Morgunblaðið - 18.03.1960, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 18.03.1960, Blaðsíða 21
Fostudagur 18. marz 1960 MORGVTSBLÁÐiÐ 21 Kristín J. „Ljóshærða meyjan greiðir gang um götu og stræti borgar, steinóðum bylgjum býður fang þá brim við kletta orgar, öxlinni beitir upp í vind, óttast ei fall né skeinu klífur loft sem léttfætt hind lætur ei hug af neinu“. Þannig orti Katrín Einarsdótt- ir (móðir Einars Benediktsson- ar skálds) um Kristínu J. Hag- barð, sem lézt 10. þ. m. og var jarðsungin í gær. Kristín var fædd hér í Reykja- vík 12. apríl 1877 og varð því tæpra 83 ára gömul. Foreldrar hennar voru Jón Oddsson lóðs í Dúkskoti og síðari kona hans, Guðbjörg Jónsdóttir bónda Árna sonar á Víðimýri, orðlögð gæða- kona. Jón Oddsson var hafnsögumað- ur hér í Reykjavík um 30 ára skeið og sábmdur Dannebrogs- orðunni fyrir dugnað sinn og áræði. Hann var þremenningur að frændsemj við börn Þórðar Jónassen háyfirdómara, þau dr. Jónas Jónassen, landlækni, Thec- dór amtmann og Maríu konu Óla P. Finsen póstmeistara. Matti raunar sjá greinilegan ættarsvip með Kristínu og þessu frænd- fólki hannar. Af alsystkinum Kristínar eru enn á lífi þær Sigríður og Guð- laug (giftar og búsettar í Amer- íku) og Ingimundur fyrrv. skip- stjóri hér í Reykjavík. Hálfsyst- kini Kristínar voru Jón stýrim. (faðir Odds hafnarfógeta í Ráða gerði) Pétur, Guðmundur kaup- maður á Fáskrúðsfirði, Ásdís, Helga (móðir Davíðs bakara) og Guðrún, kona Otto Wathne á Seyðisfirði — svo og Ingibjörg fyrrum húsfreyja að Kiðafelli í Kjós (sem var sammæðra Krist- ínu). Eru þau öll látin nema Pétur. Þegar Kristín heitin var að alast upp var lífsbaráttan mun harðari en nú tiðkast. Þurfti Kristín snemma að standa á eigin fótum — og því kom það sér vel að hún var röskleikakona til sál- ar og líkama — og svo stórhuga og bjartsýn, að hugurinn bar hana hálfa leið. Tuttugu ára gömul sigldi hún til útlanda með tvær hendur tómar og aflaði sér reynzlu og þekkingar, sem komu henni að góðu haldi eftir heim- komuna. M. a. stofnsetti hún þá fyrstu straustofu, sem hér hefur verið starfrækt, og var brautryðj andi á fleiri sviðum athafnalífs- ins. 1918 keypti hún stóra fasteign á Laugavegi 26, byggði þar hús og setti á stofn umfangsmikla matvöruverzlun, sem hún rak af miklum dugnaði á þriðjg ára- tug. Náði verzlun þessi brátt miklum vinsældum enda skapaði hin létta lund Kristínar hress- andi andrúmsloft svo öllum leið vel í návist hennar. Munu þeir ótaldir sem nutu greiðvikni henn ar og gestrisni á þeim árum og eiga kærkomnar minningar ' um Hagbarð Laugaveg 26, meðan Kristin réði þar ríkjum. Var það mikil kald- hæðni örlaganna, að þessi dug- mikla kona skyldi í byrjun síð- ari stríðsáranna þurfa að sjá á bak eign sinni og segja skilið við ævistarf sitt. Að sjálfsögðu ollu þessi snöggu umskipti henni sár- um vonbrigðum og komu m. a. i veg fyrir að ævikvöld hennar yrði jafn bjart og hún hefði verð skuldað. Enda þótt Kristín eignaðisí sjálf engin afkvæmi, þá var hún svo barngóð, að öll börn hændust ósjálfrátt að henni. Ásamt ráðs- konu sinni, Ragnheiði Sturlaugs- dóttur, ól hún m. a. upp tvö börn, sem nú eru uppkomin og telja sig standa í eiiífri þakkarskuld við hina látnu öðlingskonu. Með Kristínu J. Hagbarð er horfin af sjónarsviðinu merk kona og mætur borgari þess'a bæjar. Sannur Reykvíkingur í þess orðs beztu merkingu. Blessuð sé minning hennar. Vinur. Einar Egilsson 50 ára í DAG er fimmtugur Einar Egilsson, vérzlunarmaður, Hjarð- arhaga 17, hér í bæ. Einar er fæddur í Hafnarfirði 18. marz 1910, sonur hjónanna Þórunnar Einarsdóttur, Jóhannes sonar Hansen og konu hans Jens- ínu Árnadóttur Matthiesen, og Egils Guðmundssonar, Guömunds sonar frá Hellu, Hafnarfirði og konu hans Sigríðar Helgadóttur frá Ásbúð s. st. Foreldrar Einars eignuðust 4 börn, sem öli eru á lífi nema Sigríður, er andaðist 1948. Að rekja ævisögu Einars að nokkru ráði, er ógjórlegt í stuttri afmælisgrein, því af miklu er að að taka og margt fýsilegt til frásagnar, sem á daga hans hef- ur drifið, en hér skal aðeins stikl- að á stóru úr æviatiiðum hans. Eins og algengt var á uppvaxt- arárum Einars, þar sem barna- fjöldi var mikill og lífsróðurinn þungur, þurfti snemma áð taka hendur úr vösum og leggja fram sinn skerf til lífsbaráttunnar, enda lét Einar ekki sitt eftir liggja í þeim efnum. Byrjaði hann barnungur að aðstoða foreldra sína með því að stunda ýmsa vinnu, sem til féll að sumarlagi milli þess er hann gekk í barna- skóla. Hélt hann þeim hælti öil sín námsár. Þótti hann hvar- vetna liðtækur í betra lagi, hvort sem var til sjós eða lands, var hann hraustmenni hið mesta og hinn gjörvilegasti um líkamlegt atgjörvi eins og hann á ætt til. Aflaði hann sér fljótt vina og kunningja úr hópi samstarfs- manna sinna með Ijúfmannlegri og hispurslaiásri framkomu sinni, enda hið mesta tryggðatröll, hóg- vær og léttur í lund. Spegilmynd hans sálræna lífsviðhorfs spegl- ast í vinfesti og tryggð gagnvart lífsförunautum hans. Einar lauk gagnfræðaprófi frá Flensborg í Hafnarfirði 1927, fór síðan til náms í verzlunarskóla Pittmans í London og lauk bað- an prófi 1931. Eftir það starfaði Einar á skrifstofu Kveldúlfs h.f., en lagði síðan land undir fót og fór til Argentínu, þar sem hann vann við verzlunarstörf um nokkra ára bil. Hefur hann oft verið langdvölum erlendis síðan. Árið 1945 kvæntist Einar eigin- konu sinni, Margréti Thoroddsen, sem hefur reynzt honum hinn traustasti förunautur og staðið við hlið hans í blíðu og striðu, enda stórbrotin og mikilhæf kona. Hafa þau hjón eignazt 4 mannvænleg og elskuleg börn, Maríu, Egil, Þórunni og Sigurð. Einkennist þeirra heimilislíf af rausnarskap við gesti og lífs- gleði, sem er einlæg og hjartan- leg. I kynnum sínum við aðrar þjóð ir og starfi meðal þeirra, hefur Einar eignazt haldgóða og raun- hæfa þekkingu í viðskipta- og verzlunarháttum, sem hefur reynzt honum haldgott veganesti. Á þessum merkisdegi í lífi Ein- ars, vil ég þakka órjúfandi vin- áttu og tryggð, margar eftirminni legar og ánægjulegar samveru- stundir og óska honum og fjöl- skyldu hans alls hins bezta á ó- komnum tímum og veit ég að þar mæli ég fyrir munn fjölda ann- arra vina og kunningja. Lifðu heill! Vinur. Félogslíf Handknattleiksdeild Vals Valsmenn! Það er í kvöld kl. 9,30 sem Vals-stúlkur halda skemmtifund í félagsheimilinu. Bingó, skemmtiatriði. — Mikið fjör. — Vals-stúlkur. Ármenningar og annað skíðafóik Skíðaferð í Jósefsdal um helg- ina. Notið góða veðrið í útiveru, á skemmtilegum stað. Ferðir frá B.S.R. — Stjórnin. S.K.R.R. — Í.R. Svig-Reykjavíkurmótið verður í Hamragili við Kolviðarhól, sunnudaginn 20. marz (A og B flokkur) og hefst kl. 1,30 e.h. — Mótsstjórn. Skíðafólk Farið verður í skálana sem hér segir: — Á Hellisheiði laugard. kl. 2 e.h. og 5,30 e.h. Sunnudag kl. 9,30 f.h. — í Skálafell laugard. kl. 2,15 e.h. og 5,30 e.h. — Ferðir frá B.S.R., við Lækjargötu. Skíðafélögin I Reykjavík. Víðavangshlaup Í.R. 1960 fer fram á sumardaginn fyrsta, 21. apríl n.k. Keppt verður í 3ja og fimm manna sveitum auk verðlauna fyrir 1., 2. og 3. mann. — Þátttökutilkynningar sendist Frjálsíþróttadeild ÍR, c/o Vilhj. Einarsson, pósthólf 13, Reykja- vík, í síðasta lagi 15. apríl n.k. Stjórn Frjálsíþróttad. Í.R. Innanhúss-meistaramót Í.R. í frjálsíþróttum verður háð dagana 26. og 27. marz. Keppt verður í hástökki, langstökki og þrístökki án atrennu, hástökki með atrennu, stangarstökki og kúluvarpi. Einnig verður keppt í kringlukasti og sleggjukasti (úti), ef aðstæður leyfa. Þátttaka tilkynnist til Frjálsíþróttadeildar Í.R., í síðasta lagi 20. marz. — Stjórnin. ALLT A SAMA STAÐ slongur 500x16 525x16 900x20 Egill Vilhjálmsson h.f. Sími 22240. Hjólbarðar og 670x13 750x14 500x15 700x15 SELF POLISHIWG l>ér fáið hinn fullkomna gljáa á gólfin með notkun hins gamla enska sjálfgljáandi DRI-BRITE. Ekkert nudd — engin fyrirhöfn. Svo auðvelt í notkun! tíljái, sem cndist . . . og ekki sér á. Jafnasti fagurgljái, sem hægt er að hugsa sér. —- Reynið sjálf- gljáandi DRI-BRITE fljótandi bón, — þegar í dag. Ullarefni glæsilegt urval. Huiimn Hafnarstræti 11.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.