Morgunblaðið - 18.02.1960, Qupperneq 19
Fimmtudagur 18. febr. 1960
MOHCVlVnLAÐIÐ
19
Við dyr
dauðans
Undanfarna daga hafa sjón-
varpsmenn verið önnum kafn-
ir við kvikmyndatöku i San
Quentin-fangelsinu i Banda-
rikjunum. — Þeir hafa verið
að kvikmynda einhvern fræg-
asta afbrotamann heimsins,
Caryl Chéssman — í klefa
dauðadæmdra. — I’að á sem
sé að gera Chessman „ódauð-
legan" — áður en hann lætur
lífið hinn 19. þ.m. (á morgun)
í gasklefanum.
★
Arið 1948 var Chessman
dæmdur til dauða — fyrir
margs konar afbrot, svo sem
mannrán og nauðganir. Að-
eins 90 dögum síðar skyldi
hann færður til gasklefans,
sem er skammt frá klefa hans.
__ En Ghessman lifir enn —■
og þeir eru til, sem trúa því,
að hann muni „leika á böðul-
inn“ enn einu sinni — þótt nú
virðist fokið í flest skjól.
Menn eru orðnir svo vanir því,
að aftöku hans sé frestað. —
En nú virðist hann sjálfur
hafa misst móðinn — í fyrsta
sinn öll þessi ár. — Þegar
hæstiréttur Kaliforníu neitaði
enn um daginn að taka mál
hans upp að nýju, sagði hann:
__ Nú er öllu lokið fyrir mig
— ekkert eftir, nema gasið . . .
Hin tólf ára langa barátta
hans fyrir lífi sínu er kunn
um heim allan. Hann virðist
sérfræðingur í alls kyns laga-
flækjinn, en ekki er að sjá, að
hann hafi beitt neinum óvið-
urkvæmilegum herbrögðum í
því sambandi. Það, sem hann
hefir fyrst og fremst hengt
hatt sinn á, er réttarbókun
í málinu. — Þegar mál hans
var fyrst tekið fyrir, 1948,
Síðasta mynd-
in af Chess-
man? — Hún
er tekin úr
kvikmynda-
filmunni, sem
sjónvarps-
mennirnir
tóku af hinum
fræga fanga
í „dauðaklef-
anum“ á dög-
unum.
gerðist það, að réttarskrifar-
inn dó, áður en hafði hrein-
skrifað hin hraðrituðu blöð
sín. — Sá, sem við verkinu
tók, var ólæknandi áfengis-
sjúklingur — og þar að auki
tengdur ákærandanum í mál-
inu. — Chessman hefir haldið
því fram, að hin hreinskrifaða
bókun sé ekki í samræmi við
það, sem gerðist í réttarsaln-
um 1948 og það, sem hinn
látni réttarskrifari festi á
blað. Hann heldur því sem
sagt fram, að réttarbókunin,
eins og hún liggur fyrir, sé
ekki hlutlaus. Þess vegna hef-
ir hann sífellt gert kröfu til
þess, að mál sitt væri tekið
upp að nýju.
Það hefir verið viðurkennt
á ýmsum dómsstigum, að rétt-
arbókunin væri ekki nákvæm
eða gallalaus — en ekki hefir
þó þótt ástæða til að taka
Sumkomur
Hjálpræðisherinn. — f kvöld kl.
20,30: Kvöldvaka. Veitingar o.fl.
Johannes Sigurðsson talar.
Schannong’s minnisvarðar
(ðster Farimagsgade 42,
Kþbenhavn 0.
málið upp frá rótum af þeim
sökum. — Fimmtán sinnum
hefir hæstiréttur Bandaríkj-
anna vísað á bug kröfunni um
að taka málið upp aftur — og
litlar líkur eru til, að Chess-
man verði nú neitt til bjarg-
ar. — Þá er aðeins dauðinn
eftir — og Chessman veit,
hvemig hann muni bera að
höndum. í sjálfsævisögu sinni
skrifar hann:
— Gasið vellur fram og
sveipast um manninn í stóln-
um eins og þoka. Hann andar
að sér hinum væmna ilmi,
sem minnir á angan ferskju-
blómsins. Hann svimar — og
smám saman missir hann tök
in á meðvitundinni. Hjartað
slær hraðar og hraðar. Það
hamast, og hávaðinn er eins
og í loftþjöppu . . . en svo . . .
nú slær það hægar . . . og
hægar .. stanzar-------.
Nuuðsynlegt uð endurskoðu
húsnæðismúlulöggjöfinu
Frá Alþingi
Á FIJNDI sameinaðs þings í
gær urðu nokkur orðaskipti
milli Hannibals Valdemars-
sonar og Jóhanns Hafsteins
um húsnæðismál og fjáröflun
til þeirra. Talaði Hannibal á
fundinum fyrir tillögu um
ráðstafanir til fjáröflunar fyr-
ir Byggingarsjóð ríkisins, sem
hann flytur. Er tillagan í f jór-
um liðum og lagt til að sjóðn-
um verði útvegað 100 millj.
kr. lán, helmingurinn tekinn
að láni erlendis. í framsögu-
ræðu sinni kvað Hannibal
brýna þörf úrbóta í þessum
málum og taldi hann að lán
þau, er Seðlabankinn veitti í
janúar sl. væru aðeins sýnd-
arlán.
Jóhann Hafstein kvað það eft-
irtektarvert, að félagsmálaráð-
iherra V.-stjórnarinnar skyldi
láta það verða sitt fyrsta verk á
þessu þingi að bera fram tillögu
um leiðréttingu á húsnæðismála-
löggjöfinni. Væri hann flm. sam-
mála um að leiðréttinga væri
þörf á þeirri löggjöf, sem V.-
stjórnin hefði sett, enda hefðu til
lögur hennar verið í þessum mál
um verið mjög haldlitlar.
Þá vék ræðumaður að því, er
jafnvægi skapaðist í efnahags-
málum eftir gengisbreytinguna
1950, er varð til þess, að spari-
fjármyndun nærri tvöfaldaðist.
Þegar húsnæðismálalöggjöfin
var sett 1955 undir forsæti Olafs
Thors, var hin stóraukna spari-
fjármyndun í landinu sem þá
hafði orðið forsenda þess að bank
arnir gátu skuldbundið sig til
þess að láta mikið fé af mörkum
til íbúðabygginga. Eftir að V.-
stjórnin hafði sezt að völdum og
tryggt sér yfirráð yfir bönkun-
um, dró hinsvegar úr sparifjár-
mynduninni svo að bankarnir
gáfust upp á framlögum sínum
til íbúðalánanna. Menn urðu hins
vegar að gera sér ljóst, að höf-
uðundirstaða lánveitinga væri
sparifjármyndun í landinu sjálfu.
Þá minntist Jóhann Hafstein á
þau ummæli Hannibals Valdi-
SAS-slysið
Fram. af bls. 1.
Fyrrnefnd grein í „Flygposten"
vekur athygli vegna þess, að
þegar eftir Ankara-slysið, lýstu
forráðamenn SAS því yfir, að
tæknilegir gallar hefðu áreiðan-
lega ekki verið orsök þess.
— -k —
Helno Larsen, yfirmaður
danska loftferðaeftirlitsins, seg-
ir í þessu sambandi, að „bygg-
ing“ hæðarmælisins hefði e. t. v.
getað valdið því, að flugmaður-
inn á Caravelle þotunni hafi tal-
ið sig vera í meiri hæð en raun
var á — en þetta sé aðeins eitt
atriði af mörgum, sem rannsaka
þurfi. Ekkert ákveðið sé hægt
um málið að segja á þessu stigi.
marssonar, að lán þau, er veitt
hefðu verið í janúar, væru sýnd-
arlán og þaðan af verri. Þetta
væru þó alveg samskonar lán og
Hannibal hefði veitt í sinni ráð
herratíð og hælt sér af.
Jóhann Hafstein sagði að lok-
um, að þessi mál yrði að taka til
gagngerðari endurskoðunar en
lagt væri til í þáltill. Hannibals
og yrði það eitt af mikilvægari
verkefnum núverandi ríkisstjórn
Nokkrir fleiri tóku til máls,
en umr. síðan frestað og tillög-
unni síðan vísað til allsherjar-
nefndar.
— Krabbe
Framh. af bls. 1
Verður birt í heild
1 grein þessari, sem verður birt
í heild hér í blaðinu á morgun,
er m. a. sagt, að Danir hafi aldrei
fullkomlega fyrirgefið íslending-
um lýðveldisstofnunina 1944. Og
íslendingar hafi ekki heldur fyr-
irgefið Dönum hve margir þeirra
litu á Island, sem danska ný-
lendu.
Þá er þess getið, að í bók
Krabbe komi fram sjónarmið Is-
lendinga í sjálfstæðisbaráttu
þeirra og rakin samskipti land-
anna í stuttu máli. — Þá má að
lokum geta þess, að fyrirsögn
greinaarinnar er eitthvað á þessa
leið: „Fyrrverandi fulltrúi Is-
lands í Kaupmannahöfn, Jón
Krabbe, gerir harða árás á kon-
unginn sáluga í endurminningum
sínum.
S elskapskjólar
til sölu. — Lágt verð.
Saumastofan, Rauðarárstíg 22
Hjartanlega þakka ég öllum sem glöddu mig á, 70 ára
afmæli mínu 14. febrúar s.l.
Guðbjörg Snorradóttir, Húsum.
Ég þakka hjartanlega öllum þeim sem glöddu mig með
heimsóknum og heillaóskum á 95 ára afmæli mínu 11.
þessa mánaðar.
Ellert Kr. Schram, skipstjóri.
Innilega þakka ég öllum þeim, sem glöddu mig á
sextugs afmæli mínu 10. febrúar og gerðu mér daginn
ógleymanlegan.
Með beztu óskum og kærri kveðju.
Einar Skúlason Eymann.
Litli drengurinn okkar sem andaðist 10. þ.m. verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtud. 18. þ.m. kL
3,15 síðdegis.
Ingibjörg Jónsdóttir, Jón B. Ágústsson.
Maðurinn minn
SKÚLI S. I>. SlVEBTSEN
Öldugötu 52,
verður jarðsettur föstudaginn 19. þ.m. frá Dómkirkj-
unni kl. 13,30.
María J. Sívertsen.
Útför eiginmanns míns
FINNBOGA THEODÓBS
Bogahlíð 11,
fer fram frá Fossvogskirkju, föstudaginn 19. þ.m. kL
10,30 f.h. Athöfninni verður útvarpað.
Ingiríður Theódórs.
Hjartanlega þökkum við öllum er sýndu okkur samúð
og vinarhug við andlát og jarðarför
STEFÁNS MAGNÚSSONAB
trésmiðs.
Sigríður S. Ólafsdóttir,
Gróa Guðbjömsdóttir, Magnús V. Stefánsson.
Þakka sýnda samúð við andlát og jarðarför konu
minnar
DAGBJABTAB HANNESDÓTTUB
Holtsgötu 13.
Júlíus Ámundi Jónsson.
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför móður okkar, tengdamóður og ömmu
JÓNÍNU JÓNSDÓTTUB
Vatnsstíg 16 A.
Olga Jónsdóttir, Jón M. Jónsson,
Héðinn Jónsson, Lilja Kristinsdóttir,
og barnabön.
Þökkum innilega auðsýnda hluttekningu og samúð
við andlát og jarðarför konu minnar, móður, tengda-
móður og ömmu
MAGNEU JÓNSDÓTTU R
Bjarni M. Einarsson,
Þórey Bjamadóttir, Georg Bjarnason,
María Bjarnadóttir, Ólafur Metúsalemsson,
og barnabörn.