Morgunblaðið - 22.01.1960, Qupperneq 12
12
Föstudagur 22. jan. 1960
MORCVNBLAÐIÐ
A tæpu 114 ári óx reaktorbyggingin (t. h.) upp af 6 metra djúpum undirstöðum upp í 36 metra
hæð. Nú er unnið að því að setja saman ofninn sjálfan og hina þykku geislunareinangrun hans.
Heimsókn
Inga Mogensen, minning
Framh. af bls. 11
er stefnt mafkvisst að því að
undirbúa iðnaðinn, sem ein-
hvern tíma síðar mun nota og
framleiða kjarnorkustöðvar. Tak
markið er að geta selt til útlanda
kjarnorkustöðvar á samkeppnis-
færu verði síðarmeir, þegar við-
skiptamöguleikarnir opnast. Ef
iðnaðurinn er þá ekki tilbúinn,
missir hann spón úr askinum sín.
um á öllum sviðum útbúnaðar
til orkuframleiðslu, því að kaup-
andinn vill einungis verzla við
land, sem alltaf hefir síðustu
nýjungar á boðstólum. Þýzki
atommáiaráðherrann komst svo
að or-ði: „Ef þýzkur iðnaður er
ekki fær um að bjóða til sölu
kjarnorkuver, þá mun hann bráð
lega ekki einu sinni geta selt ryk
sugur úr landi“.
Möguleikar íslands
Við ökum aftur út af svæðinu,
þar sem 800 byggingaverkamenn
eru önnur hafnir við byggingu
þessa rannsóknarvers, sem er
stór liður í viðleitni Evrópu til
friðsamlegrar hagnýtingar kjarn.
orku. Umræður okkar snúast
fyrst um kjarnorkusprengjur, böl
þeirra og hættur, en síðan berst
talið að íslandi, sem blaðafuil-
trúinn hefir mikinn áhuga á.
Hann hefir þegar útvegað sér
ýmsar upplýsingar um landið og
langar til að heimsækja það
bráðlega. Við ræðum um vatns-
virkjanir, jarðhita og kjarnorku
á íslandi. Vegna smæðar íslands
er engin von til þess að við get-
um tekið virkan þátt í þróun
og byggingu kjarnorkuvera. En
við gætum kannske átt við rekst.
ur kjarnorkuvera, sem keypt
yrðu erlendis frá.
Hvort það tekst í náinni fram-
tíð að framleiða þau ódýr og
með reksturskostnaði, sem er
sambærilegur við önnur orkuver
er gátan, sem ekki verður ráðin
fyrr en eftir mörg ár.
Karlsruhe, 10. jan. 1960.
Helgi B. Sæmundsson.
INGA, kæra Inga okkar allra,
sem þekktum þig. Jólin eru að
hefjast. Og þú ert horfin úr hópn
um. Og skarð þitt er opið og ó-
fullt. Þú settir þinn sérstaka blæ
á stundir gleði og alvöru. Það
vantar eitthvað, sem ekkert okk-
ax átti — nema þú. Það er
kannski fyrst nú, sem við veit-
um því athygli, hversu stór þú
varst í vinahópi, þótt aldrei
reyndirðu að gera þinn hlut stór-
an. En nú ertu horfin úr hópn-
um. Og þó. — Minningin er svo
lifandi, að við liggur, að við
mælum til þín gamanyrði, sem
fyrr og heyrum svör þín og létt-
an hlátur.
1 dag er sunnudagur með blá-
um himni. Og það var yndisleg-
an, sólbjartan sunnudag í júní,
sem Dauðinn valdi þig til ferðar
með sér í hvítum báti sínum til
strandarinnar ókunnu. Himinn-
inn var heiður og hlýr. Aðeins
skýjagrisjur hér og þar til
skrauts á blámanum.
En hvað það átti vel við, Inga,
að hefja ferðina í birtu og yl
langdegisins. Þú varst sjálf barn
ljóss og yls, unnir ijósinu og yln-
um og barst hvort tveggja með
þér.
Og þú unnir lífinu, þótt oft
drægi ský fyrir sól, en þú ótt-
aðist ekki Dauðann. Þú vissir
mætavel, að hann var á næsta
leiti, að hann hafði í rauninni
rétt þér hönd sína og kvatt þig
til ferðar. En í vinahópi varstu
glöð og kát sem fyrr og ávallt
reiðubúinn að rétta hönd til
hjálpar eða örva til gleði, eftir
því sem við átti. Varstu ávallt
veitandinn.
Við vitum, að það er heimska
að harma horfna vini. Dauðinn
er aðeins önnur eðlileg hlið þess
fyrirbæris, sem við nefnum líf.
Hann er jafntorræður sem lífið
sjálft. Hvort tveggja er sama
gátan.
Þegar Dauðinn fer um, hljót-
um við oft að spyrja: „Hvers
vegna; hvers vegna?“
En hversu oft er hann ekki
einnig mildur, blíður, líknandL
Og þótt hann virðist oft harð-
leikinn, er hérnn þó hverjum ein-
staklingi fæðing inn á nýtt til-
verusvið, nýtt lífssvið.
Og nú kom röðin að þér, Inga.
Nú hefur þú lifað dauðann og
öðlazt nokkra þekkingu á því,
sem hinum megin býr.
Þú hefur kvatt vini þína hér
og heilsað vinum þínum handan
landamæranna á líkan hátt eins
og hverju sinni, sem þú fórst
utan.
Vinir hafa fagnað komu þinni,
eins og við söknuðum þín, er þú
kvaddir.
Vissulega óskum við þess að
hafa þig lengur méðal okkar. En
það væri eigingirni, ef sökn-
uður okkar væri ekki einnig
blandinn gleði. Gleði yfir því, að
Dauðinn fór um þig mildum, líkn
andi höndum og kom í veg fyrir
langvinnar þjánipgar erf'ðs sjúk
dóms.
Hann klippti sundur „silfur-
þráðinn" og flútti þig inn á það
lífssvið, sem þú hafðir byggt
upp með lífi þínu hér. Lífi, sem
var svo ríkt af fórnarlund, hjálp-
fýsi og góðvild.
Með þessum eiginleikum hafð-
ir þú búið þér yndislegan sama-
stað á nýju sviði, þvi að lög-
mál orsaka og afleiðinga, er alls
staðar að verki. Það svíkur eng-
an og hlífir engum, úthlutar ölL
um í þeim mæli, sem þeir hafa
unnið til.
Það er áreiðanlegt, — í bók-
staflegum skilningi áreiðanlegt,
að hver og einn uppskeri eins og
hann sáir.
Við getum því samglaðzt þér,
Inga, eins og við samgleðjumst
vini, sem flyzt til annars lands,
þar sem heill og hamingja bíður
hans.
Öllum. sem kynntust þér, Inga,
hlaut að þykja vænt um þig.
Og telja má víst, að við hittumst
aftur. Vináttubönd ná heima
milli. Þau slitna ekki, þótt leiðir
skilji.
Klökkir, þakklátir hugir
fylgdu þér til hins nýja heim-
kynnis. Og þegar þar að kemur
að bátur okkar steytir kili við
grunni á þeirri sömu strönd, sem
bát þinn hefur nú borið að,
undrumst við ekki, þótt þú verð-
ir í vinahópnum, sem tekur á
móti okkur. Og þurfi einhver að-
hlynningar við, er víst að þú
munt fúslega veita hana.
Kæra Inga, þökkum þér sam-
veruna, þökkum þér allar gieði-
og ánægjustundirnar, Þökkum
allt, sem þú hefur fyrir otfkur
gert, allt, sem þú hefur miðlað
okkur af gnægð og örlæti hjarta
þíns, af sjálfri þér.
Vertu sæl, Inga, og fylgi þér
heill og h'amingja á hinum nýju
leiðum.
Gleðilegt nýtt ár, Inga.
Vertu sæl.
Vinir
yj-maður dæmdur
MÍÍNCHEN. V. Þýzkalandi, 20.
jan. (Reuter): — Fyrrverandi
foringi í SS-sveitum Hitlers og
1 fangabúðastjóri, Ritchard Bug-
dalle að nafni, var í dag dæmdur
til ævilangrar þrælkunarvinnu.
Hann var fundinn sekur um að
hafa myrt 28 fanga í Sachsen-
hausen-fangabúðunum á styrjald-
arárunum.
Bugdalle neitaði öllum sakar-
giftum — sagði að fyrrverandi
fangar hefðu verið fengnir til
þess að bera ljúgvitni gegn sér. —
Eitt vitnið sagði aftur á móti, að
Pugdalle hefði ekki aðeins myrt
umrædda 28 menn, heldur hefði
hann drepið menn hundruðum
ef ekki þúsundum saman.
FARFUGLAR
Árshátíðin verður haldin í Framsóknarhús-
inu uppi, fimmtudaginn 4. febr. n.k. kl. 8,30.
Nánar auglýst bréflega og í félagslífi.
Stjórnin.
AUGLÝSING
frá lögreglustjóranum I Keflavik.
Að tillögu umferðarnefndar Keflavíkur og sam-
kvæmt samþykkt bæjarstjórnar Keflavíkur, er nú
þegar öll umferð fólksbifreiða um bryggjur Kefla-
víkurhafnar bönnuð, svo og eru bannaðar bifreiða-
stöður á Bryggjuvegi frá Loftshúsum og niður að
höfninni.
Lögreglustjórinn í Keflavík, 15. jan. 1960.
A. tiíslason.
Sjómannafélagar Hafnarfirði
Aðalfundur verður haldinn í Verkamannaskýlinu
sunnud. 24. jan. kl. 2 e.h.
Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf,
lagabreytingar og önnur mál.
Stjórnin.
í Reykjavík Freyjugötu 41 (inng. grá Mímisvegi).
MODEL
óskast tvö kvöld í viku.
Uppl. í dag frá kl. 8—10 e.h. Sími 11990.
Sólar-kaffi
fsfirðingafélagsins verður í Sjálfstæðishúsinu sunnu
..aginn 24. þ.m. kl. 8,30 síðd.
Bæjarins beztu skemmtikraftar.
Aðgöngum. á kr. 50,— seldir og borð tekin frá í dag
kl. 5 til 7 síðd.
ísfirðingafélagið.
Tilboð óskast
í nokkrar fólksbifreiðir er verða til sýnis í Rauðarár-
porti við Skúlagötu mánudaginn 25. þ.m. kl. 1—3.
Tilb. verða opnuð í skrifstofu vorri frá kl. 5 sama
dag. Eyðublöð fyrir tilboð verða afhent á útboðs-
stað.
Sölunefnd varnarliðseigna.