Morgunblaðið - 31.12.1959, Page 10

Morgunblaðið - 31.12.1959, Page 10
10 MORCTJNHT.4 ÐIÐ Fimmíudaffur 31. des. 1959 Ríkisprentsmiðjan Gutenberg 30 ára RÍKISPRENTSMIÐJAN Gutenberg er þrjátíu ára nú um áramótin, en ríkisprent- smiðjan hóf starfsemi sína 1. janúar 1930 í húsi prent- smiðjunnar Gutenberg, sem ríkissjóður hafði þá keypt. Aðalhvatamaður þessa var Jónas Jónsson, sem þá var dómsmálaráðherra. — Prent- smiðjustjóri í Ríkisprentsmiðj unni Gutenberg hefur frá upphafi verið Steingrímur Guðmundsson. Áður en hann tók við því starfi hafði hann dvalizt nær fimmtán ár í Dan- mörku og unnið í tíu ár hjá prentsmiðju Gyldendals. Tíðindamaður Mbl. hitti Stein- grím að máli í tilefni afmælis prentsmiðjunnar og spurði hann um aðdraganda þess að hún var sett á fót og sitthvað um rekstur hennar, verkefni o. fl. Leysti Steingrímur greiðlega úr hverri spurningu og fórust honum m. a. orð á þessa leið: Steingrímur Guðmundsson prentsmiðjustjóri — Eftir fyrri heimsstyrjöldina var farið að ræða um að ríkis- sjóður kæmi á fót og ræki prent- smiðju til að leysa af hendi prent vinnu þá, er kostuð væri af op- inberu fé. Nokkuð dróst á lang- inn að úr framkvæmdum yrði, en árið 1928 var gerð áætlun um kostnað við að koma upp slíkri prentsmiðju. Samtímis var at- hugaður sá möguleiki, að ríkis- sjóður keypti einhverja prent- smiðjuna í Reykjavík. Varð nið- urstaða þessara athugana sú, að álíka mikið mundi kosta að kaupa nýja prentsmiðju og kaupa prent smiðjuna Gutenberg með hús- eign. Var síðari kosturinn valina og í fjárlögum 1930 var ríkis- stjórninni veitt heimild til að kaupa prentsmiðjuna Gutenberg og húseign hennar. — Hafa verkefni prentsmiðj- unnar takmarkazt við prentun fyrir ríkissjóð og rík'isfyrirtækí? — Fyrstu árin, sem Ríkisprent- smiðjan starfaði var þar prentað nokkuð fyrir einstaklinga og fyr- irtæki, en nú vinnur prentsmiðj- an aðeins fyrir ríkisstofnanir og ríkissjóð. Verkefni þau, sem hún hefur á hendi eru prentun fyrir Alþingi, Stjórnartíðindi, Lögbirt- ingablaðið og Hagtíðindi. f*á prentar prentsmiðjan öll eyðu- blöð fyrir póst og síma og af stofnunum sem hún vinnur fyrir má ennfremur nefna Áfengis- verzlun ríkisins, Brunabótafélag íslands, Fræðslumólaskrifstofuna, Ríkisspítalana, Skipaútgerð rík- isins, skrifstofur landlæknis og tolistjóra og Tryggingastofnun ríkisins. Af þessum verkefnum er mest vinna fólgin í prentun fyrir Alþingi, og árið, sem er að líða hefur t. d. verið sérstaklega annasamt vegna sumarþingsins. — Hvernig er afkoma prent- smiðjunnar? Starfar hún sem sjálfstætt fyrirtæki, eða er hún rekin fyrir reikning ríkissjóðs? — Prentsmiðjan er í raun og veru sjálfseignarstofnun og hefur verið það síðan 1932. Eignir hluta félagsins Gutenberg voru keypt- ar fyrir 155000 krónur samkvæmt fjárlagaheimild, en ríkissjóður lagði aldrei fram þó upphæð, heldur var tekið lán til að greiða skuldir Gutenbergs í Landsbank- anum. Hefur Ríkisprentsmiðj an endurgreitt þetta lán að fullu fyrir löngu auk þess sem hún tók við tveimur veðdeildarlán- um, sem hvíldu á húsinu. Það, sem þá vantaði á kaupverðið (kr. 23541,75), lagði ríkissjóður fram til bráðabirgða og lánaði prent- smiðjunni auk þess 40,000.00 kr. til viðbótarkaupa á vélum. Þess- ar upphæðir endurgreiddi Ríkis- prentsmiðjan á árunum 1931 og 1932 með vöxtum og vaxtavöxt- um og fór strax að greiða ríkis- sjóði arð, er lokið var greiðslu lánanna. Auk þess, sem prentsmiðjan; hefur endurnýjað sig alveg hafa verulegar upphæðir verið inn- borgaðar í ríkissjóð af rekstrar- afgangi. Hún er nú skuldlaust fyr irtæki; má heita að hún skuldi ekki neinum neitt. Verðmæti eignanna, húseign, vélar og áhöld og vörubirgðir geri ég ráð fyrir að sé um kr. 10,000,000.00. í sérstakan lífeyrissjóð starfs- manna hefur prentsmiðjan lagt um 750.000.00. Byggt hefir ver- ið við húsið og gagngerð endur- bót farið fram á gamla hluta þess. Eru vinnustofur prentsmiðj- unnar þannig enn með þeim allra beztu í bænum. — Nokkuð sérstakt, sem þér vilduð segja að lokum? — Það verður ekki annað sagt, en rekstur prentsmiðjunnar hafi gengið vel frá upphafi, enda þótt við margvíslega örðugleika hafi verið að etja. Starfsfólk prent- smiðjunnar getur sameiginlega eignað sér árangurinn, þó menn hafi nokkuð misjafnt lagt fram, hver eftir sinni getu. Um helmingur far- manna í íslenzkri höfn ÞEGAR kirkjuklukkurnar hljóma, gamla árið kveður og það nýja gengur í garð gera menn sér gjarnan glaðan dag að gömlum vana. En íslenzku sjómennirnir verða margir hverjir af áramótafagnaðinum hér heima svo að nýja árinu verður fagnað á mörgum ís- lenzkum skipum í hafi eða er- lendri höfn. kr Farmennirnir okkar, sem eru liðlega 700 talsins, verða samt margir í íselnzkri höfn. Kaupskipin eru 28 og um helm ingur þeirra verður hér við land í kvöld. í Reykjavíkur- höfn verða 12 skip. Allmörg verða í hafi og fjarst er Drangajökull, sem lagði úr höfn í Haifa í morgun. ★ Á meðfylgjandi korti sjáið þið hvar íslenzku kaupförin eru stödd um áramótin. Það er ekki jafngott að átta sig á því hvar togararnir okkar eru. Þeir eru 42, sennilega allflest- ir að veiðum á heimamiðum. í Reykjavíkurhöfn verða 12 kaupskip, 3 úti á landi, en hin í hafi eða erlendum hafnar- borgum. kr Ríkisskip: Hekla, Esja, Skjaldbreið, Herðubreið og Herjólfur verða í Reykjavík, en Þyrill verður undan Aust- fjörðum á leið frá Noregi til Hjalteyrar. -k Eimskipafélag fslands: Lag- arfoss og Reykjafoss verða í Reykjavík, Dettifoss á Siglu- firði, Fjallfoss í Dublin, Goða- foss er nýfarinn frá Vest- mannaeyjum áleiðis til Hull, Gullfoss kominn langleiðina til Kaupmannahafnar, Selfoss í Ventspils, Tröllafoss á leið til Árósa og Tungufoss á heim- leið frá Gautaborg. j Skipadeild SÍS: Litlafell og Jökulfell í Reykjavík, Hvassa- fell í Hanö, Arnarfell í Stett- in, Helgafell undan strönd Portugal á leið til Miðjarðar- hafsstrandar Frakklands, Dís- arfell á Húnaflóahöfnum og Hamrafell, sem er á leið til Batum, verður miðja vegu milli íslands og Gibraltar um miðnættið. ■k Jöklar: Langajökull er í Reykjavík, Vatnajökull verð- ur í Norðursjó, á leið til Ro- stock frá Antwerpen og Drangajökull leggur í dag upp frá Haifa í ísrael, heim- leiðis. 'k Eimskipafélag Reykjavíkur: Askja er í Reykjavík, Katla á Akureyri. kr Verzlunarsambandið: Laxá, nýja skipið, verður komið til Reykjavíkur áður en árið kveður. Séð yfir vélsctningasal prentsmi ðjunnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.