Morgunblaðið - 18.02.1960, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 18.02.1960, Blaðsíða 2
2 MORCVWtlAÐIÐ Fimmfudagur 18. febr. 1960 Nýjar, rússneskar tillögur i Genf GET'TF, Sviss, 17. febrúar. Reuter: Fulltrúi Bandaríkjanna á ráð- stefnunni um bann við kjarna- vopnatilraunum lýsti því yfir á fundi í dag, að óvíst væri að Bandaríkjaþing vildi fullgilda samning um slíkt bann, ef þar verður ekki kveðið á um ná- kvæmt eftirlit með því, að samn- ingurinn yrði haldinn. —Banda- ríski fulltrúinn, Wadsworth, lýsti þessu yfir, eftir að Tsarapkin hafði enn á ný neitað að segja neitt um vilja sovétstjórnarinnar að því er varðar framkvæmd slíks eftirlits. Tsarapkin endurtók ummæli sín frá því í gær í þessu efni, en þá kvaðst hann ekki vilja segja neitt um æskilegan fjölda eftir- litsferða og annað í því sambandi fyrr en Vesturveldin hefðu gefið svar sitt við hinum nýju tillög- um Sovétríkjanna um algert bann við tilraunum, en þær voru lagðar fram í gær. Eru það gagn- tillögur Eisenhowers Bandaríkja- forseta frá síðustu viku um það að banna allar kjarnorkuvopnatil raunir, nema tilraunir neðanjarð ar, þar sem sprengikraftur væri takmarkaður. — • — Samkvæmt fréttum frá Wash- ington, drap Eisenhower á þessar nýju tillögur Rússa á hinum vikulega blaðamannafundi sínum í dag og taldi þær bera vott um nokkra stefnubreytingu hjá Rúss um — virtust þeir nú varla eins ósveigjanlegir og áður. Forsetinn var spurður um álit sitt á kjarnorkusprengingu Frakka á dögunum. Taldi hann þar vera um eðlilega þróun að ræða — en hins vegar vildu Bandaríkin vinna að því af alefli að samkomulag næðist um að hætta „atómkapphlaupinu." Daninn Verner Linnbech og Belgíumaðurinn David Brombart. Forustumenn ulþjóðlegru æshu- lýðssumtuka staddir hér Loftferðasamningur við Finnland Á NÆSTUNNI verða teknar upp viðræður um loftferðasamninga milli íslands og Finnlands. Slíkir samningar hafa ekki verið áður milli landanna, en Loftleiðir á- ætla að hefja ferðir til Helsinki í vor eins og kunnugt er og mun því nauðsynlegt að flýta samn- ingagerðinni. AgnarKofoed Hansen, flug- málastjóri, fer utan um helgina í þessu skyni og með honum Páll Ásgeir Tryggvason af hálfu ut- anríkisráðuneytisins. Mun ætlunin einnig að hefja viðræður um loftferðasamning við Svía. Samningar okkar við Norðmenn og Dani renna og út 1. apríl nk. Gengið hefur verið endanlega frá loftferðasamningi fslands og Stóra-Bretlands. Fyrr í vetur Peninguskúp stolið STÓRTÆKIR þjófar voru á ferli hér í bænuní i fyrrinótt. Brut- ust þeir inn í smiðju Sindra við Borgartún. I»ar í skrifstofunni stóð stór og þungur peninga- skápur. Þennan skáp námu þjóf- arnir á brott með sér með öllu því sem í honum var. í reiðu fé voru þar um 5000 krónur, en í skápnum var auk þess geymt all- mikið af verðmætum skjölum, sem að vísu geta ekki orðið það í höndum þjófanna. Ekki hafði skápurinn fundizt eða innihald hans í gærkvöldi. Lýst eftir bút — Kom fram LAUST fyrir klukkan 11 í gær- kvöldi lýsti Slysavarnafélag ís- lands eftir mb. Kára GK 128, sem lagði af stað frá Hafnarfirði klukkan 10 á þriðjudagskvöld áleiðis til Tálknaf j arðar, en hafði ekki látið til sín heyra síðan. Voru menn famir að óttast um bátinn, því vont var í sjó. Rétt fyrir dagskrárlok útvarpsins i gærkvöldi kom svo tilkynning frá Slysavarnafélaginu þess efn- is, að báturinn væri kominn fram og allt væri í stakasta lagi. Dagskrá Alþingis í DAG eru boðaðir fundir í báð- umum deildum Alþingis kl. 1,30. Á dagskrá efri deildar er eitt mál: Efnahagsmál, frv. 2. umr. A dagskrá neðri deildar er eitt mál: Framleiðsluráð landbúnað- arins, frv. 3. umr. fóru viðræður um hann fram hér í Reykjavík, Þá náðist ekki sam- komulag og var frekari aðgerð- um slegið á frest. Samkv. sam- komulaginu, sem nú hefur verið gert bætir Flugfélagið einni Bretlandsferð við í sumar og Loft leiðir fara með DC-6b eina ferð til Lundúna og eina til Glasgow. Elzti borgurinn ú Selfossi í DAG verður elzti borgarinn á Selfossi eitt hundrað ára. Er það Hallbera J Halldórsdóttir, en hún er ættuð austan úr Landeyjum. Afmælisgrein,sem birtas>t átti um gömlu konuna á þessu óvenju- lega afmæli hennar, náði því miður ekki blaðinu nógu tíman- lega í gær. Undanfama mánuði hefur gamla konan verið í sjúkrahús- inu á Selfossi, og þar heldur hún afmælið —: að vísu ekki hátíðlegt, vegna þess að hún er rúmliggj- andi. UNDANFARNA daga hafa verið hér tveir af forustumönnum al- þjóðlegu æskulýðssamtakanna WAY (World Assebly of Youth), Belgíumaðurinn David Brombart og Daninn Verner Linnbech. Eru þeir á leið til stjórnarfundar í Bogota í Columbiu, en komu við hér á leiðinni, til skrafs og ráða- gerða við forustumenn Æskulýðs sambands Islands. Ræddu þeir í gær við fréttamenn. í WAY eru æskulýðssambönd frá 56 löndum víða um heim, og láta þau hvert um sig öll mál æskumanna í sínu landi til sín taka og hafa innan sinna vé- banda æskulýðsfélög með ólík- ustu stefnuskrár, svo sem íþrótta félög, menningarfélög, stjórn- málafélög o. s. frv. Er það stefnu- skrá samtakanna að vernda æsku og mannréttindi hvai sem er í veröldinni, og hafa þau sam- starf við Sameinuðu þjóðirnar. Höfuðstöðvar samtakanna eru í Briixelles og eru þar starfandi 25 manns á vegum þeirra. For- seti WAY er Indverjinn Warna, en framkvæmdastjóri David Vir- mark. íslendingar meðlimir frá 1958 Norðurlönd, önnur en Island, hafa starfað í WAY frá upphafi. Auk Svíans Virmarks er í stjórn- inni Daninn Kjeld Hansen. Æskulýðssamband íslands gerð ist aðili að samtökunum 1958. I sambandinu eru 11 félög, æsku- lýðsfélög allra fjögurra stjórn- málaflokkanna, stúdentaráð, NA 15 hnúlar / S V 50 hnutar ¥: Snjókoma > ÚÓi \7 SJrúrír K Þrumur KuMashl Æ’.tviÚZS' Hitaski! H H<*» 1 L Laeqi 1 Á KORTINU í gær var all- mikil lægð austur af Jan May en á hreyfingu suður eftir. Olli hún vaxandi N-átt hér á landi og snjókomu norðan lands. Þannig var kominn 40 hnúta vindur með snjókomu og 10 stiga frosti á Raufar- höfn kl. 14. Um hádegi var hvergi minna en 7 stiga frost hér á landi, en mest 18 stig á Grímsstöðum. Til glöggvunar fyrir les- endur skal hér sýnt samband- ið milli vindhraða í hnútum og vindstiga: 0 hnútar eru 0 vinstig, 5 hnútar 2 vindstig, 10 hnútar 3- vindstig, 15 hnút- ar 4 vindstig, 20 hnútar 5 vindstig, 25 hnútar 6 vindstig, 30 hnútar 7 vindstig, 35 hnút- ar 8 vindstig, 40 hnútar 8 vindstig, 45 hnútar 9 vindstig, 50 hnútar 10 vindstig, 55 hnút ar 10 vindstig, 60 hnútar 11 vindstig, 65 hnútar 12 vind- stig og 70 hnútar 12 vindstig. Veðurhorfur næsta sólar- hring: SV-land og SV-mið: Allhvass NA, léttskýjað. — Faxaflói, Breiðafjörður, Faxa flóamið og Breiðafjarðarmið: Allhvass NA, lægir heldur a morgun, skýjað. Vestfirðir til Austfjarða og Vestfjarðamið til Austfjarðamiða: N-átt, víð- ast hvasst í nótt, snjókoma, lægir heldur á morgun. SA- land og SA-mið: N-átt sums staðar hvasst, léttskýjað. tvenn bindindissamtök, Ung- mennafélag íslands, Iþróttasam- bandið, Farfuglar og Iðnnema- sambandið. Hefur sambandið opna skrifstofu í samvinnu við íþróttasambandið að Grundar- stíg 2. Formaður er Axel Jóns- son, og aðrir í stjórn: Bjarni Beinteinsson, Hörður Gunnars- son, Skúli Nordal og Björgvin Guðmundsson. — Æskulýðssam- bandið hefur haft leiðtogafundi og nú stendur til að fara að gefa út litið fréttablað, bæði um inn- lend og erlend málefni æsku- manna. WAY heldur allsherjarþing sín fjórða hvert ár og minni háttar ráðstefnur og stjórnarfundi á milli. íslendingar sendu fyrst fulltrúa á þing í New Delhi 1958, en í þeirri borg hafa samtökin þj álf unarskóla. Þeir félagarnir héldu áfram ferðinni til Ameríku í gærkvöldi. Adenauer veikur af inflúensu BONN, V.-Þýzkalandi, 17. (Reut- er): — Talsmaður ríkisstjórnar- innar skýrði frá því í dag, að Adenauer kanslari hefði veikzt af vægri inflúensu og mundi ekki geta sinnt embættisverkum sin- um í nokkra daga. — Kanslar- inn er 84 ára gamall. Hitalögn í Bjarnaborg BÆJARRÁÐ hefur samþykkt að fram skuli fara miklar endurbæt- ur á Bjarnaborg, einu elzta fjöl- býlishúsi bæjarins, — reist 1902. Miðstöðvarlögn var aldrei lögð í húsið, og íbúðir kyntar með kolaofnum. Nú verða þessir gömlu ofnar lagðir niður. Bæjar- ráð hefur samþykkt að húsnæðis- fulltrúi bæjarins semji við Guð- mund Finnbogason pípulagninga meistara, um að hann leggi hita- lögn í allt húsið. Maður slasast UM hádegisbilið í gær varð óvenjrulegt slys hér í bænum. Jón Sigurpálsson, bókari, Hæðargarði 28, slasaðist. — Hafði Jón verið að fara út úr verzluninni við Hæðargarð, en það er ein af götunum í Bústaðahverfi, er slysið var. Ilafði hann tekið í hurðar- húninn, en hann allt í einu brotnað af. Við þetta hafði Jón skollið í götuna og hlot- ið slæma byltu. Var sjúkra- bíll fenginn til að flytja Jón í slysavarðstofuna. Þar kom í ljós að eitthvaö hafði mjaðmagrindin laskazt. Var Jón fluttur vestur á Landa- kotsspítala. Var líðan hans sæmileg í gærkvöldi. Fromtíð Kolviðarhóls NOKKRIR áhugamenn úr Árnes- þingi, austan fjalls og vestan heiðar hafa ákveðið að halda fund um framtíð Kolviðarhóls. Fundurinn verður í Tjarnarkaffi í dag, fimmtudag kl. 4. Þeir sem áhuga hafa á að hús og mann virki sem nú eru á staðnum fái að standa og þau endurbætt og löguð í ákveðnum tilgangi, þann- ig að minning og hlutverk Kol- viðarhóls geymist sem lengst, eru beðnir að mæta á fundinum, svo og allir sem áhuga hafa á staðn- um. Góður afli í Keflavík KEFLAVÍK, 17. febrúar — Afli Keflavíkurbáta frá vertíðarbyrj- un til 15. febrúar hefur verið mjög góður og gæftir góðar. Á þessu tímabili hafa 31 bátur farið 761 róðra og aflað 4185 lestir. Fimm hæstu bátarnir þetta tímabil eru sem hér segir: Jón Finnson 226 tonn í 30 róðr- um, Guðmundur Þórðarson 218 tonn í 31 róðri; Bjarmi 215 tonn í 30 róðrum; Askur 213 tonn í 31 róðri og Ámi Geir 182 tonn I 28 róðrum. Á sama tíma í fyrra höfðu 34 bátar farið 487 róðra og aflað alls 2746 tonn. Þá voru gæftir slæm- ar allan janúarmánuð, og aflinn því mun minni en núna. — — Helgi S. Geysifjölmennur fundur að ffellu SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN í Suðurlandskjördæmi héldu fund að Hellu síðastliðinn sunnudag. Ingólfur Jónsson, landbúnaðarráð- herra, setti fundinn og tilnefndi sem fundarstjóra Lárus Ág. Gísla- son á Miðhúsum og Pál Björgvinsson á Efra-Hvoli sem fundarritara. Framsöguræðum vel tekið Hófust því næst umræður og tók fyrstur til máls Sigurður Óli Ólafsson, alþm. Ræddi hann um fyrirætlanir ríkisstjómarinnar í efnahagsmálum þjóðarinnar. Þá talaði Ingólfur Jónsson, ráðherra, og vék að ýmsum öðrum þáttum þessa mikla máls. Var máli beggja ræðumanna mjög vel tek- ið. Hófust síðan almennar umræð- ur og tóku þessir til máls: Páll Björgvinsson, Árni Ámason, Sig- mundur Sigurðsson, Syðra-Lang- holti, Runólfur Guðmundsson Ölvesholti, Gunnar Sigurðsson Seljatungu, Lárus Ág. Gíslason, Guðmundur Erlendsson á Núpi og Ágúst Sæmundsson, Hellu. Að lokum svaraði landbúnað- arráðherra fyrirspumum fundar manna. Fundurinn var geysifjöl- mennur og sóttu hann a. m. k. 250 manns. — P. B.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.