Morgunblaðið - 02.03.1960, Síða 19
Miðvikudagur 2. marz 1960
MORGUNBLAÐIÐ
19
— Gengisbreyting
óhjákvæmileg
Framh. af bls. 10
gerðar á umræddum ráðstöfun-
um.
Þær ákvarðanir, sem Seðla-
bankastjórnin hefir tekið, eru
ekki gerðar til að skapa atvinnu-
leysi, ekki til að draga úr fram-
leiðslu, ekki til þess að minnka
lífsafkomu þjóðarinnar. — Held-
ur aðeins til þess að hægja á
aukningunni um stundarsakir,
svo að tóm gefist til að bæta og
treysta grundvöllinn fyrir aukna
framleiðslu og vaxandi athafna-
líf um langa framtíð, fyrir þær
þúsundir ungra íslendinga, sem
á komandi árum vaxa upp og
bætast þjóðinni til starfs og
framkvæmda.
!>að er nú enn á ný vinsamleg
tilmæli mín til allra þeirra, sem
ákvóröunarvald hafa í peninga-
stofnunum Iandsins, að viðhafa
mikla gætni í útlánum á þessu
ári og sérstaklega miða útlánin
við það, að heilbrigð framleiðsla
þjóðarinnar geti haldizt. Ég fram
ber einnig ósk til sömu aðila um
áframhaldandi gott samstarf á
þessu ári og að allir leggi sig
fram um, að það mark náist, sem
sett hefir verið, að skapa traust-
an grundvöll fyrir heilbrigðri
efnahagsþróun, en með því verð-
ur framtíð þjóðarinnar bezt
tryggð.
Hvernig þetta tekst, fer
mjög eftir samstarfi penina-
stofnana landsins og svo eft-
ir því, hvernig þjóðin öll tek-
ur þessum aðgjörðum, veltur
á því, að fólkið í landinu viiji
skilja, að þetta er allt gert í
voninni um að auka þjóðinni
öryggi og skapa grundvöli
fyrir varanlegar framfarir og
trausta uppbyggingu atvinnu-
lífsins. Það er von mín, að
þessi skilningur nái að ríkja
og tilætlaður árangur náist.
Ingóllscafé
DANSAO fil kl. 11,30 í kvöld
PLl'DÓ-kvinntettinn og
STEFAN JÓNSSON skemmta.
INGÓLFSCAFÉ
Árshátíð
Hestamannafélagsins Sörla Hafnarfirði
verður haldin í samkomuhúsinu á Garðaholti Iaug-
ardaginn 5. marz kl. 8,30. — Þorrrablótsmatur.
Til skemmtunar
Söngur og gamanþáttur fluttur af Sigurði Ólafssyni
o. fl. Dans.
Félagslíf
Tómstundakvöld Ármanns!
I KVÖLD kl. 7,30 verður tóm-
stundakvöld í félagsheimili Ár-
manns við Sigtún og eru þar tafl
og frímerkjaklúbbar auk þess
sem kennd er bast og tágarvinna.
Þá verður einnig kvikmyndasýn-
ing kl. 8,30. Ákveðið hefur ver-
ið að halda þessari tómstunda-
iðju áfram í vetur og er þátttöku
gjald 25 kr. fyrir allan tímann.
Allir yngri félagar Ármanns eru
hvattir til að taka þátt í félags-
starfsemi þessari sem án efa
verður skemmtileg ef nógu marg
ir þátttakendur verða.
Aðgöngumiðar fást hjá Kristjáni Vigfússyni sími
22739, Bergi Magnússyni sími 18987 Reykjavík og
hjá Sigurði Ámasyni sími 50768 Kristjáni Guð-
mundssyni sími 50091 og Eysteini Einarssyni sími
50005 Hafnarfirði.
Aðgöngumiðar óskast sóttir fyrir fimmtudagskvöld.
Athygli skal vakin á að aðgöngumiðinn giidir, sem
happdrætti.
STJÓRNIN.
Huseignir í IHiðbænum
Haldin verður tveggja kvölda
sýnikennsla
í ábætisréttum, ef næg þátt-
taka fæst. Hefst kennsla föstu
dagskv. 4. marz. — Upplýsing
ar í síma 15147.
LOFTUR h.t.
LJÓSMYNDASTOFAN
Ingólfsstræti 6.
Pantið tíma í síma 1-47-72.
MAIMAFOSS
vefnaðarvöruverzlun
Dalbraut 1 — sími 34151.
EINAR ÁSMUNDSSON
hæstaréttarlögmaður
HAFSTEINN SIGURÐSSON
héraðsdómslögmaður
Skrifstofa Hafnarstr. 8, H. hæð.
Simi 15407, 19113.
Til sölu eru húseignirnar Ingólfsstræti 12 og Þing-
holtsstræti 12 og Þingholtsstræti 11 ásamt tilheyrandi
eignarlóðum. Eignirnar seljast saman eða hvor fyrir sig.
Eignirnar eru sérstaklega vel staðsettar fyrir skrifstofur
og ýmis konar atvinnurekstur.
FASTEIGNA & VERÐBRÉFASALAN,
(Lárus Jóhannesson, hrl.)
Suðurgötu 4. Símar: 13294 og 14314.
Til fyrrverandi lesenda
Isafoldar & Varðar
Vinsamlegast sendið sem allra
fyrst svör við bréfi útgáfustjórn-
arinnar dags. 8. jan. sl. viðvíkj-
andi kaupum á Morgunblaðinu.
tfttlttttltliibifr
Þórscafé
Dansleikur
í kvöld kL 9
I. Danskynning
Cha — Cha — Cha
kl. 9,30—11
KK
- sextettinn
I»að er í kvöld sem
GULLI og HEIÐA
Söngvarar:
ELLÝ og ÖÐINN
ásamt fjölda annarra
dansara
sýna og kenna þennan
vinsæla dans
Austfirðingamót
verður í Framsóknarhúsinu laugardaginn 5. marz og
hefst með borðhaldi (þorrablótsmatur) kl. 20.
Dagskrá:
1. Ávarp: séra Pétur Magnússon frá Vallarnesi
2. Karl Guðmundsson leikari
3. Leikþáttur: Bessi Bjarnason og Gunnar Eyjólfsson
4. Dansað til kl. 3.
Miðasala er á Bollagötu 6 skóvinnustofunni, Langholts-
veg 126 sælgætisverzlun, Breiðfirðingabúð og Framsókn-
arhúsinu kl. 4—7 á fimmtudag. Sími 22643.
Áth.: Dökk föt. Stjórnin.
Dansstjórl:
HELGI EYSTEINS
Gömlu dansamir
í kvöld kl. 9.
Hljómsveit Árna ísleifssonar
Söngvari Sigrún Ragnarsd.
Aðgöngumiðasala hefst kl. 8
Sími 17985
Breiðfirðingabúð
Skátaskemmtun
1960
verður endurtekin fimmtud. 3. marz kl. 8,30 e.h.
Aðgöngumiðar verða seldir í Skátaheimilinu mið-
vikudaginn 2. marz kl. 17,30—18,30 e.h.
NEFNDIN.