Morgunblaðið - 22.01.1960, Page 9
Föstudagur 22. jan. 1960
MORGUIS BLAÐÍÐ
9
Björn Gíslason
Rannveig Jónsdóttir
G ullhrúökaup
ÞANN 7. desember s.l áttu þau
hjónin Rannveig Jónsdóttir og
Björn Gíslason, Gröf Reyðarfirði
gullbrúðkaup. Hvergi hef ég séð
þessa merkisafmælis minnzt, og
er mér þess vegna ljúft að minn-
ast þess með örfáum orðum, þó
að hér verði ekki rakin ævisaga
þeirra, heldur aðeins stilkað á
því stærsta.
Þessi mætu hjón hafa alið all-
an sinn aldur á Reyðarfirði og
helgað starfskrafta sína óskipta
þéssu byggðarlagi. Bæði hafa
þau lifað tímana tvenna og hafa
þekkt hvorutveggja fátækt og
allsnægtir.
Fyrst man ég eftir þeim hjón-
um þegar ég var 8 ára gamai'.
Þá hagaði þannig til á þessum
stað, að til þess, að hafa til hnífs
og skeiðar varð að snúa sér að
sjónum, enn fjörðurinn er lang-
ur og erfitt að stunda sjó innan
frá fjarðarbotni. Var því horfið
að því ráði að „liggja við“ sem
kallað var út með firðinum og
varð þá fyrir valinu Breiðavík
eða Vattarnes. Ekki var farkost-
urinn stór í þá daga, tveggja
manna far eða þá mest 4 manna
far.
Á þessum farkostum byrjaði
frændi minn Björn ungur að ár-
um. Snemma beindist hugur hans
að sjónum og var hann ekki
nema milli fermingar og tvítugs,
er hann gerðist farmaður á þess-
um fleytum. Það kom fljótt í Ijós
að hann var bæði mikill sjósókn-
ari og aflamaður með ágætum,
einnig mjög veðurglöggur, enda
kom það sér vel í þá daga, því
engar voru veðurspár eða radar-
tæki, aðeins lélegir „kompásar"
sem í flestum tilfellum var lítið
að stóla á. En nieð forsjá og dugn
aði stóð Björn af sér öll veður og
sigldi ætíð sínum knerri heilum
í höfn. Kom það og fljótt í ljós
að mikið traust var til hans borið
og að eftir að vélaöldin kom til
sögunnar var honum falið á hend
ur stærra og meira viðfangsefni,
sem kallað var mótorbátur og
hann stjórnaði mörg ár og var
mjög fiskisæll og heppinn með.
En áður en lengra er haldið þá
vil ég geta þess „að Héðinn stóð
ekki einn“ ef svo mætti að orði
komast. Björn átti nefnilega dug
lega og góða konu sem ætíð stóð
við hlið hans og jafnvel gekk í
beitingar og aðgerð þegar með
þurfti. Já og börn þeirra hjóna
lögðu líka fram sinn skerf, því
að á allri orku þurfti að halda
í þá daga til að árangurinn yrði
sem beztur. ,
Aldrei hef ég heyrt þess getið
að Björn hafi orðið fyrir neinu
óhappi á sinni farmannstíð, þó
að hann hafi stundum komizt í
hann krappann. Mér finnst
ánægjulegt að geta sagt frá því
að þegar hann nú er kominn á
áttræðisaldur að enn stundar
hann sjóinn og margur Reyðfirð-
ingurinn hefur fengið góða soðn-
ingu frá Birni í Gröf og fær enn.
Mér finnst það til sóma og eftir-
breytni fyrir þá sem yngri eru
að athafnaþráin, sjálfsbjargarvið
leitni hefur verið og er enn sterk
asti þráður í lifi hans, enda hefur
hann aldrei verið upp á aðra kom
inn um dagana.
Kona Björns, Rannveig Jóns-
dóttir, á einnig sína sögu. Hun
hefur helgað þessu byggðarlagi
alla sína starfskrafta. Hún hefur
tekið þátt í ýmsum félagsmálum
staðarins, var ein af stofnendum
Kvenfélags Reyðarfjarðar og hef
ur starfað þar mikið og setið m.a.
í stjórn þess. Einnig er hún í
stjórn sóknarnefndar Búðareyrar
kirkju o. m. fl. Þá skal þess getið
að oft hefur hún verið kölluð til
að gegna ljósmóðurstörfum og
margri konunni hefur hún hjálp-
að þegar þannig hefur staðið á
og mér er kunnugt um það að
öll þau störf hefur hún leyst af
hendi með ágætum og án endur-
gjalds.
Ég vil geta þess hér að fyrir
um það bil 2 árum var hún vakin
að næturlagi til að taka á móti
barni er fæddist um borð í strand
ferðaskipinu Esju er hér lá.
Að endingu vil ég geta þess að
ég var einn af mörgum, sem
heimsótti þau hjón á þessum
merkisdegi þeirra og þar var
margt manna saman komið og
mátti fljótt finna hlýhug og vin-
arþel til gömlú hjónanna, enda
eru þau orðlögð fyrir gestrisni.
Þar voru á borð bornar þær
beztu veitingar er ég hef fengið.
Einnig var þar glatt á hjalla, mik
ið sungið og jafnvel tekið sporið
þó að ekki væru stór salarkynni.
Þau Rannveig og Björn hafa
eignazt 3 mannvænleg börn sem
öll eru uppkomin, Þórunn gift
Björgvin Jónssyni kaupmanni í
Reykjavík, Jón giftur Nönnu Þor
steinsd. Reyðarfirði, María gift
Birni Jónssyni óðalsbónda Norð-
firði.
Eg vil svo að lokum óska ykkur
langra lífdaga og um leið þakka
ykkur ógleymanlega kvöldstund
og allan mér sýndan vinarhug og
frændrækni frá barnsaldri.
J. Þ. Reyðarfirði.
Carl Olsen, áttræður
EINN af elztu og beztu borgur-
um Reykjavíkur, Carl Olsen aðal
ræðismaður, verður áttræður í
dag. Carl Olsen er danskrar ætt-
ar, en hefur dvalið hér rösk fimm
tíu ár og er alíslenzkur í anda.
Hann kom ungur til íslands og
stofnaði skömmu síðar fyrirtækið
Nathan & Olsen í janúar ásamt
Fritz Nathan, en árið 1912 gekk
John Fenger í fyrirtækið.
í byrjun fyrri heimsstyrjaldar
reistu þeir félagar stórhýsi hér í
bænum, sem enn í dag er með
stærstu og svipmestu húsum
Reykjavíkur (Reykjavíkur-
apótek).
Má af því marka hvílíkan stór-
hug Carl Olsen bar snemma í
brjósti. Hans mun lengi verða
minnzt, sem eins af brautryðj-
endum íslenzkrar út- og innflutn
ingsverzlunar,
Carl Olsen á sér mörg áhuga-
mál. Hann var meðal annars einn
af stofnendum Sjóvátryggingafé-
lags íslands og seinna Almennra
Trygginga og hefur verið stjórn-
Ný raisjá
Washington 19. jan. —
BANDARÍKIN hafa fram-
leitt ratsjá, sem getur „séð“
yfir sjóndeildarhrirginn og
við góð skilyrði fundið flug-
vélar eða aðra hluti sem eru
á hreyfingu, í allt að 4.160
kílómetra f jarlægð. Er þetta
álítin mikil bylting á þessu
sviði, en hingað til hafa rat-
sjár aðeins getað greint hluti
í beinni stefnu frá Ioftneti
sínu. Nýja ratsjáin, sem
„sveigir“ fyrir sjóndeildar-
hringinn með því aff geislar
hennar endurvarpast úr há-
loftum, hefur fengið nafnið
Madre, en það er skamm-
stöfun fyrir magnetic drum
receiving equipment, sem er
einn af aðalhlutum ratsjár-
innar. Verið er að reisa
Madre-stöð í Marylandriki,
sem ætlað er að muni geta
haft eftirlit með svæðinu frá
Azoreyj jm til Nova Scotia.
Kennaranámskeiö
i dönsku við
Háskóla íslands
NÁMSKEIÐI því í dönsku fyrir
dönskukennara, sem hófst síðast-
liðið haust í háskólanum, verður
haldið áfram til vors. Kennslan
hefst á ný mámidag 25. janúar
kl. 20.15 í 2. kennslustofu. Aðal-
áherzla verður lögð á málfræði
og hljóðfræði; í bókmenntasögu
verður fyrst farið yfir nútíma
sjónleik.
Skípshöfnin ó m.b. Rnfnkeli
En í gegnum brim og boða,
bendir Drottins máttug hönd,
upp í himins helgidóma,
hún á valdið yfir dröfn.
Leiðir ykkur látnu vinir,
lífs í bjarta friðarhöfn.
KVEÐJA frá fjórum skipsfélög-
um, er fóru í land daginn fyrir
hinztu ferff.
íslands vösku óskasynir,
ykkur syrgir þjóðin öll.
Hniguð mitt í hetjustörfum,
hafs við þungu boðaföll.
Engir stærri fórnir færa,
fyrir landið sitt og þjóð,
en þeir sóknardjörfu drengir,
sem draga föng úr Ránarsjóð.
Við, sem samstarf áður áttum,
ykkur með, um breiðan sjá,
drúpum höfði í hljóðri lotning,
heitri þökk, sem orð ei tjá.
Marga för á fleyi traustu,
fórum við um úfin sund.
Drenglund ykkar dug og snilli,
dáum við að hinztu stund.
Heitt er saknað, svarrar alda,
sorgaróð við kalda strönd.
Okkar kveðjur, bænin beri
blítt við hástól Frelsarans,
ykkar bíði um eilífð bjarta
opinn kærleiksfaðmur hans.
Ástvinanna harmsár hjörtu
heilög vermi lífsins trú.
Drottinn segir: „Látinn lifir".
Leiðir hér þá skilja nú.
Og um síðir endurfundi I
eigum við á lífsins strönd.
Anda þá, sem ástin tengir
ei mun dauðans kalda hönd
skilið fá, þó skiptist vegir
skamma stund í tímans höfn.
Sagan geymir gullnum stöfum,
góðu vinir, ykkar nöfn.
Ingibjörg Sigurðardóttir.
arformaður þess félags frá upp-
hafi. Þrátt fyrir það, að árin hafi
færzt yfir Carl Olsen, sjást þess
lítil merki. Hann er enn í dag
með fulla starfsorkuog hvarvetna
hrókur alls fagnaðar.
Vini og kunningja á hann í öll-
um stéttum okkar þjóðfélags,
enda er hann sérstaklega við-
mótsþýður við hvern, sem að
garði ber. Ég vil með þessum
fáu orðum senda honum hugheil-
ar hamingjuóskir á þessum tíma-
mótum og veit ég, að hans mörgu
vinir munu taka undir þær ham-
ingjuóskir og vera í huganum
með honum, þar sem hann dvel-
ur nú um stundarsakir á Hótel
Amager í Kaupmannahöfn.
B. E.
Haga- og Melabúar
Efnalaug Austurbæjar, Tómasarhaga 17 hefur af-
greiðslu á skyrtum fyrir okkur. Leggjum sérstaka
áherzlu á vandaðan og góðan frágang. Fljóta og
örugga afgreiðslu. Höfum fullkomnustu vélar. Fest-
um á tölur.
Aðrir afgreiðslustaðir:
EFNALAUGIN GLÆSIR
Hafnarstræti 5
EFNALAUGIN GLÆSIR
Laufásveg 19
EFNALAUGIN GLÆSIR
Reykjavíkurvegi 6
Hafnarfirði
EFNALAUGIN GLÆSIR
Blönduhlíð 3
FATAPRESSAN
Austurstræti 17
VERZLUNIN ANITA
Bugðulæk.
Þvottahúsið
Skyrtur & Sloppar h.f.
Brautarholti 2 — Sími 15790.
Hraiskákmót
Heimdallur F.U.S. efnir til hraðskákmóts n.k.
sunnudag 24. jan. Öllum Heimdellingum er heimil
þátttaka í mótinu. Sigurvegari mótsins hlýtur góð
verðlaun. Væntanlegir þátttakendur tilkynni skrif-
stofu félagsins í Valhöll við Suðurgötu þátttöku
í síma á eftirtöldum tímum. 1 dag föstudag kl. 3—7
og á morgun laugaidag kl. 2—4. Sími skrifstofunnar
er 17102.
Stjórn Heimdallar.
BRIDGE
Heimdallur F.U.S. efnir til tvímenningskeppni í
Bridge þrjú n.k. mánudagskvöld 25. jan.. 1. febrúar
og 8. febrúar. Þeir sem hæstir verða eftir þessi þrjú
kvöld hljóta góð verðlaun. Stjórnandi keppninnar
verður Sigurður Helgason, lögfræðingur.
Væntanlegir þátttakendur tilkynni skrifstofu fé-
lagsins í Valhöll við Suðurgötu þátttöku sína á eftir-
töldum tímum: í dag föstudag kl. 3—7 og á morgun
laugardag kl. 2—4. Sími skrifstofunnar er 17102.
Stjórn Heimdallar.