Morgunblaðið - 08.11.1959, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 08.11.1959, Blaðsíða 1
24 sldur og * esbók 46. árgangut 249. tbl. — Sunnudagur 8. nóvember 1959 Prentsmiðja Morgunblaðsins Kvei kt undir stál- bræðsium á ný WASHINGTON, 7. nóvember: — Hæstiréttur Bandaríkjaima úr- skurðaði í dag, að stáliðnaðar- verkamenn skyldu hverfa aftur til vinnu í 80 daga — á meðan reynt yrði að leysa deilur verka- manna og atvinnurekenda. Hæsti réttur tók málið til meðferðar samkvæmt beiðni Eisenhower forseta, sem notfærði sér sér- staka lagaheimild til þess að fá bráðabirgðalausn á þessari deilu. Verkfallið hefur nú staðið 160 daga og hefur atvinnurekstur nú stöðvazt í mörgum iðngreinum. Leiðtogi verkfallsmanna, Mac Donald, sagði eftir að Hæstirétt- ur hafði kveðið upp úrskurðinn, að hann mundi hvetja menn sína til þess að fara til vinnu þegar í stað. Stálskortur er nú orðinn tilfinn anlegur í bandarískum iðnaði og hafa sumar verksmiðjur flutt stál frá útlöndum til þess að þurfa ekki að stöðva atvinnurekstur- inn. En alllangan tíma tekur að koma stálbræðslunum í gang, ofnarnir eru lengi að hitna aftur — og bræðslan kemst ekki í eðli- legt horf fyrr en eftir langan tíma. Mikið um dýrðir í Moskvu MOSKVU, 7. nóvember: — Mikið var um dýrðir í Moskvu í dag. Minnzt var 42. afmælis nóvem- berbyltingarinnar með skrúð- göngum og hersýningu á Rauða torginu að vanda að æðstu leið- togum Ráðstjórnarinnar og full- trúum leppstjórnanna viðstödd- um. Það vakti athygli, að her- sýningin var með minnsta móti. Aðallega var lögð áherzla á tæknileg afrek Rússa og mikið af alls kyns eldflauga og tungl- líkönum var borið í skrúðgöng- unni, sem var svo löng, að það tók hana hálfa þriðju stund að ganga framhjá heiðursgestunum. Malinoskvy, varnarmálaráð- herra, flutti ræðu dagsins og hlóð miklu lofi á Krúsjeff, en sagði auk þess, að Rússar mundu ekki draga úr herstyrk sínum á með- an ástandið í heiminum væri ekki tryggara en það er nú. T ómasar-guðspjalT' SAGAN af hinu svonefnda „Tómasar-guðspjalli“ birt- ist í blaðinu í dag á bls. 10. Handritið er í 13 bind- um og sést eitt bindanna hér á myndinni. Fundur þeirra er einn hinn merki- legasti atburður í biblíu- rannsóknum um margra alda skeið og varpar hann á ýmsan hátt nýju Ijósi yf- ir Nýja testamentið. Handritin fundust í árs- lok 1945 í rústum klaust- ursins Nag Hamadi í Eg- yptalandi. En langur tími leið, þar til mönnum varð ljós þýðing þeirra. í fyrstu Kjærböl-málið dregst á langinn: Nörgaard veðurtepptur í Crœnlandi KAUPMANNAHÖFN, 7. nóv. — Allt bendir til þess að fresta verði umræðu danska þingsins um Kjærböl-málið til nóvember- loka .Fyrir þinginu liggur til- laga um að ríkisréttur taki mál Kjærböls til meðferðar, en dóm- aranefndin hefur enn ekki skil- að niðurstöðum. Auk þess eru þrír stjórnmálamenn, sem verða að vera viðstaddir umræðurnar, á leið til Bandaríkjanna til þess að sitja NATO-ráðstefnu — og þeir munu ekki væntanlegir heim fyrr en 24. nóvember, svo að líklega aðhefst þingið ekkert fyrr. Þremenningamir eru Ninn- Hansen, íhaldsmaður, . Per Hækkerup, jafnaðarmaður og I. M. Pedersen úr Réttarsam- bandinu. Eitt þeirra vitna, sem ekki hafa verið yfirheyrð, en leiða e. t. v. eitthvað nýtt í Ijós, er veðurteppt í Grænlandi. Það er Ole Nörgaard, sem var fulltrúi Kjærböls í ráðherratíð hans, þeg- ar Grænlandsmálin voru efst á baugi. Þess hafði verið vænzt, að Nörgaard kæmi til Kaupmanna- hafnar með flugvél SAS á föstu- daginn, en svo varð ekki. SAS- vélin var á leið frá Los Angeles til Kaupmannahafnar, en átti ekki að koma við í Straumfirði. Fyrir tilmæli dönsku stjórnar- innar var flugvélinni snúið til Straumfjarðar og lent þar. — Nörgaard, sem starfar í Godt- haab, átti þá að vera mættur í Straumfirði, en svo var ekki, því slæmt veður hafði tafið för hans frá Godthaab. Hélt flugvél- in því áfram án Nörgaards. Ekki er enn ákveðið hvaða farkostur flytja á Nörgaard til Hafnar. Flugvélar SAS á leið til Los Angeles lenda yfirleitt ekki í Straumfirði nema á vesturleið — og þykir sennilegt ,að hann verði að fara með flugyél til Los Angeles til þess að komast heim. Viðrœður um stjórnar- myndun haldið áfram S V O sem ráðgert hafði verið hélt þingflokkur Sjálfstæðismanna fund í gær og voru flestir hinna nýkjörnu þingmanna þar saman komnir. Bjarni Benediktsson var endur- kjörinn formaður þing- flokksins og rætt var um stjórnmálaviðhorfið og möguleika á stjórnarmynd- un.— Siðar í gærdag komu full- trúar Sjálfstæðismanna og Alþýðuflokks saman til viðræðna og verður þeim haldið áfram eftir helgina. Kassem undirbýr píla- arímsror a® ®eta >nnan skamms farið í ■7 * pilagrimsferð til Hedjaz, en í þvi _ , . „ héraði Saudi-Arabíu er Mecca BAGDAD, 7. november. — Kass- em, forsætisráðherra Iraks, „ S ’ . , . _ . .. , ’ Kassem er enn í sjukrahusi sagð. t dag, að hann vænt. þess efUr likamsá?ásinaj en er óðum að hressast. í Bagdad eru nú í undirbúningi mikil hátíðahöld til heiðurs Kassem, þegar hann losn- ar úr sjúkrahúsinu. Kassem sagði blaðamanninum í dag, að hann hefði ekki enn látið fullnægja dauðadóminum yfír byltingarfélaga sínum Abdel Salem Arif, sem sakaður var um að hafa undirbúið banatilræðið við Kassem. Arif er enn í fangelsi og sagði Kassem, að dregizt hefði að stytta manninum aldur vegna þess, að hann hefði verið náinn samverka maður í byltingunni og átt sinn stóra þátt í því að hann sjálfur, Kassem, náði völdum. Gronchi til Moskvu ROM, 7. nóv. — Gronchi, Italíu- forseti, fer í opinbera heimsókn til Rússlands í boði Krúsjeffs í janúarmánuði næstkomandi. Frá þessu var skýrt að loknum fundi ítölsku stjórnarinnar, sem stóð í hálfa fjórðu klukkustund. Ekki er endanlega ákveðið hvaða dag Gronchi fer austur til Moskvu, en sennilega verður það einhvern fyrstu dagana í janúar. A það er bent í fréttinni, að Eisenhower muni ræða við Gronchi í Róma- borg fyrst í desember. keypti grískúr kaupmaður handritin a£ egypzkum bændum, sem fundu þau, en seldi þau síðan egypzku stjórninni, sem lagði þau á koptískt safn í Kaíró. Þar hefðu handritin feng ið að liggja ókönnuð ef tveir evrópskir fræðimenn, Hollendingurinn Gilles Quispel og Frakkinn Henri Puech hefðu ekki komið inn í safnið haustið 1956 um sama leyti og árásin á Súez stóð yfir og farið að grúska þar í ýmsum skjöl- um. Þeir fengu að líta á þessi gömlu handrit og allt í einu rann upp ljós fyrir þeim. Hér var ný heimild að lífi og starfi Jesú Krist, sem var upprunaleg, eins og hin fjögur guðspjöll kirkjunnar, en hafði runn- ið eftir öðrum farvegi. Handritin eru ekki „guð- spjall“ í eiginlegri merk- ingu, en ganga þó undir heitinu „Tómasar-guð- spjall“. Þau eru sprottin frá frumkristninni, frá kristnum Gyðingum, sem einangruðust frá kristnum söfnuðum í Rómaveldi. Þau geyma 114 ummæli og sögur af Kristi. Frakkar neituðu um vopn KAIRO, 7. nóv. — Eitt Kairoblað- anna greinir svo frá, að de Gaulle hafi nýlega vísað á bug tilmælum fsraelsstjórnar um að Frakkar létu fsrael í té vopn. Sagði blað- ið, að Ben Gurion hefði látið hafa það eftir sér, að Alsírstyrjöldin ynnist ekki í Alsír, heldur Kairo. Þess vegna væri það hagur Frakka að vopna ísraelsmenn, sem væru reiðubúnir til þess að leggja út í styrjöld við Arabíska sambándslýðveldið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.