Morgunblaðið - 22.01.1960, Síða 18
18
MORClílSTt JA Ð 1 f)
Föstudagur 22. jan. 1960
16 milljón kr.
íþróttahöll
á Keflavíkurvelli
Langstœrsfa og fullkomnasta íþróttahús
á íslandi
AÐALVERKTAKAR
á Keflavíkurflugvelli eru
þessa dagana að ljúka endan-
lega við afhendingu til varn-
arliðsins, á stærsta íþrótta-
húsi, sem byggt hefur verið
hér á landi.
1 tilefni af þessu átti tíðinda-
maður Mbl. tal við Guðmund
Einarsson verkfræðing, sem er
I Squaw
Valley
ÞAÐ er Bandaríkjamaður af
norskum ættum, sem hefur
/firumsjón með skíðastökki
Olympíuleikanna í Squaw
iValley.
Hann lét svo um mælt við
fréttamenn í dag, að þar yrði
skíðastökk keppendanna
lengri en á nokkrum öðrum
Olympíuleikjum. Lengsta
stökk á Olympíuleikjum til
þessa á Finninn Antti Hyva
erinen. Stökk hann 84 m á
leikunum í Cortina 1956.
Sá norskættaði sagði það
trú sína að minnsta kosti 10
af þeim 70 mönnum sem
þátt taka í skíðastökkinu í
Squaw Walley mundi takast
að bæta það met. Aldrei
hefði slíkur úrvalshópur
stökkmanna, gengið til ol-
ympskrar keppni, og aldrei
myndi keppnin verða jafn-
ari en nú milli þessara af-
reksmanna sem kæmu frá
Noregi, Finnlandi, Svíþjóð,
Rússlandi, Þýzkalandi og
víðar. Hann minnti ennfrem
ur á að í keppni í stökkbraut
inni í Squaw Walley í fyrra
hefði Finninn Kalev: Kalak
inen stokkið 90.5 metra.
verklegur framkvæmdastjóri
Aðalverktaka og bað hann að
veita lesendum Mbl. nokkra
fræðslu um mannvirkið. Guð-
mundur varð fúslega við þessari
beiðni og fer frásögn hans hér á
eftir.
Ár í byggingu — 2200 fermetrar
Vinna við íþróttahúsbygging-
una hófst í desember 1958 og hef
ir verkið því staðið í rúmléga
eitt ár. Samningur Aðalverktaka
hljóðaði upp á eina milljón dali,
eða rúmlega 16 milljónir íslenzk-
ar krónur. í þessu verði innifal-
in byggingarkostnaður hússins
sjálfs, en það er 2200 fermetrar
að flatarmáli, ennfremur kostn-
aður við vatns. og raflögn að
húsinu og skolpleiðslur frá því,
jarðvinnu umhverfis húsið og
malbikað bifreiðastæði fyrir 100
bifreiðir.
Stærsti íþróttasalur landsins
Húsið skiptist í tvennt, íþrótta
salinn, sem er með 7% metra
vegghæð og viðbyggingu fyrir
búningsklefa með 3% metra
vegghæð. Húsið er einnig allt
undir risi.
Iþróttasalurinn mun vera sá
stærsti hér á landi. Glófflötur
hans er 38x22 metrar. Ætlunin
er að setja upp áhorfendabekki
meðfram langhliðunum og verða
þeir þannig útbúnir að hægt
verður að leggja þá saman upp
að veggjunum þegar æfingar
fara fram, en með því verður
hægt að æfa körfuknattleik á
tveim völlum samtímis.
SéS inn eftir parketgólfi nýju íþróttahallarinnar.
Kanadískur hlynur
Gólf salarins er „Parket-1 úr
1% þumlungs kanadiskum hlyni,
en mjög erfitt var að ná í þessa
þykkt, þar sem venjulega er not-
aður lí4 þumlungs þykkur viður
í svona gólf. Það voru aðeins tvö
fyrirtæki, sem gátu afgreitt þetta
efni. Annað fyrirtækið var í
Bandaríkjunum, en hitt á vestur-
strönd Kanada og var tilboð þess
s
óleu
Laugaveg 33.
Hvítir
nœlon-
sloppar
Allar stærðir
£innig Hvítir
popplín-
sloppar
Sendum gegn póst-
kröfu um allt land. 'l
hagstæðara.
Þak íþróttasalarins hvílir á
stálgrindabitum og er frítt haf
þeirra 35 metrar. Húsið sjálft er
stálgrindahús klætt borðviði að
innan ,en ytraborð er klætt
asbestþynnum. Þak er klætt efni,
sem nefnist „Galbestos“.
Gufubað og 240 klæðaskápar
í viðbótarbyggingunni er fyrst
anddyri, síðan kemur rúmgóð
forstofa, skrifstofa, fatageýmsla,
böð og salerni fyrir karla og kon-
ur og búningsklefar karla og
kvenna rúmar karlaklefinn 240
fataskápa. Ennfremur er þar
gufubað, nuddstofa, hvíldarklefi
fyrir baðgesti, sjúkraklefi og
áhaldageymsla. Auk þess eru að
sjálfsögðu rúmgóðir gangar í
byggingunni.
Húsið er allt vandað að efni
og frágangi, enda ekkert til spar
að, en ef til vill má segja að
minni áherzla hafi verið lögð á
smekklegt útlit.
40% loftraki
1 þessu húsi er að líkindum
fullkomnasta loftræstingarkerfi,
sem til er í byggingu á Islandi og
er tildæmis í sambandi við það
sérstakt stillitæki, sem heldur
stöðugt 40% loftraka í bygging-
unni. Hægt er að breyta raka-
stiginu að vild.
Athyglisverður brunaboði
í húsinu er einnig annar út-
búnaður, sem ég tel að Islend-
ingar ættu að kynna sér nánar.
Er hér um að ræða brunaboða,
sem er þannig gerður að þráður
úr hitanæmu efni liggur um öll
herbergi byggingarinnar. Hitni
þessi þráður upp að vissu marki,
í þessu tilfelli 45 °C, þá ræsir
hann brunaboða á slökkvistöð-
inni og hringir brúnabjöllu í
byggingunni sjálfri.
Brunaboði þessi er bæði ódýr,
Samkvæmiskjólar
Ath:
Síðir Samkvæmiskjólar
eru tízkan í ár.
MARKABURINIM
Laugaveg 89.
einfaldur og auðvelt að koma
honum fyrir í gömlum bygging-
um. Væri hann sérstaklega fallin
til notkunar í húsum sem ekki
er dvalið i að næturþeli svo sem
skólum vörugeymslum og neta-
gerðum en brunar á slíkum stöð-
um valda oft milljóna tjóni.
Margar hendur unnu verkið
íþróttahúsið er teiknað af verk
fræðingadeild hersins en byggt
af Aðalverktökum. Yfireftirlits-
maður byggingarinnar var Þor-
kell Jónsson byggingarmeistari,.
en daglegt eftirlit hafði á hendi
Haraldur Einarsson byggingar-
meistari.
Eftirlitsmaður pípulagna var
Bergur Haraldsson pípulagninga
meistari en Járniðnaðar og pípu-
lagnaverkstæði Suðurnesja vann
verkið.
Rafvirkjadeildin h.f. í Reykja
vík annaðist raflagnir, en Öskar
Guðmundsson rafvirkjameistari
var eftirlitsmaður.
Einar Eyfells vélfræðingur sá
um uppsetninu hitunar og loft-
ræstingakerfis. Málaraverkstæði
Keflavíkur h.f. annaðist máln-
ingu. — BÞ.
Svíar unnu
25:11
SVÍAR og Norðmenn léku lands-
leik í handknattleik í Ósló í gær-
kvöldi. Unnu Svíar stórsigur,
skoruðu 25 mörk gegn 11. 1 hálf-
leik var staðan 13-4.
Sænska liðið hafði gífurlega
yfirburði. Vörn þess var örugg
og þétt og sóknarleikmennina
réðu Norðmenn alls ekki við.
Norska liðið olli gífurlegum
vonbrigðum. — Norðmennirnir
náðu aldrei tökum á leiknum.
Mörk Svía skoruðu Ulf Richard-
son 10, Kjell Jonsson 9, Rolf
Almquist 4 og Stig Lennart Ol-
son 2. Fyrir Noreg skoruðu Erik
Vellan 3, John Tresag 2, Knut
Larsen, Jan Petter As, Hovde,
Narvestad og Hagen eitt hver.