Morgunblaðið - 18.02.1960, Page 10
10
MORCUNBL4Ð1Ð
Fimmtudagur 18. febr. 1960
Tltg.: H.f. Arvakur Reykjavik.
UTAN UR HEIMI
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Lesbók: Arni Öla, sími 33045
Auglýsmgar: Arni Garðar Kristinsson
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 40,00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 2.00 eintakið
ÖMURLEGT
HLUTSKIPTI
FRAMSÓKNAR
Fdlk til sölu
TVTÚ ER runnin upp mikil
-*■’ örlagastund í lífi þjóðar-
innar, þegar á að leiða hana
út úr myrkviði hafta- og of-
stjórnarbúskapar, sem hefur
staðið um langt skeið. Sjálf-
stæðisflokkurinn og Alþýðu-
flokkurinn hafa tekið hönd-
um saman til að leysa þetta
mikla og erfiða verkefni og
hafa með því sýnt virðingar-
verða djörfung og manndóm.
Það mun engan undra, þó
að framkvæma eigi viðreisn-
aráætlanirnar í andstöðu við
Alþýðubandalagið, þ. e.
Kommúnistaflokkinn. Flestir
ráðamenn þess flokks munu
ekki eiga aðra ósk heitari, en
að á Islandi verði stofnað
„alþýðulýðveldi“, til dæmis í
líkingu við það sem er í Ung-
verjalandi. Slíkir menn geta
aldrei af heilum hug staðið að
viðreisnaráætlunum, sem eru
í anda frjálslyndis og lýðræð-
is. —
Um Framsóknarflokkinn
gildir hins vegar allt ann-
að. — Hann ei íslenzk-
ur flokkur. Jafnvel segja
sumir, að hann sé svo alís-
lenzkt fyrirbrigði, að hann
eigi engan sinn líka í víðri
veröld!
Tvær ástæður
Það hlýtur að vera, að ein-
hverjar óeðlilegar orsakir
liggi því að baki, að það skuii
líka eiga að framkvæma við-
reisnaráætlanir í andstöðu
við þennan flokk. Og Tíminn
hefur verið að læða því að
lesendum sínum undanfarið,
að „almannarómur“ skildi
ekki hvað hér lægi að baki.
Það eru fyrst og fremst
tvær ástæður fyrir því, að nú-
verandi stjórnarflokkar
treysta sér ekki ti’ að gera
nauðsynlegar breytingar á
efnahagskerfinu í samráði við
Framsóknarflokkinn.
Hin fyrri er sú, að þó að
vitað sé að flestir Framsókn-
armenn viðurkenni með
sjálfum sér nauðsyn róttækra
ráðstafana og gætu þar með
fallizt á flest af því, sem nú
á að fara að gera, þá myndu
þeir aldrei fást til samstöðu,
nema að þeir fengju að koma
að einhverjum klíku-sjónar-
miðum. En þau mundu tví-
mælalaust minnka líkurnar
fyrir góðum árangri.
Óheilir í samstarfi
Hin ástæðan er enn al-
varlegri og ættu almennir
Framsóknarmenn að hug-
leiða hana sérstaklega.
Sannleikurinn er sá, að
flestir forystumenn Fram-
sóknarflokksins eru svo
óheilir í öllu samstarfi, svo
að ekki sé meira sagt, að
aðrir flokkar eru búnir að
fá nóg af, — að minnsta
kosti í bili.
Þegar Framsóknarflokkur -
inn hefur verið í stjórn með
öðrum flokkum, þá virðist
það hafa verið eitt hans aðal-
áhugamál, að rægja sam-
starfsflokkana og hagnast
sem mest á þeim. I þessu sam-
bandi má nefna, sem dæmi, að
í síðustu skiptin, sem marg-
nefndur flokkur hefur verið
í stjórnarsamstarfi með
Sjálfstæðisflokknum, hefur
litið þannig út, sem að Tíminn
væri stöðugt í stjórnarand-
stöðu og áróðurinn og rógur-
inn gegn samstarfsflokknum
hefur verið gengdarlaus.
Efldu kommúnista
eftiir megni
Svipað er að segja um sam-
starfið, sem Framsóknar-
menn og Alþýðuflokkurinn
tóku upp og leiddi til valda-
töku vinstri stjórnarinnar.
Meðan á því samstarfi stóð
hikuðu Framsóknarmenn
ekki við að efla kommúnist-
ana innan verkalýðshreyfing-
arinnar eftir megni, þrátt fyr-
ir það, að þeir eru höfuðand-
stæðingar Alþýðuflokksins.
Þær voru ekki heldur til
að efla samhuginn, yfirlýs-
ingar Framsóknarmanna frá
vinstri-stjórnar-dögunum um
að Sjálfstæðisflokknum
skyldi haldið utan stjórnar
um ófyrirsjáanlega framtíð.
En slíkt tal er þó bezt að
flokka undir hreinan barna-
skap. Sjálfstæðismenn ætla
sér ekki að hefna þess á neinn
hátt.
En þeir kref jast heilinda
af samstarfsmönnum sínum
og þess er ekki að vænta,
að óbreyttu hugarfari for-
ystumanna Framsóknar-
flokksins.
SENDIHERRA SAUDI Arabíu
var í heimsókn hjá Ðar el Diaffa
í Yemen og langaði til að eignast
fallega gjöf til að færa húsbónda
sínum. Gjöfin átti að vera korn-
ung, falleg stúlka, ambátt úr
kvennabúri prinsins af Sanas.
Sendiherrann bauð 2.800 thater
(um 14.000,00 danskar kr.) í
stúlkuna og prinsinn samjþykkti
kaupin.
Þannig hefur verið verzlað
með fólk í þúsundir ára á Ara-
bíuskaga. Þannig er verzlað enn.
Þessi viðskipti fóru ekki fram
fyrir 1001 ári, þau voru gerð árið
1955.
Sameinuðu þjóðirnar hafa út-
búið samþykkt gegn þrælahaldi,
sem mörg lönd hafa staðfest,
þeirra á meðal Danmörk. Síðan
hefur ekkert gerzt.
Einn af þingmönnum danska
Þjóðþingsins, frú Else Zeuthen,
hefur nú óskað eftir því að full-
trúi Danmerkur hjá fSameinuðu
þjóðunum krefjist þess að skipuð
verði nefnd sérfræðinga til að
rannsaka ástandið í þessum mál-
um.
Hvað kemur það Danmörku
við þótt fólk sé selt mansali?
Því svarar frú Zeuthen þannig
að sem meðlimur Sameinuðu
þjóðanna hafi Danmörk eins og
önnur lönd skuldbundið sig til að
útrýma ómannúðlegu ástandi í
heiminum. Þrælahald sé ómann-
úðlegt.
The Anti Slavery Society í Lon
don heldur því fram að milljónir
þræla séu í heiminum í dag, þar
af 500.000 á Arabíuskaga.
Sjónarvottur
Það er erfitt að fá upplýsingar
um þrælahald, ekkert land viður
kennir það opinberlega. Samt
sem áður er talsvert vitað um
það. The Anti Slavery Society í
London hefur safnað ýmsum upp
lýsingum, og þaðan er til dæmis
sagan af viðskiptunum í Yemen.
Franski læknirinn dr. Claudine
norska flug- og sjóhernum
hafa að undanförnu dvalizt
suður á Ítalíu til að kynna
sér flugvél, sem þeir eru að
vona að komið geti í stað
Katalínu-báta norska hersins.
Norðmenn hafa enn nokkrar
Katalínur í notkun, en hafa
nú mjög í hyggju að leggja
þær til hliðar.
Flugvélin, sem hér er um að
ræða, heitir Grumman Tracker.
Hún er tveggja hreyfla og hefur
Fayein var um þetta leyti í
Yemen, og var hún kölluð til hall
arinnar til að skoða ambáttina,
því ekki vildi sendiherrann
kaupa köttinn í sekknum.
Þegar dr. Fayein komst að því
í hvaða tilgangi læknisskoðunin
var framkvæmd sagði hún að
stúlkan væri sjúk og sendiherr-
ann hætti við kaupin. Ambáttin
var hvít.
í Saudi Arabíu, Yemen, Oman,
Hadramaut, sums staðar í Sahara
og sennilega í Spanska Marokkó
er rekin víðtæk þrælasala. Karl-
mennirnir eru notaðir sem þjón-
ar og verkamenn, konurnar
þjónustustúlkur og hjákonur.
Börn þrælanna verða einnig
þrælar, en aðbúð þeirra verður
betri en keyptra þræla og sums
staðar er farið með þau allt að
því sem meðlimi fjölskyldunnar.
Farið er með þrælana eins og
húsdýr, yfirleitt vel, og er þeim
ekki misþyrmt frekar en góður
bóndi misþyrmir nautgripum
sínum. Saudi Arabía og Yemen
flytja inn þræla. Franski sendi-
herrann í Saudi Arabíu gaf ríkis-
stjórn sinni skýrslu um þetta árið
1953. Þar stendur m.a.:
Margir Afríkumenn, sem eru
Múhamedstrúar eru tældir til
Arabíu. Trúboðar eru sendir til
Afríku og bjóða þeir að kosta
pílagrímsför til Mekka. Margir
láta freistast. Þeir eru fluttir til
strandarinnar, settir þar um
borð í seglskútur og siglt með þá
til hafnarborgarinnar Lith. Þar
tekur lögreglan þá fasta fyrir að
koma inn í landið á ólöglegan
bátt. Næsta dag eru þeir svo af-
hentir þrælasölunum.
Franski sendiherrann heldur
því fram að árlega séu 600 manns
tældir til að fara til Arabíu. The
Slavery Society telur að um
miklu fleiri menn sé að ræða.
Fyrir tveim árum var fylgzt
með því í frönsku Vesturafríku
hve margir fóru pílagrímsferð til
Mekka. 21.000 fóru, 9.000 komu
til baka. Hvað varð um hina?
Verðlag
Verð á þrælum er nokkuð mis-
jafnt. Meðalverð mun vera ná-
lægt því sem hér segir, reiknað
í dönskum krónum:
verið framleidd síðan 1952. —
Bandaríski herinn notar hana til
könnunarflugs með ströndum
fram og út á hafið. ítalir og Jap-
anir hafa líka fengið þessa flug-
vél í sama tilgangi.
Grumman Tracker hefur 390
km hámarksflughraða, en venju-
legur hraði er 250 km á klst. —
Flugþolið er um 2,000 km og flug
vélin getur notazt við mjög
stuttar flugbrautir.
Katalínubátarnir hafa hins
vegar um 225 km meðalflughraða
og geta fullhlaðnar eldsneyti
flogið 3,900 km.
Grumman 'i stað Katallnu ?
N O K K R I K foringjar úr
Stúlkur undir 15 ára, frá 4.000,
til 10.000,— menn undir 40 ára
um 3.000—, eldri konur 800,—
The Anti Slavery Society hef-
ur lista yfir þekkta þrælasala.
Helztir þeirra eru: Amadou Bou-
bone, sheikinn Abdallah Bou-
heiri, hann selur aðallega prins-
um, og Hedj Mohamadou, allir
frá Djedda.
Hvað er hægt að gera við þessu
vandamáli? Með kröfunni um sér
fræðinganefnd, eru Sameinuðu
þjóðirnar neyddar til að láta mál
ið til sín taka, láta rannsaka það
og koma því til leiðar að þræla
sala verði afnumin.
Ruslakista við
ísland ?
KAUPMANNAHÖFN, 16 febrúar
(Reuter): — Endanleg ákvörðun
hefur nú verið tekin um það að
ýtarlegar hafrannsóknir verði
framkvæmdar með tíu hafrann-
sóknarskipum á svæðinu milli ís-
lands og Færeyja. Er tilgangur-
inn með þessum rannsóknum að
leita að heppilegum stað á hafs-
botni, þar sem kasta má hættu-
legum geislavirkum úrgangsefn-
um.
1 rannsókninni eiga að taka
þátt skip frá Bretlandi, Rúss-
landi, Danmörku, Noregi og Is-
landi. Aðgerðirnar eiga að standa
í þrjár vikur og hefjast í byrjun
júlí.