Morgunblaðið - 08.11.1959, Síða 17

Morgunblaðið - 08.11.1959, Síða 17
Sunnudagur 8. nðv. 1959 MÖRGUNBLAÐIÐ 17 In memoriam: Dr. Heinz Edelstein DR. HEINZ EDELSTEIN andað- ist aðfaranótt 5. okt. í Odenwald skóla skammt frá Frankfurt am Main, en þar hafði hann stundað kennslustörf undanfarin ár. Þar er Kurt Zier skólastjóri, en hann var hér kennari við Handíðaskól ann um skeið, og er mörgum að góðu kunnur. Dr. Edelstein hafði um lengri tíma kennt sjúkdóms þess er leiddi hann loks til bana, en það var hjartabilun. Fjöldi íslend- inga kannast við dr. Edelstein. Hann kom hingað til lands árið 1937 og var ráðinn kennari í cellóleik við Tónlistarskólann og fyrsti cellóleikari Sinfóníuhljóm sveitarinnar. Brátt kom í ljós, að dr. Edelstein var um margt maður sérstæður fyrir sakir mannkosta og gáfna. Ekki kann ég að rekja ætt hans eða upp- runa á íslenzka ættartöluvísu, ekki heldur námsferil hans eða starfsferil áður en hann kom til íslands. Hann var gyðingaættar, og mun ekki ofsagt, að hann hafi búið yfir flestum þeim góðu kostum, sem kynflokk hans hef- ur prýtt, og gefið hefur honum hinn ótrúlega mikla viðnáms- þrótt og baráttukjark og þol- gæði í öllum þeim þjáningum og raunum sem yfir hann hafa dunið öldum saman. í starfi sínu var dr. Edelstein heill og óskiptur. Bæði sem cellóleikari og síðar sem músík- kennari unglinga, sýndi hann brennandi áhuga, sem nálgaðist „fanatisma“. Hann hafði ákveðn ar skoðanir á hlutunum og hélt þeim fram af einbeittni og djörf ung. Hann bjó yfir sterkri skap höfn og var hinn vandaðasti til orðs og æðis og háttprúðari mann hef ég varla þekkt. Það var gaman að ræða um tónlistarmálin við dr. Edelstein. Hann bar tónlistina á fslandi mjög fyrir brjósti, og vildi vera einn af brautryðjendunum við uppbyggingu tónlistarlífsins hér, en það má með sanni segja að öll músíkstarfsemi hér hafi til þessa dags verið brautryðjenda starfsemi — og mun enn um Nýjasta gerð, til sölu. Uppl. í síma 10592 frá kl. 2—5 í dag. lengri tíma verða svo að íslenzk ir tónlistarmenn verða að búa í haginn fyrir komandi kynslóðir. Slík störf eru að vísu lýjandi og tærandi, en oft skemratileg og ávallt gagnleg, og það vissi dr. Edelstein manna bezt, og hann var fæddur uppalari hinna ungu á þessu sviði. Mikið hefur þegar áunnizt, og ber að þakka þeim mörgu sem lagt hafa riönd á plóginn. Meðal þeirra má minn ast margra úrvalskennara er- lendra, sem hér hafa dvalið, og þá ekki síst dr. Edelsteins, sem orðinn var íslenzkur ríkisborg- ari og hugðist að dvelja hér ævi- langt. En vanheilsa olli því að hann varð að lokum að leita til suðrænni landa. Fáa útlendinga hef ég fyrir hitt, sem voru eins einlægir í hrifningu sinni yfir íslenkri nátt úrufegurð og dr. Edelstein. Hann lagði land undir fót í bókstaf- legri merkingu og dvaldi lang- dvölum í óbyggðum landsins og kannaði flestar byggðir þess. Að heyra hann tala um og lýsa úti- legum sínum var að hlusta á ævintýri, og tignarlegt bros færð ist up ásjónu hans er hann lýsti sumarnóttinni íslenzku eða lita- gliti fjallanna og fjörlegum bláma þeirra. Ég hygg að dr. Edelstein hafi hvergi unað betur en hér. Hann skrapp hingað í hitteðfyrra frá Þýzkalandi og sagðist hafa haft svo mikla þörf fyrir að „koma heim“ aftur, og þá var efst í huga hans að koma alkominn aftur. Loks ákvað hann þó að fara til Israels — til fyrirheitna landsins. En þá bar dauðan skyndilega að garði, og hann hné í valinn, aðeins 57 ára gam- all og þar með hvarf eðalborinn tónlistarmaður af sviðinu. Við íslendingar höfum ástæðu til að sakna vinar í stað. Dr. Edelstein mun lifa í minningu þeirra sem hann þekktu bezt, sem einn hinn bezti maður sem unnið hefur að tónlistarmálum okkar. Við minnumst hans ævin- lega með þakklæti og virðingu. Páll ísólfsson. — Sköpunarsaga Framh. af bls. 8 á ríkum mæli ofurdramb fátækt- arinnar, sem er á verði gegn hvers konar móðgunum. Hann er jafnvel rekinn af Vífilsstaðahælí vegna virðingarleysis við yfir- boðarana og raunar er það móti öllum skynsamlegum líkum, að þessi ungi maður, sem lifir v< • sáran skort matar, klæða og um- hirðu, verður ekki berklaveiki.'ni að bráð.Sjálfstmetnaðurinn ogtrú in á lífshlutverk sitt hefur veitt honum það viðnámsþrek, sem gerði gæfumuninn. ★ Kynslóð okkar Kristmanns Guðmundssonar á sér sögu, sem ekki mun endurtakast, þá að lifa bernsku sína í miðaldaumhverfi, fullorðinsárin í umróti byltinga og styrjalda og elliárin á öld kjarnorku og geimfara. Það fór að vonum, að þessari kynslóð gengi misjafnlega að halda sálar- legu jafnvægi á hinni flughröðu fótskriðu milli alda og umhverfa, Meðal' bohéme-lýðs hennar á þriðja áratugi aldarinnar á Krist- mann þá sérstöðu, að hann var alltaf einfari, nema þann stutta tíma, sem hann var í Áhugaliði Ólafs Friðrikssonar og bætti því þar við lífsreynslu sína að verða handjárnaður af lögreglunr.i. Þessi drengur, sem fór á mis við blíðu í bernsku og naut ekki ski n ings og samúðar nema hjá afa sínum, sem hann missti ungur, heyrði fátt gott um föður siim og átti sér enga móður nema ó- ljósa veru á öðru landshorni, vinnur það sér til lífs að einang 'a sjáL„u sig, bindast engum trún- aðarböndum við aðra, afsala hvorki einum né neinum nokkr- um nluta af sjálfum sér. Honu i býður við kossum móður sinnar, þegar hann hittir hana loksins, og hann er svo ndi og feim- inn við stúlkuna, sem hann elsk- ar heitast, að hún yfirgefur hann og kastar sér í hálfkæringi í arma annars manns. En þrátt lyrir alit þetta er æskusaga skáldsins engin raunasaga, enda laus við allt víl, því að hann á sér óðal, sem ekki er af þessum heimi, trú á sjálfan sig, á köllun sína og á hulin mátt- arvöld, sem halda yfir honum hlífiskildi. Á hugleiðslustundum finnur hann í skjóli sinnar tignu Hósgagnasmiðii — Húsasmiðii Okkur vantar nokkra smiði strax. Trésmiðjan hf. Brautarholti 30 — Sími 16689 og 33113 Sölubörn óskast til að selja merki Blindrafélagsins í dag Merkjaafgreiðslur eru: Melaskóla, Drafnarborg, Austurbæjarskólanum, Rauðarárstíg 3 (uppi), Laugarnesskóla, Holtsapóteki, Réttarholti við Soga- veg, Eskihlíðarskóla, Hrafnistu og á Grundarstíg 11. Komið sem allra flest. Góð sölulaun. Afgreiðslu- staðir opnaðir kl. 10 árdegis. BLINDRAFÉLAGIÐ Staða aðsto&armanns á Veðurstofunni á Keflavíkurflugvelli er laus til um- sóknar. Laun samkvæmt launalögum, að námstíma loknum. Umsækjandi þarf að vera 20—26 ára, og hafa gagnfræðapróf eða hliðstæða menntun. Vottorð er sýni að umsækjandi sé heilsuhraustur og hafi góða sjón og heyrn þurfa að fylgja nmsóknum. Umsóknir skal senda til Veðurstofunnar á Keflavík- urflugvelli, Pósthólf 25, eða Veðurstofunnar í Reykja vík, Pósthólf 788, eigi síðar en 21. þ.m. Fóstru, að allt mótlæti er létt á metunum, og nann á sér heilladis, Konuna í ljósa kyrtlinum, sem honum finnst stundum hann verða þar. Raunabót sjálfsblekk- ingarinnar, segja efasemdamenn- irnir, en hvað um það, einfarinn varð ekki úti á þeirri Heljardals- heiði, sem vandræðabömin verða að feta á leið sinni milli bernsku og fullorðinsára. Vandræðabam er hann þessi duli, tortryggni og uppreisnar- gjarni drengur, en ættarmergur- inn í honum er svo heilbrigður, uppeldisáhrifin svo kjarngóö, þrátt fyrir allt, og stoltið, sem hann brynjar örbirgð sína og eu>.- stæðingsskap með, svo traust, a i hann gengur hvorki Bakkusi á hönd sem gustukamaður né hleð- ur múr haturs milli sín og þjóð- félagsins, en þetta hvort tveggja hefur oft orðið lilutskipti ístöðu- minni skálda. í bei usku var hann sviptur þeim rétti, sem hver mað- ur er borinn til, en það er að njóta móðurástar. Hann bætir sér upp þann skort með því að hafa konuna og ást hennar sen. uppi- stöðu í skáldsögum sínum, en hann hefnir sín líka á henni með því að gera strandhögg á fjörum hennar í austri og vestri og vinda síðan upp segl. Nú hefur þessi duli og fráhverfi drengur ort sig i sátt við örlög'a, tekið lesendur sína í trúnað við sig og opnað þeim ævintýraheim bernsku sinnar og æsku. Það er fágætt og furðulegt að kynnast sögu og sálarlífi slíkra æsku- manna innan frá og því mun Isold hin svarta verða ein af þeim ör- fáu bókum, sem lengi eru lesnar. STBEININ gabok m ÞA SEM VEROA A9 GREHNáST UKA FYRIR ÞA SEM. YILJA FITNA Ný sending amerískii tækifæriskjólar Bókin sem margir hafa beðið eftir: jistin að grenna sig‘ Þér getið auðveldlega létzt um 10, 20, 30 pund eða meira? Þessi nýja aðferð hæf- ir bæði körlum og kon- um. Verð bókarinnar er Kr. 25.00. Sendum hvert á land sem er gegn póstkröfu Réttvægi Pósthólf 1115 Reykjavik Þessir vinsælu plötuspilarar fást hjá okkur Verð kr. 970,- Sendum í kröfu um land allt. Radíóbúðin Veltusundi 1 — Sími 19-800

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.