Morgunblaðið - 31.12.1959, Síða 6

Morgunblaðið - 31.12.1959, Síða 6
6 M O R G U N TJ L A Ð 1Ð Fimmfudagur 31. des. 1959 Gdð atvinna, aukinn skipastóll, búskapur misjafn Eftirmæli fréttamanna Mbl. um liðið dr NOKKRIR fréttamenn Mbl úti á landi símuðu eftirmæli liðins árs til blaðsins í gær. Eru þau eftirmæli nokkuð misjöfn, eins og við var að búast, tíðarfar hefur sums staðar verið gott en annars staðar illt og aflabrögð einnig misjöfn. Rigningarnar á Suð- urlandi í sumar hafa valdið því, að afkoma bænda er lé- legri þar en í fyrra og hey- fengur rýrari. Á Norður- og Austurlandi er þessu þveröfugt farið. Bjargráð V-stjórnarinnar frá vorinu 1958 hafa aftur á móti komið enn harðar niður á bændum á þessu ári en í fyrra og reynzt jafn þung í skauti í öllum landshlutum. Vélbát- ar hafa yfirleitt fiskað betur en árið áður, sem er útfærslu landhelginnar að þakka. Skipastóll hefur verið auk- inn í ýmsum kaupstöðum og kauptúnum og eru vonir við það bundnar. Atvinna hefur víðast hvar verið góð úti á landi og af- koma launamanna því bæri- leg. Frásagnir fréttaritaranna fara hér á eftir: STYKKISHÓLMI — Þetta ár, sem nú kveður, hefur í mörgu verið hagstætt Stykkishólmsbú- um og fólki hér við Breiðafjörð. Samt hefur tíðarfar vetrið erfið ara en mörg undanfarin ár. Gæft- ir til sjávarins voru ekki góðar í byrjun ársins, en lagaðist þegar kom fram í marz. Vertíðarafli Var svipaður og árið 1958, en færri róðrar. f ár var afli trillubáta mjög góður og er óhætt að þakka það útfærslu landhelginngar. Kuldar voru miklir í maí og júlí, en gróður kom fljótt þar á eftir og varð heyfengur manna hér mjög sæmilegur, þrátt fyrir stöðugar rigningar frá byrjun ágústs til nóvemberloka. Það skyggir dálítið á að togaraútgerð- in hefur ekki gengið eins vel á þessu ári og 1958 og er því til að dreifa, að togarinn bilaði við Nýfundnaland í sumar og þegar þaðan kom, var tregur afli á heimamiðum. Þá varð sá skaði hér í bænum að við misstum hótelið 1. septem- ber og hefur það orðið mjög til- finnanlegt, er enn óráðið hvernig þau mál leysast í framtíðinni. Héðan hafa farið tveir bátar, sem ekki verða gerðir út héðan í vetur, en vonir standa til að bátar komi í þeirra skörð, m. a. kemur hingað leigubátur frá Ólafsfirði, sem Sigurðui Ágústs- son leigir, og hlutafélagið Þórs- nes fær mjög bráðlega nýjan bát frá Danmörk og er skipshöfn farin út til að sækja hann. Heilsufar ársins má heita gott, fólksflutningar til og frá Stykk- ishólmi hafa verið með meira móti, en íbúatalan mun vera nokkuð lík og í fyrra. Þá voru hér um 940 manns. Þá hefur vatnsveita Stykkishólms verið mjög bætt og við hana unnið í allt haust. Sumarsíldveiðin brást hér alveg og því engin síldarverk- un hér í sumar, eins og verið hefur undanfarin ár. —Á.H. PATREKSFIRÐI 30. desember: Jólin hafa gengið vel fyrir sig hér á Patreksfirði. Engar íkveikj ur og skemmtanalíf ágætt. Fram að jólum reri einn bátur héðan úr Patreksfirði og fiskaði með fádæmum vel af ágætis fiski. Fékk hann allt að 15 tonn í róðri. Togararnir hafa verið í sigl- ingum undanfarið. Ólafur Jó- hannesson kom í höfn á Þor- láksmessu og fór út aftur 27. des- ember. Sæborg mun hefja róðra tafarlaust upp úr áramótum og einnig báðir bátarnir frá Tálkna firði, Guðmundur á Sveinseyri og Tálknfirðingur. Um miðjan janúar er væntan- legur nýr bátur frá Danmörku hingað til Patreksfj arðar, sem heitir Andri. Skipstjóri á honum verður víðkunnur aflamaður, Jón Magnússon frá Hlaðseyri. Árið hjá okkur hefur verið síðra en skyldi að því leyti, að togararnir hafa aflað verr en næstliðið ár. Að öðru leyti hefur það verið gott og má telja sæmi- lega velmegun hér. Þess má geta til dæmis, að fyrirtæki hér á Patreksfirði munu ekki eiga mik- ið útistandandi hjá sjómönnum eða verkafólki. Fréttaritari. BOLUNGARVÍK 29. des. — Hér hefur verið indælis jólaveður og bærinn aldrei meira skreyttur. Þrjú stór jólatré lýsa á góðum stöðum í bænum, og fólk hefur skreytt hús sín fagurlega, mis- litum ljósum. Blasa þau við veg- farendum á kvöldin Iíkt og í aust urlenzkri ævintýraborg. Á annan í jólum var sjónleik- urinn Stubbur sýndur tvisvar sinnum við mikinn fögnuð. Þetta ár hefur verið Bolvík- Þessi mynd er tekin við höfnina í Neskaupstað á gamlárs- kvöld í fyrra. Tvö skip liggja á höfninni, Ijósum prýdd. Það er Reykjafoss, sem Iiggur nær, en Gerpir fjær. (Ljósm. Reynir Zoega). ingum gott. Atvinna hefur verið næg og afkoma góð, afli til lands og sjávar allgóður. Byggingaframkvæmdir hafa verið miklar eða um 12 íbúðarhús í byggingu fyrir utan eitt skrif- stofuhúsnæði. Hafnarframkvæmdum hefur ]ít ið miðað áfram, en þær eru lífs- spursmál Bolvíkinga. Að venju verða hér 2 stórar brennur á gamlárskvöld, sem unglingar standa fyrir. Ytrimala púkar standa fyrir brennu uppí Bolum og Innrimalapúkar fyrir brennu á Múrhúsum. Áramót hafa gengið skikkanlega fyrir sig hér að undanförnu og þess er að vænta að svo verði eins að þessu sinni. Fréttaritari. SIGLUFIRÐI — Almenn afkoma hefur verið allgóð á þessu ári í bænum. Héðan eru gerðir út tveir togarar, Hafliði og Elliði, og hafa þeir lagt rúm 8000 tonn af afla hér á land til vinnslu. í sumar voru saltaðar 111,823 tunnur af síld hér, og brædd 278.565 mál hjá Síldarverksmiðj- unum og hjá Rauðku 77 þús. mál. Saltsíldin er nær öll farin, en mikið ófarið af mjöli og lýsi. Á árinu var togbáturinn Mar- grét keyptur í Þýzkalandi og hef- ur hann fiskað ágætlega. Bragi, 60 tonna bátur var endurbyggður í Keflavík, kom í byrjun síldar- vertíðar og hefur einnig fiskað ágætlega. Farið hefur fram endurbygg- ing á Hafnarbryggjunni innri, og var hún mikið til tilbúin í októ- ber í haust, en ekki hefur verið tekið til afnota nema nokkuð al henni ennþá. Þá hefur verið unn- ið talsvert við Gagnfræða- og barnaskóla og sundlaugina og grafið fyrir grunni að viðbótar- byggingu við sjúkrahúsið. Þa hefur verið brotið land hér á þessu ári undir væntanlegan sjúkraflugvöll, en eftir er að bera ofan í hann til að hann verði nothæfur. Jarðabætur við Hóls- búið, sem bærinn rekur hafa ver- ið talsverðar í sumar. Aflabrögð báta voru ágæt hér í sumar og fram á haustið. Hey- skapur gekk illa síðari hluta sumars eins og víðar. Þó náðust hey upp fyrir og eftir göngur í haust og eru nú á fóðrum hér í skrifar ur daglega iífinu ] * Tíminn etur börnin sín. Gamla árið hefur senn runn- ið sitt'skeið á enda, nýtt ár er á næsta leyti og Velvakandi skrifar sinn síðasta pistil á ár- inu. Er þá ekki úr vegi að líta yfir farinn veg, halda til haga því sem vel hefur tekizt og læra af því sem miður hefur farið eins og segir í öllum góð- um skálaræðum um áramótin. Áramótin minna okkur á þá ömurlegu staðreynd að tíminn er floginn frá okkur fyrr an varir og oft áður en við höfum lokið því, sem við höfðum hugsað okkur að framkvæma. í forngrískri goðafræði er „Tíminn“ (Kronos) talinn til guðanna. Er hann gamall og gráhærður og sagður hafa þann eiginleika, að hann eti börn sín. Þessi goðsögn hefur vissulega mikið til síns máls og munu börn allra tíma hafa reynt sannleiksgildi hennar. Áramótin minna okkur á nauð syn þess, að verja tímanum vel og oftar en um áramót þyrft- um við að vera þess minnug hve hraðfleygur hann er. * Undur og tákn á nýjársnótt Áramótin hafa þótt merki- leg í fleira skilningi en sem mælikvarði á árin. Undur þjóð trúarinnar eru mörg bundin við áramót eða nýjársnótt eins og eftirfarandi kafli íslenzkra þjóðhátta ber með sér: Ré>0 ( „Það er gömul trú, að á gamlárskvöld á maður að geta séð konuefni sitt, eða kona mannsefni, með því að horfa í spegil í koldimmu herbergi. Fyrst á að hafa yfir þulu, sem fáir kunna nú, en enginn má vita um þetta og enginn vera við. Fyrst koma kynjamyndir á spegilinn, en svo á að koma hönd með hníf eða eitthvert vopn. Hún á að koma fram þrisvar sinnum, en ekki má snerta hlutina eða taka við þeim, því að það verður manni til ógæfu. Seinast fara mynd- irnar í speglinum að skýrast, en loks kemur fram hin eina rétta mynd, varir nokkrar selc- úndur, en svo hverfur allt“. Margir mundu sjálfsagt fús- ir á að nota sér af þessum á- gætu fræðum, ef þulan væri ekki týnd, því forvitnilegt er að vita fyrirfram hver verða skal manns maki. * Þökk fyrir bréf og bendingar Velvakandi vill nú á áramót unum þakka kærlega öllum þeim, sem með tilskrifum og góðum ráðleggingum hafa stuðlað að því að þessir dálkar urðu líflegri og fjölbreytilegri en ella. Öllum þessum ágætu stuðningsmönnum sínum svo og lesendum sínum og lands- mönnum öllum óskar Velvak- andi ÁRS OG FRIÐAR. | plássinu 1500 fjár og 70 kýr mjólk ; andi, þar af 60 á Hólsbúinu einu. Á árinu, sem er að líða hafa fæðzt 73 börn og jarðsettir 15 Siglfirðingar hér. Um jólin var skírt hér 21 barn og gefin saman fimm hjón, og var ákaflega góð kirkjusókn. Um áramótin verður Ijósadýrð í Hvanneyrarskál og nýja ártalið þar fyrir neðan eins og venju- lega. Einnig verða bál víða. Guðjón. HÚSAVÍK — Árferði hefur verið mjög gott á liðna árinu. Vetur- inn var ekki mjög snjóþungur, vorið og sumarið gott og gjöfult og haustið það sem af er þessum vetri milt. Þrátt fyrir mikið sól- far og góðviðri urðu þrisvar sinn um á árinu snögg veðrabrigði og gerði snjókomu, þannig að fé fennti. Ástand í atvinnumálum er mjög gott og vinna hefur verið það mikil að oft hefur vantað fólk. Hefur vinnukraftur verið sóttur í nálægar sveitir, sem ekki hefur þurft undanfarin ár. . Fiskafli var framan af árinu góður, en vorvertíðin brást. Síð- an í ágústmánuði má telja að afli hafi verið góður og þó sérstak- lega síðustu mánuðina. Landbúnaður hefur gengið veb Gott gróðurfar og hey bænda með mesta móti, þar sem meira var sett á í hatíst. Af verklegum framkvæmdum á árinu má nefna 16 íbúðarhús með 19 íbúðum, sem eru í smíðum nú um áramótin, barnaskólahús- ið, sem nú er langt á veg komið og áformað að ljúka á næsta ári, hafnargarðurinn, sem lengdur hefur verið um eitt ker (15 m) Annað ker er fullsmíðað og verð- ur flotsett að vori. Yfirleitt telja menn þetta ár gott og gjöfult, þó skipzt hafi á skin og skúrir. — Fréttaritari. NESKAUPSTAÐ, 30. desember: Afkoma útgerðar hér í Neskaup stað á árinu, sem er að líða, var yfirleitt góð. Stóru bátarnir, 12 að tölu, voru á vetrarvertíð í Grindavík og Vestmannaeyjum og öfluðu vel. Norðfjarðarbátar höfðu einnig góðan hlut á síldar- vertíð. Afli á sumarvertíð var aftur á móti minni og haustvertíð stutt og lítið stunduð. Nú verður gerð tilraun með að leigja tvo 100 tonna báta á útilegu og munu þeir leggja aflann upp hér ásamt togaranum Gerpi, en helmingur þess afla, sem á land barst ci. ár var úr togurunum. Hér hafa verið frystir á árinu 50 þúsund kassar af fiski og fram leiddar um 1900 lestir af síldar- og fiskimjöli. Ekki hefur verið selt nema 800 lestir af mjöli og 300 lestir af lýsi og veldur það nokkrum örðugleikum. Á árinu var tekin í notkun ný mjólkurstöð og byggingar hafa verið talsvert miklar í bænum, 31 íbúðarhús, gagnfræðaskólahús, félagsheimili o. fl. Ég átti tal við Aðalstein Jóns- . son á Ormsstöðum, oddvita Norð- fjarðarhrepps. Hann sagði að vet urinn hefði verið léttur og vorið gott og spretta í sumar mjög mikil, en þurrkar voru fremur stirðir. Enginn þurrkur var t. d. í ágústmánuði. Var heynýting því líil og heyin létt. Haustið og vet- urinn hafa verið ákaflega úrfella- söm en mjög mild tíð. Búið er að gefa talsvert af heyi. Frá tveimur bæjum var fé þó haft á beit í Hellisfirði og ekki tekið á hús fyrr en nú um jólin. Um ársaf- komuna sagði Aðalsteinn, að hún yrði heldur lakari en í fyrra, og kæmi það sérstaklega til af því, að á þessu ári hefðu bjargráðin frá 1958 komið á með fullum þunga og valdið hærra verði á rekstrarvörum landbúnaðarins. Kýr hafa mjólkað talsvert verr en í fyrra. Þetta er í fyrsta skipti síðan Oddsskarðsvegur var lagður að hann hefur verið fær einhvern tíma úr öllum mánuðum ársins. Fréttaritari. Framhald á bls. 23.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.