Morgunblaðið - 19.05.1960, Blaðsíða 24
Íbróttasíöan
er á bls. 22.
of0mtf!!aMfr
113. tbl. — Fimmtudagur 19. maí 1960
Apotek í tvœr aldir
Sjá bls. 13.
Mikill mannfjöldi fagn-
aði Maí
HAFNARFIRÐI — í fegursta
veðri sigldi hinn glæsilegi
togari Bæjarútgerðar Hafn-
arfjarðar, Maí, hingað inn á
höfnina í gærdag, fánum
skrýddur. Mannfjöldi mikill
var á bryggjunni til að fagna
honum, og við það tækifæri
lék Lúðrasveit Hafnarfjarðar
og Karlakórinn Þrestir söng
Ólafur Thors
nokkur lög. Þegar landfestar
höfðu verið bundnar, tóku til
máls af stjórnpalli Adolf
Björnsson, formaður útgerð-
arráðs og Stefán Gunnlaugs-
son bæjarstjóri, sem buðu
togara og áhöfn velkomin. —
Fer hér á eftir lýsing á tog-
aranum í stórum dráttum:
16,2 mílur í reynsluferð
Maí er 1000 tonn og hinn
stærsti togari, sem Islendingar
hafa eignazt til þessa. Lengd er
210 fet. Breidd 34 fet. Dypt
17 fet.
Allar vélar og hjálparvélar í
skipinu eru MAN-vélar frá
Þýzkalandi.
Aðalaflvél er 2280 hestöfl.
Maí er fyrsti íslenzki togarinn
með fullkomna skiptiskrúfu,
þannig að vélin er alltaf látin
ganga áfram, hvort sem skipið
er keyrt áfram eða afturábak.
Með skurði á skrúfunni má á-
kveða hvort skipið er keyrt á-
fram eða afturábak, og má því
nota hagkvæmasta snúnings-
hraða vélar hverju sinni, og
skiptir það sérstaklega miklu
Forsætisráðherra
ræðir efnahagsmálin
ö fundi Sjálfstæðismanna í Kópavogi í kvöld
SJÁLFSTÆÐISFÉLAG Kópa
vogs heldur fund í Félagsheim
ilinu í Kópavogi í kvöld. Hefst
fundurinn kl. 8,30 síðdegis.
Ólafur Thors, forsætisráð-
rerra, mun á fundinum gera
grein fyrir efnahagsmála-
stefnu ríkisstjómarinnar,
skýra rökin fyrir hinum ein-
stöku þáttum efnahagsaðgerð
anna og ræða horfumar á þró-
un þessara mála á næstunni.
Sjálfstæðismenn og konur
em hvött til þess að mæta á
fundinum.
máli, ef um krítiskan snúnings-
hraða er að ræða.
Fullkomin tæki
Ljósavélar eru þrjár, tvær 135
hestöfl hvor og ein 40 hestöfl,
til notkunar þegar skipið liggur
við landfestar.
MAN-vélar hafa þann kost að
nota má ódýrari olíur en á venju
legar dieselvélar.
Togvindumótor er 227 kw.
í Maí er Sal-log hraðamælir
af nýrri gerð og með tæki er
honum fylgir má kanna fisk-
magn í vörpunni hverju sinni.
Tveir Decca radarar eru í skip-
inu, annar með sendiorku 45 kw.,
en hinn 20 kw., en draga hvor
48 mílur.
Ný gerð er af Sperry-lóran.
1 stað þess að eftir eldri gerð
lóran þurfti margvíslega útreikn-
inga við staðarákvörðun, reikn-
ast staðarákvörðun út sjálf-
krafa eftir hinni nýju gerð.
Loftskeytatæki eru frá Tele-
funken í Þýzkalandi og m. a.
er stuttbylgjustöð, sem gerir
fært að tala megi frá Nýfundna-
landi til Þýzkalands.
Vörn við ísingu
Kallkerfi er komið fyrir í tólf
stöðum í skipinu af svonefndri
Intercon-gerð frá Marconi.
Gíróáttaviti og sjálfstýring er
í 'skipinu.
1 Maí eru tæki til þess að dæla
70—80 gráða heitum sjó frá fjór-
um stöðum í skipinu, ef um ís-
ingu er að ræða. Þá er algjör
nýung, að í framsiglu er komið
fyrir rafmagnshitun, er nota má
ef ísing sezt á siglutréð, og get-
ur hún brætt allan klaka af á
örstuttum tíma.
Fiskleitartæki eru af Kelvin
Hughes gerð.
Perulag er á stefni, sem á að
auka ganghraða og draga úr velt-
ingi miðað við fyrri gerð stefna.
Lestar eru 27 þúsund kúbik-
fet, almuníumklæddar, og eiga
að rúma 500—550 tonn af fiski.
Séfstakur góðfiskklefi er of-
anþilfars, sem rúmar 5—10 tonn.
Landburður í Eyjum?
Vestmannaeyjum í gærkv.
í VESTMANNAEYJUM er ný
vertíð í uppsiglingu og komu
hingað í kvöld tvær flugvél-
ar fullsetnar vertíðarfólki,
sem að þessu sinni kom frá
París og London, og hljómaði
enska og franska í salarkynn-
um HB í kvöld aldrei þessu
vant.
Vestmannaeyingar voru ekki
fulikomlega búnir undir þessa
aukavertið og allmörgum varð
að koma fyrir á heimilum í
bænum því að þótt HB hafi
verið skúrað hátt og lágt í til-
efni stangavéiðimótsins, rúm-
ust þar ekki allir mótsgestir,
sem eru yfir fimmtíu, inn-
lendir og útlendir.
Fransmaður nokkur virðu-
legur og aðsópsmikill kvart-
aði sáran. Fékk hann súðar-
herbergi, þar sem ekki var
hægt að opna glugga. Hann
neitaði að sofna þar nema rúð
an væri tekin úr, svo að þjón-
ustufólkið fór á stúfana. Kom
í ljós að smiðir bæjarins voru
allir í bíó.
Sagðist sá franski neiðast
til að hafa opið út á gang
í nótt, enda þótt það væri ekki
siður í París.
Það var þó ekki langt liðið
ákvöldið þegar franska blóðið
sagði til sín og kýldi herra-
maðurinn rúðuna út. Þóttu
þetta mikil tíðindi í hópi ver-
tíðarmanna og er talið vita á
mikla veiði á morgun, en í
fyrramálið stíga stangaveiði-
menn á skipsfjöl og bíða eyja-
skeggjar þess með eftirvænt
ingu, því að allir búast við
landburði fiskjar.
—H.J.H.
Togarinn „Maí“ leggur fán-
um skrýddur upp að hafnar
garðinum í Hafnarfirði síð-
degis í gær þar sem mikill
mannfjöldi beið skipsins.
— Ljósm. Gunnar Rúnar
L
í
Hvalveiðivertíð
að lief jast
HVALVEIÐIVERTÍÐIN nálgast
nú óðum og bátarnir eru senn
tilbúnir til veiðanna.
Líklegt er að hvalveiðibátarnir
fjórir haldi út næstkomandi
sunnudagskvöld, en þó mun það
ekki endanlega ákveðið.
Skipstjórar verða í sumar þeir
Elí Gíslason, Hval 2, Ingólfur
Þórðarson, Hval 3, Kristján Þor-
láksson, Hval 4 og Jónas Sigurðs-
son Hval 5.
„Loftbrúin"
til Græn-
lands
SÖLFAXI flutti fyrsta járn-
farminn til Grænlands í gær-
kveldi. Var áformað að fara
aðra ferðina klukkan sjö í
morgun og gangi allt að ósk-
um fer Sólfaxi þriðju ferðina
klukkan þrjú í dag.
Áætlað er að fara þrjár ferð-
ir á sólarhring meðan veður
leyfir, en samkvæmt samn-
ingi við Danska heimsskauta-
verktaka mun Flugfélagið flytja
175 lestir úr járni og timbri til
Kulusuk á austurströnd Græn-
lands, en þar eru Bandaríkja-
menn að reisa ratsjárstöð.
Bróðurpartur varningsins kom
með skipi frá Bandaríkjunum í
fyrrakvöld. Voru þetta 114 lest-
ir af steypustyrktarjárni, sem
byrjað var að flytja út á flug-
völl síðari hluta dags í gær. Eru
járnstengurnar 10 m langar.
Taka verður eina í einu og er
því tafsamt að hlaða Sólfaxa.
Mun vélin flytja um sex og
hálft ton í senn og verða ferð-
irnar því hart nær þrjátíu. Flug-
tíminn héðan til Kulusuk er hálf
þriðja klst.
Síðar í mánuðinum kemur
hingað sjóleiðis frá Kaupmanna-
höfn það sem á vantar, en þar
á meðal er timbur, sem notað
verður við byggingafram-
-^kvæmdirnar í Kulusuk.
Sólfaxi hlaðinn steypustyrktarjárnl
Laugarásbíó, fullkomn-
asfa kvikmyndahúsið
HIÐ NÝJA og fullkomna kvik-
myndahús Dvalarheimilis aldr-
aðra sjómanna tók til starfa í
fyrrakvöld. Var þá frumsýnd
kvikmýndin „South Pacific". —
Voru forsetahjónin viðstödd sýn-
inguna svo og fjöldi annarra
gesta.
Henry Hálfdánarson, formaður
Sjómannadagsráðs flutti ávarp á
undan sýningunni og ræddi sögu
hússins. Þar eru hin þægilegustu
sæti fyrir 430 manns. Kostnaður
við kvikmyndahúsið mun nema
allt að 8 milljónum króna, er allt
verður fullgert. Kostnaður við
húsið sjálft verður tæplega 5
millj., tæki og stólar rúmar 2
milljónir, en ein milljón kr. hef-
ur farið í grunninn og lóðina,
sem þó er ekki fullgerð ennþá.
Hefir vinna í henni verið mjög
erfið vegna stórgrýtisurðar og
klappa. Tjáði Henry Halfdánar-
son blaðinu í gær að þar myndu
verða bílastæði fyrir hátt á annað
hundrað bifreiðir. Einnig er ráð-
gert að þar verði benzínstöð og
bifreiðaþjónusta ýmiss konar á
vegum DAS, en Skeljungur h.f.
mun reisa afgreiðsluhúsið.
Fullkomnasta kvikmyndahús
landsins
Kvikmyndahúsið Laugarássbíó
er hið fullkomnasta á landinu.
Sýningartæki eru frá Philips í
Hollandi og gerð til sýningar á
svonefndum Todd-AO myndum,
en einnig er hægt að sýna með
þeim allar gerðir mynda sem nú
eru gerðar, en að því er Henry
tjáði Mbl. munu nú vera notuð
sex kerfi í kvikmyndaframleiðslu
og er hægt að sýna myndir af
öllum þeim gerðum með tækjun-
um.
Einna mesta athygli mun þó
hinn frábæri hljómburður hafa
vakið á frumsýningunni.
Bíóstjóri Laugarássbíós verður
Valdimar Jónsson, sem mun vera
með færustu mönnum hérlendum
í þessari grein.