Morgunblaðið - 19.05.1960, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 19.05.1960, Qupperneq 6
6 MORGUISRLAÐIÐ Fimmtudagur 19. maí 1960 Sjálfvirkt síma- samband f FRÉ'l'TATILKYNNINGU frá póst- og símamálastjórninni er skýrt frá því, að ákveðið hafi verið að stækka mjög hið sjálf- virka simstöðvarkerfi landsins. Einn liðurinn í þeirri áætlun er að komið verði á sjálfvirku síma sambandi við Akureyri eftir 2 3 ár. Um þetta og aðrar áætlanir póst- og símamálastjórnirinnar, segir í fréttatilkynningu: f NÁGRENNI REYKJAVÍKUR Sjálfvirkt símasamband milli Reykjavíkur og Keflavíkur verð ur væntanlega opnað 1. júlí næst komandi. Breytingar á sjálfvirku stöðinni í Reykjavík í sambandi við undirbúning þess hafa vald- ið dálitlum truflunum á síman- um í Reykjavík að undanförnu, en þeim er senn lokið Um svipað leyti verða sjálfvirkar stöðvar teknar í notkun í nágrenni Kefla víkur, svo sem í Gerðum, Grinda vík, Innri-Njarðvík og Sand- gerði. Um næstu mánaðamót verður sjálfvirka stöðin í Reykjavík stækkuð um 2000 númer og meira síðar. Þannig má setja sjálfvirka stöð upp í Kópavogi 1962, en við það losna mörg númer í mið- bæjarstöðinni í Reykjavík. Nú eru nærri 2500 símabeiðnir fyrirliggjandi hér í Reykjavík og þeim fjölgar um allt að 1000 ár- lega. í lok næsta árs verður sett upp 2000 númera stöð í Hafnarfirði. Nýtt póst- og símahús er þar í smíðum og vonir standa til, að unnt verði að flytja afgreiðslu pósts og síma pangað í desember næstkomandi. Vestur. f næsta mánuði verður einni talrás bætt við milli Reykjavíkur mannaeyjum og á Akranesi með sjálfvirkum stöðvum fyrir 1400 númer á hvorum stað, svo og að koma á sjálfvirku símasambandi þaðan við Reykjavík. Þetta getur þó ekki orðlð fyrr en' 1962, vegna langs afhendingarfrests á efninu til þessarar framkvæmdar. Við Akureyri. Ennfremur er í undirbúningi að koma á sjálfvirku símasam- bandi miili notenda í Reykjavík og á Akureyri eftir 2—3 ár. í sambandi við það má geta þess, að landssíminn hefir að undan- fömu gert tilraunir með radíó- samband á úitrastuttbylgjum frá Skálafelli við Esjuna og norður Eyjafjörð með góðum árangri, og er fyrirhugað að nota siíkt milli Reykjavíkur — og Akureyrar og ísafjarðar, en á þeirri leið skortir mjög fleiri símasambönd. Snemma á þessú ári var tek- ín ákvörðun um að endurnýja gömlu símstöðvarnar í Vest- samband með fjölsímakerfi til áðurnefndrar framkvæmdar ásamt þeim iínusamböndum, sem fyrir eru. Árbókin var Síðustu tónleakar S/n- fóníuhljámsveitarinnar í vor — c föstudaginn — Dr. Smetácek stjórnar Björn Ólafsson dre»in ti! baka ÞAÐ gerðist á síðasta landsþingi Slysavarnafélagsins, eftir að lögð var fram Árbók félagsins 1960, þ. e. a. s. skýrsla um starfsárið 1958—1959, að umræður urðu á þinginu um bókina. Var bent á slæmt málfar, rugling á nöfnum við myndir og slæman prófarka- lestur. Varð það úr að þingið samþykkti að upplag Arbókar- innar skyldi dregið til baka af þessum ástæðum, og fleirum, m. a. að þar vantaði skýrslur um sjúkraflugið og fleira. FÖSTUDAGINN 20. þ.m. heldur Sinfóníuhljómsveit íslands sjöttu og síðustu afmælistónleika sína — í tilefni 10 ára afmælis sveit- arinnar á þessu vori-. Tónleikar þessir, sem jafnframt verða hinir síðustu opinberu tónleikar hljóm sveitarinnar í Reykjavík í vor, verða í Þjóðleikhúsinu að vanda og hefjast kl. 8:30 síðd. — Hljóm sveitarstjóri verður dr. Václav Smetácek frá Prag, og eru þetta aðrir tónleikarnir, sem hann stjórnar hér að þessu sinni. Ein- leikari verður Björn Ólafsson fiðluleikari, konsertmeistari hljómsveitarinnar. hovens nýtur að líkindum almenn ari vinsælda og er oftar leikinn en nokkur annar, og hefir Sin- fóníuhljómsveitin flutt hann oft- ar en einu sinni áður — m.a. með einleik Björns Ólafssonar. — Sin fónía Schumanns var valin til flutnings nú í tilefni þess að hinn 8. júní nk. eru liðin 150 ár frá fæðingu tónskáldsins. Þess má geta, að dr. Smetácek mun dveljast hér á landi um nokkurra vikna skeið enn og stjórna Sinfóníuhljómsveitinni í fyrirhuguðum hljómleikaferðum til Akureyrar, Vestmannaeyja og Vestfjarða, sem farnar verða í júní og júlí. Fleefwood sœíist eftir fiski frá íslendingum FISKIKAUPMENN í Fleet- wood á vesturströnd Eng- lands eru nú að rannsaka möguleikana á að stórauka fiskkaup af erlendum fiski- skipum, m. a. frá íslandi. — Brezka fiskveiðitímaritið Fishing News skýrir frá þessu í síðasta hefti. Var fundur haldinn í félagi fiski- kaupmanna. Var mikill hug- ur í mönnum að gera ráð- stafanir til að styrkja fisk- markaðsaðstöðu Fleetwood í samkeppninni við horgirnar Grimsby og Hull á austur- ströndinni. Var samþykkt ályktun til stjórnarinnar um að leita eftir fiskkaupum frá íslandi, Þýzkálandi ogBelgíu. Mr. T. B. Mullender sem kjör- inn var nýr formaður félags fiski kaupmanna upplýsti, að svo virt- ist sem mjög erfitt væri að fá fisk frá íslandi til að sélja í Fleet wood. Leitað hefði verið bréf- lega hófanna hjá íslendingum um fiskkaup en árangurslaust. Fráfarandi formaður Mr. Crewdson * sagði að ástandið í tiskverzluninni hefði verið mjög slæmt, en færi nú aftur batnandi þar sem togararnir væru aftur farnir að veiða við ísland. Hann sagði að íslendingar hefðu unnið * Nógu úr að velja Það væri synd að segja að við hér í Reykjavík hefðum ekki nóg við að vera þessa dagana eða þessar vikurnar mál verkasýningar, hljómleik ar, leiksýningar, úrvai af öllu. Það er reglulega ánægjulegt eftir allt þetta tal um sultaról, að sjá hve lítið fólk þarf að spara. Ég tek það fram að þetta er ekki sagt í neinu háði, heldur fullri einlægni. Fjórar málverkasýningar stóðu yfir í vikulokin. Vel- vakandi skoðaði eina með þáð sem við köllum abstrakt mál- verkum, og aðra líklega helzt surrealistískum. A báðum siðferðilegan sigur í landhelgis- deilunni. Þeir héldu sínum tólf m/ílum — og hefðu aðeins, að því er hann hélt hleypt af einu skoti. héngu spjöld við fjölmargar myndir, sem á stóð „seld“. Hljómleikar hafa undanfar- ið verið títt haldnir, af kór- um, sinfóníuihljómsveit og ein- stökum listamönnum. Það eru yfirleitt hljómleikar alvar- —o— Viðfangsefni Sinfóníuhljóm- sveitarinnar á þessum tónleikum verða: Forleikur áð óperunni Ifí- genía í Aulis eftir Gluck, Fiðlu- konsertinn eftir Beethoven (D- dúr) — einleikari Björn Ólafsson — og loks Sinfónía nr. 4 í d-moll eftir Schumann. Varla þarf að kynna þessi verk fyrir tónleikagestum — þau eru öll vel kunn. Fiðlukonsert Beet- lega hugsandi listamanna, sem vilja bjóða upp á það sem er einhvers virði. Og hver um sig fær áheyrendur og hljóm- grunn hjá þó nokkrum hópi. í Þjóðleikhúsinu er boðið upp á óperur, ballet og leik- sýningar. Það er mikil aðsókn að þessu öllu. Það er ánægju- legt að fólk skuli hafa svo mikinn áhuga fyrir þessum hlutum í landi, þar sem allt slíkt er nýtt af nálinni og eng- inn hefð við það bundin. Og ekki síður að þrátt fyrir allt tal um að herða sutlarólina skuli menn geta veitt sér það. Því þetta er nokkuð sem hlýt- ur að koma á eftir brýnustu lífsnauðsynjum þrátt fyrir allt. FERDIISIAIMD Noregur og Svíþjóð voru meðai þeirra 30 landa, sem áttu fulltrúa á ráðsíefnu Alþjóðahveitiræktar- ráðsins í London í síðasta mán- uði. Það var 29. ráðstefna ráðsins. Á henni komust menn að þeirri niðurstöðu, að hveitiframleiðslan væri mun meiri en eftirspurnin, og umframbirgðir af hveiti færu sívaxandi. 30. þing Hveitiræktar ráðsins hefst í London 28. júní. • Féð er til Við skulum segja hjón, sem vilja heyra í hinum heims- fræga söngvara Nicolaj Gedda í Rigoletto, sjá ballett- inn Fröken Julie og Seldu Brúðina í flutningi Pragóper- unnar (og láir þeim það eng- inn), þau fara með yfir 1000 krónur með því að sitja í næst beztu sætum á Rigolettosýn- ingunni, fá sér beztu sæti á 2. sýningu (ekki frumsýningu) á ballettinn og næstbeztu sæti á 2. sýningu á Seldu brúðinni. Með því að fara á frumsýn- ingar í beztu sæti fara þau með 1250 kr. Ég hygg að þetta sé að vísu ekki talin nein ósköp á mælikvarða nágrannaþjóða okkar, þegar um „galakvöld" og flutning fyrsta flokks lista- manna er að ræða. En maður þarf þó að eiga aurinn, til að geta eytt honum. Og aðsókn- in bendir til að fólk þurfi ekki að horfa svo mjög í aurinn, sem betur fer. • Glerbrot í bera fæturna Velvakanda hefur borizt eftirfarandi bréf: „í góðviðrinu fyrir síðustu helgi, hafði margt fólk leitað suður í Nauthólsvík, eins og vænta mátti. En fjaran þar reyndíst vera hættuleg ber- fættum baðgestum, því nokkr ir hlutu meiðsl við að skera sig á glerbrotum í fjörunni. Vonandi verður fjaran fljót- lega hreinsuð".

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.