Morgunblaðið - 18.02.1960, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 18.02.1960, Blaðsíða 18
18 MORGLTSBLAÐIÐ Fimmtudagur 18. febr. 1960 Setning Olympíuleikanna Meistaraverk Disneys birtist í DAG verða 8. Vetrar-Ólympíuleikirnir settir í Squaw Valley í Kaliforníu. í dag verður setningarathöfnin, sem snillingurinn Walt Disney hefur undirbúið með miklu starfs- liði í marga mánuði, að veruleika. Sagt er að verði veður hagstætt muni þessi setningarathöfn verða sú sögulegasta og eftirminnilegasta í sögu Ólympíuleika nýja tímans. * ÞÚSUNDIR MANNA KOMA FRAM Hraði, hátiðleiki og hug- myndaflug að ósvikinni Holly wood-uppskrift mun móta at- höfnina að sögn. Disney hefur sjálfur sagt að hann hafi iagt sig meir fram við lausn þessa verkefnis síns en nokkru sinni fyrr. Hann hefur ekkert til sparað. Hann hefur kvatt hundruð leikara á vettvang, á annað þúsund hljómlistar- menn og nær 2000 manna kór. ★ I LJÓSADÝRÐ ÆVINTÝRAHEIMS Athöfnin fer fram eftir að dimmt er orðið. Ljóskastarar eiga að gera Squaw Valley-dal- inn — sem enginn þekkti fyrir flugeldasýning, sem stærstu lýs- ingarorð nægja ekki um að sögn — svo mikilfengleg skal hún verða. Sagt er að bjarmi hennar muni sjást til San Francisco, þó fjallgarður sé á milli. Þá mun bergmála hátt í dalr.um sem Indíánar notuðu forðum til að geyma kerlingar sínar í, en nú er vettvangur mestu vetrarhátíð- ar íþróttamanna og þangað sem augu milljóna manna um heim allan beinast. pamnum og isnum Opna skautasvæðið framan við skautahöllina verður vett vangur setningarhátíðarinn- ar í dag. Fánar þátttöku- þjóðanna umlykja svæðið. Norðmaðurinn vakti sérstaka Roar Elveness athygli í Squ- aw Valley í gær. Á úrtöku- móti skautamannanna sigraði hann í 1500 m hlaupi og tími hans var með allra beztu tím- um er náðst hafa í heiminum Enska knattspyrnan nokkrum árum — að ævintýra- heimi. í ljósgeislaflóði svifa litlir loftbelgir um himininn og fánar þátttökuþjóðanna 34 svífa til jarðar í geislum marglitrar ljósa- dýrðar. Og hápunktur hátíðarinnar verður þegar Andrea Mead Law- rance, sem vann tvö Ólympíugull fyrir Bandaríkin í Ósló 1952, birt- ist á litla Papoose-tindi með blys í hendi r— ólympskan eld, sem tendraður var í Moredal í Nor- egi, þar sem vagga skíðaíþróttar- innar stóð. I fallegu svigi kemur hún niður fjallið, með blysið eitt að vopni gegn myrkri dalsins. Við skautasvæðið afhendir hún blysið frægasta skautamanni Bandaríkjanna, sem fer með það einn hring á svæðinu, og tendrar það á stallinum þar sem eldur- inn mun loga dag og nótt meðan leikirnir standa. Þegar þar verður komið hefst 29. UMFERÐ ensku deildarkeppn innar fór fram sl. laugardag og urðu úrslit leikjanna þessi: 1. deild: Birmingham — Burnley frestað .... Blackburn — Manchester City .... 2:1 Blackpool — Arsenal ......... 2:1 Bolton — N. Forest ............. 1:1 Chelsea — Fulham ............. 4:2 Everton — Wolverhapton ........ 0:2 Luton — Sheffield W............ 0:1 Manchester U. — Preston ........ 1:1 Newcastle — Leeds ............. 2:1 Tottenham — Leicester ....... 1:2 W.B.A. — West Ham. frestað ..... 2. deild: Bristol Rovers — Stoke ........ 3:1 Cardiff — Lincoln ............. 6:2 Derby — Charlton frestað ....... Huddersfield — Sunderland ..... 1:1 Hull — Rotherham ............... 1:0 Ipswich — Fortsmouth ........... 1:1 L. Orient — Aston Villa ...:.... 0:0 Middlesbrough — Bristol City .. 6:3 Plymouth — Liverpool .......... 1:1 Sheffield U. — Scunthorpe ..... 2:1 Swansea — Brighton ............ 2:2 Markahæstu menn í Englandi um þessar mundir eru eftirtaldir: 1. deild: Viollet (Manchester U.) .... 26 mörk Smith (Tottenham) .......... 23 mörk McCole (Leeds) ............. 22 mörk Greaves (Chelsea) .......... 21 mark Dobing (Blackburn) ......... 20 mörk McAdams (Manchester City) 20 mörk 2. deild: Clough (Middlesbrough) ..... 28 mörk McParlands (Aston Villa) ... 22 mörk Hitchens (Aston Villa) ..... 20 mörk Phillips (Ipswich) ......... 20 mörk 3. deild: Reeves (Southampton) ....... 35 mörk Stokes (Bradford City) ..... 30 mörk á vegalengdinni. Hann hljóp á 2.10.4 mín. Dalberg, Svíþjóð, og Jervinen urðu í öðru sæti á 2.10.9. 1 stökkbrautinni var efnt til móts. Margir þeir beztu tóku þó ekki þátt í því. Þeir kusu að hvíla sig, því í dag, setn- ingardaginn fer fram sýning- arkeppni í brautinni. En keppnina í dag vann ítalinn Nilo Pandanel. Hann stökk 89 m, 90 m og 86,5 metra. Veðrið mun ekki spilla setningu Olympíuleikjanna. Eftir því sem veðurstofan á Keflavíkurflugvelli gat nánast gefið blaðinu upp í gærkvöldi var hæð á þeim slóðum í Bandaríkjunum og sennilega hæg suðaustanátt og léttskýjað. — Sem sagt ágætisveður. Landsliö kvatt saman SKÖMMU fyrir áramótin valdi Handknattleikssambandið rúm- lega tuttugu manna lið sem æfa skyldi með þátttöku í væntanleg- um landsleikjum í handknatt- leik og með þátttöku í heims- meistarakeppninni 1961 fyrir augum. Þó liðin hafi verið valin fyrir áramót hafa æfingar ekki getað hafizt af ýmsum orsökum, m. a. vegna þess að húsnæði fékkst ekki á heppilegum tíma. Nú hefur sambandið boðað liðs menn sína til fundar. Sá fundur verður annað kvöld, og verður þar rætt um tilhögun þjálfunar- innar og strax á eftir hefst fyrsti þáttur æfinganna — en hann er að Benedikt Jakobsson þolprófar liðsmennina. Hver sigrar í Sq. Valley? Sigríður i Squaw Valley SIGRÍÐUR Þorvaldsdóttir, leikkona, sem er í vetur í Kali forníu, eins og kunnugt er, leggur í dag af stað til Squaw Valley, þar sem hún á að koma fram á tízkusýningu í sambandi við Olympíuleik- ana. Walt Disney hefur skemmti þátt fyrsta kvöld leikanna og koma þá fram ýmsar stjörnur, svo sem Marlene Dietrich, Danny Kay og Frank Sinatra, og er í þeim þætti tízkusýn- ing með sérstöku sniði. Voru' valdar átta stúlkur til að sýnai föt af frægum leikurum og var Sigríður ein af þeim sem fyrir valinu urðu. MIKLAR bollaleggingar fara að vonum fram um hugsanlega sig- urvegara í hinum einstöku grein- um vetrarleikjanna. Mikil óvissa ríkir um úrslit sumra þeirra, en i öðrum er einhver svo framúr- skarandi, að einsýnt þykir hværn ig fara muni. En sagan hefur sýnt okkur, að á móti sem þessu getur allt gerzt. Og það er ein- mitt óvissan og þeir, sem koma á óvænt, sem gera keppnina hvað skemmtilegasta. Við skulum nú til gamans líta á „ástand og horfur“ fyrir leik- ana. Vafalaust gerist margt ó- vænt og verður fróðlegt að bera hann saman við úrslitin Grein Líklegasti sigurv. Hörðustu keppinautar Kemur til greina 15. km. ganga 23/2 Sixten Jernberg, Svíþj. Koltsjin, Rússlandi Manttyranta, Finnl. Hakulinen, Finnl. 30 km ganga 19/2 Sixten Jernberg, Svíþj. Tiainen, Finnl. Koltsjin, Rússl. Sjeljukin, Rússl. S0 km. ganga 27/2 Sixten Jernberg, Sviþj. Hakulinen, Finnl. Koltsjin, Rússlandi Hakulinen, Finnl. 4x10 km boðg. 25/2 Rússland Finnland Svíþjóð Svíþjóð Tvíkeppni 21. og 22/2 Tormod Knutsen, Noregi Gunter Flausel, 1». Thoma, Þ. Sverre Stenersen, N Stökk 28/2 Helmuth Recknagel, Þ. Juhani Kárkinen, F. Thorbj. Yggeseth, N Tsakadse, Rússl. Svig kvenna 26/2 Annemarie Waser, Sviss Traudl Helher, Au. Penny Pitou, USA Linda Mauers, USA Stórsvig kvenna 23/2 Madeleine C. Berth. Sviss Hilda Holherr, Au. Pia Riva, Italíu Putzi Frandl, Austurr. Brun kvenna 20/2 Anne Hesstveit, Kanada Madeleine B. Sviss Lilo Michel, Sviss Traudl Hecher, Au. Stórsvig karla 21/2 Karl Schranz, Austurr. F. Wasnerbergzer, Þ. Luowis Leitner Þ. Andrei Molterer, Au. Brun karla Andrien Duvillard, Frakkl. Egon Zimmerm., Au. Karl Schranz, Au. Willy Bogner, Þ. Skíðaskotf. 21/2 Vladimir Mel. R. Dmitri Sukolov, R. Martti Menilah, F. Sven Agge, Sviþj. 500 m skautahl. 26/2 Evgenij Gr. R. Gratsj, Rússl. Disney, USA Disney, USA 155 m skautahl. 26/2 Boris Stenin, R Gratsj, Rússl. Voronin, R. Knut Johannes. N. 5 km skautahl. 25/2 Knut Johannes. N. Kositskin, R. Ivar Nilss. Svíþ. Sjiljikovski, R. 10 km. skautahl. 27/2 Knut Johannes. N. Sjtelbaums, R. Sjiiikovski, R. Ivar Nilssen, Svíþ.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.