Morgunblaðið - 23.04.1960, Qupperneq 5
Laugardagur 23. apríl 1960
MORGUNLLAÐIÐ
5
MENN 06
í= MM£FM=\
Árið 1916, þegar þriðja
orrustan við Ypres í Belg-
íu var háð var Gilford Dud-
ley Seymour 17 ára að aldri
Segist hann sjálfur hafa ver
ið yngstur, hæstur og
hræddastur hermanna í
sinni herdeild.
Eitt sinn var honum falið
að brjótast fram í fremstu
víglínu til þess að koma til
skila rommskammti her-
deiidarinnar. Var rommið á
tveim leirkútum.
Þegar til átti að taka var
liðsforinginn, sem átti að fá
rommið í hendur, látinn, og
tók Seymour því til bragðs
að grafa kútana í jörðu.
Stríðinu lauk og nú er
Seymor timburkaupmaður
í Kanada. En hann hefúr
aldrei getað gleymt kútun-
um. Sl. sumar brá hann sér
til Evrópu og Ieitaði uppi
staðinn, þar sem hann hafði
grafið þá. Bar Ieitin skjótan
árangur og hélt Seymour
glaður og reifur til London.
Leitaði hann þar uppi
nokkra gamla félaga úr
herdeildinni, drakk með
þeim úr öðrum kútnum, en
hinn tók hann með sér til
Kanada.
Ekki gekk þó þrautalaust
að koma kútnum inn í land
ið, því að tollyfirvöldin
mæla svo fyrir að ekki skuli
fiutt þannig inn meira
magn víns en einn líter. —-
Tók Seymour þá til bragðs
að kaupa sér leyfi til að
gerast víninnflytjandi, (gr.,
1100 kr. fyrir leyfið) og
kom þannig víninu heim.
Gætir hann þess vel og ef
hann vill hafa sérlega vel
við einhverja af vinum sín-
um skenkir hann þeim sopa
af þessari dýru veig.
— Ég gæti náð lestinni, sem
fer kl. 6,15, ef þér gefið mér leyfi
til að fara yfir akurinn yðar.
— Já, gjörið svo vel. Og ef þér
mætið nýja tuddanum mínum,
getið þér eflaust náð lestinni sem
íer kl. 5.45.
Carl Gandrup rithöfundur var
mikill matmaður. Eitt sinn sem
oftar var honum boðið til mið-
degisverðar ásamt nokkrum öðr-
um gestum. Honum brá heldur
en ekki í brún er hann sá að ein-
ungis ein önd var á borðinu ætl-
uð öllu fólkinu.
Þegar þjónustustúlkan rétti
Gandrup fatið, lagði hann eyrað
að brún þess. Húsmóðir spurði
undrandi: — Hvað ertu að gera,
Carl?
— Öndin segir eitthvað. —
— Hvað segirðu?
— Jú, vist segir öndin eitthvað.
hélt Gandrup áfram já, nú heyri
ég það greinilega, — hún segir:
— Að þið skulið ekki skammast
ykkar fyrir að vera svona mörg
um eina önd
★
Frægur lögfræðingur og próf.
var eitt sinn að safna föllnum
laufum og sprekum í garðinum
sínum og kveikti í öllu saman,
rétt við húsvegginn. Dóttir hans,
sem var nýbyrjuð að læra lög-
fræði, kom hlaupandi út og kall-
aði:
— Pabbi, veiztu ekki að það
er bannað með lögum að kveikja
eld nær en 100 metra frá næstu
byggingu.
— Veit ég víst, svaraði hann,
en það stendur ekkert um að þeir
100 metrar verði að vera í beinni
línu.
Þau voru að dansa vals, og
hún sagði afsakandi: — Yður
finnst ég sennilega nokkuð þung.
Nei, síður en svo, svaraði dans
herrann, ég er ýmsu vanur, vinn
við að velta öltunnum allan dag-
inn.
Nýlega hala verið gefin saman
í hjónaband af séra Árelíusi Níels
syni ungfrú Svava Ragnarsdóttir
og Jón S Þórisson, klæðskeri.
Heimili þeirra er að Langholts-
vegi 192.
ÞAÐ er ekki lengur óhvikul
skoðun manna í Bandaríkj
unum að heppilegt sé að
hver maður eigi sinn bíl,
að minnsta kosti til að fara
til og frá vinnu.
í mörgum verksmiðjum
eru menn nú komnir á þá
skoðun, að annað hvort
verði að flytja verksmiðju-
byggingarnar nær jám
brautarstöðvum, eða koma
upp sérstökum járnbrautar-
stöðvum í námunda bygg-
inganna. Starfsfólk, sem
kemur í eigin bílum til
vinnu verður fyrir svo mikl
um umferðartruflunum, að
til vandræða horfir.
Myndin hér að ofan sýn-
ir eina gerð járnbrautar-
lesta sem eru ákaflega hrað
skreiðar og flytja fólkið til
og frá vinnustað á margfalt
skcmmri tíma en það tók
að ferðast með eigin bif-
reiðum.
Laugardaginn 23. apríl verða
gefin saman í hjónaband af séra
Þorsteini Björnssyni ungfrú Hjör
dis Sigurðardóttir og Ásgeir Hjör
leifsson, forstjóri. Heimili ungu
hjónanna verður að Þórsgötu 23,
Reykjavík.
Nýlega hafa opinberað trúlof-
un sína ungfrú Sigurrós Sigurð-
ardóttir Hvítadal, Dalasýslu og
Gunnar A. Jónsson, húsasmiður,
Blönduhlíð Dalasýslu.
Flugfélag íslands hf.: Gullfaxi fer
til Oslóar, Khafnar og Hamborgar kl.
10:00 í dag. Væntanlegur aftur til
Rvíkur kl. 16:40 á morgun. Innan-
landsflug í dag: Til Akureyrar Blöndu
óss, Egilsstaða, Isafjarðar, Sauðár-
króks og Vestmannaeyja. A morgun
til Akureyrar og Vestmannaeyja.
Loftleiðir hf.: Edda er væntanleg
kl. 19 frá Hamborg, Khöfn og Gauta-
borg, fer til New York kl. 20:30.
Hafskip hf.: Laxá er á Akranesi.
Hf. Jöklar: — Drangajökull er í
Reykjavík. Langjökull er í Aarhus.
Vatnajökull er á leið til Ventspils.
Skipaútgerð ríkisins: Hekla er á
Austfjörðum á norðurleið. Esja fór í
gær vestur um land í hringferð.
Herðubreið og Skjaldbreið eru 1 Rvík.
Þyrill kemur í dag til Rvíkur. Herjólf-
ur fer frá Vestmannaeyjum kl. 21 1
kvöld til Rvíkur.
Hf. Eimskipafélag íslands: Dettifoss
er í Warnemiinde. Fjallfoss er á leið
til Rvíkur. Goðafoss er í Rvík. Gull-
foss er í Khöfn. Lagarfoss er á leið
til Rvíkur. Reykjafoss er á leið til
Hamborgar. Selfoss fór frá Siglufirði
í gær til Akureyrar, Norðfjarðar, Eski
fjarðar, Fáskrúðsfjarðar. Tröllafoss er
á Akureyri. Tungufoss er á leið til
Sauðárkróks, Húsavíkur, Dalvíkur, Ak
ureyrar og Siglufjarðar.
Skipadeild SÍS: Hvassafell er í Rvík.
Arnarfell er á leið til Rvíkur. Jökul-
fell lestar á Vestfjörðum. Dísarfell fór
í gær frá Akranesi. Litlafell er 1 Faxa-
flóa. Helgafell er í Rotterdam. Hamra-
fell er á leið til Batum.
Eimskipafélag Reykjavíkur hf.: —
Katla f«r í dag til Svíþjóðar og Finn-
lands. Askja er á leið til Keflavíkur.
1 Húsdýraáburður | jafnan til sölu. Einnig í pokum. Sent heim. Fákur símar 33679 og 18978. Barnavagn óskast til kaups. — Upp- lýsingar í síma 34402.
Hafnarfjörður | Stúlka óskar eftir herbergi í Hafnarfirði, helzt sem næst Sólvangi. Upplýsing- ar í síma 14560. Gott píanó til sölu að Snorrabraut 33, 2. hæð, til hægri.
I 5 herb. íbúð til leigu 14. maí. Tilb. með uppl. um stærð, fjölskyldu og at- vinnu, sendist afgr. Mbl., merkt „Laugarás — 3198“. Keflavík Stúlku vantar herb. 1. maí. Uppl. í síma 1870, Kefla- vík. —
] íbúð 2—3 herb. íbúð óskast til leigu strax. Fyrirframgr. ef óskað er. Þrennt í heim- ili. Upþl. í síma 33008. Kona óskast til að taka að sér heim- ili um mánaðatíma. Uppl. í síma 23285.
v íbúð ö 2ja—3ja herb. íbúð óskast Q til leigu. Þrtnnt í heimili. A Uppl. í síma 16569. Óskum eftir 2—3 herb. íbúð. Vinnum úti. Upplýsingar í sima 10574. —
\ Vantar menn A í múrverk á 120 ferm. rbúð \ um mánaðarmótin. Tilboð X sendist Mbl., næstu daga, v merkt: „Góð vinna — ö 3200“. „Hjólbarðaviðgerðin“ Bræðraborgarstíg 21. Sími 13921. Opið öll kvöld og helgar.
V Vélbátur 20—30 lesta Y óskast til leigu, til hand- 0 færaveiða. Tilboð merkt: ö „Véjbátur — 3051“, send- ö ist afgr. blaðsins. Bar Vínskápur, kæliskápur úr maghony, til sölu. Upplýs- ingar í síma 18036.
N.S.V.Í.
N.S.V.Í.
Árshátíð
Nemendasambands Verzlunarskóla Is-
lands verður haldin í Sjálfstæðishús-
inu laugardaginn 30. apríl og hefst
með borðhaldi kl. 7.
Aðgöngumiðar verða afhentir á skrif-
stofu V.R. Vonarstræti 4. laugardag-
inn 23. apríl frá kl. 3 til 6.
Stjómin
FRAMSÓKNARHÚSIÐ
Dansleikur
í kvöld kl. 9.
Hljómsveit Magnúsar Ingimarssonar
Söngkona Sigrún Jónsdóttir.
Ókeypis aðgangur
Framsóknarhúsið
Vetrargarðurinn
.... 'I..I..'. .. .....
i ; \
Dansleikur í kvöld kl. 9
Falcon-kvintettinn
Söngvarar: Berti Möller og Gissur ...