Morgunblaðið - 28.01.1960, Síða 12

Morgunblaðið - 28.01.1960, Síða 12
12 MOFCUNRTJfílÐ Finvntudagur 28. jan. 1960 Útg.: H.f. Arvakur Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Sigurður Bjamason frá Vigur Matthías Johannessen. Lesbók: Arni Óla, sími 33045 Auglýsir.gar: Arni Garðar Kristinsson Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Askriftargald kr 35,00 á mánuði innamands. 1 lausasölu kr. 2.00 eintakið ÓÐI TVTÝTT og glæsilegt skip hef- ’ ur bætzt í íslenzka varð- skipaflotann. Óðinn hinn nýi er betur búinn og hraðskreið- ari en öll okkar eldri varð- skip. Má því fullyrða, að hann sé mjög vel hæfur til þess að gegna hinu mikilvæga hlut- verki sínu. N N En nú skiptir það megin- máli að hið nýja varðskip er komið til landsins og mun fljótlega taka upp varðgæzlu á íslenzkum fiskimiðum. Allir íslend- ingar fagna því og bjóða Óðin velkominn til ís- lands. Tillaga Bjarna Benediktssonar Alþingi samþykkti í marz 1956 tillögu frá þáverandi dómsmálaráðherra, Bjarna Benediktssyni, um að veita ríkisstjórninni heimild til að hefja undirbúning að smíði nýs varðskips. Var þá þegar auðsætt, að brýna nauðsyn bar til þess að efla varðskipa- stólinn þar sem fram undan voru aðgerðir til frekari út- færslu fiskveiðitakmarkanna. Því miður dróst það fram í árslok 1958 að samið væri um smíði hins nýja varðskips. Kemur það því allmiklu seinna til gæzlustarfa en ráð hafði verið gert fyrir upphaf- lega. Löggæzla og bjc'frgun Islenzku varðskipin eru ekki herskip í þeim skilningi, sem venjulega er lagður í það orð. Hlutverk þeirra er fyrst og fremst að halda uppi lög- gæzlu, tryggja það eftir föngum að hin íslenzka fisk- veiðilandhelgi sé virt, bæði af útlendingum og íslendingum sjálfum. Það hefur einnig komið í þeirra hlut að annast bj örgunarstörf og aðstoð við hinn stóra fiskiskipaflota, sem sækir á miðin umhverfis landið. Landhelgisgæzlan er ríkur þáttur í varðveizlu íslenzks sjálfstæðis og fullveldis. — Verrid fiskimiðanna og bar- áttan gegn rányrkjunni er einnig þýðingarmikill þáttur í lífsbaráttu þjóðarinnar. — MYNDUN SPARIFJÁR CPARNAÐUR er undirstaða allra framkvæmda. Þrátt fyrir það hefur furðulítið verið gert af opinberri hálfu á undanförnum árum til að hvetja almenning til sparn- aðar. Það dugir lítt, að ráða- menn þjóðarinnar minnist stundum á það í ræðu og riti, að sparnaður sé þjóðfélaginu nauðsyn. Eina raunhæfa leið- in er að gera ráðstafanir, sem duga, til að fólk sjái sér hag í því að leggja fyrir og eign- ast sparifé. Þjóðfélaginu til gagns Fjölda mörgum er sparnað- ur í blóð borinn, og þetta fólk vill ekki eyða öllum tekjum sínum, ef það hefur nokkur tök á öðru. Margir vilja spara til elliáranna eða til þess að eiga nokkurn sjóð, ef sér- staka erfiðleika ber að höndum. Einnig þurfa flestir að spara um langan tíma, ef þeir vilja eignast dýra hluti. Hvert svo sem markmiðið er, og þó að fólk sé eingöngu að spara í eiginhagsmuna- skyni, þá kemur sparnaður- inn þjóðfélaginu til góða. Með því að leggja sparifé í banka og sparisjóði, þá verða peningarnir frjálsir til ráð- stöfunar fyrir atvinnuvegina, og þjóðin í heild nýtur góðs af. Þegar einhverjir þurfa svo á sparifé sínu að halda og taka það út, þá leggja aðrir inn, og með aukinni velmeg- un eykst spariféð. Eðlileg hringrás Þessi eðlilega hringrás hef- ur lengi verið mjög í molum hér á landi. Hin stöðuga verð- bólga hefur skaðað sparifjár- eigendur miklu meir en nokkra aðra. í mörg ár hefur stór hluti þjóðarinnar heldur viljað eyða hluta af tekjum sínum jafnóðum í þarflitla hluti, heldur en að leggja þá á vöxtu, af ótta við að spari- féð yrði verðlaust. Þjóðinni er lífsnauðsyn að þetta ástand breytist, og það getur breytzt á tiltölu- lega stuttum tíma eftir að gerðar hafa verið ráðstaf- anir, sem benda til að heil- brigt efnahagsástand sé fram undan. Þeir heimsækja konunginn. — Þrír amtmenn: 6.000 krónur. — Landfógeti: 7.000 krón- ur. — Sendiherra: 9.000 krónur. UTAN UR HEIMI Dýr mundi HafliBi allur EMBÆTTISMAÐUR nokkur í danska utanríkisráðuneyt- inu hækkaði í tign — var skipaður sendiherra Dan- merkur erlendis. — Maður- inn varð glaður við „for- frömun“ sína — og skundaði umsvifalaust á fund fínasta klæðskera Danmerkur, þeirra er sauma einkennisbúninga. Hinn nýskipaði sendiherra pantaði viðhafnarbúning — og klæðskerinn tók mál af honum í bak og fyrir. — Nokkru síðar fór sendiherr- ann að sækja búning sinn. — Reikningurinn var — 11.000 krónur danskar. — ★ — Þessi maður fékk reyndar ýmislegan „aukabúnað“, og varð því reikningurinn hærri en ella. Venjulegt verð fyrir viðhafnar- búning danskra sendiherra er nefnilega „aðeins“ 8.000—9.000 krónur. Þeir, sem bera næstdýrustu ein kennisbúningana, eru kammer- Lengsta farþegaskip heimsins FRAKKAR eru með réttu stoltir af hinu myndarlega skipi, sem sést hér á mynd- inni í skipasmíðastöðinni í Saint-Nazaire. Það á að heita „France“ og verður í förum yfir Atlantshaf. — • ] ★ „France“ verður lengsta far- þegaskip heimsins — 315,15 metrar á lengd. Það verður 68.000 brúttólestir — og gang- hraði þess verður um 31 hnút- ur, eða nánast 60 km á klukku stund. — Um 2.000 farþegar munu geta ferðazt með skip- inu í einu — þar af 500 á fyrsta farrými, þar sem allt verður með óvenjulegum glæsibrag, hvers konar þæg- indi og munaður fyrir farþega til þess að gera ferðina sem ánægjulegasta. -fc Ráðgert er, að „France" verði hleypt af stokkunum hinn 11. maí í vor, og að það geti látið úr höfn í fyrstu för sína í september næsta haust. herrar, amtmenn og riddaraliðs- foringjar. Viðhafnarbúningar þeirra kosta milli 5.000 og 6.000 — og jafnvel allt upp í 7.000 kr. Þar á eftir koma hæstaréttar- dómarar, ráðuneytisstjórar o. fl., en þeirra fínasta skart kostar 3.000—4.000 krónur. Lögreglu- stjórar komast af með 900—1.000 krónur. — Þegar slíkt einvalalið heimsækir kóng sinn um ára- mótin, eins og venja er, þá gefur þar að líta viðhafnarklæði, sem samanlagt eru mörg hundruð þúsund króna virði. — ★ — Þegar gamlir embættismenn hætta störfum, selja þeir oft við- hafnarbúninga sína — og þannig geta yngri mennirnir sparað sér nokkur útgjöld. — Þannig tókst t. d. P. H. Lundsteen að fá not- aðan amtmannsbúning, sem var hbnum alveg mátulegur, þegar hann var skipaður landshöfðingi á Grænlandi á sínum tíma. — Hann þótti hæfa hið bezta eftir að búið var að setja á hann „Grænlandsmérkið" með ísbirn- inum — og þegar dönsku kon- ungshjónin heimsóttu Grænland fyrir nær átta árum, fékk Lund- steen gott tækifæri til þess að skarta í þessum ágæta búningi sínum víða um landið. — ★ — En Grænlendingarnir tóku ekki viðhafnarklæði landshöfð- ingja síns neitt sérlega hátíðlega — og varð Lundsteen að láta sér lynda, að þeir kölluðu hann „um- sjónarmanninn“. — Það gerði hann líka — og hafði meira að segja hið mesta gaman af þessari nafngift.... 100 þúsund lundskjúlitur 'MOSKVU: — Talið er, að á) Iþessu ári muni verða að( )minnsta kosti 100 þús. land- ) skjálftar víðs vegar í heim-( \ inum. Segja vísindamenn, að( (sérhver hinn minnsti land-/ 'skjálfti sé kröftugri en orka/ i sú, sem úr læðingi leysist, þeg-S )ar öflugasta vetnissprengja, er\ I nú þekkist, er sprengd, Rússneskur vísindamaður( ’ hefir nýlega komið með þá/ [hugmynd að virkja kraft/ 'þann, sem myndast þegari ) landskjálfti verður. Myndi þá( )verða komið upp nauðsynleg-( \um útbúnaði til að nota kraft( fþennan — á einhverjum þeim/ (stað, sem landskjálftar eru/ / tiðir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.