Morgunblaðið - 28.04.1960, Page 16
16
MORCVNBT 4 010
Fimmtudagur 28. apríl 1960
Léttur iðnaður
Reglusaman og ábyggilegan mann (25—35 ára)
vantar nú þegar til starfa við léttan iðnað. Tilboð
er greini fyrri störf sendist afgr. Mbl. fyrir mánu-
dagskvöld 2. maí merkt: „Sjálfstæður — 3219“.
TILKYNIMING
um áburðarafgreiðslu i Gufunesi
Áburður verður afgreiddur, frá og með mánudeg-
inum 2. maí 1960 og þar til öðru vísi verður ákveðið,
eins og hér aegir:
Alla virka daga kl. 7,30 f.h. — 6,30 e.h.
Laugardaga kl. 7,30 f.h. — 3,00 e.h.
Athugið að nú er Kjarni aðeins afgreiddur í Gufunesi.
Gerið svo vel að geyma auglýsinguna.
ÁBURÐARVERKSMIÐJAN H.F.
Skrifstoíusfúlka
vön vélritun og öðrum algengum skrif-
stofustörfum, getur fengið vel launaða at-
vinnu nú þegar hjá einni eldri heildverzl-
unum bæjarins. Enskukunnátta nauðsyn-
leg. Umsóknir ásamt upplýsingum sendist
afgreiðslu blaðsins fyrir n.k. mánudag
2. maí merkt: „Ábyggileg — 4306“.
Úfgerðarmenn
rafvirkjameistarar
Útvegum með stuttum fyrir
vara hina viðurkenndu 32
volta spennustilltu bátaraf
ala frá Norsk Junger A.S.,
sem hafa reynzt afburðavel
í íslenzkum og norskum
fiskiskipum.
Útvegum ennfremur frá Siemens-Schuckertwerke
A.G. rafala fyrir aðrar spennur svo og ýmsan annan
búhað fyrir skip.
Leitið upplýsinga hjá oss um tækni og verð.
SMITH & IMORLAIMD H.F.
Verkfræðingar — Innflyjendur
Pósthólf 519 — símar 11320/21.
Nokkrar stúlkur
geta fengið vinnu strax.
Upplýsingar hjá verkstjóranum.
Belcgjagerðin
Trésmíðavél
sambyggð. Það er 12” afréttari, þykktarhefill og
langhulsubor, er til sölu og sýnis á Súðavog 24.
Sími 32773.
Söngskemmtim
, VALDASTÖÐUM, 24. apríl. —
| Karlakór Kjósverja, efndi til
| söngskemmtunar að Félagsgarði
23. þ.m. Söngstjóri kórsins sem
áður, var Oddur Andrésson að
Neðra-Hálsi. En einsöngvari kórs
ins var Einar Sturluson. Og auk
þess söng hann allmörg einsöngs
; lög. Undirleik annaðist Gunnar
j Sigurgeirsson, með næmleik og
(smekkvísi. Kór og einsöngvara
var ágætlega tekið, og urðu þeir
að syngja aukalög. Tvær ung-
meyjar færðu söngstjóra og ein-
söngvara blómvendi. Að lokum
var stigin dans.
—St. G.
— Utan úr heímí
Framh. af bls. 12.
í fótum og annari hliðinni Hann
getur ekki staðið nema 30 sek-
1 úndur í einu. Hann á mjög erfitt
I með að tala og var kosningaræða
hans telí n á segulband og bandið
síðan klippt og tengt saman, þar
til setningar hans fengu merk-
ir.gu.
★ SEGIR AF SÉR
Andstæðingar Syngmans Rhee
hafa krafizt þess að kosningarn-
ar verði úrskurðaðar ógiidar, og
þessum kröfum hafa fylgt þær
, miklu óspektir, sem lesa hefur
j mátc um í blöðunum daglega und
i anfarið. Náðu þær hárparki sínu
j 20. apríl s.l., þegar um 100 manns
j féllu og yfir 1000 særðust í átök-
' unum í höfuðborginni Seoul.
Síðan hafa ver ð þar áframhald-
andi mótmælagöngur og átök
j íbúanna við herlið og lögreglu.
S.l þriðjudag féllst Rhee loks á
að segja af sér og láta fara fram
nýjar kosningar, og verður það
vonandi til þess að friður kemst
á í landinu.
RAGNAR JÓNSSON
hæstaréttarlögmaður
Vonarstr. 4 VR-húsið Simi 17752
Lógfræðistörf og eignaumsýsla.
Samkðmur
K. F. U. M. — Ad.
j Fundur í kvöld kl. 8,30. Magn-
ús Runólfsson talar. — Allir karl
menn velkomnir.
i K. F. U. K. — Ud.
| Munið síðasta fundinn í kvöld
kl. 8,30. Mætum allar.
j Sveitastjórarnir.
Z I O N — Óðinsgötu 6-A
Almenn samkoma í kvöld kl.
20,30. Allir velkomnir.
Heimatrúboð leikmanna.
Fíladelfía
Almenn samkoma kl. 8,30. All-
i ir velkomnir.
Til siilu og sýnis i dag
Zodiac ’56
j Keyrður aðeins 30 þús. km.
j Opel Caravan 60, ’59, ’58,
I ’55
Opel Capitan ’60, ’59, ’57,
’56, ’55, ’54
Ýmisleg skipti koma til
greina.
Opel Rekord ’56 og ’55
Mjög góðir bílar.
Volkswagen ’60, ’59, ’58,
’57, ’56 ’55
Moskwitch ’59, ’58, ’57, ’55
Rússneskur jeppi ’59
lítið keyrður. Skipti ósk-
ast á 4ra til 5 manna bil.
Úrvalið er hjá okkur. —
Bifreiðasala.
Bergþórugötu 3. — Sími 11025.
— Rektor datt
Frafh. af bls. 8
eru þar aðalskrifstofur skólans
og ýmsar kennslustofur.
Kennarar og nemendur
Eins og áður var minnzt á, voru
nemendur í upphafi aðeins átta,
og þá voru kennarar fjórir. Nú
eru nemendur um 6000, og tala
kennara yfir 300.
Háskólanum er skipt niður í
tíu deildir, og hefur hver deild
sitt eigið hús. Þar fer kennsla
fram, að eins miklu leyti og hægt
er, og sömuleiðis eru þar bóka-
söfn hinna einstöku deilda. Auk
þessara deildarbókaíafna er aðal-
bókasafn skólans ,sem er til húsa*
í sinni eigin byggingu. Bókasafn
þetta telur um 400.000 bækur auk
korta, tímarita, blaða og filmna.
Mjög eru deildarhúsin ólík að út-
liti og ástandi, sem eðlilegt er.
Lagadeild og deild hinna æðri
lista eru báðar til húsa í nýjum
byggingum, og eru þær í alla
staði mjög nýtízkulegar og glæsi-
legar. I byggingu listadeildarinn
ar eru auk kennslustofa, leik-
hús og hljómleikasalur, hvor
tveggja fram úr hófi skemmti-
lega skreytt og búin góðum tækj
um. -
Félagslíf er mikið við skólann,
og áhugi á íþróttum fram úr hófi
mikill. Má í því tilefni minnast á,
að skólinn hefur á að skipa ní-
unda bezta háskólaliði í fótbolta
(football) í Bandaríkjunum.
Hér, sem annars staðar í
Bandaríkjunum, eru kirkjusam-
tök mjög sterk. Hver kirkja hef-
Ur félagsheimili fyrir stúdenta
úr sínum söfnuði, og geta þeir
komið þangað hvenær, sem þeir
vilja. I þessum félagsheimilum
halda þeir skemmtanir, spila,
tefla, eða koma saman með skóla
bækurnar til þess að leysa úr
verkefnum þeim, er kennarar
hafa fengið þeim.
Ólíkt því, sem við eigum að
venjast á íslandi, eru kirkjur hér
fullar af fólki á hverjum sunnu-
dagsmorgni, og eru þar ungir
jafnt sem gamlir. Mörgum þykir
ekki nóg að fara í kirkju á sunnu
dagsmorgnana, en fara einnig til
messu á sunnudagskvöld.
Systra- og bræðrafélögin
Hin svokölluðu systra- og
bræðrafélög setja einnig mikinn
svip á allt skólalíf. Félög þessi
eru nefnd eftir ýmsum stöfum
hins gríska stafrófs og eru mjög
gömul. Fyrsta félag af þessari
tegund, sem stofnað var hér var
Kappa Sigma (1890), og er það
fyrir pilta. Fyrsta systrafélagið
var Chi Omega, og var það stofn-
að 1895. Vilji menn ganga í þessi;
félög, verða þeir að uppfylla ýmis
skilyrði, og verða auk þess að
ganga í gegn um fjögurra mán-
aða reynslutíma. Eftir að þeir
eru orðnir fullgildir félagar, fá
þeir nælur, sem eru með ein-
kennisstöfum félagsins, gefi pilt-
ur stúlku þessa félagsnælu, þýðir
það, að þau séu trúlofuð, og þyk-
ir þetta mjög hátíðlegt. Systra-
og bræðrafélögin búa hvert í sínu
húsi og eru þau mjög glæsileg,
enda kostar það skildinginn sinn
að vera meðlimur í þeim.
Erlendir stúdentar
Mikill fjöldi erlendra stúdenta
stundar nám við Háskólann í
Arkansas, og eru þar stúdentar
frá Suður-Ameríku í miklum
meirihiuta.
Erlendu stúdentarnir hafa með
sér félagsskap og eru mjög á-
SIGURGEIR SIGURJÓNSSON
hæstaréttarlögmaður.
Málflutningsskrifstofa.
Aðalstræti 8. — Sími 11043.
Gís/i Einarsson
heraðsdomsiögmaður.
Malf/utmngsstofa.
Laugavegi 20B. — Simi 19631.
hugasamir um að kynna lönd sín
og þjóðir, enda veitir stundum
ekki af. A hverju vori er haidin
alþjóðleg vika, og er þá meðal
annars höfð máltíð þar, sem hin-
ar ýmsu þjóðir kynr.a helztu þjóð
arrétti sína, og menn koma fram
í þjóðbúningum. Einnig er svo
farið í ferðalög og haldnir dans-
leikir. Hinir erlendu stúdentar
hafa einnig stofnað með sér fót-
boltalið, og er þar átt við fót-
bolta, eins og menn þekkja hann
á íslndi.
Sambúð hinna hvítu og svörtu
Arkansas er þekkt um allan
heim sökum kynþáttaæsinga
þeirra, sem átt hafa sér stað þar
á undanförnum árum. í Fayette-
ville eru mjög fáir svertingjar,
og menn verða lítið varir við
hatur í þeirra garð. Við sjálfan
háskólann stunda nokkrir svert-
ingjar nám. Þeir búa í sérstökum
húsum og blanda sér lítið við
aðra stúdenta. Kennarar og flest-
ir hinna hvítu stúdenta virðast
ekkert hafa á móti svertingjun-
um, en framkoma þeirra öll virð-
ist byggð á varkárni. Þeir vilja
ekki verða til þess að koma af
stað meiri æsingum en orðið er.
Þeir telja, að með tímanum muni
verða komið á algjöru jafnrétti,
en telja ekki rétt að fara of hratt
af stað. Til gamans má nefna það,
að þsgar fyrsti negrinn hóf nám
við skólann fyrir um tólf árum,
var hann látinn sitja öðru meg-
inn í kennslustofunni, en hinir
hvítu hinum meginn. Þessu var
þó fljótlega breytt, og svo var
komið áður en æsingarnar hóf-
ust í Little Rock, að svertingjar
bjuggu í sömu heimavistum, sem
hinir hvítu og höfðu með hönd-
um ýmsar staður í félagslífi skól-
ans. Því miður var þessu öllu
breytt, og óvíst er hvcnær það
kemst í samt lag aftur.
Strangar reglur
f flestum skólum Bandaríkj-
anna verða nemendur að hlýða
ströngum reglum, svo er einnig
við Ríkisháskólann í Arkansas.
Sem dæmi má nefna, að kvenn-
stúdentar verða að vera komnir
inn fyrir kl. 10.30 að kvöldi fjóra
daga vikunnar. Aðra daga mega
þeir vera úti nokkru lengur. Ekki
þurfa piltar að fara eftir nein-
um regium, hvað útiveru snertir.
í upphafi voru reglurnar þó enn
harðari, þá urðu allir að vera
komnir inn kl. 7 að kvöldi. Frá
þeim tímum er sögð sú saga, að
einn af fyrstu rektorum skólans
tók mjög hart á öllum slíkum
brotum, og varð þvi nemendum
uppsigað við hann, eins og oft
vill verða. Kvöld eitt eftir kl. 7
laumuðust nokkrir piltana út og
niður að læk eihum, sem rann
þar skammt frá. Yfir þennan læk
lá plankabrú, og tóku þeir
nokkra planka úr miðri brúnni
og komu því svo þannig fyrir,
að rektor frétti, að einhverjir
hefðu laumazt út. Kom hann nú
hlaupandi og tóku þá allir til fót-
anna og stukku yfir opið í brúnhi,
en rektor, sem átti sér einskis
ills von, lenti niður ó milli plank
anna og niður í lækinn.
Kandídatastígarnir
Ótölulegur fjöldi gangstiga
hlykkjast fram og aftur umhverf
is skólabyggingarnar. Flestir
þessara stiga eru lagðir stein-
hellum, og á þær eru letrað nöfn
allra þeirra, sem útskrifazt hafa
frá háskólanum með kandítats-
prófi (bachelor). Það voru kandi
datar útskrifaðir árið 1905, sem
hófu þennan sið, en seinna var
bætt við nöfnum þeirra, sem út-
skrifazt höfðu áður. Talið er, að
þessir kanditatastigar, eða Senior
Walks, séu þeir einu í Bandaríkj-
unum, sem hafa nöfn hvers ein-
asta nemanda, sem útskrifazt
hefur frá skólanum. Nú er svo
komið, að stígarnir eru á þrot-
um, en enginn vill verða af því
að fá nafn sitt ritað á þá. Fram-
tiðin ein mun skera úr því, hvað
verður gert þeim til sárabóta,
sem ekki fá nöfn sín rituð á
stéttarnar.