Morgunblaðið - 18.03.1960, Blaðsíða 23
Föstudagur 18. marz 1960
MORGTJTSB1. ÁÐIÐ
23
Von á Færeyingum á Hafliðn
sem legið heíur bundinn í mánuð
íslenzk mynd í bókinni
Bók um veiðarfæri
og veiðiaðferðir
SIGLUFIRÐI, 17. marz. — Siglu-
fjörður skrýðist nú fögrum vetr-
arskrúða. Hvítur snjór þekur jörð
frá fjöru til fjallatoppa. Blæja-
logn er og glampandi sólskin.
Hér eru því hin beztu skilyrði til
vetraríþrótta, enda mikill hugur
Söngkemisla
í Dölum
BÚÐARDAL, 16. marz. — Magn-
ús Jónsson frá Kollafjarðarnesi
hefur dvalizt hér um slóðir frá
því um áramót. Einnig um tíma
fyrir jól. Hefur hann kennt söng
í Húsmæðraskólanum að Staðar-
felli, heimavistarbarnaskólanum
að Laugum í Hvammssveit og
barnaskólanum í Búðardal. Einn-
ig hefur hann æft kirkjukóra og
aðra söngflokka og kennt söng
og hljóðfæraleik á einkaheimil-
um. — í janúarmánuði sl. var
haldið þorrablót í Búðardal. Þá
söng „Vorboðinn“ (söngfélag
Laxdælinga) undir stjórn Magn-
úsar. Auk þess tvöfaldur karla-
kvartett og kvennadúett. Enn-
fremur hélt „Vorboðinn" árshá-
tíð nú nýlega. Var þar söngur og
önnur skemmtiatriði. — Magnús
þykir hvarvetna góður gestur.
Hann er nú nýfarinn til Akra-
ness, þar sem hann er búsettur.
Vona Dalamenn, að hann komi
aftur sem fyrst.
í mönnum fyrir væntanlegt lands
mót, sem fyrirhugað er að halda
um páskana.
Bestu skilyrði til skíðaiðkana
Um síðustu helgi hófst hér
skíðamót Siglufjarðar og var
keppt í svigi karla, öllum aldurs-
flokkum. í meistaraflokkí urðu
úrslit þessi: Siglufjarðarmeistari
varð Hjálmar Stefánsson, annar
Sveinn Sveinsson og þriðji Krist-
inn Jón Þorkelsson..
Samgöngur kirkjukórsins
Sl. sunnudag efndi kirkjukór
Siglufjarðar til samsöngs í Siglu-
fjarðarkirkju undir stjórn Páls
Erlendssonar. Fjölmenni var.
Kórinn söng verk eftir innlenda
og erlenda höfunda, aðallega
kirkjuverk, þar á meðal Iög eftir
sr. Bjarna Þorsteinsson, tónskáld,
en kórinn æfir nú lög eftir hann
sérstaklega í tilefni þess að á
næsta ári, 1961, eru 100 ár frá
fæðingu hans. Einsöngvarar með
kórnum voru Kristín Gunnlaugs-
dóttir, Anna Magnúsdóttir og
Guðmundur Bjarnason. í gær-
kvöldi var samsöngurinn endur-
tekinn.
Togarinn Hafliði hefur nú leg-
ið bundinn við bryggju um mán-
aðartíma vegna vöntunar á sjó-
mönnum. Vonir standa til að tak
ist að manna skipið heimamönn-
um og Færeyingum, sem búizt er
við með b/v Norðlendingi frá
Færeyjum. — Stefán.
UM HAUSTID 1957 var haldin í
Hamborg ráðstefna á vegum Mat
vælastofnunnar Sameinuðu þjóð
anna (FAO), sem fjallaði um
veiðarfæri og veiðiaðferðir. Var
það í fyrsta skipti, að slík al-
þjóðaráðstefna var haldin. Allan
veg og vanda að undirbúning að
þessari ráðstefnu hafði Hilmar
Kristjónsson, sem þá var orðin
forstöðumaður þeirrar deildar
FAO, sem fjallar um veiðarfæri
og veiðiaðferðir. Þótti ráðstefnan
hið merkilegasta, enda var þar
samankominn mikill fjöldi sér-
fræðinga í þessari grein allstaðar
að úr heiminum og skýrt var frá
öllum nýjungum, sem fram höíðu
komið seinustu árin.
Nú hefir FAO gefið út bók,
„Modern Fishing Gear of the
World“, þar sem birt er allt það,
sem fram kom á ráðstefnunni.
Hefir Hilmar annazt um útgáfu
bókarinnar. Er í bók þesari að
finna mikinn fróðleik um veiðar
færi og veiðitækni snertandi
allar þær fiskveiðar, sem nú eru
stundaðar í heiminum. Fyrir þá,
sem áhuga hafa á þessum málum
og vilja fylgjast með því, sem er
að gerast, en það ættu að vera
margir hér á landi, er þessi bók
mjög gagnleg og mikill fengur,
að hún skuli nú vera fáanleg hér
á landi.
Bókin fæst í Bókabúð Lárusar
Blöndal.
Pófinn fæi
„kódilják"
VATIKANINU. (Reuter):
Jóhannes páfi hefir eignazt
„lúxusbíl“ svartan Cadillac
af fínustu gerð. „Kádilják-
urinn“ er gjöf frá fyrrver-
andi stúdentum við Notre
Dame-háskólann í Indíana í
Bandaríkjunum.
Páfanum var aflientur
þessi glæsilegi bíll við
Vatikan-höllina á miðviku-
daginn. Þakkaði hann gef-
endum hjartanlega — og
blessaði bæði þá og bílinn.
— mmning
Framh. af bls. 11
eftir að ég fluttist burtu frá
æskustöðvum okkar gætti ég
þess ávallt að heimsækja hana í
Ögri ef leið mín lá vestur að
Djúpi, ef ég fékk því við komið.
Ragnhildur í Ögri var kvenskör-
ungur í sjón og raun. Sá sem
kynntist henni gleymir henni
ekki. Svo er það um mig.
Blessuð sé minning hennar.
Minningarathöfn um Ragnhildi
frá Ögri fer fram í Dqmkirkjunni
í dag. Síðan verður gerð bálför
hennar. Aska hennar verður síð-
an flutt heim í Ögur.
Sigurður Sigurðsson
frá Vigur.
Vinna
Tökum að okkur
HREIN GERNIN G AR
Vanir og vandvirknir menn. —
Sími 22419.
Til leigu
Þriggja herb. risíbúð með hús-
gögnum í Hlíðarhverfi, leig-
ist til næstkomandi hausts. —
úpplýsingar i síma 16473 í
dag kl. 12,30—14,30.
Landsmót U.M.FJ. að
Laugum 7967
LANDSMÓT U. M. F. í. hafa
löngum þótt merkur viðburður í
íþrótta- og félagslífi unga fólks-
ins í landinu. Þau hafa í senn
stuðlað að vaxandi íþróttastarf-
esm, aukið kynningu æskufólks
úr byggðum landsins og verið
ákjósanlegt tækifæri fyrir héraðs
sambönd og einstök ungmenna-
og íþróttafélög til þess að efna
til hópferða til annarra lands-
hluta. Þannig hafa þau aukið
kynningu æskufólksins af landi
Og þjóð.
Ákveðið hefir verið að næsta
landsmót U. M. F. f. fari fram
að Laugum í S-Þingeyjarsýslu
sumarið 1961. Þar er ágætur í-
þróttavöllur og sundlaug og
aðrar aðstæður góðar til þess að
halda stórmót. Héraðssamband
S-Þingeyinga hefir tekið að sér
að sjá um framkvæmd lands-
mótsins, sem er hið 11 í röðinni.
Þátttaka í fyrri landsmótum hef-
ir alltaf verið með ágætum og
farið ört vaxandi og náð hámarki
á afmælismótinu á Þingvöllum
árið 1947, en þá náði keppenda-
tala í íþróttum nokkuð á sjötta
hundrað.
Framkvæmdanefnd hefir verið
kjörin til þess að sjá um undir-
búning og framkvæmd mótsins
og er hún þannig skipuð:
Frá héraðssambandi S-Þing-
eyinga:
Óskar Ágústsson, Þorsteinn
Glúmsson, Friðgeir Björnsson,
Þráinn Þórisson.
Frá sambandsstjórn U. M. F. í.:
Ármann Pétursson.
Síðasta sambandsþing U.M.F í.
samþykkti að Igggja til að keppt
yrði í eftirtöldum íþróttagrein-
um á landsmótinu 1961.
Frjálsar íþróttir — karlar:
100 m hlaup, 400 m hlaup,
1500 m hlaup, 5000 m hlaup, 1000
m boðhl., langstökk, þribtökk,
hástökk, stangarstökk, kúluvarp,
kringlukast, spjótkast.
Frjálsar íþróttir — konur:
100 m hlaup, 4x100 m boð-
hlaup, langstökk hástök, kriglu-
kast, kúluvarp.
Sund — karlar
100 m frj. aðferð, 200 m
bringusud, 1000 m frj. aðferð,
4x50 m boðsund, frj. aðferð, 100
m baksund.
Sund — konur:
50 m frj. aðferð, 100 m bringu-
sund, 500 m frj. aðferð, 4x50 m
boðsund, 50 m baksund.
Einnig glíma, knattspyrna,
handknattleikur kvenna, hóp-
sýningar, sérsýningar, þjóðdans-
ar.
Tillögur til breytinga á íþrótta
greinum þurfa að berast sam-
bandsstjóm fyrir næsta sam-
bandsráðsfund, er haldinn verð-
ur á næsta sumri.
Þá hefir verið ákveðið að
svæðakeppni í knattspyrnu og
handknattleik kvenna fari fram
sumarið 1960 og skal þáttaka til-
kynnast fyrir 1. maí 1960 til hr.
Óskars Ágústssonar, Laugum, S-
Þingeyjarsýslu, eða skrifstofu
U. M. F. f. í Reykjavík.
Svæðakeppninni verður hagað
þannig, að landinu verður skipt
í sex keppnissvæði.
1. svæði: Vestfirðir nema
Strandasýslu og Austur-Barða-
strandasýsla.
2. svæði: Strandasýsla og Húna
vatnssýslur.
3. svæði: Skagafjarðar-, Eyja-
fjarðar- og Þingeyjarsýslur.
4. svæði: Austfirðir og Austur-
Skaftafellssýsla.
5. svæði: Árnes-, Rangár-
vallasýsla, Vestur-Skaftafells-
sýsla, Kjósarsýsla, Kópavogur og
Keflavík.
6. svæði: Borgarfjarðarsýsla,
Mýrasýsla, Snæfells- og Hnappa-
dalssýsla, Dalasýsla og Austur-
Barðastrandasýsla.
Stjómir hérðssambanda hvers
svæðis munu ákveða keppnisstað
og tíma í samráði við Iandsmóts-
nefnd. Keppni þessi verður út-
sláttarkeppni og leiktími í knatt-
spyrnunni 2x30 mín., en í hand-
knattleik kvenna 2x15 mín. Um
tilhögun úrslitakeppninnar verð-
ur tilkynnt siðar.
Þá er gert ráð fyrir að keppt
verði í starfsíþróttum á lands-
mótinu. Verður keppt í þessum
greinum.
Fyrir stúlkur:
Handavinna, línstrok, matar-
gerð og jurtagreining.
Fyrir pilta:
Búfjárdómar, dráttarvélaakst-
ur, jurtagreining og gróðursetn-
ing trjáplantna.
Reglur varðandi starfsíþrótta-
keppnina eru senn væntanlegar.
Tillögur til breytinga á keppn-
isgreinum þessum þurfa að ber-
ast stjórn U. M. F. í. fyrir næsta
sambandsráðsfund.
Að sjálfsögðu verður efnt til
margskonar skemmtana eins og
á fyrri landsmótum. Fer það
nokkuð eftir aðstæðum á móts-
stað og einnig eftir því hvað
héraðssamböndin eða einstök fé-
lög geta lagt til af góðu skemmti-
efni.
Það eru eindregin tilmæli
landsmótsnefndar til héraðssam-
bandanna og ungmennafélaganna
um allt land, að þau hefji nú þeg
ar undirbúning að þátttöku í
landsmótinu, og vandi vel til
hans. Skrifstofa U. M. F. L, og
landsmótsnefndin munu veita all
ar upplýsingar varðandi undir-
búning og framkvæmd mótsins
og aðstoða sambandsaðila við
undirbúningsstarfið svo sem
kostur er á.
Landsmótsnefnd.
D. Ól.
Jarðarför móðursystur okkar
REGlNU JÓNSDÓTTUR
fer fram föstudaginn 18. marz kl. 1,30 frá Fossvogs-
kirkju. Kransar og blóm afbeðin.
Jóna Ólafsdóttir, Helga Ólafsdóttir.
Þökkum auðsýnda vinsemd við andlát og jarðarför
BRYNIIILDAR MAACK PÉTURSDÖTTUR
Vandamenn.
Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu
við andlát og jarðarför
EIRlKS JÓHANNESSONAR
frá Eskifirði.
Börn, tengdabörn og barnaböm.
Okkar innilegasta þakklæti fyrir auðsýnda samúð og
hluttekningu við fráfall og jarðarför mannsins míns og
föður
JÓNS KR. JÓNSSONAR
Guðrún Guðmundsdóttir, Hafsteinn Jónsson.
Hjartans þakkir til allra er sýndu okkur samúð og
vinarhug við andlát og jarðarför litla drengsins okkar
og bróður
GUÐMUNDAR ÁGÚSTS GLIESE
Guð blessi ykkur öll.
Tove og Guðmundur Guðmundsson,
Helen, Jón og Eiríkur.
Innilega þökkum við þeim sem veittu samúð og hlut-
tekningu við jarðarför móður okkar og systur
ÞÓRDÍSAR J. GUÐMUNDSDÓTTUR
Lokastíg 17,
Sömuleiðis fyrir allan vinarhug henni veittan í veik-
indum hennar.
Guðmundur Eiríksson, Hrafnhildur Eiríksdóttir,
Steinunn Guðmundsdóttir, Jón Einis.