Morgunblaðið - 02.03.1960, Síða 6
6
MORGVNBLAÐ1Ð
Miðvik'udagur 2. marz 1960
Stúdentafundur um
málefni Njassalands
lýsti stuðningi við málaleitan
dr. Chiume
ALMENNUR stúdentafundur var haldinn í Háskóla fslands sl.
laugardag og þar rædd málefni Njasalands og dr. Hastings Banda,
og málaleitan sú, sem hr. Chiume bar fram við islenzk stjómar-
völd, sem kunnugt er. Boðaði stúdentaráð Háskóla fslands til
fundarins eftir að hafa rætt málið.
í upphafi fundarins flutti
Thorolf Smith, fréttamaður, fróð
legt erindi um þróun og ástand
í Njasalandi. Haraldur Kröyer,
forsetaritari, sat fundinn, en
hann vinnur að undirbúningi
greinargerðar um þetta mál fyr-
ir utanríkisráðherra. Greindi
hann nokkuð frá þeirri meðferð,
sem slík mál hljóta hjá Mann-
réttindanefndinni og taldi lík-
legt að málið yrði rætt í utan-
ríkisnefnd Alþingis og væntan-
lega einnig í ríkisstjórninni.
í>á tóku nokkrir stúdentar til
máls og ræddu tillögur, sem
lagðar voru fram. Urðu litlar um
ræður um þær og voru sam-
þykktar einróma.
Aðalfundur
Iðnráðs
AÐALFUNDUR Iðnráðs Reykja-
víkur var haldinn sunnudaginn
31. jan. sl.
Framkvæmdastjórnin skýrði
frá störfum Iðnráðsins á síðast-
liðnu kjörtímabili, og lýsti helztu
málum, sem það hafði fengið til
meðferðar og niðurstöðum þeirra.
Síðan hófust umræður.
Framkvæmdastjórnin var öll
endurkosin, en hana skipa:
Guðm. Halldórsson, húsasm.m.,
formaður; meðstjórnendur: Valdi
mar Leonhardsson, bifvélavirki;
Gísli Ólafsson, bakarameistari;
Þorsteinn B. Jónsson, málari, og
Óskar Hallgrímsson, rafvirki. —
Varamenn: Ólafur H. Guðmunds
son, húsg.sm.m.; Hafsteinn Guð-
mundsson, járnsm.; Gestur Páls-
son, prentari, og Þorsteinn
Daníelsson, skipasm.m.
Endurskoðendur: Guðm. B.
Hersir, bakari; Þorsteinn Daníels
son, skipasm.m., og til vara Karl
Sigurðsson, pípul.m.
Tvær tillögur samþykktar
„Almennur fundur háskóla-
stdenta haldinn 27. febrúar 1960
lýsir yfir djúpri samúð með
frelsis- og sjálfstæðisbaráttu
allra þjóða ,sem við kúgun og
ofstjórn búa.
í tilefni komu herra Chiume
þingmanns frá Njassalandi í Af-
ríku hingað til lands og mála-
leitunar þeirrar sem hann hefur
beint til íslenzkra stjórnarvalda,
skorar fundurinn á ríkisstjórn
íslands að veita fulltingi sitt til
þess að mannréttindanefnd Ev-
rópuráðsins verði látin fjalla um
mál dr. Hastings Banda, forseta
Þjóðþingsflokks Afríku í Njasa-
landi.“
Hin tillagan var svohljóðandi:
„Almennur fundur háskóla-
stúdenta haldinn 27. febr. 1960
vekur athygli á þeirri hugmynd,
sem herra Chiume þingmaður
frá Njasalandi kom á framfæri
við Stúdentaráð Háskóla íslands
um að kannaðir yrðu möguleik-
ar á því að stúdent frá Njasa-
landi yrði veittur styrkur til
náms við Háskóla íslands. Telur
fundurinn að hér sé athyglis-
vert mál á ferðinni og beinir
þeim tilmælum til hæstvirts
menntamálaráðherra að rann-
sakaðir verði möguleikar á fram
kvæmd þess.“
Naruliito
TOKYO, 29. febrúar: — 1 dag var
hinni japönsku prinsessu Michi-
ko, sem ól sveinbarn fyrir
nokkru, tilkynnt í símtali hvað
sonur hennar á að heita. En sam-
kvæmt japönskum sið, ákveður
sjáifur keisarinn nafnið í samráði
við ráðgjafa sína. Hlaut litli prins
inn nafnið Naruhito, en fyrri
hluti þess orðs. — Uaru — þýðir
dyggð. Síðara liðinn, hito, hef-
ir japanska keisarafjölskyldan
borið síðan á níundu öld.
Norrœn fisksölusamtök?
FÆREYSKA blaðið Dimma-
lætting hefur fyrir nokkru
birt forustugrein sem fjallar
um fisksölumál Færeyinga.
Telur blaðið að nágrannalönd-
in, ísland, Færeyjar, Noregur
og jafnvel Grænland, eigi að
draga úr skaðlegri samkeppni
hvert við annað á fiskmörk-
uðum. Réttara sé fyrir þessi
lönd að stofna með sér sölu-
samtök. Telur blaðið að veru-
legur sparnaður yrði af slík-
um samtökum, einkum í flutn
ingskostnaði. Slíkt myndi einn
ig skapa þessum löndum sterk
ari samningsaðstöðu við fisk-
kaupaþjóðirnar.
Tilefni þess að Dimmalætting
fitjar upp á þessu máli er gengis-
lækkunin á íslandi. Segir blaðið,
að við það að íslendingar hafi nú
lagfært efnahagsmál sín, muni
þeir fá sterkari aðstöðu á fisk-
mörkuðunum og jafnvel svo, að
norskum og færeyskum fiskselj-
endum muni verða nokkur hætta
búin á sínum gömlu mörkuðum.
„Það væri kannske of róttækt“
segir Dimmalætting, „að slá öll-
um norrænum fisksölum saman í
eitt í fyrstu umferð. En það
mætti fara varlega af stað og
byrja með því að koma á sölu-
samtökum á öllum saltfiski frá
íslandi, Grænlandi, Færeyjum
og Noregi."
Biaðið heldur því fram að slík
samtök myndu opna augu manna
fyrir því, hve þessar norrænu
fiskveiðiþjóðir hefðu mikinn hag
af auknu, raunhæfu samstarfi.
Frá útför
h.C. Hansen
Myndin var tekin í viðhafnar-
sal Ráðhússins í Kaupmanna-
höfn, er útför H. C. Hansens,
fyrrum forsætisráðherra, fór
fram á sunnudaginn. Um 1800
manns voru í salnum, en geysi
mikill fjöldi fólks var utan
við Ráðhúsið og meðfram leið-
inni, sem líkfylgdin fór til bál-
stofunnar. Friðrik konungur
situr fremst í röðinni hægra
megin til hliðar við þrepin, en
fjölskylda hins látna andspæn
is konungi, hinum megin við
þrepin.
skrifar ur
daglega iifinu
j
* Píslarganga hús-
móður eftir geri
Húsmóðir spyr:
„Mig langar til að spyrja
Mbl. um eftirfarandi ráðgátu
og fá henni svarað af þeim,
sem betur vita.
Sl. laugardag birti Morgun-
blaðið ráðleggingar til hus-
mæðra um ýmsar aðferðir til
baksturs á bollum, þar sem
nota átti lifandí gér. Sagt var
frá því, að það fengist í verzl-
un Náttúrulækningafélagsins.
Hringdi ég þangað, en það var
þá uppselt og var mér sagt
að fara á skrifstofu Áfengis-
verzlunarinnar, við Hverfis-
götu.
Þar fékk ég gegn greiðslu
ávísun á 1 kg. af geri, en var
vísað inn í Nýborg við Skúla-
götu, til þess að fá það af-
greitt. Skrifstofan við Hverf-
isgötu er þokkalegt húsnæði
og meira en það, og ekki vant-
aði kurteisina hjá afgreiðslu-
fólkinu. En ég játa, að mér
var mjög á móti skapi að
þurfa að fara inn í Nýborg
við Skúlagötu, en hins vegar
vildi ég ekki svíkja börnin
mín um nýbakaðar bollur og
nú, þegar ég er reynslunni
ríkari, vil ég spyrja þá, sem
hafa ákveðið þessa tilhögun
málanna, hvort þeir hafi sjálf-
ir nokkurn tíma komið á
þann stað-
• Hver er ástæðan?
Og vil ég sér í lagi spyrja
að því, hvaða ástæða sé til
þess að neyða húsmæður tíl
að þeysa fyrst í skrifstofu
Áfengisverzlunarinnar til þess
að greiða fyrir gerið, þurfa
að greina nafn sitt og heimils-
fang (því ekki aldur og mennt
un, stærð fjölskyldu, sérkenni
og nr. á bankabók ef til er),
og senda þær á eftir á þann
stað, er hvumleiðastur er í
Rvík og áreiaðnlega þyrnir í
augum allra bæjarbúa. Og
hvers vegna gat ég ekki fengið
minna en 1 kg. af geri? Ég
þurfti 60 gr. í bollumar. Hvað
á ég nú að gera við afganginn?
Eins og hver húsmóðir veit,
geymist lifandi ger í mjög
takmarkaðan tíma.
Þurfa þeir, sem kaupa ger
hjá Náttúrulækningafélaginu
að láta bókfæra nafn sitt? Ef
ekki, hvers vegna þá á skrif-
stofu Áfengisverzlunarinnar?
Og hvernig stendur á því, að
ef þessi vara er seld annars
staðar en hjá Áfengisverzlun
ríkisins, að ,hún skuli ekki
ver til sölu víðar u*i bæinn?
Hvað á þessi kotaháttur eig-
inlega að þýða? Er það hættu-
legra að selja húsmóður 100
gr. af geri í matvöruverzlun,
en selja óþroskuðum unglingi
2—4 flöskur af brennivíni í
Nýborg? Ég heimta svar og
það strax“.
* Messur og
Passíusálmar
í bréfi til Velvakanda segir
Sv. Sv. m. a. á þessa leið:
— Þótt ég hafi legið í rúm-
inu að undanförnu hef ég get-
að hlustað á útvarpið og lang-
ar mig til að minnast á tvö
atriði, sem þar hafa komið.
Hið fyrra er messan í Dóm-
kirkjunni sl. sunnudag, sem
var framkvæmd af þeim séra
Ingólfi Þorvaldssyni og séra
Braga Friðrikssyni. Var hún
mjög skemmtilega flutt bæði
fyrir altari og úr predikunar-
stóli og einkenndist af frjáls-
um og heilbrigðum hugsunar-
hætti.
Hitt atriðið er lestur Passíu-
sálmanna, sem byrjar vel nú
eins og oft áður, enda er séra
Sigurður Pálsson, sem les þá
að þessu sinni, trúmaður mik-
ill. En eins og kunnugt er
er af mörgum litið öðru vísi á
trúmálin nú en var gert á
dögum séra Hallgríms Péturs
sonar og lengur. Mér hefur
því oft dottið í hug hvort rétt
hafi verið að taka lestur sálm-
anna upp í útvarpið, en eftir
viðtalið við séra Sigurð í Mbl.
fullvissaðist ég um að það
væri rétt að lesa þá svo lengi
sem til væri eitthvert fólk í
þessu landi, sem hlustaði á
þann lestur.
• SKAK •
HAFNARFJÖRÐUR
ABCBEFGH
ABCDEFGH
KEFLAVÍK
23. Rf6t
★
KEFLAVÍK
abcdefgh
AKRANES
19. h7xg6