Morgunblaðið - 14.01.1960, Page 8
8
MORCUNBÍ.AÐIÐ
FimmíiidaErur 14. ian. 1960
AKUREYRARBRÉF
ER VIÐ Norðlendingar lítum yf-
ir gengið ár, verður ekki annað
sagt en að það hafi verið okkur
bæði gott og gjöfult þótt auð-
vitað beri það sína skugga. Pistli
þessum er ætlað að rekja í stór-
um dráttum nokkur helstu at-
um dráttum nokkur helztu at-
vinnuhætti á umliðnu ári hér
á Norðurlandi og þá einkum á
Akureyri og nágrenni. Tæmandi
getur iýsing sú vart orðið.
Veffurfar
Tíðarfarið var, þegar á heild-
ina er litið, gott, einkum til lands.
Árið byrjaði með frostum er
stóðu fram undir janúarlok, en
þá gekk til sunnanáttar sem hélzt
allan febrúarmánuð. Marz var
einnig mildur mánuður og var
þá snjólaust að kalla. Aprílmán-
uður var hins vegar nokkuð um-
hleypingasamur. Það voraði
óvenju snemma. Útistörf gátu
því hafizt fýrr en venja er til.
Ræktunarstörf og ávinnsla gekk
vel og kartöflur voru settar nið-
ur í byrjun maí. Samfara þessu
kom gróður snemma til nytja og
var farið að beita kúm fyrir maí-
lok. Hinn 5. júní gerði kuldakast
og snjóaði í fjöll. Um miðjan
mánuðinn gerði enn kuldatíð og
aðfaranótt 17. júní gerði grenj-
andi stórhríð og féll þá 20 sm.
þykkur snjór í byggð. Tún voru
þá fullsprottin víðast og sumir
byrjaðir að slá. Þar- sem fyrst
höfðu verið settar niður kartöfl-
ur voru grös orðin falleg í görð-
um. Aðfaranótt 20. júní gerði svo
hörkufrost og gerféll þá kartöflu-
grasið. Kippti þetta að sjálfsögðu
mjög úr vexti, þar sem gras var
ekki sprottið í görðum á ný fyrr
en eftir nærfellt mánuð. 1 þessu
17. júní-hreti fennti fé, enda bú-
ið að sleppa því á fjall.
Bezta grasár
Upp úr þessu gerði svo ein-
munagóða sumartíð. Grasspretta
var mjög góð og er þetta eitt
allra mesta grasár, sem hér hefir
komið, enda var bæði hiti og úr-
koma mjög hagstæð fyrir grasið.
Hey urðu því mjög mikil að
magni til og verkuðust yfirleitt
sæmilega og sumsstaðar mjög
vel. Kartöflugras féll 6. sept. í
haust og varð uppskeran í löku
meðallagi yfirleitt. Haustið var
ágætt og var hægt að vinna að
jarðabótum út allan októbermán
uð. Dilkar voru með rírara móti
í haust og er kennt um kulda-
kastinu í júní, en þá munu lamb-
ær hafa gelzt.
Hinn 8. nóvember gerði svo
stórhríðina miklu, sem öllum
kom á óvart. Svo sem kunnugt
er af fréttum fennti þá margt fé.
Þessi hríðarkafli stóð þó, sem bet
ur fer ekki nema í vikutíma,
en þá tók allan snjó aftur. Rætt-
ist því mun betur úr en á horfð-
ist og tókst að bjarga miklu af
því fé, sem fennti. Síðan hefir
veður verið gott að kalla. Allir
vegir urðu brátt færir á ný og
mun það teljast til undantekn-
inga að hægt skyldi að aka allt
til Raufarhafnar og austur á
Fljótsdalshérað í desembermán-
uði.
Minni afli togara
Til sjávarins er nokkuð aðra
sögu að segja. Atvinnulíf hér á
Akureyri byggist orðið mjög mik
ið á útgerð hinna fjögurra tog-
ara. Aflabrögð hjá þeim urðu á
sl. ári miklum mun minni, en
árið áður og lætur nærri að hvert
skip hafi aflað um 1000 tonnum
Annáll
ársins
1959
minna, en var í fyrra. Heildar-
aflamagn togaranna nam nú
15214 tonnum, en alls fóru hinir
fjórir togarar félagsins 81 veiði-
ferð.
Útgerðarfélagið vann 14.331
tonn í frystingu og skreið. Land-
að var 807 tonnum erlendis og
75 tonnum hér heima, utan Ak-
ureyrar. Vinnslan skiþtist þann-
ig að frystir voru 135.885 kass-
ar af fiski, fullverkuð voru 317
tonn af skreið, óverkaður salt-
fiskur 9 tonn og Jamaica — verk
aður 16 tonn. Lýsisframleiðsla
nam 374 tonnum.
Arið áður nam frystingin
153.000 kössum, saltfiskverkun
var nokkru meiri og skreiðar-
vinnsla svipuð.
Það er að sjálfsögðu hið mjög
minnkandi aflamagn, sem mest
áhrif hefir á minnkandi fram-
kvæmdir á vegum Útgerðarfé-
lags Akureyringa h.f. Hin mikla
vinsla aflans heima fyrir er ómet
anlega mikils virði fyrir atvinnu-
líf bæjarbúa og eflir einnig alla
afkomu fyrirtækisins.
Betri síldarafli
Svo sem kunnugt er var af-
koma skipanna á síldveiðunum
fyrir Norðurlandi mun betri sl.
sujnar en áður, þótt mörg skip
hafi að visu fengið lítinn afla.
Síðast er svo að geta þess að
til Eyjafjarðar komu tvö tog-
skip á síðasta ári, Sigurður
Bjarnason til Akureyrar og
Björgvin til Dalvíkur. Seint á
árinu bættist skipaflota Norð-
lendinga nýtt skip, þótt ekki
væri það til fiskveiða. Var það
flóabáturinn Drangur, sem er
hinn glæsilegasti farkostur.
Vaxandiiffnaffur
Að vanda var iðnaður mikill
hér á Akureyri sl. ár. Verksmiðju
reksturinn er mikill og hafa
margir atvinnu af honum. Alls-
konar vélaiðnaður og smíðastörf
fylgja hinni vaxandi útgerð svo
og leitar landbúnaðurinn mikið
til verkstæða bæjarins til vél-
viðgerða og vélsmíða. Öll fer
þessi starfsemi stöðugt vaxandi
hér í bænum, enda hefur Akur-
eyri á að skipa mjög færum iðn-
aðarmönnum og er iðnvarningur
héðan viðurkenndur um land allt
svo og þykir viðgerðavinna öll
leyst einkar vel af hendi.
Úr hrafffrystihúsi U.A. Þar voru á siðasta ári verkaðir tæplega
136 þúsund kassar af fiski.
en að árið 1959 hafi verið Norð- stjóri. Marz: Stefán Jónsson
lendingum happadrjúgt.
Hér nyðra var árið mikið slysa
ár og er mönnum í fersku minni
flugslysið á Vaðlaheiði 4. janúar
og tveir bátstapar frá Hofsósi
Gamlárskvöld á Akureyri.
Ekki verða að sinni rakin ein-
stök dæmi um framkvæmdir á
sviði félagsmála, mennta og lista,
en geta má þess að þar hefir um
ýmsar nýjungar verið að ræða,
leik og söngstarf mikið og íþrótta
líf með blóma, enda miklar fram
kvæmdir því til eflingar.
A sviði atvinnu og menningar-
mála verður því ekki annað sagt
ITin nvh Tim f i:í rTflpktarI.ÍI tíi iinnsi.öff nff T.llnrli á Aknrevri.
og Húsavík síðar á árinu. Fleiri
slys urðu og á mönnum, en þau
munu ekki rakin nánar.
Getið látinna
Hér skal að síðustu getið
nokkurra mannsláta. Janúar:
Óskar Sigurgeirsson vélsmiður,
Kristján Kristjánsson símverk-
sparisjóðsstjóri Dalvík, Friðrik
J. Rafnar vígslubiskup, Magnús
J. Árnason járnsmiður. Apríl:
Frú Elísabet Geirmundsdóttir
listakona, Axel Schiöth bakara-
meistari, Vilhjálmur Þorsteins-
son skipstjóri, Stefán Árnason
bóndi, Stóra-Dunhaga. Maí:
Brynjólfur Eiríksson kennari frá
Skaftastöðum, Halldór Friðjóns-
son ritstjóri. Júní: Sigurjón G.
Stefánsson, smiður, Vernharður
Þorsteinsson, menntaskólakenn-
ari. Júlí: Davíð Tómasson, mál-
ari, Þorsteinn Vilhjálmsson, fiski
matsmaður. Ágúst: Ingibjörg
Eiríksdóttir, frú, Þórhallur
Antonsson, verkamaður. Sept-
ember: Ari Hallgrímsson, endur-
skoðandi. Október: Snæbjörn
Þorleifsson, bifreiðaeftirlitsmað-
ur. Nóvember: Guðmundur Sig-
urðsson, bifreiðastjóri, Kristin
Jóhannsdóttir, frú, Öskar
Tryggvason, Kristnesi. Des.: •
| Eugenía Jónsdóttir, frú; Jakob
Snorrason, múrarameistari, Jón
Jónsson frá Vatnsenda, Ingimar
Eydal ritstjóri, Sigurjón Krist-
insson, sjómaður.
1 annálsbroti, sem þessu, eða
ekki nánar raktir einstakir at-
burðir ársins, enda fer ekki hjá
því að mörgu er sleppt, er minn-
ast mætti. Nýja árið hefir heils-
að vel hvað veðurfar snertir og
er vonandi að það verði farsælt
og gott sem hið liðna. — vig.
Piltur eða stúlka
óskast hálfan eða allan daginn
til snúninga.
Belgjagerðin
Bolholti 6
V efnaðarvöruverzl un
Til sölu er lítil vefnaðarvöruverzlun á góðum verzl-
unarstað nálægt Miðbænum.
Lítill vörulager. — Ódýr húsaleiga — Uppl. hjá:
mAlflutnings- og fasteignastofa
Sigurður Reynir Pétursson, hrl.
Agnar Gústafsson, hdl.
Björn Pétursson: fasteignaviðskipti.
Austurstræti 14, II.