á veiðum,
brotnaði togvindan. Er við höfð-
um fengið viðgerð á henni hér,
fréttum við að afli væri góður
og létum þá úr höfn — en strönd-
uðum þá áður en við komumst
út úr höfninni. Við höfðum að-
eins veitt þrjár lestir af fiski.
Síðan lýsir Árni því, hvemig
strandið varð, kl. 7 síðdegis á
þriðjudag. — Við höfðum hafn-
sögumann um borð, en skipið lét
ekki að stjórn — og skyndilega
rakst kinnungur þess á skerið.
Síðan sneri vindurinn því, svo
að skuturinn rakst einnig á —
og við sátum fastir á skerinu. —
Tveir dráttarbátar komu til hjálp
ar en dráttartaugarnar brustu og
skipið sat jafnfast og áður. Þá
voru 14 af áhöfninni sendir í
land og síðan reynt að ná Vetti
út aftur, en ekkert gekk. Að vísu
losnaði skipið að framan, en sat
fast að aftan eftir sem áður. —
Var þá öll skipshöfnin flutt frá
borði, nema skipstjórinn og loft-
skeytamaðurinn — og auk þess
var hafnsögumaðurinn áfram
um borð. — Tókst Vetti þá, á há-
flóði á miðvikudaginn, að losna
af skerinu fyrir eigin vélarafli.
Blíðviðri
við Eyjafjörð
DALVÍK, 30. okt. — Blíðviðri var
hér í dag, sólskin og sunnanand'-
vari með 14 stiga hita. Hefur tíð-
arfarið verið óvenjulega milt í
allt haust, aðeins gránað í fjöll
tvisvar sinnum, og .svo stillt til
sjávarins að um mánaðarskeið
varð aldrei landlega, vegna veð-
urs, en afli hefur jafnan verið
tregur, 6—8 skippund í róðri á
línubátum.
Löndun í
Grimsby gekk
órekstralaust
30. okt Einka- s
til Mbl. — Landaff var )
dag um 50 lestum af s
togskipinu S
— og
GRIMSBY.
( skeyti
S hér í
) fiski úr íslenzka
S Steingrími trölla — og gekk)
S löndunin greifflega og á- ^
) rekstralaust. Seldist afli skips s
\ ins fyryir 3.410 sterlingspund. )
S Brezkir skipstjórar höfffu \
) hótaff verkfalli, ef haldið væri s
| áfram að landa úr íslenzkum )
j skipum í brezkum höfnum, en ■
S ekkert hefir frekar gerzt í því s
) máli. — Eftir aff Steingrímur )
; trölli hafffi selt afla sinn, lét)
S Þórarinn Olgeirsson, vara- (
) ræffismaffur svo um mælt, aff s
| íslendingarnir væru ánægðir )
S meff söluna — og „meff til- ^
) liti til allra affstæffna hér, virff s
\ ist ástæffa til aff vona, aff ís- )
S lenzk skip geti haldið áfram
; aff selja afla sinn hér, án þess {
■' aff til frekari árekstra komi“, )
S bætti hann við. ^