Morgunblaðið - 28.01.1960, Síða 11

Morgunblaðið - 28.01.1960, Síða 11
Fimmtudagur 28. 5an. 19G0 MOFCTJNTtLAÐIÐ 11 Öryggishús á dráttarvélar Framleiðsla þeirra hafin á Seyðisfirði FYRIR nokkru rakst fréttamaður Morgunblaðsins á Seyðis- firði inn til Vélsmiðjunnar Stál og sá, að á meðal verkefna fyrirtækisins voru allmörg hús á dráttarvélar. Þar sem hér er um nýja framleiðslu að ræða átti hann eftirfarandi samtal við eigendur fyrirtækisins, þá Pétur Blöndal og Ástvald Kristófersson. — Er langt síðan þið fóruð að hugsa um smíði þessara öryggis- húsa? — Já, það er nú komið nokkuð á annað ár síðan við fórum að hugsa um það fyrir alvöru. Á Reynt að afstýra far- gjalda- stríði ALÞJÓÐASAMTÖK flugfé- laga (IATA) munu innan skamms boða til nýrrar ráð- stefnu til að fjalla um fargjöld á mörgum helztu alþjóðaflug- leiðum. Eins og kunnugt er náðist ekki samkomulag á IATA-ráðstefnunni, sem hald- in var um þetta mál í Hono- lulu ekki alls fyrir löngu. Nú- verandi gjaldskrá IATA geng ur úr gildi 1_ apríl n.k. og er óttazt, að verði ekkert að- hafzt hefji stóru flugfélögin víðtaekt .,fargjaldastríð“. Meðal þeirra flugleiða, sem ekki náðist samkomulag um fargjald á var Atlantshafs- leiðin, milli Evrópu og Ame- ríku. Vitað er, að bandarísku flugfélögin vilja lækka far- gjöld mjög á þessari leið til að auka ferðamannastrauminn, því mörg þessara félaga auka sætafjölda sinn um helming með nýju þotunum. Allflest Evrópufélögin eru lækkun- inni andvíg á þeim forsend- um, að smærri félögin verði að halda núverandi fargjöld- um til að tryggja rekstur sinn. Ekki er ákveðið hvenær hin væntanlega ráðstefna hefst, en undirbúningur hennar er þegar hafinn. Segir í tilkynn- ingu frá William P. Hildred, framkvæmdastjóra IATA, að fyrsta verk hans verði að fá ráðstefnuna til að framlengja núverandi gjaldskrá um 30— • 60 daga. þeim tíma höfum við gert all- margar tilraunir og mikið verið teiknað og reiknað. Það er fyrst nú, að við erum komnir það lagt að farið er að smíða húsin af fullum krafti. — Hafa þessar tilraunir ekki orðið ykkur kostnaðarsamar? — Jú, við erum búnir að verja til þeirra allmiklu fé og miklum tíma. — Hafið þið þá notið fjár- hagsaðstoðar opinberra aðila? — Nei, ekki er það nú. Satt bezt að segja virðast ekki vera til neinir opinberir aðilar, sem láta þessi mál til sín taka þrátt fyrir okkar mikla ríkisbákn. En Dráttarvélar hf. . í Reykjavík hafa hvatt okkur til framkvæmd anna og tekið að sér að selja húsin, enda eru þeir stærstu inn- flytjendur dráttarvéla. Slysin tilefnið — Hvað kom ykkur þá til að ráðast í þetta? — Fyrst og fremst hin mörgu traktorsslys sem orðið hafa á undanförnum árum og ekki sízt dauðaslysið, sem varð hér í firð inum. Þau vöktu ökkur til um- hugsunar um þá auknu slysa- hættu, sem er að skapast við ört fjölgandi notkun dráttarvéla. Einnig mætti til nefna blaða- greinar Arna G. Eylands, þar sem hann er að reyna að veKja athygli manna á vandamáli, sem Úr vélasal Vélsmiðjunnar Stál á Seyðisfirði, þar sem nokkur öryggishús á traktora sjást í smíðum. Fjarst sést eitt, sem þegar hefur verið sett á dráttarvéi. Alexander Keflavík Klemensson — Kveðja Hólabraut 16, Keflavík. F. 6. okt. 1898. — D. 20. jan. 1960. Kveðja frá bræðrum hans. ★ Vertu sæll, vinur og bróðir. Vonimar falla oft, fyrir andgusti dauðans, þótt annar sé meiri. Sigrari dauðans, hinn sanni, sonur Guðs, lifir. Náð hans er ný sérhvern daginn. náð hans þig blessi. Lítum við beygðir til baka, þá brott ert þú farinn. Hlýr eins og vorblærinn varstu, vinunum þínum. Leiddumst til leikja og starfa, Nýr skólameistari á Laugarvatni tekinn við FYRIR nokkru átti blaðið tal við Jóhann Hanness., hinn nýja meist ara við Menntaskólann á Laug- arvatni. Jóhann tók við starfi sínu við skólann um sl. áramót, er hann kom heim frá Ameríku en þar hafði hann verið bóka- vörður við Cornell-háskóla við íslenzka safnið þar, hið sama og áður höfðu verið Halldór Hermannsson og Kristján Karls- son. Jóhann skólameistari er M.A. í íslenzkum bókmenntum frá Kaliforníuháskóla í Berkley. — Hann hyggur gott til dvalarinn- ar hér heima og kveðst vera ánægður yfir að standa á ný á íslenzkri grund, en erlendis hef- ur hann nú dvalizt samfleytt i 10 ár. Hinum nýja skólameistara lízt staðurinn fagur og skólinn vel í sveit settur og telur framtíð hans muni bjarta. — Hér þarf vissulega margt að gera, segir Jóhann, og allar horfur eru á því að framkvæmdi; gangi hér að óskum. — Ósk mín er sú, að hér megi skólastarf blessast, enda ekki ástæða til að efa að svo verði, segir Jóhann Hannesson að lok- um. Til sölu og sýnis Opel Caravan 1955. Sérlega glæsilegur. Chevrolet ’47 sendibifreið. — Skipti óskast á nýlegri bif- reið. — lífið er fagurt. Sameign var sæla og tárin, sigur og tapið. Fyndi einn fegursta blómið, fylgdumst við allir saman að sjá það og skoða á sólríkum stundum. Vetur þótt líði um landið, lífið var fagurt, stjrnanna leifrandi ljóma litum við allir. Þakkarorð titra á tungu, tregi í hjarta. Það er svo margt, er við minn- umst, þá moldin þig hylur. Hjartans þökk, hjartkæri bróðir, heilagir englar ljósvarði leiðina þína til landanna nýju. Huggi Guðs heilagi andi þá harmur nú særir, veiklast ei vináttu böndin, þótt vinirnir hverfi. Sælurík samfunda vonin > sorgunum eyðir. Minninga geislarnir gylla grátskýja tjöldin. hér bíður úrlausnar. Það er satt að segja furðulegt, að samtök bænda og aðrir þeir, sem málið er skyldast, skuli ekki hafa látið þetta til sín taka fyrir löngu. Fjöldi dráttarvéla í landinu mun nú vera um 5000 og þeim fer ört fjölgandi. Það er augljóst að því lengur sem dregst að gera ráð- stafanir til að forðast traktors- slysin, því erfiðara verður það viðfangs. Mikið um traktorsslys hér A það skal bent, að árið 1958 varð hér á landi eitt dauðaslys á hverja 1000 traktora. í Svíþjóð urðu dauðaslysin árið 1957 0,21 á 1000 traktora, £ Noregi 0,83. Þrátt fyrir hina tiltölulega lágu hlutfallstölu í Svíþjóð, hafa Svíar gripið til róttækra aðgerða. Hinn 1. júlí síðastliðinn gengu í gildi ákvæði, sem gera það að skyldu við sölu á nýjum traktor- um, að traktorinn sé með öryggis húsi eða öryggisgrind. Ákvæði þessi voru sett að undangengn- um víðtækum rannsóknum og athugupum. . Við álítum að slík ákvæði eigi einnig að setja hér á landi, ekki sízt þegar sannað er að þau þurfa ekki að valda þjóðinni aukinni gjaldeyriseyðslu. ■— Álítið þið þá að slík öryggis hús eða grindur sé lausnin á vandanum? — Slíltur útbúnaður getur aldrei orðið öruggur með öllu, en óhætt er að fullyrða, að hann hefði fyrirbyggt flest dauðaslys- in, sem urðu hér árið 1958 og með tilkomu slíkra öryggishúsa er áreiðanlega stigið stærsta skrefið til úrbóta. Langalgengustu slysin verða, er traktorinn veltur á hliðina. 1 sænskri skýrslu segir t. d. að af slysum sem rannsökuð voru sér- staklega, voru 121 eða 18% með þeim hætti að hann „prjónaði". Af þessum veltum til hliðar urðu 54 af dauðaslysunum. I apríl síðastliðnum voru gerð- ar á Hvanneyri veltutilraunir með þetta öryggishús okkar und- ir eftirliti Öryggiseftirlits ríkis- ins og Verkfæranefndar ríkisins. Kom þar í ljós að húsin eru mjög sterk og þola flestar algengustu veltur sem koma fyrir. — Hverjar álítið þið að undir* tektir bænda verði? — Ekki er gott að segja um það fyrirfram, en bændur virð- ast ótrúlega skeytingarlausir í þessum efnum. Það er ærinn ábyrgðarhluti að láta börn og unglinga nota þessi tæki án þess að fyllsta öryggis sé gætt í hví- vetna. — Hvað koma húsin svo til með að kosta? — Það er ekki fullséð ennþá, en sýnt er að þau verða ekki dýr- ari en samsvarandi hús innflutt. Sennilega um eða innan við átta þúsund. Ef bændur sjá sér ekki fært að ráðast í kaupin af fjár- hagsástæðum, ætti Tryggingar- stofnun ríkisins að bjóða flam skynsamleg lán til kaupanna. Hún fengi það endurgreitt með rentum og rentu-rentum. Að fengnum þessum upplýs- ingum kvaddi fréttamaður þá Pétur og Astvald með þakklæti fyrir greið svör. K. 1L - ÚTSAIAN Bezt Úlpur — Regnkápur — Pils Peysur — Blússur — Belti Náttföt — Sloppar — Undirföt ☆ Mikið vöruval ☆ Afsláttur 30-75% Bergþórugötu 3. Sími 11025. Vesturveri

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.