Morgunblaðið - 31.12.1959, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 31.12.1959, Blaðsíða 2
MORCVNUL4ÐIÐ Fxmmfudagur 31. des. 1959 Hluti KennaraskóSans nýja kominn undir þak UM ÞESSI áramót á Kenn- araskóli íslands þeim merka áfanga sögu sinnar að fagna, að fyrsti hluti nýrra húsa- kynna hans er kominn und- ir þak. Kennaraskólinn var stofnaður eftir setningu hinna fyrstu al- mennu fræðslulaga 1907. Hús var reist á skömmum tíma, og þar tók skólinn til starfa þegar haust- ið 1908, settur í fyrsta sinn 1. okt. það ár. Húsnæði þetta er fyrir löngu orðið gersamlega úrelt og ófull- nægjandi, þótt með stórhug og dugnaði væri reist í öndverðu, enda hefur skólinn orðið að taka annað húsnæði á leigu um langt skeið, jafnvel á mörgum stöð- um. Fyrsti áfangi hins nýja skóla- húss er nú kominn undir þak, og var blaðamönnum boðið að skoða bygginguna í gær. — Er hún þegar orðin hin reisulegasta. Flatarmál er 874 fermetrar og Velti stolnum bíl Á ANNAN í jólum var stolið bifreið fyrir utan samkomuhúsið í Brautartungu í Lundareykja- dal. Ök þjófurinn, sem var drukkinn, niður eftir veginum og út af við Gullberastaði, sem er næstnæsti bær við Brautartungu, og skemmdist bifreiðin mjög ' mikið. Bifreiðin, Chevrolet sendi- ferðabíll, er eign ljósmóðurinnar í sveitinni. Var innansveitar- skemmtun í Brautartungu þenn- an dag og hafði hún skilið lykil- inn eftir í bílnum þar á hlaðinu. Ekki sást til þjófsins er hann ók burt í bílnum, en hann náðist og hefur sýslumaðurirm í Borgar- nesi yfirheyrt hann. Hin stolna bifreið er nær ónýt, en þjófurinn, sem var einn í biln um er hann valt, mun hafa slopp- ið svo til ómeiddur. rúmmál hennar 10 þús. rúm- metrar. Teikningar hússins hafa verið gerðar á teiknistofu húsameistara ríkisins. Fyrsti áfangi skólans eru þrjú hús af fimm húsa samstæðu, sem mynda eiga kjarna allra bygg- inganna. Einnig er komin álma fyrir skólastjóra, vinnuherbergi kennara o. fl. Kennslustofur verða átta og auk þess verða í þessum áfanga bókasafn, lestrar- og söngsalur o. fl. Húsrými er mjög vel nýtt, að því er virðist, gangar eru fáir, kennslustofur óvenjustórar og bjartar, og af teikningum húss- ins sést, að aðbúnaður allur ætti að geta orðið afar góður. Kostnaður er orðinn rúmlega 6 millj. kr. og áætlað er, að enn þurfi um 9 millj. kr. til að full- gera fyrsta áfanga. Góðir möguleikar eru til stækkunar skólahússins, enda má gera ráð fyrir að nemendafjöldi Kennaraskóla íslands fari sívax- andi á næstu ánim. Hvenær kennsla getur hafizt í hinni nýju byggingu, fer al- gerlega eftir fjárveitingu til hennar. Er það ósk allra, sem hlut eiga að máli, að það dragist ekki úr hömlu. 1837 slys í bæn um SO deild rannsóknarlögreglunn- ar sem fjallar um slys og bíla- árekstra, skýrði Mbl. svo frá í gær, að á því ári, sem nú er senn liðið hafi deildinni borizt til úr- lausnar 1837 mál, á móti 1685 árið 1958. Á árinu hafa 8 manns látið líf- ið í umferðarslysum hér í bæn- um og nágrenni hans. Ölvaðir menn hafa valdið mörgum árekstrum og óhöppum og munu skýrslur m slík afbrot vera milli 40—50. Við athugun á tölu slasaðra kemur í ljós að hún er 216, — fólk á öllum aldri, sem hloið hefir meiri og minni meiðsl af völdum umferðarslys- anna. Góður og jafn afli KEFLAVlK, 30. desember: — Tólf síldarbátar komu inn í dag með 2403 tunnur síldar. Hæstur hringnótabáta var Hrafnkell með 792 tn. Af reknetjabátum var hæstur Gunnar Hámundarson með 250 tn. Afli báanna var yfirleitt góð- ur og jafn. — Helgi S. Áfengi seldist í gœr fyrir 2 millj. kr. Logregluvörður við áfengisúfsölurnar f GÆR var metsöludagur í báð- um vínbúðunum í Reykjavík. — Um þrjú leytið þurfti að fá lög- regluvörð við búðardyrnar, þar eð troðningurinn var orðinn svo mikill, er menn voru að kaupa sér áfengi til að fagna áramótun- um. Á Snorrabrautinni seldist fyrir 1,1 millj. króna, en í Nýborg Lögreglan hundrað Húsmœðui’ athugið ! REYKVlSKAR húsmæður skulu minntar á það að verzlanir loka kl. 12 á hádegi í dag og verða ekkert opnar fyrr en á mánudag- inn. 4. janúar. Mjólkurbúðir verða opnar til kl. 14 í dag en lokaðar á morgun, nýjársdag. Síðustu ferðir strætisvagna í Reykjavík verða kl. 5,30 síðdegis í dag. Þeir hefja ferðir kL 14 á morgun, nýjársdag. tann á 4. kínverja MJÖG hefur þótt á því bera hér í bænum undanfarið, að strákar tækju forskot á gamlárskvöld með púðurkerlingakasti. Tók rannsóknarlögreglan að athuga málið eftir að götulögreglan hafði aflað ýmissa upplýsinga. Leiddi það til þess að piltur var handtekinn, húsleit gerð hjá hon um, sem að vísu bar ekki ár- angur. En í fyrrinótt tókst að fá botn í málið, því lögreglunni var þá gefinn upp felustaður sprengjuefnisins. Var hald lagt á hátt á fjórða hundrað „kínverja“, sem smyglað hafði verið inn til landsins. Hafði pilturinn selt vemlegt magn á 3—8 krónur stykkið. 104 Islendingar fórust af slysförum á árinu BLAÐINU hefur borizt skýrsla Slysavamafélags íslands fyrir árið 1959. Ber hún með sér að mikið mannfall hefur orðið með Islendingum af slysavöldum ýmiss konar. Á árinu hafa 104 menn látið lífið, en í fyrra voru þeir 58. — Hæst er tala þeirra, sem drukkn- að hafa í sjó eða vötnum en þeir eru fimmtíu og níu. I umferðarslysum hafa fjórtán menn beðið bana, þar af urðu tíu fyrir bifreiðum. Sextán menn biðu bana í umferðarslysum 1958. Af ýmsum slysum hafa þrjátíu og einn maður látizt, þar af 7 í flugslysum, 5 af bxruna og 6 menn hafa horfið. Sjúkraflugið Að kvöldi hins 29. des. hafði Björn Pálsson flutt 146 sjúklinga af 54 stöðum á landinu, en auk þess flogið með 11 börn í loft upp vegna kóghósta. Biðu þá þrír sjúklingar flutnings utan af landi til Reykjavíkur og fimm börn með kíghósta eftir flug upp i háloftin. Sjúkraflug Björns Pálssonar hefur vakið athygli víða um heim, og hafa birzt greinar um það í mörgum erlendum blöð- um og tímaritum. Hefur sam- vinna Björns við Slysavarnarfé- lagið verið til mikilla hagsbóta fyrir landsmenn. Tryggvi Helgason, flugmaður, tók á árinu við stjórn nýrrar sjúkraflugrélar fyrir Norður- land. Björgunarstörf Á árinu björguðust 42 menn xir sjávarháska hér við land, þar af 21 í gúmmíbjörgunarbátum. Auk þess veitti Slysavarnafélagið aðstoð við margvísleg björgunar- störf og leitir bæði að skipum og horfnu fólki. Naut þar sem áður margvíslegrar aðstoðar f jöl- margra aðila, innlendra og er- lendra, og biður félagið blaðið að færa öllxxm landsmönnum þakkir fyrir gott samstarf á ár- inu. — Nýja flutningaskipið komið til landsins Skipshöfn, 11 manns, fór utan skömmu áður en skipið var af- hent, en Steinar Kristjánsson skipstjóri og Þórir Kjartansson, vélstjóri, voru komnir þangað áður. Fyrsti stýrimaður er Páll Ragnarsson. Sigldi skipið fyrst með farm til Danmerkur og það- an til Ventspils í Rússlandi, þar sem það tók timbur til nokkurra félagsmanna Verzlanasambands- ins og timburkaupmanna í Reykjavík. Kom það fyrst til Vest mannaeyja og losaði hluta af farminum þar í gær, en er vænt- anlegt til Reykjavíkur í dag. Sennilega fer skipið héðan 4. eða 5. janúar og tekur fiskimjöl á nokkrum höfnum úti á landi. Stjórnarformaður Hafskips h.f. er Helgi Bergsson. Aðrir í stjórn eru Gísli Gíslason stórkaupmaður í Vestmannaeyjum, Ingólfur Jóns son, landbúnaðarráðherra, Axel Kristjánsson, forstjóri, Hafnar- firði, Ólafur Jónsson, forstjóri, Sandgerði. LAXÁ, hið nýja flutningaskip Hafskip h.f., kom til Vestmanna- eyja í fyrrinótt og er væntanlegt til Reykjavíkur í dag. Skipið er 724 tonn d.w. að stærð og er tal- ið mjög vandað og gott sjóskip. Það mun verða í millilandasigl- ingum' aðallega fyrir Verzlana- sambandið, en mun einnig taka annan flutning. Heimahöfn þess er Vestmannaeyjar. Skipið er byggt í Skipasmíða- stöðinni D. W. Krenersohn í Elmshorn, skammt frá Hamborg í Þýzkalandi. Samið var um smíði þess 13. marz 1959 og var það af- hent 10 des. sl. Það er 60 m langt og 9,5 m breitt. Lestarrými er 55 þús. kúbikfet. Aflvél er 750 ha. Dieselvél. Ennfremur eru í því tvær Mannheim Ijósavélar og spil eru vökvadrifin. Skipið er ís- styrkt með tilliti til siglinga um Eystrasalti að vetri til og búið fullkomnustu siglingatækjum. Ganghraði þess í reynzluför var 11,7 sjómílur. S*' NA /5 hnufar >/ 5 V 50 hnufar ¥: Snjókoma y 06 i X7 Skúrír K Þrumur w*%, Kutíaskil Hifaskit H Ha» L LœqH fyrir 900 þús. kr. eða samtals fyr- ir 2 millj. króna. Til samanburðar má geta þess að í fyrra seldist á sama degi áfengi í Reykjavík fyrir 1,6 millj. 887 þús. í vínbúðinni á Snorra- braut og 730 þús. í Nýborg. Að vísu hefur áfengi hækkað um 12 til 15% síðan, en salan hefur samt aukizt til muna. 1,2 millj. kr. á 3 tímuin. í dag eru vínbúðir Áfengisverzl unarinnar opnar til hádegis og mun þá vafalaust enn bætast drjúgum í ríkiskassann. í fyrra seldist á þessum þremur tímum á gamlársdag fyrir 550 þús. kr. í Nýborg og fyrir 650 þús. í vín- búðinni á Snorrabraut eða fyrir 1,2 millj. kr. Þó áfengissalan væri mikil í gær var þó salan á Þorláksmessu í vínbúðunum í Reykjavík enn- þá meiri. Þá seldist áfengi fyrir 2,5 millj. kr., en fyrir rúmar tvær millj. í fyrra. I gær var heildarsalan í des- emberxxiánuði orðih 14,5 millj. í Reykjavík. Heildarsalan á árinu hefur aukizt Ekki Uggja fyrir tölur um heildarsölu áfengra drykkja á öllu landinu á árinu, en fyrstu 11 mánuði ársins seldist áfengi fyr- ir 153,4 millj. krna. Hafði salan aukizt frá í fyrra úr 127,3 millj. á sama tíma. Norblæg átt og frost á nýársnótt Á kortinu í dag ber mest á lægð milli íslands og Nor- egs. Sú lægð hreyfist norð- austur á bóginn nokkuð hratt, en önnur lægð er alveg vestur af Irlandi, hreyfist hún einn- ig norðaustur og var gert ráð fyrir að hún mundi valda suð- vestan hvassviðri og rigningu í Skotlandi og írlandi í nótt. Hlýjast á kortinu er 11 stiga hiti í Valencia og kaldast á Tobinhöfða 16 stiga frost. Horfur eru á að hér á landi verði norðlæg átt og frost á nýjársnótt ,bjart veður sunn- anlands, en nokkur snjókoma fyrir norðan. Veðurútlit: SV-land, Faxa- flói, SV-mið og Faxaflóamið: Norðan gola eða kaldi, létt- skýjað, frost 3—6 stig. — Breiðafj. og Breiðafj.mið: NA- kaldi, skýjað, sums staðar él í nótt. — Vestfirðir og Vest- fjarðarmið: Norðan stinnings- kaldi, snjókoma. Norðurland og Norðurlandsmið: Norðan og norðaustan kaldi, dálítil snjókoma, einkum vestan til. — NA-land og NA-mið: Hæg- viðri og léttskýjað í nótt, norð an kaldi og dálítil snjókoma á morgun. — Austfirðir, SA- land, Austfjarðamið og SA- mið: Norðan og norðvestan gola og síðan kaldi, léttskýjað.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.