Morgunblaðið - 18.02.1960, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 18.02.1960, Blaðsíða 17
Fimmtudagur 18 febr 1960 M OR CT' N nr. 4 fíl Ð 17 I>að er ekki heiglum hent að annast sjúklinginn („miðdegis- verðargestinn“). — Hjúkrunarkonan í öngum sínum, læknir- inn dolfallinn, meðan gesturinn gerir rólegur sínar daglegu jólaæfingar. — (Myndin sýnir: Árna Tryggvason, Guðrúnu Þ. Stephensen og Brynjólf Jóhannesson í hlutverkum sínum). Þórunn Juel Henningsen — Minningarorð Lög um lögreglumenn verði endurskoðuð Þingsályktunartillaga flutt þess efnis LÁTIN er í Kaupmannahöfn Þór- unn Juel Henningsen. Hún var fædd að Daðastöðum í Presthóla- hreppi 11. maí 1900. Voru for- eldrar hennar hjónin Stefán Þor- steinsson og Ingibjörg Jónasdótt- ir, sem þá bjuggu góðu búi að Daðastöðum. Þórunn kom á barnsaldri í fóstur til Árna Gísla- sonar frá Lambanesreykjum og konu hans, en föður-systur sinn- ar, Guðbjargar Þorsteinsdóttur, og ólst hún upp hjá þeim hjónum og var heimilismaður þeirra, unz hún giftist. Þær voru þannig upp fóstraðar saman Þórunn og Kri- stín Árnadóttir, sem fluttist á ungum aldri til Vesturheims. Var mjög ástúðlegt með þeim fóstur- systrum, enda var og Þórunn ljúf og eftirlát fósturforeldrum sín- um sem dóttir þeirra væri. Þórunn giftist 1927 Svend Juel Henningsen, kaupmanni. Hann var einn þeirra dönsku manna, sem hér námu land upp úr síð- ustu aldamótum og gerðust góðir Islendingar. Vann hann fyrst sem verzlunarmaður hér í bæn- um, en stofnaði síðan eigin verzl- un, sem hann rak um langt skeið. 1936 fluttusf hjónin til Kaup- mannahafnar og bjuggu þar, unz Henningsen andaðist 1948. Þau hjón áttu eina dóttur barna, Agnethe Marie, sem nú er gift Elith Foss, kunnum leikara við konunglega leikhúsið í Kaup- mannahöfn. Hjá þeim dvaldi Þór- unn á kyrrlátu og góðu heimili þeirra síðustu árin og undi vel hag sínum. Var mjög kært jafn- an með þeim mæðgum og hjónin bæði mjúklát og nærgætin við Þórunni. Þá voru og hændir að henni litlu Foss-bræðurnar, dótt- ursynir hennar, og eru þeir nú þrír orðnir. Svend Juel Henningsen var á sínum tíma maður í góðum efn- um. Um þær mundir er þau Þór- unn giftust, hafði þó gengið tals- vert af honum og var hann þá að vísu bjargálna maður, en eigi fé- ríkur. Hins vegar var hann vand- aður maður til orðs og æðis og hinn mesti drengskaparmaður. Sjálf var Þórunn góð kona og alúðleg og unni vel bónda sín- um og heimili. Það var því að vonum, að hjónaband þeirra yrði hið ástúðlegasta. Kunni og hús- móðirin vel á að halda efnun- um, þótt eigi væri ævinlega auð- ur í búi. Héldu þau og jafnan vel og skörulega heimili sitt og aldrei mun nokkur maður hafa heyrt annað en þar væri nóg fé. Það var því að vonum að þau hjónin yrðu vinsæl og vel metin. Svo var og með löndum í Kaup- mannahöfn, að þeir hændust að hemili Henningsenshjónanna, og unglingum að heiman, þeim er til þeirra leituðu, tóku þau sem börn þeirra væru. Þórunn Juel Henningsen myndi hafa orðið sextug 11. maí 1960, ef henni hefði orðið svo langs lífs auðið. Höfðu nokkrar vinkonur heimar hér í bænum komið sér saman um að bjóða henni heim hingað á afmæli hennar. Hlakk- aði hún mjög til að fljúga með farfuglum heim og vitja fornvina sinni þó hafði hún einhvern tíma orð á því, að þetta væri líklega of gott til að geta gengið fram. Svo fór og, enda tjóar eigi um að sakast. Allt um það var Þór- unn hinn mesti gæfumaður. Hún átri því láni að fagna að hljóta gott og traust uppeldi prúðra fóst uríoreldra, eiga mætan mann og með honum góða dóttur, sem hún unni mjög. En bezt var vega- nestið, sem henni var meðfætt, góðar gáfur, dyggð og trú- mennska og fyrst og síðast glöð lund og æðrulaus bjartsýni. Hún verður jarðsungin í dag í Friðriksbergs kirkju. TVEIR þingmenn Sjálfstæð- isflokksins, þeir Magnús Jónsson og Jónas G. Rafnar, flytja í sameinuðu þingi til- lögu til þingsályktunar um endurskoðun laga um lög- reglumenn. Er tillagan á þessa leið: Alþingi ályktar að skora á rík- isstjórnina að láta í samráði við Samband ísl. sveitarfélaga endur- skoða gildandi lög um lögreglu- menn. Skal að því stefnt, að endurskoðun þessari verði lokið fyrir næsta reglulegt þing. 1 greinargerð segir svo: Aðalákvæðin um skipan lög- reglumála er að finna í lögum um lögreglumenn, nr. 50 12. febr. 1940. Eru þar m. a. settar reglur um hlutdeild ríkissjóðs í greiðslu löreglukostnaðar, um ríkislög- reglu og og löggæzlu utan kaup- staða. Nauðsynlegt er að endurskoða ýmis atriði laga þessara með hliðsjón af fenginni reynslu, s. u. s. Framhald af bls. 13. að sýna næsta ár leik, sem hef- ur listrænt gildi, þótt óvíst sé hvort „gangi“. Þannig hefðu við ekki getað sýnt „Þrettándakvöld" Shakespeares í fyrra, ef leikrit- ið sem við sýndum þar áður, „Vængstýfðir englar“ hefði ekki skilað þeim ágóða, sem það gerði. — Er nokkuð sem þú vildir taka fram að lokum, Þorstemn? — Eg vildi þakka öllum þeim, sem hafa aðstoðað okkur á einn eða annan hátt. Sérstaklega vil ég geta leikstjórans, Helga Skúla sonar, sem hefur verið okkur ó- metanleg hjálp. — Undir þau orð tóku allir leik- endur. ★ Þá látum við þessu stutta rabbi um Herranótt lokið. Þar er mikið starf af höndum leyst, og það starf ávaxtar sig ríkulega. Það hvílir sérstakur blær yfir sýning- um á Herranótt, blær, sem hvergi finnst annars staðar í leikhúsum vorum. Og þó ekki væri nema af þeirri ástæðu, mega þær aldrei niður falla. En fleiri ástæður koma til greina. Ein er sú, að Herranótt Menntaskólar.s er ein hinna fáu erfðarvenja, sem til eru í skólum okkar — önnur hið fé- lagslega gildi hennar. En veiga- mesta ástæðan er e. t. v. sú, að við áhorfendur megum hreinlega ekki verða af þeirri ánægju, sem hún veitir okkur. Um það getur hver og einn sannfærzt, sem sér sýningu á Herranótt 1960. Ó. B. T. Somkomur Z I O N, Oðinsgötu 6A. — Al- menn samkoma í kvöld kl. 20,30. i Allir velkomnir. Heimatrúboð leikmanna. K. F. U. K. ud. Fundur í kvöld kl. 8,30. Hug- leiðing, Þórir Guðbergsson. Sveitastjórarnir. K. F. U. M. ad. Fundur í kvöld kl. 8,30. Doctor Árni Árnason talar. Efni: Kristin maður og samfélagið. Allir karlmenn velkomnir. Fíladelfía: Almenn samkoma kl. 8,30. Guð mundur Markússon og Sigríður Jónsdóttir tala. Allir velkomnir. 1 Fagnaðarerindið boðað á dönsku | i Betaníu, Laufásveg 13, hvert fimmtudagskvöld kl. 8,30. Allir velkomnir. Helmut Leich- ( senring og Rasmus Prip Biering tala. einkum þau, sem nefnd eru hér að framan. Ákvæðin um hlutdeild ríkis- sjóðs í greiðslu kostnaðar við lög gæzlu í kaupstöðum eru ósann- gjörn og leiða til misréttis. Er næsta vafasamt að setja það skil- yrði fyrir greiðslu ríkissjóðs, að tiltekinn fjöldi lögreglumanna sé í kaupstað, enda þótt bæjaryfir- völd telji ekki þörf svo margra löggæzlumanna. Er eyðslan þann ig beinlínis verðlaunuð. Þá er og nauðsynlegt að setja skýrari ákvæði en nú eru um ríkislögreglumenn og staðsetn- ingu þeirra. Á síðustu árum hafa í flestum sýslum landsins verið settar reglugerðir um löggæzlu á sam- komum. Er hér um hið mesta nauðsynjamál að ræða. Margar þessar reglugerðir hafa ekki enn fengizt staðfestar vegna óljósra ákvæða í lögum um skyldu ríkis- sjóðs til hlutdeildar í kostnaði við löggæzlu þessa. Nauðsynlegt er, að fullt samræmi sé milli ákvæða um löggæzlu á samkom- um í öllum héruðum, og virðist eðlilegast, að skýr ákvæði séu um þetta efni í lögum um lög- reglumenn, þegar löggæzla þessi er orðin svo almenn. Loks má á það benda til frek- ari rökstuðnings fyrir tillögu þessari, að með hverju ári fjölg- ar þeim stöðum, sem fá sérstaka fjárveitingu í fjárlögum til lög- gæzlu á vissum tímum árs. Hætt er við, að fjárveitingar þessar séu nokkuð handahófskenndar, því að ógerlegt er fyrir fjárveitinga- nefnd Alþingis á hverjum tíma að tryggja samræmi og rétt hlut- fall í fjárveitingum þessum. Er því nauðsynlegt að reyna að setja fastar reglur fyrir slíkum greiðslum lögreglukostnaðar. Þar sem mál þetta er sameig- inlegt hagsmunamál ríkis og sveitarfélaga, þykir eðlilegt, að haft sé saihráð við Samband ís- lenzkra sveitarfélaga við endur- skoðun þessa. Höfðu skotið brumhnöppum UM HELGINA fór hópur manna með Guðmundi Jónassyni á ein- um bíla hans, austur í Þórsmörk. Fyrst var ekið inn í Fljótshlíð að Fljótsdal, en þaðan var ekið aust ur yfir Márkarfljót, sem rann þá í þrem vatnsmiklum álum. Ekið var inn í Húsadal, en þaðan var gengið yfir hrygginn, yfir 1 Langadal, að sæluhúsinu og gist þar. Veður var gott og sunnudag- urinn rann upp bjartur og heið- ur. Einn farðalanganna hefur skýrt Mbl. svo frá að á sunnu- dasmorguninn hafi hópurinn gengið á Valahnúk. í norðurhlíð- um- hans blasti við ferðafólkinu óvenjuleg sjón á þessum tíma árs: Grávíðirinn og gulvíðirinn voru farnir að skjóta brumhnöpp um. Þennan dag var þó nokkurt frost, en hlýtt heur verið þar í hinum langvinna hlýindakafla sem gekk yfir landið á dögun- um. I. O. G. T. St. Andvari nr. 265 Afmælisfagnaður í Góðtempl- arahúsinu. Kl. 8,30 stundvíslega skemmtunin sett, Benedikt Bjark lind, stórtemplar. Ávarp. Kjart- an Olafsson, ÆT. Dansað til kl. 9.45. Kaffihlé Upplestur ljóða, Gunnar Dal. Leikþáttur. Dansað til kl. 12. — Afmælisnefndin, Ungmennastúkan Hrönn nr. 9. Munið Borgarnesferðina á laug ardaginn 20. febr. Farmiðar seld ir í Góðtemplarahúsinu í dag milli 5—7. — Stjórnin. Stúkan Frón nr. 227. — Fundur fellur niður í kvöld. Skemmti- kvöld laugard. 20. þ.m. Verður auglýst í laugardagsblaðinu. Æt. Skrifstofustarf Stórt fyrirtæki í miðbænum vantar unga stúlku eða ungan mann til skrifstofustarfa. Vélritunarkunnátta nauðsynleg. Tilboð merkt: „Framleiðsla — 9741“ sendist Morgunblaðinu. OPEL KAPITAN ‘59 til sölu. Uppl. í síma 16333 eða 35743. Einbýlishús (raðhús) tilbúið undir tréverk í Laugarneshverfi til sölu. Húsið er 2 hæðir og kjallari, 70 ferm. að flatarmáli. STEINN JÓNSSON, HDL., Lögfræðistofa — Fasteignasala Kirkjuhvoli — Símar 19090 — 14951. LÖGMANNAFÉLAG ISLANDS Orðsending Þeir félagsmenn sem ætla að gerast stofnfélagar í lífeyrissjóði lögmanna tilkynni þátttöku sína til stjórnar félagsins fyrir 25. þ.m. STJÓRNIN.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.