Morgunblaðið - 14.01.1960, Síða 24

Morgunblaðið - 14.01.1960, Síða 24
V EÐRIÐ Sjá veöurkort á bls. 2. CtfgDfttMnfrÍfr 10. tbl. — Fimmtudagur 14. janúar 1960 Áhöfn amerísku björgunarflugvélarinnar, sem leitaði Úranusar í gær og fann hann. Myndin er tekin við flugvélina á Keflavíkurflugvelli áður en hún lagði af stað í leitina í gaermorgun. — Fremstir á myndinni eru G. Sakmar og J. F. Davis. Standandi frá vinstri: J. Bartosik, R. Johnson, Guðmundur Kjærnested og Guðjón Jónsson frá íslenzku landhelgisgæzlunni, R. Eg- an flugstjóri og W. D. Luter. Farginu af okkur létt sagði Hans Sigurjónsson skipstjóri á Þormóði goða — FREGNINNI um að þeir í flugvélinni hefðu fundið Úr- anus var tekið með miklum fögnuði hér um horð, sagði hinn dugmikli skipstjóri á Þormóði goða, Hans Sigur- jónsson, Brekkustíg 6, í sím- tali við Mhl. í gærkvöldi. Var togarinn þá í bezta veðri á heimleið. — Við höfum aldrei feng- ið svona gott veður á heim- siglingu á þessum vetri, sagði skipstjórinn, og við væntum r-wwv'wwwwwyr-ww-w 1 Eitt gulu- 1 tilfelli i j í bœnum < J I SAMBANDI við frétt af ► ' gulu, sem upp kom í haust i [ < Mosfellssveitinni, skal þess ► J getið að blaðinu er kunnugt ► < um að einn gulusjúklingur £ 3 liggur nú einangraður á ► J sjúkrahúsi í bænum. Er það \ < Gunnar Eyjólfsson, leikari, ► 3 sem legið hefur í gulu í rúma ► J viku. £ < Ekki mun sjúkdómur hans ► 3 þó standa í sambandi við gulu ► j tilfellin úr Mosfellssveitinni. £ < Gunnar kom heim fyrir jólin, ► ] en hafði í nóvembermánuði | < komið bæði til Gullstrandar- [ 3 innar í Afríku og til Austur- ► 3 Teheran, og því sennilegt að [ < hann hafi tekið sjúkdóminn [ 3 þar, enda ganga menn oft ► < lengi með hann án þess að [ \ veikjast. Sjúkdómurinn varir [ 4 venjulega 3—4 vikur, eins og ► J áður er sagt, og eru sjúkling- [ J arnir alveg einangraðir á með [ 4 an hann gengur yfir. £ þess að koma Inn á Reykja- víkurhöfn milli klukkan 9 og 10 annað kvöld (fimmtudags- kvöld). Hans Sigurjónsson Þetta er fimmta eða sjötta veiðiför Þormóðs goða á þessum vetri. Skipstjóranum sagðist stutt lega frá heimförinni á þessa leið: — Við lögðum af stað heim- leiðis klukkan 7,50 á laugardags kvöldið. Þá var lofthiti mínus 4 gráður, en sjórinn svo kaldur, að sjávarhiti var undir frostmarki. Þegar sjórinn er orðinn svona kaldur, og ef hann rýkur upp, þá er andskotinn laus og ísing myndast á skipin í hinu minnsta frosti, — ég á við sé lofthitinn undir frostmarki líka. Sjórinn er orðinn svona kaldur á þessum slóðum, og því tel eg víst að þetta verði síðustu veiðiferðirnar á Ný- fundnalandsmið á þessum vetri. Því eins og sjá má af þessu, má lítið sem ekkert bera út af með veðrið. — En nú skal haldið á- fram að segja frá heimferðinni. | Fyrir utan íslenzku skipin tvö * voru ekki önnur skip þarna á miðunum fyrir sunnan Ritu- banka, en 9 rússnesk verksmiðju skip. Við höfðum aðeins siglt um 50 mílur þegar mikil breyting varð á. Þá var frostið 2 stig, en sjávar- hitinn kominn upp í 3 stig og SA 2 vindstig. Sólarhring eftir að við höfðum lagt af stað heim, vorum við komnir 140 sjóm. leið. Þá var kominn 4 stiga hiti, gola af ANA, en veðrið fór þá vax- andi. Um kvöldið voru komin 10—11 vindstig, en það var alveg frostlaust veður. Sjólag var ekki tiltakanlega slæmt og við töld- um ekki ástæðu til að óttast nein óhöpp. Um kvöldið klukkan 10,30 höfðum við talstöðvarsamband við Úranus og var þá allt í bezta lagi hjá þeim. Þetta er það síð- asta, sem okkur tókst að hafa samband við skipið. Þá var Úr- anus lítið eitt á eftir okkur, og mældist fjarlægðin á milli skip- anna 55 sjóm. Nætsa dag var svo með öllu ógerlegt fyrir okk- ur að ná sambandi við Úranus og hefur ekki tekizt síðan. Hér um borð töldum við þetta veður á sunnudagskvöldið ekki það slæmt ,að ástæða væri til þess að ætla að skipinu hefði hlekkzt alvarlega á. Strax á mánu dagsmorguninn var veðrinu farið að slota. Enginn ís hafði orðið á leið okkar, og töldum við því senni- legt að loftskeytastöðin hefði bil- að. En því er ekki að leyna, sagði Hans skipstjóri, að við vorum farnir að óttast um skipið, því margt getur skeð á sjó og maður verður jafnan að vera viðbúinn því versta. En þessu þunga fargi er nú af okkur létt, og þó við höfum ekki haft samband við Úranus ennþá, þá vitum við að hann er hér nokkuð á eftir okkur og fyrir sunnan, og við vitum það að ekkert er að skipshöfninni. Akranesbátar AKRANESI, 13. jan. — 12 bátar reru héðan í dag. Koma þeir ekki að fyrr en í nótt. Ekki veiddist alveg upp í síldarsamninga SlLDARBÁTARNIR eru nú hætt ir veiðum. Siðustu Akranesbát- arnir, Höfrungur og Keilir, hættu í gær. ILandshappdrœttið Dregið á morgun Miðar seldir í happdrættisbif- reiðinni við Útvegsbankann og í skrifstofunni í Sjálfstæð- ishúsinu, sími 17100. —, Sendum heim. — 0 00 0 0ti Narfi Re 13 flotsettur í «ær f GÆR, 13. janúar, var hinn nýi togari Guðmundar Jörundssonar, flotsettur í Rendsburg í Þýzka- landi. Kona Guðmundar, Marta Sveinsdóttir, skírði skipið, sem ber nafnið Narfi RE 13. Hinn nýi togari er 950 lestir að stærð, smíðaður í skipasmíða- stöðinni Werft Nobiskrug í Rends burg. Hann verður væntanlega fullsmíðaður í marzmánuði. Blaðið spurðist fyrir um það í gær hjá Gunnar Flóventz skrif- stofustjóra hjá Síldarútvegs- nefnd, hvort veiðzt hefði upp í samninga á vetrarsíldveiðunum. Sagði hann að aðeins vantaði lítilsháttar, sem stafaði af því að ekki hefði veiðzt nógu mikið af stórri síld upp í rússnesku samn- ingana. t reknetjasíldinni var til tölulega mikið af smárri síld og þegar herpinótasíldin kemur saman við, verður þetta ennþá meira áberandi. Sígarettum stolið á flugvellmuiii UM síðastliðna helgi var brotizt inn í eina af birgðageymslum hersins á Keflavíkurflugvelli og stolið 22 kössum (1100 karton- um) af Chesterfield sígarettum af stærri gerðinni. Bílför lágu frá geymslunni að hliði austarlega á flugvellinum. Var lásinn á hliðinu brotinn og hafði verið farið gegnum það og ■niður á aðalveginn milli Reykja- víkur og Keflavíkur. Bandaríska lögreglan segir að síðastliðna nótt hafi ekkert far- artæki hersins vantað af vellin um. Mál þetta er í rannsókn, og biður rannsóknarlögreglan í Reykjavík þá sem kynnu að geta veitt einhverjar upplýsingar, um að gera aðvart. Arekstrar á hálku KEFLAVÍK, 13. jan. — Tveir allharðir bílaárekstrar urðu í Keflavík í dag. 1 bæði skiptin var verið að forðast gangandi fólk, en óvenju mikil hálka á göltunum olli báðum óhöppun um. Fyrra slysið var kl. rúmlega 1. Var fólksbifreið að reyna að sveigja frá krakka, sem hlaupið hafði út á götuna, en rakst þá á vörubíl. Hitt slysið var sama eðl is og gerðist um 4 leytið síðdegis. Þar rákust á flugvallarsendibíll og vörubifreið úr Keflavík. Talsverðar skemmdir urðu á öllum bílunum, en mjög lítil meiðsl á fólkinu sem í þeim var. Spilakvöld HAFNARFIRÐI. — Stefnir, félag ungra Sjálfstæðismanna, efndi fyrir jólin til skemmti- kvölds með bingó-spili, sem náð hefir víða miklum vin- sældum. Var aðsókn fremur góð og áhugi mikill. — Núna í kvöld verður aftur spilað bingó og hefst það í Sjálfstæð- ishúsinu kl. 8,30, SJÁLFSTÆÐISFÉLAGIÐ Garðahreppi: Næsta spila- kvöld félagsins verður haldið föstudagskvöldið 15. jan. í samkomuhúsinu í Garðaholti kl. 20,30. Nýir keppendur fá meðaltal af slagafjölda desem berkeppninnar Lustu upp fagnaðarópi Samtal v/ð Egans flugstjóra FLUGSTJÓRINN á banda- rísku Ieitarflugvélinni er 24 ára gamall Flórída-maður, Robert W. Egan liðsforingi. í stuttu samtali við frétta- mann Morgunblaðsins kvaðst hann hafa verið þrjá mánuði á fslandi, og væri þetta hans lengsta flug hér. — Hann er ókvæntur. Flugstjórinn sagði, að þeir hefðu komið út úr skýja- þykkninu í þriggja mílna fjarlægð frá Úranusi, en fyrst sáu þeir skipið í ratsjá í 37 mílna fjarlægð. Hann sagði enn fremur að mikill sjór hefði verið og allt að 20 feta háar öldur: „Þegar við vorum búnir að sjá númerið á togaranum, lustum við allir upp fagnaðar- ópi, svo mikil var gleði okk- Egans flugstjóri ar“, sagði Egans flugstjóri. — Áhöfnin á flugvélinni er mjög hann við, og má þakka það vel þjálfuð og samstillt, bætti því þennan góða árangur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.