Morgunblaðið - 30.04.1960, Síða 24
—..... ' ' " -......1
Iþróttasíðan
er á bls. 22.
97. tbl. — Laugardagur 30. apríl 1960
Stundvísi
Sjá grein á bls. 6.
Hollenzkt skip strand-
ar á Grundarfirði
GRUNDARFIRBI, 29. apríl. —
Um tvöleytið í dag kom hingað
til Grundarf jarðar hollenzka fisk
tökuskipið Lúkas Bols II til þess
að lesta hér saltfisk til Portúgals.
Skipið, sem er milli GOO og 800
Jón ísberg sýslu-
maður Húnvetn-
inga
f GÆR var Jón ísberg skipaður
sýslumaður í Húnavatnssýslu.
Hann hefur starfað sem fulltrúi
sýslumanns á Blönduósi frá ár-
inu 1951, og hafði nokkru áður
unnið á skrifstofu sýslumanns í
fjögur sumur.
Jón er sonur Guðbrands ís-
bergs, sem nú er að láta af störf-
um sem sýslumaður á Blönduósi
eftir 28 ára þjónustu. Hann lauk
stúdentsprófi við Menntaskólann
á Akureyri árið 1946 og lögfræði
prófi við Háskóla íslands árið
1950. Eftir það stundaði hann
framhaldsnám í þjóðarrétti við
Lundúnaháskóla um eins árs
smálestir, var alveg tómt og
skrúfan hátt upp úr sjó. Norðan-
kaldi var á og vegna þess hve
skipið var hátt í sjónum lét það
ekki að stjórn, er það ’kom að
bryggjunni, og hrakti undan
vindinum upp í fjöru
Par var það ósjálfbjarga og gat
sig hvergi hreyft, en í því bar
að vélbátinn Grundfirðing II.,
sem var að koma úr fiskiróðri.
Xók hann dráttartaug úr skip-
inu og dró það á flot. Háfjara var
og ekki rannsakað til fullnustu,
hversu miklar skemmdir hafa
orðið á botni skipsins.
Væntanlegir eru til Grundar-
fjarðar í kvöld sýslumaður Snæ-
fellsness- og Hnappadalssýslu,
svo og dómtúlkur, til þess að
halda sjópróf í málinu.
Emil.
IEngir brezkir
togornr oð |
veiðum |
MBL. hafði í gærkvöldi v
samband við Pétur Sigurðs 0
son, forstjóra Landhelgis- u
gæzlunnar, og spurðist fyr- n
ir um, hvort vart hefði orð- a
ið brezkra togara, eða her- \
skipa á íslandsmiðum. For- (r
stjóri Landhelgisgæzlunnar Q
kvað áhöfn flugvélar Land Q
helgisgæzlunnar, sem var á /)
hnotskógi í gær, hafa A
heyrt til tveggja brezkra \
herskipa, Pallisser og De- Q
light, sem voru eitthvað að Q
kallast á, en ekki var Ijóst Q
hvar þau voru stödd. Þá sá A
áhöfn Ránar brezkan togara X
djúpt suður af Ingólfs- V
höfða, Q
Togari Akurnesinga
flotsettur 5 maí n.k.
SVO sem kunnugt er, eiga Akur-
nesingar einn af hinum þrem
stóru togurum, sem nú eru í bygg
ingu hjá skipasmíðastöðinni See-
beck í Bremerhaven í Vestur-
Þýzkalandi. Það er Síldar- og
fiskimjölsverksmiðja Akraness
hf., sem er eigandi togarans, en
aðalhluthafar félagsins eru fisk-
iðjuverin á Akranesi, Akranes-
bær og fleiri aðilar.
S.F.A. hélt aðalfund sinn sl.
sunnudag, — stjórn félagsins var
öll endurkosin en hana skipa:
Jón Árnason, alþm., Sturlaugur
H. Böðvarsson, framkvstj. og Guð
mundur Sveinbjörnsson, framkv.
stj. Sturlaugur er framkv.stj.
verksmiðjunnar og er hann ný-
farinn ásamt frú sinni til Þýzka-
lands og verða þau viðstödd þeg-
ar togarinn* verður flotsettur. —
Hann er væntanlegur til íslands
um mánaðamótin sept,—okt. n.k.
Skotar kaupa
MORGUNBLAÐIÐ hleraði ný
lega, að Jón Kjartansson, for-
stjóri Áfengisverzlunar ríkis-
ins, hefði á ferðalagi sínu er-
lendis sl. haust, haft samband
við áfengiseinkasölur á Norð-
urlöndum og vínkaupmenn í
Skotlandi í því augnamiði að
kanna möguleika á sölu tg
útflutningi brennivíns frá ís-
landi til þessara landa.
Blaðið hafði samband við
Jón í gær og spnrðist nánar
fyrir um það, hvort samningar
um sölu brennivíns héðan
hefðu náðst við þessa aðila.
Sagði hann, að nú þegar hefði
pöntun á nokkru magni
brennivíns til Skotlands verið
Fyrsti útflutn-
ingur á áfengi
staðfest — og myndi því skip-
að út næstu daga.
100 náttúrufræð-
ingar hingað í sumar
ÚR því hinn almenni ferðamaður
hefur áhuga fyrir að koma og
njóta þeirrar sérstæðu náttúru
sem hér er að finna hvílíkt að-
dráttarafl hlýtur þá ekki ísland
að hafa fyrir náttúrufræðinga.
Því hefur Jóhann Sigurðsson,
forstöðumaður skrifstofu F. í. í
London gengist fyrir þremur hóp
ferðum brezkra náttúrufræðinga
og náttúrufræðikennara frá
London og einni frá París í sum-
ar.
Dveljast ferðamennimir hér í
hálfan mánuð, og ferðast mikið
um, koma m. a. til Þingvalla,
Vestmannaeyja, að Mývatni, í
Krýsuvík, að Hagavatni, og víð-
ar Flogið verður til og frá land-
inu með vélum Flugfélags ís-
lands og taka ferðirnar við hver
af annarri á tímabilinu 18. júní
til 13. ágúst. f hverri ferð verða
25 þátttakendur.
Paradís náttúruunnenda
Ferðir þessar eru mjög vel
undirbúnar. Dr. Finnur Guð-
mundsson hefur samið skrá yfir
um 70 fugla, sem lifa á íslandi
og 30 helztu farfuglanna. Er þar
að finna hin latnesku nöfn fugl-
anna, auk nafna þeirra á ís-
lenzku og ensku. Einnig hefur
dr. Sigurður Þórarinsson skrifað
stutta grein á ensku um landa-
fræði íslands og jurta og dýralíf,
til afnota fyrir ferðamennina.
Flöskur í bókarformi
Er það skozkur whisky-
kaupmaður í Glasgow, Patter-
son að nafni, sem kaupir þetta
magn. Verður brennivínið sett
á flöskur í bókarformi, en héð
an er það flutt út á ámum.
Ef þessi fyrsta tilraun á sölu
áfengis héðan til útlanda
heppnast vel, má gera ráð fyr-
ir áframhaldandi sölu. Einnig
hefur Jón Kjartansson góðar
vonir um að geta selt nokk-
urt magn til Norðuirlandanna
á næstunni.
Nefnist hún Paradís náttúruynn-
enda.
Mikill áhugi virðist fyrir ferð-
um þessum og er nær fullskipað
í þær allar. Ef vel tekst nú,
standa vonir til að hægt verði að
koma á þéttri röð slíkra ferða-
manna, sem láta sig mestu varða
þá fjölbreytni í fuglalífi og lands
lagi, sem hér er að finna, en
setja það ekki fyrir sig þó að-
staða til að taka á móti ferða-
mönnum hér sé ekki eins full-
kominn og víðast annars staðar.
En félög náttúrufræðinga í þess-
um tveimur löndum hafa innan
sinna vébanda þúsundir áhuga-
manna um þessi fræði.
TRILLUBÁTAR fiska litið
enn sem komið er, en trillu-
bátasjómenn vona að afli
fari að glæðast úr þessu og
fiskurinn að ganga inn á
sundin. Þessi kom að landi
um kl. 3 í gær eftir um 10
tíma útivist. Aflinn var 1
tonn af fallegum þorski, en
kg. af honum kostar nú kr.
2,40. Mennirnir voru 4, og
það þykir ekki mikið, sem
hver þeirra fær í hlut. —
Svo getur komið landlega
í fjóra daga.
Cannina Burana
endurtekið
ÁKVEÐIÐ hefur verið að end-
urtaka flutning Carmina Burana
í Þjóðleikhúsinu n.k. þriðjudags-
kvöld kl. 8,30 vegna fjölda áskor-
ana.
Verkið er sem kunnugt er flutt
af söngsveitinni Fílharmonia,
Þjóðleikhúskórnum og Sinfóníu-
hljómsveitinni undir stjórn
Roberts A. Ottóssonar.
Kommúnistar hindra
einingu verkalýðs-
samtakanna 1. maí
UNDANFARNA daga hefur verið unnið að því af hálfu verkalýðs-
samtakanna að undirbúa hátíðahöldin 1. maí. Var meðal annars rætt
um ávarp dagsins, ræðumenn á útifundi og fleira.
1 þeim viðræðum, sem fram fóru um þetta mál, kom fljótt í
ljós, að kommúnistar sýndu engan samkomulagsvilja og lögðu þeg-
ar í stað fram pólitískar kröfur, sem vitað var að lýðræðissinnar
gætu ekki sætt sig við.
Fram voru lagðar tvær tillögur um ávarp dagsins. Annað frá
lýðræðissinnum, em byggt var upp á stéttarlegum grundvelli, og
hitt frá kommúnistum, sem fyrst og fremst var stjórnmálalegs eðlis
og inn í það sett ýmis atriði, sem vitað var að mikill pólitískur
ágreiningur er um.
Jafnframt þessu gerðu kommúnistar mjög óbilgjarnar kröfur
í sambandi við ræðumenn og röðun þeirra og fundarstjóra á úti-
fundinum. Var öll framkoma kommúnista slík, að sýnilegt var, að
þeir ætluðu sér aldrei að eining yrði um 1. maí hátíðahöldin. Settu
þeir sem fyrr flokkshagsmuni ofar stéttasjónarmiðunum og tókst
með meirihluta sínum í 1. maí nefnd að hindra einingu um hátíða-
höld dagsins og munu því flest stærstu launþegasamtök bæjarins
ekki taka þátt í „hátíðahöldunum“ 1. maí.
Kommúnistar hafa því fengið vilja sínum framgengt, að kljúfa
verkalýðshreyfinguna á þessum hátíðisdegi samtakanna, enda
gleðst Þjóðviljinn í gær yfir þeim glæsilega árangri.
Allir verkalýðssinnar munu harma, að svona tókst til og for-
dæma þetta framferði kommúnista, sem sannar enn einu sinni, að
forystumenn þeirra i stéttafélögunum eru aðeins lítilþæg verk-
færi hins alþjóðlega kommúnisma.
Þess skal getið að lýðræðissinnar munu gefa út annað ávarp
í tilefni dagsins.