Morgunblaðið - 18.03.1960, Síða 8
8
MORCUNBLAÐIB
Fostudagur 18. marz 1960
Afnám hafta og forréttinda
jafnrétti / skattheimtu og
útsvörum
Úr jómfrúrœðu Einars Sigurðssonar
Maenús Jochumsson, rorseti relagsins, og m. Brionvai, senai-
herra Frakka í Reykjavík.
Alliance francaise fœr
bœkistöð í skrifstofuhúsi
franska sendiráðsins
SL. laugardag opnaði Frakk-
landsvinafélagið Alliance franca-
ise bækistöð „centre culturel“, í
skrifstofu franska sendiráðsins
að Túngötu 20, að viðstöddum
menntamálaráðherra, Gylfa l>.
Gíslasyni, sendiherra Frakka hér
á landi, M. Jeah Brionval, borg-
arstjóra menntamála, frú Auði
Auðuns, og fleiri gestum.
Lesstofa og bókasafn
Er ætlunin að reka þarna les-
stofu fyrir félagsmenn, sem opin
verði fjórum sinnum í viku, þar
sem þeir hafi aðgang að frönsk-
um blöðum og tímaritum. Er ies-
stofan rúmgóð og hin vistlegasta.
Þar hanga á veggjum eftirprent-
anir af málverkum eftir þekkta
franska málara og fréttamyndir
frá Frakklandi. Auk þess verður
bókasafn félagsins, sem í eru um
2000 bindi, opin til útlána tvisv-
ar í viku. I safni þessu er að
finna allt það bezta sem skrifað
hefur verið á franska tungu allt
fram á síðustu ár.
Gömul menningartengsi
Magnús Jochumsson, formaður
Alliance Francaise, bauð gesti
velkomna á þessum tímamótum
í sögu félagsins og mælti m. a.:
Þessi félagsskapur hefur nú
starfað í nærfelt fimmtíu úr og
það er fyrst nú, að honum hefur
hlotnast fastur samastaður. Fyrir
sérstakan höfðingsskap og sér-
lega vinsemd ambasadors Frakk-
lands', herra Jean Brionval, höf-
lim við nú fengið hér fast hús-
næði, centre culturel, tvö her-
bergi í skrifstofuhúsnæði sendi-
ráðsins og auk þess nokkurt
geymslupláss í kjallara.
Gömul menningartengsl
Menningartengsl Islendinga og
Frakka eru gömul. Þau eru
reyndar knýtt á fyrstu árum
okkar eigin sögu. Sæmundur Sig-
fússon, Jón Ögmundsson og marg
ir fleiri, þó þessa tvo beri hæst,
hafa leitað til fanga í Vallandi
og flutt með sér heim áhrif þeirr-
ar menningar, sem þá bar hæst
í Evrópu. Á myrkustu öldum í
sögu okkar rofnuðu þessi tengsl
ekki heldur. Trúbardúrsöngvartr-
ir frönsku, riddaraljóð og sögur
bárust um alla álfuna og einnig
hingað út í fásinnið og eru hér
þýddar og umskapaðar í ljóð og
rímur. Og nú á allra seinustu ár-
um hafa þessi gömlu tengsl auk-
izt og eflzt að mt«. þ«r sem álit-
legur hópur ungra Islendinga
hefur sótt Frakkland heím til
framhaldsnáms á mör svið
um.
Að lokum þakkaði :»rmaður
sendiherra t fynr vin-
semd og áhuga, sem hann hefði
sýnt félaginu, frá komu sinni
hingað, ekki hvað sízt með því
nú að gera félaginu fært að setja
upp bækistöð í skrifstofum sendi-
ráðsins. Einnig þakkaði hann
sendikennara Frakka við Há-
skólann, Mademoiselle Gagnaire,
fyrir hversu óþreytandi og fús
hún hefur ætíð verið til að
leggja félaginu lið, ekki sízt við
að koma bókasafninu fyrir. ,
EINS og skýrt hefur verið frá
hér í blaðinu, flutti Einar
Sigurðsson, 3. þingmaður
Austurlands, jómfrúræðu
sína á öðrum degi þingsetu
sinnar. Var söluskatturinn til
1. umræðu í neðri deild og
höfðu talað auk fjármálaráð-
herra, Eysteinn Jónsson og
Einar Olgeirsson. Hafði Ey-
steinn deilt hart á söluskatt-
inn og einstaklingsframtakið
í landinu og minntist oft á
Bogesen í því sambandi. Hér
verður drepið á nokkur'
atriði úr jómfrúræðu Einars
Sigurðssonar.
— Ég er nýliði hér og ætlaði
ekki að taka þátt í þessum um-
ræðum, hóf Einar Sigurðsson mál
sitt, en 1. þm. Austurlands gaf
mér tilefni til að standa upp.
Hann var að reikna og nefndi
margar tölur. Ég ætla líka að
reikna, en ég ætla aðeins að nota
eina tölu, töluna 200. Það er við-
urkennt og ekki véfengt, að við
höfum á undanförnum árum tek-
Hin nýja lesstofa Alliance francaise er vistleg og rúmgóð.
Sœluvika Skagfirðinga
verður óvenju fjölbreytt
SAUÐÁRKRÓKI, 14. marz: —
Sæluvika Skagfirðinga hefst að
þessu sinni 20. þ. m. Skemmti-
atriði vikúnnar verða fleiri og
fjölbreyttari nú en venjulega
áður, en þau verða, sem hér
segir:
Leikrit.
Leikfélag Sauðárkróks frum-
synir á sunnudaginn hinn vin-
sæla sjónleik Músagildran eftir
Agötu Christie. Leikstjóri verður
Eyþór Stefánsson. Verður leik-
urinn sýndur öll kvöld vikunnar,
nema á mánudagskvöldið.
Kabarett
Ungmennafélagið
Tindastóll
Sæmílegt vega-
samband við
Eyjafjörð
AKUREYRI, 16. marz: — Vega-
samband við Eyjafjörð er sæmi-
legt eins og stendur. Eyjafjarð-
arvegur er ágætlega bílfær og
búið er að ýta Öxnadal og Oxna-
dalsheiði og er suðurleiðin þar
með opin. Verið er að ýta Dals-
mynni, en þegar því er lokið,
verður bílfært til Húsavíkur.
— Mag.
sýnir revíukabarettinn. Verða
þar teknir til meðferðar ýmsir
þættir úr bæjarlífinu svo og
gamlar og sígildar persónur úr
leiklistarsögu þjóðarinnar, svo
sem Jón Hreggviðsson, Skugga-
sveinn, Ketill o. fl.
Söngur og dans
Þá verður einsöngur, listdans,
kvintettsöngur og sýning, sem
heitir, Nótt í Moskvu. Um 30
manns koma fram á sviðið í þess-
um skemmtunum auk HG-
kvartettsins.
Kór og lúðrasveit
Karlakórinn Heimir syngur á
fimmtudag og föstudag, en kór-
inn mun einnig vera með
skemmtiskrá af öðru tagi. Komið
hefur til mála, að Lúðrasveit
Siglufjarðar komi og haldi hljóm
leika sunnudaginn 27. þ. m. kl. 16.
Kvikmyndir
Sauðárkróksbíó sýnir kvik-
myndir alla daga vikunnar, og
dansleikir verða í Bifröst á mið-
vikudagskvöldi og hverju kvöldi
úr því. Leikur HG-kvartettinn
fyrir dansi.
Félagsvist
í Templó verður félagsvist og
dans a mxðvikudagskvöld.
— Jón.
ið lán erlendis, sem nemur 200
millj. árlega. Nú er komið að
skuldadögunum, og það er ekki
nein smáræðis skuld, sem þarf
að greiða.
Fordæmdi skatta.
Það fannst mér einna bros-
legast hjá 1. þm. Austurlands,
er hann var að fordæma skatt-
ana. Hann, sem hefur aldrei séð
aðra björg en skatta og á vafa-
laust metið í skattaálagningu. Er
Framsókn komst fyrst til áhrifa á
4. tug aldarinnar, ofsótti hún
einkareksturinn leynt og ljóst.
Varð henni mikið ágengt og
tókst þegar í byrjun valdaferils
síns að leggja í rúst myndarlegan
atvinnurekstur í mörgum byggð-
arlögum.
Samvinnufélögin arftaki sel-
stöðukaiupmannanna
1. þm. Austurlands minntist
hér á eina af sögupersónum Lax-
ness, Bogesen. Bogesen var at-
vinnurekandi og kaupmaður um
1920 og lifði þá breytingu, er
varð, er verkalýðsfélögin fóru að
láta að sér kveða og beið á vissan
hátt sinn ósigur. En fslendingar
höfðu annan yfirdrottnara yfir
atvinnu sinni og daglegu lífi en
Bogesen og alla Bogesenana. —
Fram um og fram yfir alda-
mót voru selstöðukaupmenn-
irnir alls ráðandi í lífi þjóð-
arinnar, sem gátu haft hlutina
eins og þeir vildu. Eru nokkrar
hliðstæður nú við það, sem var
fyrir 60 árum? Jú, það eru hlið-
stæður til og það eru samvinnu-
félögin. Það er leitt að þurfa að
segja það, en samvinnufélögin og
Framsóknarflokkurinn hafa gert
allt sem hægt er til að útiloka
samkeppni og skapa sér sömu að-
stöðu víða um land og einokunar
kaupmennirnir höfðu. Fyrir
þeirra atbeina var sett í lög að
banna t. d. að byggja sláturhús,
þar sem sláturhús var fyrir og
það voru oftast nær kaupfélags-
húsin. Þannig gátu þeir útilok-
að samkeppni um afurðir bænda.
Við, sem unnum frjálsu fram-
taki, viljum hins vegar fyrst og
fremst samkeppni og teljum hana
beztu leiðina til að skapa lágt
vöruverð, góða lífsafkomu og fjöl
breytni 1 framleiðsluháttum.'
Viljum ekki, að lifið sé murkað
úr okkur.
í sambandi við efnahagsráð-
Flokksmaður
Adenauers
saksóttur
Munchen, V-Þýzkalandi,
16. marz. (Reuter)
FREIDRICH Zimmermann,
framkvæmdastjóra flokks-
deildar Kristilega demó-
krataflokksins (flokks Ad-
enauers kanzlara) í Bayern,
hefur verið stefnt fyrir rétt,
og er hann sakaður um að
hafa svarið rangan eið í
máli nokkru varðandi spila-
víti, sem rekið var á sl.
sumri.
I sambandi við mál þetta
hafa yfirvöldin í Bayern
ákveðið að leyfa ekki starf-
semi fleiri spilavíta í land-
inu en nú eru — og endur-
nýja ekki leyfi þeirra, sem
fyrir eru, er þau renna út
árið 1965.
Finar Sigurðsson
stafanirnar vil ég segja það,
að auðvitað eru atvinnurekend-
ur ekki hrifnir af því, að vext-
irnir séu hækkaðir og dregið úr
lánum. Það getur hver sagt sér
sjálfur. En við erum eins og
sjúklingur, sem tekur inn bragð-
vont lyf eða gengur undir skurð-
aðgerð. Við viljum þola bragð-
vont lyf og sársauka í von um að
fá bata, en við viljum ekki, að
lífið sé smá murkað úr okkur.
Misrétti rekstarformanna.
Það er ekki gaman að stunda
atvinnurekstur í þjóðfélagi, þar
sem eitt rekstarformið er ofhlað-
ið sköttum á öllum sviðum, en
annað ekki aðeins skattfrjálst,
heldur spillt á allan hátt eins og
opinberi reksturinn er. Ef sveitar
eða bæjarfélag hefur atvinnu-
rekstur með höndum, greiðir
það ekkert útsvar af honum og
engan skatt, en fær venjulega
styrk af útsvörum borgaranna,
á sama tíma og einkareksturinn
má stynja undir þungum veltu-
útsvörum og sköttum, og margs
konar öðrum gjöldum. Ríkisrekst
urinn er algerlega skattfrjáls, en
greiðir sums staðar lítilsháttar
útsvar. Þó er ekki fullupptalið
misrétti rekstrarformanna, þvi
samvinnufélögin eru einhvers
staðar þarna mitt á milli og þeim
er sannarlega hyglað í þessuta
efnum. Við síðustu útsvarsálaga-
ingu var SÍS útsvarsfrjálst í
Reykjavík, en hefði það verið
einkafyrirtæki hefði það orðið að
borga margar millj., og sama er
að segja um kaupfélögin úti um
land. Og það er ekki aðeins í sam
bandi við skattana, sem þessum
aðilum er mismunað, heldur
einnig í sambandi við innflutn-
inginn.
Bezt fyrir almenning í landinu.
Einar Sigurðsson lauk máli
sínu með þessum orðum:
— Við sem trúum á einka-
framtakið og einkareksturinn,
neitum því að vísu ekki, að opin-
ber rekstur getur verið nauð-
synlegur á vissum sviðum. En ég
fyrir mitt leyti trúi ekki á það,
að atvinnurekistur I venjuleg-
um skilningi geti nokkurs staðar
náð betri árangri heldur, þvert á
móti undir stjórn þess opinbera
heldur en undir stjórn einstakl-
inganna, ef á bað er litið, hvað
bezt er fyrir almenning í landinu
og lífsafkomuna í heild.
Við trúum á það, að samfara
þeim efnahagsráðstöfunum,
sem nú er verið að gera og
sem eru erfiðar fyrst og
fremst vegna synda, sem
drýgðar voru i tíð vinstri
stjórnarinnar, að við fáum
aukið frelsi og kannski full-
komið jafnrétti i atvinnu-
rekstri og verzlun. Við trúum
því, að farsælasta leiðin til
betri lifskjara sé afnám skrif-
finnskunnar, afnám haftanna,
afnám forréttindanna og jafn
rétti atvinnurekstarformanna
í skattheimtu og útsvörum.