Morgunblaðið - 28.04.1960, Side 23
Tónleikar Poly- j
íónkórsins í gær
PÓLÝFÓNKÓRINN, sem starf-
að hefur undanfarið hálft þr'iðja
ár undir ötulli forystu Ingólfs
Guðbrandssonar söngnámsstjóra,
hélt tónleika í Kristkirkju í
Landakoti í gærkvöldi, en fleiri
verða haldnir næstu kvöld fyrir
styrktarfélaga kórsins og aðra
velunnara og áhugamenn.
Markmið kórsins, samkvæmt
því, er segir í efnisskránni, er að
iðka og kynna fagra kórtónlist,
kirkjulega og veraldlega, gömul
verk og ný. Að þessu sinni var
eingöngu kirkjutónlist á efnis-
skránni, og öll viðfangsefnin er-
lend. Tvö verk voru þar eftir
samtímatónskáld: Mótetta um
„Lofið vorn Drottin" eftir Hugo
Distler (1908—42) og Þýzk
messa eftir Joh. Nepomuk David
(f. 1895). Bæði þesi verk eru
mjög athyglisverð, einkum þó
messan, sem er tilþrifamikil á
köflum. Önnur viðfangsefni
voru eldri, nokkur eftir þýzk og
ítölsk tónskáld frá 16. og 17. öld,
og loks þrír kórar úr kirkjuverk-
Aðalfundur Kaupm.
fél. Hafnarfjarðar
HAFNARFIRÐI — Kaupmanna-
félag Hafnarfjarðar hélt aðal-
fund sínn 26. þ. m. — 1 upphafi
fundarins minntist formaður,
Jón Mathiesen, látins félaga,
Bergþóru Nýþorg kaupkonu,
sem um 30 ára skeið starfaði hér
í Firðinum. Vottuðu fundarmenn
henni virðingu sína.
Þá flutti formaðurinn skýrslu
félagsins. — Gjaldkeri las upp
reikninga félagsins og voru þeir
samþykktir. Síðan voru frjálsar
umræður og tóku margir til
máls.
Jón Mathiesen baðst undan
endurkosningu og var Stefán
Sigurðsson kosinn formaður í
hans stað, Guðlaugur Þórðarson
ritari og Haraldur Sigurjónsson
gjaldkeri. Fráfarandi formaður
var kosinn fulltrúi kaupmanna-
samtakanna. — G. E.
Þýzkaland vann
Portú^al 2:1
Ludwigshaven, Þýzkal.
27. apríl (Reuter). —
í LANDSLEIK, sem háður var
hér í dag sigraði Þýzkaland
Portúgal 2:1. Við leikhlé stóð
leikurinn 1:0 fyrir Þýzkaland.
Vormót ÍR
VORMÓT ÍR fer fram á íþrótta-
vellinum á Melunum sunnudag-
inn 15. maí n.k. og hefst kl. 14,30.
Keppt verður í eftirtöldum grein
um: 100, 400, 3000 og llOm grinda
hlaup, 4x100 m boðhlaup, 100 m
drengir (f. 1942 og síðar), 800 m
hlaup unglingar (f. 1940 og síð-
ar), 100 m kvenna, spjótkast,
kringlukast, stangarstökk, há-
stökk og langstökk. Undankeppni
fer fram í stangarstökki föstudag
inn 13. maí kl. 18 og aðeins þeir
sem þá stökkva 3.60 m. eða hærra
komast í aðalkeppnina. — Þátt-
tökutilkynningar sendist Guð-
mundi Þórarinssyni, Bergstaða-
stræti 50b (sími 17458) í síðasta
lagi 10. maí. (Frá stjórn frjáls-
íþróttadeildar ÍR).
ÞAU mistök urðu í umbroti
íþróttasíðunnar í gær að Bjarni
Albertsson var sagður formaður
Knattspyrnufélags Keflavíkur,
en hann er formaður Knatt-
spyrnuráðs Keflavíkur.
Afmæli
BJARNI Hákonarson, Efstasundi
74, er sjötugur í dag.
um Bachs og tveir úr „Messíasi"
eftir Hándel. Efnisskráin var
óvenjuleg að gerð, eftir því sem
hér gerist, og að mörgu leyti
erfið í söng og vandasöm fyrir
stjórnanda og kór.
Söngstjórinn hefur unnið
mjög þarft og merkilegt starf
með stofnun og þjálfun þessa
kórs, og hefur tekizt forkunnar-
vel. Kom það þegar í Ijós á tón-
leikum, sem kórinn hélt í Gamla
bíói á sl. ári, að þar var á ferð-
inni óvenjufagur og fágaður
söngur, verkefni valin mjög með
öðrum hætti en hér hefur verið
tíðast og þeirra einkum leitað til
höfuðskálda kórbókmenntanna á
16. og 17. öld. Þessir tónleikar
bera því vitni, að haldið er áfram
á sömu braut, og er það vel farið.
Hin gamla kórtónlist er að mestu
óþekkt hérlendis, en hún býr
yfir miklum töfrum og óvenju-
legri fegurð, ef vel er hlustað.
Einar Sturluson tenórsöngvari
söng á milli atriða á efnisskránni
tvö lög eftir Bach og tókst vel.
Árni Arinbjarnarson annaðist
undirleik með einsöngvara og
kór á orgel kirkjunnar og lék
auk þess Prelúdíu og fúgu eftir
Buxtehude og fór hvorttveggja
fagurlega úr hendi.
J. I*.
— S.-Kórea
Frh. af bls. 1.
unum í gærkvöldi voru 24 drepn-
ir og 134 særðir.
Vegna hernaðarástands í land-
inu, hefur ríkt þar útgöngubann
10 tíma næturinnar, og var þetta
bann í dag stytt í 8 stundir.
Háskólarnir munu taka aftur til
starfa á föstudag og mennta-
skólarnir á mánudag.
Forsíðumyndin
Annað stærsta dagblað Kóreu,
„Kyunghyang Shinmoon“, sem
var í andstöðu við Syngman
Rhee og var bannað fyrir ári,
hóf í dag aftur göngu sína. Á
forsíðu birti það mynd af því
þegar mykjuvagn dró styttu af
Rhee eftir götum borgarinnar, en
íbúamir spýttu á styttuna eða
grýttu hana.
Frjálslyndi flokkurinn, flokk-
ur Rhees, hefur nú ákveðið að
skipta um nafn og heitir í fram-
tíðinni demókratíski sósíalista-
flokkurinn. Hann mun þó halda
áfram íhaldsstefnu sinni.
Það hefur vakið mikinn fögn-
uð í Seoul að tilkynnt hefur ver-
ið í Washington að Eisenhower
muni halda áætlun sína um að
heimsækja Suður-Kóreu 22. júní
nk., en vegna ástandsins var í
ráði að hann hætti við förina.
— S.-Afrika
Framh. af bls. 1
teknir voru eru margir ásakaðir
íyrir brot á vegabréfalögunum
Þetta er fjórða árás lögreglunnar
á East London síðastliðinn hálfan
mánuð og hafa 1183 verið hand-
teknir þar. Yfirmaður lögreglu-
sveitarinnar skýrði frá því að
ekki hafi fundizt vopn hjá biökku
mönnunum, og að handtökurnar
hafi farið friðsamlega fram og án
árekstra. Samskonar árás var
gerð á borgina Nyanga, nálægt
Höfðaborg, þar sem 141 var hand
tekinn.
Ritskoðun
Frá Höfðaborg berast þær frétt
ir að fjöldi fréttaritara og blaða
manna hafi fengið fyrirskipanir
um að breyta fréttaskeytum sín-
um, annars fengjust þau ekki
send. Breytingarnar voru aðal-
lega í því fólgnar að ekki mátti
iáta uppi nöfn þeirra sem fang-
elsaðir höfðu verið, né lýsingar
á handtökunum.
MORGUNBL AÐIÐ
23
ÞESSI mynd var tekin í
DC-3 flugvél frá varnar-
liðinu, er utanríkisráð-
herra, Emil Jónssyni, og
sendiherrum fimm NATO-
ríkja í Reykjavík var boð-
ið í kynnisför suður á
Keflavíkurflugvöll. — Voru
það sendiherrar Banda-
rikjanna, Bretiands, Vest-
ur-Þýzkalands, Danmerk-
ur og Frakklands. Var gest
unum ekið í bílum um
flugvöllinn, en síðan flogið
með þá um nágrennið i
boði Willis, yfirmanns
varnarliðsins. — Lengst til
vinstri á þessari mynd er
M. J. Brionval, sendiherra
Frakka. Næstur honum
Hans R. Hirschfeld, sendi-
herra V-Þýzkalands. Annar
í röðinni frá hægri er Emil
Jónsson og næstur (fjær
honum), er Tyler Thomp-
son, sendiherra Bandaríkj-
anna.
— Íþf'óttir
Framh. af bls. 22.
verður gert ef sigurvegari í úr-
tökumótinu hefir ekki náð lág-
markskröfunni?“ — Verður
venjan þá höfð að engu og hann
skilinn eftir heima? Eða mun
venjan verða haldinn, með að
senda hann til Rómar, og þannig
að ýta mönnum til hliðar, sem
náð hafa lágmarkinu, þótt þeir
hafi tapað fyrir honum á úrtöku-
mótinu.
s
Þetta er spurningin sem menn
velta mjÖg fyrir sér í Banda-
ríkjunum í dag.
Forustumenn frjálsíþrótta-
manna eru hvergi hræddir og
láta þá skoðun í Ijósi að allt
ráðist vel á endanum. Þeir telja
fullvíst að Bandaríkjamenn geti
sent þrjá menn í hverja grein
að undanteknu, ef til vill
10.000 metra hlaupinu. Forust-
an telur að ef frjálsíþróttamenn-
irnir ná sínu bezta í úrtöku-
keppninni muni engin vandræði
skapast. Og ef maður sem ekki
hefir náð tilsettum árangri til
Olympíuferðar sigrar í úrtöku-
keppninni, eða verður á undan
manni sem hefir náð lágmarks-
kröfunni, þá vona þeir að þeim
takist að hafa svar við því vanda
máli.
Úrtökukeppninni til æfinga
fyrir Olympíuliðið verður háð
i Stanford í Kaliforníu 1.—2.
júlí nk. og ef menn ná til
teknum árangri eftir þann
tíma verður þeim gefinn kost-
ur á að æfa með Ölympiulið-
inu, sem verður kallað saman
til æfinga góðum tíma fyrir
brottför til leikjanna. Keppn-
um verður komið þannig fyr-
ir að hverjum einum verður
gefinn kostur á að ná tilskild-
um árangri. Og árangur sem
unninn er tveimur vikum fyr-
ir 31. ág. er aðalkeppni Olym-
píuleikjanna hefst verður tek
inn til greina.
Ráðskona
óskast í veiðihús í Borgarfirði í sumar, frá 10. júní
til 11. september. I húsinu er rafmagn og öll þægindi,
og þar dveljast að' jafnaði ekki fleiri en 4 í einu.
Umsóknir ásamt upplýsingum sendist blaðinu fyrir
5. maí n.k. ,merkt: „Ráðskona — 4304“.
Eiginkona mín
ÖLAFlA ÓLAFSDÓTTIR
lézt í sjúkrahúsi Hvítabandsins 27. þessa mánaðar.
Pétur Jóhannesson.
Móðir mín og systir
GlSLlNA SIGRlÐUR ÞÓRÐARDÓTTIR
andaðist að morgni miðvikudagsins 27. apríl.
Jón Bjömsson, Þórný Þórðardóttir.
Maðurinn minn
SKÚLI ÁGÚSTSON
frá Birtingaholti,
andaðist í Landsspítalanum miðvikudaginn 27. þ. m.
Elín Kjartansdóttir.
Útför móður minnr
ÞORGERÐAR HALLDÓRSDÓTTUR
er andaðist 19. þ. m., fer fram frá Eyrarbakkakirkju
laugardaginn 30. apríl kl. 2.
Pálína Pálsdóttír.
Jarðarför
SÓLVEIGAR GUNNARSDÓTTUR
fer fram föstudaginn 29. apríl frá Fríkirkjunni kl. 2.
Blóm afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hennar
er bent á Barnaspítalasjóð Hringsins.
Ættingjar.
Móðir okkar, tengdamóðir og amma
KRISTlN BENEDIKTSDÓTTIR
Barmahlíð 53
verður jarðsett frá Fossvogskirkju föstudaginn 29. þ.m.
kl. 13,30. — Athöfninni verður útvarpað.
Börn, tengdabörn, bamabörn
Innilegar þakkir öllum þeim sem vottuðu mér vináttu
og samúð við andlát og jarðarför mannsins míns
PÁLS JAKOBS JÓNSSONAR
Sigríður Á. Björasdóttir.
Alúðar þakkir fyrir auðsýnda samúð við fráfall og
útför sonar míns
GUÐMUNDAR ÞORLEIFSSONAR
frá Breiðholti.
Fyrir mína hönd og vandamanna.
Jóhanna Ólafsdóttir.