Morgunblaðið - 28.01.1960, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 28.01.1960, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 28. jan. 1960 MOFCl7l\TtLAÐ1Ð 9 28 ferðir viku- lega til útlanda 1 SUMAR munu íslenzku flugfélögin halda uppi 28 ferðum til útlanda í viku hverri og flogið verður til 11 erlendra borga. Flugfélag ís- lands áætlar að fara 10 ferðir til Evrópu og Loftleiðir áætla 9 ferðir til Evrópu og sömu- leiðis 9 til Bandaríkjanna. Og ekki er að vita nema Flugfé- lag íslands fljúgi þar að auki til Grænlands. En eins og horfurnar eru núna verða ferðirnar 28 og þær veita um 1800 farþegasæti frá íslandi, eða vikulega 3,600 sæti til og frá íslandi. Það er því óhætt að segja, að Íslendingar verði ekki einangraðir frá umheim- inum í sumar. Luxemburgar þar eð fjölgað væri ferðum til Amsterdam og þar yrðu allir BENELUX-far- þegar teknir. — Og það er stór áfangi að geta nú hafið ferðir til Helsingfors. Finnska flugfélagið flýgur ekki til New York, sagði hann, og að undanförnu hafa Loftleiðir fengið allmikið af far- þegum frá Finnlandi. — Við höfum þar góðan um- boðsmann og ráðgerum því ekki að setja upp sérstaka skrifstofu í bráð. 50% selt í Bandaríkjunum Sigurður Helgason sagði, að ásetluð nýting Loftleiða-véla í sumar yrði 11 klst. á sólarhring á Cloudmaster og 12 klst. á Sky- master. Þetta teldu þeir mjög góða nýtingu og það kæmi jafn- an betur út að láta gömlu Sky- master-vélarnar fara stytztu Ev- rópuleiðirnar, þ. e. til Norður- landa. — Farmiðasala okkar hefur vaxið mjög í Amsterdam, sagði Sigurður, en Noregur er samt einna „bezta“ landið okkar í Ev- rópu. Annars er um 50% farmiða sölunnar í Bandaríkjunum og hún fer líka vaxandi þar, sagði hann. Vantar flugmenn Loftleiðir hafa sem kunnugt er leigt eina og tvær flugvélar af Braathen að staðaldri, að nokkru með norskum áhöfnum. Með til- komu nýju vélanna þarf félagið lítið sem ekkert á leiguvélum að halda. 1 þessu sambandi sagði Alfreð Elíasson, framkvstj., að Loftleið- ir yrðu að hafa nokkrar norskar áhafnir enn um skeið, því skort- ur væri á þjálfuðum íslenzkum flugmönnum. Nokkrir íslending- ar, sem fengið hefðu þjálfun í starfi hjá erlendum flugfélögum, hefðu komið heim og ráðizt til Loftleiða. Það hrykki samt ekki til og sagðist hann vonast eftir fleiri slíkum. Stei'án Ben. „Sfefán Ben" - nýtt stál- skip til Neskaupstaðar NESFAUPSTAÐ 25. jan. — í gær kom til Reykjavíkur nýtt 147 lesta stálskip, Stefán Ben NK 55, sem smíðað er í skipa smíðasöðinni Eidsvik í Öskedal í Noregi eftir norskri teikningu. Eigendur skipsins eru braeðurnir Ársæll og Þorsteinn Júlíussynir. \brifc ar um: <r KVIKMYNDIR <■ Þotur í sumar? Það er skemmtilegt að glöggva sig á þessum tölum í sambandi við fregn Mbl. fyrir helgina um fyrirhugaða sumaráætlun Loft- leiða. Að vísu verður álitlegur hluti þessara sæta skipaður út- lendingum á leið milli Evrópu og Ameríku í Loftleiða-vélum. En þarna eru iíkrf ótaldar tvær viku legar viðkomur Pan American á Keflavíkurflugvelli, sem eitt út- lendra félaga tekur farþega hér. Og allt bendir nú til þess, að stórar þotur verði á þessari flug- leið féiagsins í sumar. Þær taka töluvert á annað hundrað far- þega. Helmings aukning En þessi aukning er ekkert einsdæmi. Þúsundum milljóna er nú varið til endurnýjunar flug- flotans og stækkunar flughafna um allan heim og samkeppnin á alþjóðaflugleiðum færist að sama skapi í aukana. Sem dæmi má nefna bandaríska flugfélagið TWA, sem er að taka Boeing- þotur í notkun á Atlantshafsleið- inni. Þær taka 142 farþega og fram til vors munu þær geta flutt 3,976 farþega á hálfum mánuði á flugleiðinni frá New York til London og Parísar og aftur til baka. Til samanburðar má geta þess, að hafskipin „Queen Mary“ og „United States" geta flutt samtals 3,875 farþega milli Amer íku og Evrópu á sama tíma. Með sumaráætlun TWA munu ferðirn ar þrefaldazt og geta þotur fé- lagsins þá flutt 22,000 farþega á mánuði í hvora átt á þessari höf- uðflugleið yfir hafið. Þetta er liðlega helmingi meirá, en fé- lagið gat flutt í fyrrasumar með þáverandi flota sínum, sem þó var ekki af lakara taginu. 1 alþjóðasamkeppni En flugleiðirnar yfir hafið eru langtum fleiri og TWA er aðeins eitt margra flugfélaga, sem hafa rúið sig inn að skinni vegna þotukaupanna og eiga líka ailt undir því að vel takist. — Loft- leiðir eiga mun meiri þátt í þess- ari alþjóðasamkeppni en Flugfé- lag íslands. Samkeppnin er óvíða jafnhörð og á flugleiðinni miili Evrópu og Ameríku og þar hampa Loftleiðir sínum lágu fargjöldum. Þeir eru óbundnir af gjaldskrá alþjóðasamtaka flug félaga (IATA), sem keppinaut- arnir eiga þó flestir eða allir að- ild að. Ekki flogið til Luxemburg 1 sambandi við nýafstaðnar milliríkjaviðræður og áform Loftleiða átti fréttamaður Mbl. tal við helztu forráðamenn fé- lagsins. Kristján Guðlaugsson, stjórnarformaður, sagðist mjög ánægður með útlitið. Jafnframt sagði hann, að ákveðið hefði verið að leggja niður ferðir til Bæjarbió: HALLARBRÚÐURIN MYND þessi er þýzk, tekin í ln- um og efni hennar byggt á skáld- sögu Agnesar Gunther, sem kom sem framhaldssaga í Famile- Journal. Fjallar myndin um ungán list- málara, Harry Thorstein, sem er í þingum við framgjarna unga stúlku, Charlottu að nafni. Hún gerir miklar kröfur til lífsins, ásakar Harry fyrir að hann máh myndir, sem enginn viiji kaupa og hann sé því jafnan félítiil. Jafnframt er hún góðkunningi ríks manns, sem geldur henm biíðu hennar með gnægð fjár og dýrum klæðum. Sundurlyndi hennar og Harrys eykst og fer svo að hann rekur hana frá sér. Harxy er nágranni Braunecks fursta, sem er ekkjumaður og á eina dóttur bama, kornunga. Þessi litla stúlka tekur mikiu ástfósri við Harry og hann við hana og er hún tíður gestur á vinnustofu hans. — Furstinn kvænist í annað sinn og er kona hans enginn önnur en Charlotta. Hún leitar aftur ásta Harrys, er. hann vísar henni á bug. Hún brennur af afbrýðisemi við fóst- urdóttur sina, og þegar Rosmari litla er fermd játar hún Harry ást sína og hann kyssir hana. — Furstahjónin sjá þetta og verður það til þess að hún er send í burtu til Sviss, þar sem hún er undir læknishendi, enda gengux hún með sjúkdóm, sem taiinn er það skæður að hún muni ekki lifa nema fram til tvítugsaldurs. Harry er um þessar mundir i París og þegar hann fréttir að Rosmari hafi ætlað að stytta sér aldur með eitri, flýtir hann sér á fund hennar. Rifja þau þarna upp gömul kynni og hann fer ekki frá henni aftur . . . Mynd þessi er einkar notaleg, vel tekin og litirnir prýðilegir, og hið fagra landslag nýtur sín í rikum mæli. Leikurinn er einnig mjög góður, sérstakiega Herthu Feiler í hlutverki Char- iottu og Gerhards Riodmanns í hlutverki Harrys. Williy Birgel fer einnig vel með hlutverk fucst ans og hin unga og fríða leik- kona Gudaul Blau fer laglega með hlutverk Rosmariu. Nýja Bíó: UNGU LJÓNIN ÞETTA er bandarísk mynd byggð á skáldsögu eftir Irwm Shaw. Gerast atburðirnir í Þýzkalndi, Frakklandi og í Bandaríkjunum á tímum síðari heimstyrjaldarinnar. Er þar lýst á mjög raunsæjan hátt lífi her- ÍSLENDINGAR hafa lengst- um fengið orð fyrir að vera fremur pennalatir. en þeir sem skrifa bréf, virðast einn- ig heldur hirðulitlir um að koma þeim til skila, eða ákaf- lega viðutan. í lok desember- mánaðar lágu hvorki meira né minna en 4700 bréf. sem ekki var hægt að koma til skila á Pósthúsinu í Reykjavík. Að visu var rangt heimilisfang á mörgum þeirra, en þar voru líka t. d. 400, sem ekkert heimilisfang var á. I fyrra voru óskilabréfin um 3000 alls. Fréttamaður blaðsins leit inn á pósthúsið í gær og átti tal við Matthías Guðmunds- son, póstmeistara. Þar hefur maður starfað að því síðan um jól að koma óskilabréfum í réttar hendur, með aðstoð póstburðarmannanna, sem eru kunnugir í hverfunum og hafa auk þess hjá sér dagbók, sem þeir hafa skrifað í athuga- semdir um flutninga o. fl. Með mikilli fyrirhöfn hefur þannig mannanna, bæði í her Þjóðverja og andstæðinga þeirra, banda- manna. Koma þarna eiukum við sögu þýzkur liðsforingi, Chrisli- an að nafni, sem Marlon Brand on leikur, Gyðingurinn Noaii Akcermann og Broadway-leik- arinn Michael Whiteacse, báðir í her Bandaríkjanna og eru þeir leiknir af Montgomery Clift og Dean Martin. Auk þessa koma við sögu unnustur hinna tveggja síðarnefndu, sem þær Hope Lange og Barbara Rush leika. Myndin er að meginefni til saga þessa fólks á vígvöllunum, í París og í Bandaríkjunum og víðar, en efnið er svo mikið og margþætt, að engin tök eru á að rekja það neitt hér. Verður að nægja að geta þess að myndin er sannkölluð „stórmynd" að efni og allri gerð, spennan mikil og hún afbragðsvel leikin. Einkum hlýtur öllum sem sjá myndina að verða minnisstæður frábær leikur Montgomery’s Clift’s sem fer þarna með mikið hlutverk. 100 kr. seðill i póstkassa — tekizt að koma út miklu af óskilabréfunum, svo nú m.unu aðeins vera eftir um 2000. Utanáskriftin: Ungmey En það er ekki undarlegt þó ekk, sé hægt að koma sum- um þessara bréfa til viðtak- enda. A einu stendur t.d. bara Jóhanna, öðru aðeins ungmey, þriðja Fjóla Ragnarsdóttir, 16 Reykjavík og þannig mætti lengi telja þó ekki séu nefnd bréfin frá geðbiluðu fólki, sem skrifar til Guðs almáttugs. Þó er borgað tilskilið gjald undir öll þessi bréf. Það er ekki aðeins að fé sé kastað á glæ, þegar slík óað- gæzla er viðhöfð við sendingu bréfa, heldur geta áríðandi erindi og jafnvel verðmæti farið forgörðum. Ganghraði bótsins reyndist 1 reynsluferð vera 10% sjómíla. — Hann hefur 400 ha Wickmann- vél og er búinn öllum nýjustu siglingatækjum, m. a. sjállfvirk- um 'Simrad fiskileitartækjum. Lestin er kæld, og sjö klefar eru í skipinu fyrir þrettán manna áhöfn, allir innréttaðir með ma- hogny, og er einstaklega vand- aður frágangur á allri smíði skips ins.Heimferðin gekk vel og reynd ist skipið mjög vel. Skipstjóri er Einair Guðmundsson, stýri- maður Birgir Sigurðsson, fyrsvi vélstjóri Freysteinn Þórarinsson, en hann var við niðursetningu á vél og tækjum i skipið. Skipið verður strax útbúið á veiðar og verður gert út fra Neskaupstað á línu og net. Bræðurnir Ársæll og Þorsteinn áttu áður Langanes, sem sökk í róðri frá Vestmannaeyjum 22. febrúar í fyrra, svo ekki er liðið ár, þar til nýtt, stærra og glæsi- legra skip er komið í staðinn, enda gekk smíði skipsins m]ög vel, og voru eigendurnii sérstak- lega þakklátir umboðsmönnum skipasmíðastöðvarinnar, sem er Landssamband íslenzkra útvegs- manna og Jóhanni Clausen, sem var eftirlitsmaður með smíðmr.i. tAlveg á næstunni verður iagður kjölur að samskonar skipi fyrir íslenzka aðila hjá skipasmiða- stöðinni. T. d. var fyrir skómmu opnað bréf, sem ekki hafði reynzt unnt að koma til skila, en það er stundum gert á Pósthúsinu eftir ákveðnum reglum. Kom þá í Ijós, að í því var víxill, sem faliinn var í gjalddaga. Einnig kom það fyrir ekki alls fyrir löngu. er tæmdur var póstkassi úti í bænum, að i honum fannst 100 kr. seðill, sem annað hvort hafði verið stungið niður um rifuna með bréfum eða í staðinn fyrir bréf, þvi ekkert benti til þess að hann hefði dottið -út úr bréfi. Liggur seðillinn nú á pósthúsinu, því þó póstmenn séu slyngir, hefur þeim ekki tekizt að hafa upp á eiganda hans. Póstmeistari sagði að búið væri að auglýsa þessi bréf með sáralitlum árangri, en að nú ætlaði hann bráðlega að gera tilraun með að senda blöðunum lista yfir bréfin, og sjá hvaða árangur það bæri. Fallirm víxill i óskilabréfi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.