Morgunblaðið - 18.03.1960, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 18.03.1960, Blaðsíða 5
Föstudagnr 18. marz 1960 MORCVNBLAÐIÐ 5 — Marama, fer fólk, sem skrökvar upp til himna? spurði bandarískur drengu'r. — Það hugsa ég ekki, sonur minn. — Hefur pabbi nokkrum sinn- um skrökvað? — Eg hugsa ekki, þó gæti það verið — einu sinni eða svo. — Skrökva ekki allir einhvern tímann? — Það held ég — einhvern tima. — Hefur þú skökvað mamma? — Já, einum tvisvar sinnum að minnsta kosti. Nýlega hafa opinberað trúlof- n sína ungfrú Margrét Böðvars- dóttir, Kársnesbraut 15 og Sigþór Jóhannsson, endursk., Skaftahlíð 27. — Læknar fjarveiandi Snorri P. Snorrason, fjarv. 3—4 mán- uði frá 22. febr. — Staðgengill: Jón Porsteinsson. Sigurður S. Magnússon læknir verð- ur fjarverandi frá 14. marz um óákv. tíma. Staðg.: Tryggvi Þorsteinsson, Vesturbæjarapóteki. Viðtalstími 4.30— 5 alla virka daga nema laugardaga. Sími 1-53.40. 'ÁHEIT og GJAFIR Kristján Þorvarðsson verður fjarver- andi um óákveðinn tíma. Staðgengill: Eggert Steinþórsson. Lamaði íþróttamaðurinn, afh. Mbl.: — Onefndur kr. 200. Hofsóssöfnunin, afh. Mbl. — K.H. kr. 25,00. Rafnkelssöfnunin, afh. Mbl.: — Kol- brún kr. 50; Onefnd 100; K.H. 25. Rafnkelssöfnunin« aib — NN kr. 500,00. — Ja, mikið hlýtur að vera hræðilega einmanalegt fyrir þá Guð og Georg Washington uppi í himninum. í 6 £33. < Það bezta, sem þér getið gert fyrir manninn yðar frú, er að fara á matreiðslunámskeið. MENN 06 = MALEFNI= ÞAÐ hefur lengi verið trú manna, að því feitari og sællegri sem börn væru, því hraustari væru þau og líklegri til lang- lífs. En nú hafa læknar, bæði hér á íslandi og annars staðar vísað þess- ari gömlu kenningu á bug. í Bandaríkjunum er t. d. vaxandi ótti við að börn og unglingar séu að éta sér til óbóta. Bandarískur mann- fræðingur, Stanley M. Garn, hefur fjallað um þetta vandamál í skýrslu sem leggja á fyrir fyr- irhmgaða ráðstefnu þar um börn og unglinga. Er það skoðun hans, að Bandaríkjamenn byrji að taka sér gröf með tönnunum þegar á barns aldri. Unglingar hafa nú aðgang að mjög fitandi fæðu, en jafnframt fara tækifæri minnkandi til að hlaupa af sér spikið. Athuganir þar hafa sýnt, að meiri liluti þeirra unglinga, sem of þungir eru, verða einnig of þungir sem fullorðn- ir. Þessu er illa farið vegna þess að æða- skemmdir og lijartveiki fylgja í kjölfarið. Niðurstaða Garns er sú, að feitt kjöt, mayonn- aise og rjómaís sé gott fyrir bændur og útfarar- stjóra, en slæmt fyrir lífselska neytendur. Mikill fjöldi frjálsra bænda í Austur-Þýzkalandi hefur flúið yfir til Vestur-Þýzka- lands síðustu vikur vegna þess, að kommúnistastjórn- in er að innleiða samyrkju- búskap í stærri stíl en verið hefur. Myndin hér að ofan er tekin í flóttamanna- búðdm Rauða krossins í Berlin Tempelhof, þar sem nokkrar fjölskyldur hafa fengið inni.* Eimskipafélag fslands h.f.: — Detti- foss er á leið til Hamborgar. — Fjall- foss er í Rvík. — Goðafoss er á ieið til Bergen. — Gullfoss er á leið til Hamborgar. — Lagarfoss er á leið til Rvíkur. — Reykjaíoss er á 'eið til Rvíkur. — Selfoss er í Warnemunde. — Tröllafoss er á leið til New York. — Tungufoss er á leið tii Rosíock. H.f. Jöklar: — Drangajökull lestar á Akranesi. — Langjökull er á leið til Ventspils. — Vatnajökull er í Rvik. Skipadeild S.Í.S.: — Hvassafell er í Borgarnesi. — Arnarfell er í Sas van Gent. — Jökulfell er á leið til New York. — Dísarfell losar á Norðurlandi. — Litlafell er á leið til Rvíkur. — Helgafell er á leið til Sarpsborg. — Hamrafell er á leið tii Aruba. Skipaútgerð ríkisins: — Hekla fer frá Reykjavik i kvöld austur um land I hringferð. — Herðubreið er á leíð vestur um land í hringferð. — Skjald- breið er í Reykjavík. — Þyriil fór frá Fredrikstad 14. þ.m. áleiðis til Hjalt- eyrar. — Herjólfur fer frá Hornafirði í dag til Vestm.eyja og Rvikur. Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.: — Katla er í Keflavík. — Askja er á leið til Reykjavíkur. Fiugfélag íslands h.f.: — Millilanda- flug: Sólfaxi fer tU Oslóar, Kaupmh. og Hamborgar kl. 08:30 í fyrramálið. — Innanlandsflug: X dag er áætlað að fljúga til Akureyrar, Fagurhólsmýrar, Hornafjarðar, Kirkjubæjarklausturs og Vestmannaeyja. — A morgun er áætlaö að fljúga til Akureyrar, Blönduóss, Egilsstaða, Sauðárkróks og Vestmanna eyja. . Leiðrétting: — I blaðinu í fyrrad. var skipstjórinn á Vísundi nefndur Gisli Magnússon, en á að vera Gísli Marins- son. I>á var prentvilla i frásögninni. Slökkviliðið var fimm stundaríjórð- unga að slökkva eldinn i bátnum, ekki stundarfjórðung. Gott þykir að fægja stál- vaska á sama hátt og kopar eða messinghluti. Rösk stúlka óskast til afgreiðslustarfa. Skóvinnustofa Gísla Ferdinandssonar Lækjargötu 6. Ljósmœður Nokkrar Ijósmæður óskast að Fæðingarheimili Reykjavíkur, Eiríksgötu 37. Umsóknir sendist fyrir 10. apríl n.k. til forstöðukonunnar, frk. Huldu Jens- dóttur, sama stað. Forstöðukonan er til viðtals í síma 22544, daglega kl. 1—2. Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur. Kona sem vön er bakstri getur fengið atvinnu nú þegar. Tilb. sendist afgr. Mbl. fyrir þriðjud. merkt: „Eld hússtörf — 9905“. Húsgagnasmiðir Húsgagnaverzlun óskar eftir að kaupa svefnher- bergissett. Tilboð ásamt verði, viðartegund, stærð og mynd sendist afgr. blaðsins merkt: „Svefnher- bergissett 9358“ fyrir 1. april n.k. Fokhelt raðhús Vel staðsett raðhús (endahús) til sölu við Hvassa- leiti. Nokkurt lán getur fylgt. RANNVEIG ÞORSTEINSDÓTTIR hrl., Laufásveg 2 — Sími 19960. Húseign a Stokkseyri Til sölu er á Stokkseyri húseignin Símonarhús ásamt jarðarhúsum og jarðarafnotum. íbúðarhúsið er 5 her- bergi og eldhús ásamt baði. Jarðarhús: Hlaða og fjáf- i hús. Eignin æst með hagkvæmu verði. Allar nánari upplýsingar gefur JÓN HJALTASON, hdl., Heimagötu 22 — Sími 447, — Vestmannaeyjum. Ríkisskuldabréf að upphæð kr. 130 þúsund til sölu. Hagkvæm kjör. Væntanlegir kaupendur sendi nöfn, heimilisfang eða símanúmer á afgreiðslu Morgunbl. sem allra fyrst merkt: „Bréf — 9899“. Allt á gamla verðinu: Mísiítt Sængurveradamask Einbreitt og tvíbreitt léreft Hvítt og misiit flunel Sirz "l'l-W

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.