Morgunblaðið - 18.02.1960, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 18.02.1960, Blaðsíða 20
JiiprpmMa Geislavirkni — sjá bls. 11. 40. tbl. — Fimmtudagur 18. febrúar 1960 Fagnar gerðum ríkisstjórnarinnar HAFNARFIRÐI: — Bæjarstjórn Hafnarfjaröar samþykkti á fundi sínum í fyrradag eftirfarandi til- lögur: 1) Bæjarstjórn fagnar því, að núverandi ríkisstjórn hyggst beita sér fyrir nýjum tekjustofn- um fyrir bæjar- og sveitafélög, sem geri þau eigi svo einvörð- ungu háð útsvarsálögum, sem fram til þessa hefir verið. Vænt- Ir bæjarstjórn þess, að framhald verði á þessari viðleitni og aukn- Um skilningi stjórnvalda á nýjum tekjuöflunarmöguleikum sveita- félaga. 2) Bæjarstjórn lýsir ánægju sinni yfir þeirri djörfu og raun- hæfu tilraun, sem gerð er nú af ríkisstjórn Islands til úrlausnar þeim vandamálum, er ógna efna- bagslífi Iands og þjóðar. Lætur bæjarstjórn í ljós þá von sína, að ráðstafanir þessar megi mæta skilningi og velvilja þjóðarinnar, svo þær fái borið þann árangur til umbóta í efnahagsstarfsemi þjóðfélagsins, sem rökstudd ástæða er til að ætla að þær geri, fái þær óhindrað að sýna sig í framkvæmd. Skip brynjuð í GÆR var norðan belgingur og 8 stiga frost hér í Reykja- vík. Var því margur höfuð- staðarbúinn kuldalegur útlits. Niður við höfnina streittust menn á móti storminum, sem stóð ískaldur af hafi. Skip, sem nýlega voru komin inn í höfnina, voru klakabrynjuð. Er tíðindamaður blaðsins brá sér niður að höfn voru skips- menn á þýzka eftirlitsskipinu Meerkatze að hreinsa burtu klakann af þilfarinu. Þessi mynd er tekin þar um borð og sýnir brynjuna framan á brúnni. — Ljósm.: vig. Flugvél laskast á Kotla vxkurtlutfveUi ÍCLUKKAN 15 í gær skemmdist floteflugvél í lendingu á Kefla víkurflug velli. Flugvélin, sem var af Neptune-gerð ætlaði að lenda, en lenti til hliðar við flugbrautina um það bil 3—1 hundruð fet frá Ber sig eins og hetja Patreksfirði, 17. febr. 1 GÆR hafffi fréttaritari Mbl. á Patreksfirði tal af tog- arasjómanninum, sem slas- aðist svo illa við vinnu sína á togaranum Þorsteini Þorskabít sl. þriðjudag, að taka varð af honum hægri handlegginn í sjúkrahúsinu á Patreksfirði. — Bar hann sig eins og hetja og kvaðst ekki finna til óþæginda — nema frá deyfingunni, að öðra Ieyti liði sér vel. Bæði héraðslæknirinn, sem framkvæmdi aðgerðina, og hjúkrunarkonan bjuggust við að hann fengi háan hita eftir aðgerðina, en sú varð ekki raunin — og er hann hitalaus með öllu. Héraðslæknirinn og skip- stjórinn á Þorsteini Þorska- bít láta mjög af kjarki mannsins og þreki. Auk þess sem handleggur hans tætt- ist sundur rifnaði hann svo mikið undir holhendinni, að slagæðin varð nakin. Sagði héraðslæknirinn, að litlu hefði munað að hún færi í sundur og hefði honum þá blætt út á þrem mínútum. Maðurinn heitir eins og áð- ur er sagt Bergsteinn Þórar- insson frá Ytri-Gjábakka í Vestmannaeyjum, 26 ára að aldri. brautarendanum. Stakkst flugrvél in á nefið og mun nefhjólið hafa brotnað og flugvélin laskazt eitthvað meira. Engin slys urðiu á áhöfn flug- vélarinnar og ekki kviknaði held ur í henni. Orsakir slyssins munu vera í rannsókn. Ekki náðist til liðsforingjans á Keflavíkurflugvelii, sem gefur blöðunum upplýsingar, og veit blaðið því ekki um tidrög slyss- ins. Ársháfíð Sjálf- sfæðisfélaganna Patursson virð- í Kefiavík \ist ráða SÍÐASTLIÐINN laugardag héldu Sjálfstæðisfélögin í Keflavík árs- hátíð sína. Var þar fjölmenni saman komið og fagnaður hinn bezti. Ólafur Thors, forsætisráðherra og Matthías Á. Matthíesen, þingm. flufctu ræður á fundinum, en auk þess fóru fram ýmis skemmtiatriði. Alexander Magnússon, for- maður Fulltrúaráðs Sjálfstæðis- félaganna stjórnaði hátíðinni, sem fór hið bezta fram. SÍÐASTLIÐINN þriðjudag kom Patreksf jarðartogarinn Gylfi til Trangisvogs í Fær- Kójiavogur Seltjarnarnes í DAG eru síðustu forvöð að tryggja sér miða á þorrablót Sjálfstæðisfélaganna, sem verður haldið nk. föstudag kl. 8,30 í samkomuhúsinu á Garðaholti. Miðapantanir í Kópavogi í síma 19708, kl. 6—8 í kvöld og á Seltjarnarnesi í símum 12296, 14434 og 14637. Fékk vír- agnir í auga PATREKSFIRÐI, 17. febrúar — Sl. mánudag sótti Björn Pálsson, flugmaður, hingað til Patreks- fjarðar 17 ára færeyskan pilt, Andor Björkhamar að nafni, en hann hafði slasazt á auga úti á sjó og var illa haldinn. Piiturinn er á bát frá Bolung- arvík og var að höggva vír, er slysið varð. Hrukku agnir úr vírn um í annað augað og særðu það. Hannes Finnbogason, héraðslækn ir, tók á móti piltinum, þegar er báturinn kom með hann hingað inn. En þar sem hann taldi sig ekki hafa aðstöðu til að vita, hvort nokkuð væri eftir í aug- anu og hvort það hefði skemmzt, var Björn Pálsson beðinn um að sækja piltinn. Lenti Björn sama dag í fjöru við sandodda innan Vatnseyrar og flaug með piltinn til rannsóknar suður. eyjum á heimleið frá Þýzka- landi. Ætlunin var að sækja þangað 12—15 sjómenn, sem fara áttu á Patreksfjarðartog- arana tvo. — Búizt var við því, að skipið hefði aðeins stutta viðdvöl í Færeyjum, en héldi síðan áfram ferðinni heim. Seint í gærkvöldi barst út- gerð togarans svohljóðandi skeyti frá Ingvari Guðmunds syni skipstjóra, eftir að skip- ið hafði legið rúman sólar- hring í Trangisvogi, án þess að nokkur færeyskur sjómað- ur byðist til starfa: „Ekkert útlit málið breyt- ist. Förum morgun, ef ekkert lagast“. Útgerðin hafði þegar sam- band við skipið, og mun loka- tilraun verða gerð fyrir há- degi í dag, en Gylfi síðan leggja af stað hcimleiðis um hádegið, hvort sem árangur næst eða ekki. Aætlað er að M.s Gullfoss komi við í Þórshöfn n.k. föstudag á ieið sinni frá Kaupmannahöfn, ef 20 eða fleiri Færeyingar panta far. Auglýst hefur verið þar eft- ir fólki til starfa í íslenzkum fiskvinnslustöðvum, á bátum og á togurum fyrir sömu kjör og gilda fyrir íslendinga. Ekki er vitað um áhrif auglýsingarinnar, en talið mögulegt að eitfchvað af stúlkum komi til starfa í fisk- iðjuverum. Annars er mannekla hjá bát- unum ekki eins mikil og af er látið, helzt skortur á beitingar- mönnum. Hinsvegar munu vand- ræðin vera meiri hjá ýmsum tog- urum úti á landi. 8 atkvœða munur ALMENNUR fundur var haldinn í Iðju, félagi verk- smiðjufólks, í gærkvöldi. Eins og áður hefur verið skýrt frá í Mbl. í gær, höfðu kommúnistar mikinn við- búnað fyrir fund þennan og höfðu smalað þangað öllu liði sínu. Tókst þeim að fá á fundinum samþykkta tillögu, er mótmælti efna- hagsaðgerðum ríkisstjórnar innar. Munaði 8 atkvæðum á tllögu frá formanni Iðju, en allmargir voru farnir af fundinum, þegar atkvæða- greiðslan fór fram, enda var klukkan nálega hálf tólf.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.