Morgunblaðið - 21.05.1960, Blaðsíða 1
Þeir splundruðu ,toppfundinum‘
■.
síi»i«iSá
; ■
|i§Hfái
ÍÉflI
■
Eisenhower fagnað mjög
við heimkomuna
Washington, 20. mai. —
EISENHOWER forseta var
forkunnarvel fagnað, þegar
bann kom til Washington í
dag úr Evrópuförinni. Mikill
mannf jöldi tók á móti honum
á flugvellinum og auk eigin-
konu hans voru þar ráðherr-
ar og þingmenn.
Mikill fjöldi fólks hafði einn-
ig safnazt saman meðfram hinni
32 km. löngu leið frá flugvell-
inum til Hvíta hússins. Hafði
skóiabörnum í borginni m. a.
verið gefið frí í síðustu kennslu-
stund og hópuðust þau til þess
að sjá forsetann.
Sagðist Eisenhower hafa að
vonum orðið fyrir miklum
vonbrigðum með hversu fór
með „toppfundinn“. En hins
vegar hefði aðstaða hans ver-
ið mjög sterk, fyrst og fremst
vegna samstöðu Macmillans
og de Gaulle með honum —
og vegna hins óskipta stuðn-
ings, sem hann hefði hlotið i
Bandaríkjunum. Þá sagðist
forsetinn hafa glaðzt mjög
vegna eindæma hlýlegrar við-
töku, sem hann hiaut í Portú-
gal, en þangað hélt hann frá
París.
Eisenhower minntist á banda-
rísku herflugvélina, sem týndist
í dag á leið frá Kaupmannahöfn
Eramh. a bls. 2.
Herter í Kefla-
vík í gærkvöldi
Keflavikurfluqvelli,
20. maí. —
H E R T E R, utanríkisráð-
herra Bandarikjanna, hafði
viðkomu hér í kvöld á
heimleið frá París. Lenti
flugvél hans, Columbine,
Super-Constellation, um kl.
22,30 og stóð við í klukku-
stund. Ráðherrann kom
ekki út úr flugvélinni, sem
hélt áleiðis til Washington
stundarfjórðungi fyrir mið-
nætti. — Var áætlað að vél-
in kæmi við á Nýfundna-
landi. — B. Þ.
Krusjeff for til Parisar til þess
eins að eyðileggja fund leiðtoga
stórveldanna. Hin siðlausa fram-
koma hans er gagnrýnd um víða
veröld.
Malinovsky marskalkur fylgdi
Krúsjeff eins og skuggi í París.
Hann er talinn sérstakur um-
boðsmaður Stalínista, sem Krú-
sjeff hefur nú gengið á vald.
ocj íslenzkir
kommúnistar
vegsama þá
SJALDAN hefur blygðunar-
leysi íslenzkra kommúnista
sannazt eins rækilega og
undanfarna daga, þegar blað
þeirra hefur tekið upp varn-
ir fyrir hið geigvænlega
framferði Krúsjeffs á París-
arfundinum. Þjónkunin við
hið erlenda vald er svo alger,
að Þjóðviljinn segir dáginn
eftir, að Krúsjeff hafði
splundrað fundi leiðtoganna
með hinni ofsafengnu áras:
„Sovétríkin hafa haft for-
ystu fyrir því að reyna að
bæta ástandið í heimsmálun-
um“!
Og þegar Krúsjeff setti Eisen-
hower úrslitakostina alræmdu,
sem fyrirbyggðu allar vonir um,
að Parísarfundurinn gæti haldið
áfram, segir Þjóðviljinn:
„.... auðvaldsríkin þurfa ekki
að ætla sér þá dul, að þau geti
sett Sovétríkjunum og öðrum
sósíalistiskum ríkjum kosti ..
Næst má gera ráð fyrir, að
boðaður verði fundur í „Menn-
ingar- og friðarsamtökum
kvenna" til að hylla „friðarvin-
ina“, sem myndir birtast hér af.
Síðan verður sjálfsagt haldin
„friðarráðstefna" á vegum MIR
(sem þýðir á rússnesku „friður ‘)
og loks mun svo Kína-vináttu-
félagið efna til sigurhátíðar ttt
að gieðjast yfir því, að tímabil
óvissunnar skuli nú hafa runnið
sitt skeið á enda og „friðar-
stefna“ Stalínismans hafa sigrað
á ný. —
Sendiherrann 1
í föruneyti
Krúsjeffs
MORGUNBLAÐIÐ hef-
ur komizt að því, að
sendiherra Sovétríkj-
anna á íslandi, Alexand-
er N. Alexandrov, hafi
verið meðal margra ann-
arra í hinu stóra föru-
neyti Krúsjeffs á París-
arfundinum.
Alexandrov sendiherra
fór héðan af landi brott
seinni hluta aprílmán-
aðar og er ekki kominn
hingað aftur. Ekki er
blaðinu kunnugt um.
hverju starfi hann
gegndi í föruneyti hins
rússneska forsætisráð-
herra. —