Morgunblaðið - 22.05.1960, Qupperneq 2
e
2
MORr.TlNBLHÐIÐ
Sunnudagur 22. maí 1960
sland fái handritin
I TÍMARITINU „Verdens Gang“
birtist fyrir nokkru tillaga, sem
nefnd danskra áhugamanna um
handritamálið hefur gert til ríkis
stjórnar Danmerkur og stjórn-
málaflokkanna þar í landi, en
formaður nefndarinnar er Bent
A. Koch, ritstjóri „Kristeligt
Dagblad“.
Eigi er vitað, hver verður af-
staða danskra stjórnarvalda til
tillögunnar.
Tillagan er þannig í islenzkri
þýðingu:
Vér undirritaðir, sem berum
þá ósk í brjósti að ráða til lykta
deilunni um íslenzku handritin
á þann hátt, að fullnægt verði
réttmætum óskum, bæði Dana og
íslendinga, leyfum oss að leggja
til, að
a. íslenzk handrit í opinberum
dönskum söfnum verði afhent
Islandi að gjöf.
b. Stofnskrá Arnasafns verði
breytt með konungsbréfi í þá
átt, að
1. ísland fái aðaláhrif á stjórn
stofnunarinnar.
2. Stjórninni verði veitt heim-
ild að koma handritunum
fyrir þar, sem hún ætlar, að
ákjósanlegust skilyrði séu
fyrir hendi að fullnægja fyr-
irmælum stofnskrárinnar um
varðveizlu þeirra og nýt-
ingu.
S. Breytingar á stofnskránni
verði framvegis á valdi Al-
Þingis.
4. Öllum, sem réttmætra hags-
muna hafa að gæta, verði
tryggð aðstaða til þess að
bera ágreiningsatriði um
það, hvort gætt sé fyrir-
mæla stofnskrárinnar, undir
dómstólana, og að
5. Úrskurðarvald um það,
hvort gætt sé fyrirmæla
stofnskrárinnar, verði falið
íslenzkum dómstólum.
Jafnframt beinum vér þeim til-
mælum til dönsku rikisstjómar-
innar, að hún leiti samkomulags
við íslenzku ríkisstjórnina um,
að hin síðarnefnda mæli svo fyr-
ir við hina nýju stjórn stofnun-
arinnar, að
1. öll handrit, er rituð séu af Is-
lendingum, fyrir íslendinga og
á íslandi varðandi íslenzkar
bókmenntir skulu flutt til ís-
lands ásamt handritum þeim,
er runnið hafa til safnsins um
íslenzkar bókmenntir og fjalla
um lögfræðileg og sagnfrséði-
leg efni, jarðabækur, skjöl frá
fornum íslenzkum býlum o. s.
frv.
2. Sá hluti Árnasafns, er notaður
verði við samningu hinnar
miklu íslenzk-dönsku orðabók-
ar, skuli verða áfram í Dan-
mörku, þar til verkinu er lok-
ið, þó eigi lengur en 20 ár, og
loks að
S. Þau stjórnarskjöl, sem í safn-
inu eru og snerta ríkjasam-
bandið og framkvæmd þess,
skulu vera áfram í Danmörku.
Tillagan um afhendingu hand-
rita úr dönskum söfnum (skinn-
bækur í konunglega bókasafninu)
er gerð á grundvelli þeirra skoð-
unar, að handrit þessi hafi kom-
izt í eigu Dana á þeim tíma, er
Island var hluti danska ríkisins,
og eðlilegast sé nú eftir sambands
slitin, að þeim sé ætlaður staður
á Islandi.
Til stuðnings tillögunni um
breytingu á stjórnskrá Árnasafns
í þá átt, að fært verði að flytja
handritin til fslands, viljum vér
— auk hins ótvírsðða siðferðilega
réttar, sem virðist vera fyrir
hendi frá okkar sjónarmiði —
benda á eftirfarandi, er prófessor,
dr. jur Alf Ross hefir meðal ann-
arra tekið fram (Ugeskrift for
Restvæsen, 11Z5 1957).
1. Tilgangurinn með því að koma
á fót stofnuninni mun á ann-
ann bóginn hafa verið sá að
varðveita handritin handa
komandi kynslóðum, en á hinn
bóginn að geyma þau við slík
skilyrði, að þau gætu þjónað
vísindarannsóknum og að
smám saman yrði hægt að
koma þeim á prent.
Islendingnum Arna Magnús-
syni var Hafnarháskóli aðeins
eðlilegt gagn til þessa.
2. Hafnarháskóli á engann raun-
verulegan eignarrétt að safn-
inu, heldur aðeins vald til þess
að stjórna því í samræmi við
tilgang stofnunárinnar og stofn
skrárinnar.
Með því, að það er álit okkar,
að rannsókn ritanna og nýting
verði nú bezt framkvæmd á ís-
landi, ekki sízt hinna miklu,
hálfrannsökuðu hluta safnsins,
teljum vér eðlilegt, að stofnuin
sé talin sjálfseignarstofnun og að
opin leið verði að flytja safnið.
Með flutningi ritanna á slíkum
grundvelli yrði lögð áherzla á
það atriði, að hvorugt landanna
er „eigandi" að handritunum,
en á hinn bóginn yrði öllum, er
réttmætra hagsmuna hafa að
gæta í sambandi við þau, tryggð
aðstaða til þess að bera ágrein-
ingsatriði um það, hvort fylgt sé
ákvæðum stofnskrárinnar, undir
dómstólana.
Með því að vér lítum ennfrem-
ur svo á, að jákvæð lausn á hinni
margæru deilu um handritin
myndi vera mikilvæg, ekki ein-
ungis samskiptum Dana og ís-
lendínga heldur einnig norrænni
samvinnu, og að slík lausn gæti
orðið fyrirmynd þess, hvernig
tveim þjóðum getur á grundvelli
gagnkvæms skilnings tekizt að
útkljá mál, sem viðkvæmt er frá
þjóðernislegu sjónarmiði, berum
vér fram þau eindregnu tilmæli,
að íslenzka handritamálið verði
tekið til meðferðar og útkljáð að
fullu“.
í nefnd þeirri, er bar fram til-
lögur þessar, eiga sæti:
H. Dons Christensen biskup;
Edv. Henningsen bókaútgefandi;
cand. mag. S. Haugstrup Jensen,
lýðháskólastjóri; Bent A. Koch
ritstjóri (formaður); A. Richard
Möller, lögmaður við landsyfir-
réttina, og G. Sparring - Petersen
prófastur.
Eftirtaldir menn hafa léð til-
lögunum fylgi sitt:
Carl Bay, dómprófastur; Hanne
Budtz, landsyfirréttarlögmaður;
E. Busch, yfirlæknir; Erik Drey-
er, ráðuneytisstjóri; Johs. Hoff-
meyer, lektor; Eiler Jensen, for-
maður landssambands stéttarfél-
aga; C. V. Jernert, forstjóri; Hans
L. Larsen .verksmiðjueigandi; dr.
med. E. Meulengracht, prófessor;
Jóhs. Petersen - Dalum, tilrauna-
stjóri; Poul Reumert; dr. Hakon
Stangerup, dósent; Knud Thestr-
up, dómari; H. öllgaard, biskup.
Lögregluvörður um bú-
sfað Kishi
Dagskrá Alþingis
DAGSKRA efri deildar Alþingis mánu-
daginn 23. maí kl. 1.30: 1. Tollvöru-
geymslur, 3. umr. 2. Ríkisreikningurinn
1957, 2. umr. 3. Alþjóðasiglingamála-
stofnun, frv. 1. umr. 4. Landnám, rækt
un og byggingar í sveitum, frv. 1. umr.
5. Fiskveiöasjóður Islands, frv. Framh.
3. umr. 6. Verzlunarstaður við Arnar-
nesveg, frv. 2. umr. (Ef leyft verður).
Dagskrá neðri deildar kl. 1.30: 1.
Dragnótaveiðar í fiskveiðilandhelgi,
frv. Frh. 2. umr. (Atkvæðagr.). 2. Sala
tveggja jarða í A-Húnavatnssýslu, frv.
Frh. einnar umr. (Atkvæðagr). 3. Verzl
unarbanki Islands, frv. 2. umr. (Ef
leyft verður). 4. Verðlagsmál, frv. 2.
umr. 5. Dýralæknar, 2. umr. 6. Orlof
húsmæðra. frv. 2. umr. 7. Framleiðslu-
ráð landbúnaðarins o fl. frv. 2. umr.
TOKYO 21. maí. — Óflugur lög-
regluvörður var við bústað Kis-
hi, forsætisráðherra Japans í
morgun, er um 150 manns reyndu
að ráðast til inngögnu í húsið.
Þetta er annar dagurinn í röð,
sem átök verða við hús ráðherr-
ans.
í morgun tókst nokkrum jafn-
aðarmannaforingjum að komast
inn í hús Kishi og báðu um við-
tal við ráðherrann, en var synj-
að. — í gær réðust um 300 stúd-
entar að húsinu, en lögreglan
kom í veg fyrir að þeir kæmust
að því og yllu spjöllum. Sjö
voru handteknir og 30 stúdentar
og lögreglumenn hlutu meiðsli
í átökunum.
Um 500 lögreglumenn voru
kvaddir á vettvang til að fjar-
lægja áhangendur stjórnarand-
stöðunnar, sem settust að í göng-
um þinghússins í morgun, er
gengið var til atkvæða til sam-
þykktar vamarsammngnum. —
Tókst stjórnarandstöðunni ekki
að koma í veg fyrir samþykkt
hans.
/* NAIShnifT / SV 50 hnúlor X Snjókoma 9 06, S7 Skúrir IC Þrumur Wzi KutíaM Hitaski! H Hmi L Lat/i
Gromyko svaraði
ekki spurmngum
NEW York, 21. maí: — Gromyko,
utanríkisráðherra Ráðstjórnar-
innar, kom hingað í morgun því
bann mun sitja fund Öryggis-
ráðsins, sem fjallar um banda-
rísku njósnaflugvélina U-2 að
kröfu Rússa. Á flugvellinum las
Gromyko yfirlýsingu fyrir blaða-
menn, en fékkst ekki til að svara
neinum spurningum. Ekkert nýtt
kom þar fram. Fundur Öryggis-
ráðsins hefst á mánudag.
Ráðstjórnin sendi, japnösku
stjórninni í gærkvöldi mótmæla-
orðsendingu vegna varnarsamn-
ingsins við Bandaríkin. Sagði
þar, að bandarísk flugvél frá
stöðvum í Japan hefði flogið inn
í rússneska lofthelgi og Japanir
yrðu að taka afleiðingunum, ef
þessu héldi áfram. -
Þunn ljósrák á kvöldhimninum yfir Osaka í Japan sýnir braut
rússneska geimskipsins, þegar þa» fór yfir borgina sl. þriðjud.
Flensborgarskóla bárust
góðar gjafir við skólaslit
HAFNARFIRÐI. — Flensborgar-
skólanum var sagt upp í fyrradag,
og flutti skólastjórinn, Ólafur Þ.
Kristjánsson, ræðu við það tæki-
færi. Flutti hann hvatningarorð
til nemenda, þakkaði samveruna
í vetur, og óskaði þeim alls vel-
farnaðar. Loks afhenti hann próf
skírteini.
í vetur voru í skólanum 382
nemendur í 14 bekkjardeildum.
Gagnfræðaprófi luku 53 og hlaut
Sigurbjört Þórðardóttir í bók-
námsdeild hæsta einkunn eða
8.49, í verknámsdeild varð Jón
Aðalsteinsson efstur með 8,21.
Hæsta einkunn í skólanum hlaut
hins vegar Pálína Dóra Péturs-
dóttir í 2. bekk, 9.35. Geta má
þess, að í bóklegu fékk hún 9.55,
sem er afbragðseinkunn. 11 nem-
endur úr Flensborg þreyta nú
landspróf. Heilsufar var fremur
gott í skólanum í vetur.
Við skólaslit voru mættir 20 og
10 ára nemendur, og færðu hinir
fyrrnefndu honum að gjöf eðlis-
fræðiáhöld, en hinir peningaupp-
hæð. Þá var þar og mættur Finn-
bogi Arndal, sem útskrifaðist úr
skólanum 1895. Flutti hann stutta
ræðu.
í sambandi við þessi skólaslit
gengu tveir synir séra Þorvaldar
heitins Jakobssonar, sem var
kennari í Flensborg um 13 ára
skeið, á fund skólastjóra og af-
hentu skólanum málverk, eftir
Finn Jónsson og lampa útskorinn
af Marteini Guðmundssyni.
Höfðu báðir þessir munir verið í
eigu sr. Þorvalds, en hann hafði
á sínum tíma mælt svo fyrir, að
þeir rynnu til Flensborgarskól-
ans. Einnig gáfu fjögur börn hans
20 þús. kr. í Móðurmálssjóð séra
Þorvalds, en sá sjóður var stofn-
aður fyrir nokkrum árum af göml
um nemendum hans. — Þakkaði
skólastjóri hinar góðu gjafir.
— G. E.
LÆGÐARMIÐJAN er nú við
Suðurströnd landsins og
kuldaskilin gengin suður fyrir
svo að kaldá loftið norðan að
hefur nú flætt yfir landið.
Norðan lands er NA-hvass-
viðri, hiti nálægt frostmarki
og talsverð snjókoma. Sunn-
an lands er úrkomulítið, en
þykkt loft með 4—7 stiga
hita.
Lægðin hreyfist til suð-
austurs og fjarlægist, en fer
jafnframt dýpkandi. Hins
vegar er háþrýstisvæði yfir
Grænlandi á undanhaldi og
mun NA-veðrið því senn fara
að ganga niður norðan lands.
Hinn 7. þ. m. var ísjaðarinn ;
á Grænlandshafi 100—120 km (
norðvestur af Straumnesi eða i
óvenjulega langt undan landi [
eftir árstíma. |
S
VEÐURÚTLIT:
SV-land, Faxafl., SV-mið,;
Faxafl.mið: Vaxandi NA-átt, S
léttir smám saman til. Breiða^
fj., Breiðafj.mið: Allhvass;
norðaustan, slydda eða rign-S
ing. ^
Vestf. til Austfj. Vestfj.mið;
til Austfj.miða: Alihvass norðs
austan og snjókoma, einkum ^
á annesjum og til hafs. SA- s
Iand og SA-mið: Vaxandi aust j
anátt, rigninng. ^
Ferðastyrkir
til Bandaríkjaima
MENNTASTOFNUN Bandaríkj-
anna á íslandi (Fulbrightstofnun
in) hyggst veita nokkra ferða-
styrki til íslenzkra námsmanna,
sem hafa í hyggju að stunda fram
hallsnám við háskóla eða aðrar
æðri menntastofnanir í Banda-
ríkjunum á háskólaárinu 1960—
1961. Styrkir þessir munu nægja
’ fyrir ferðakostnaði frá Reykja-
vík til New York, og til baka
aftur.
Ferðastyrkir þessir verða ein-
ungis veittir þeim, sem hyggja
á framhaldsnám og þegar hafa
lokið háskólaprófi hér eða annars
staðar en í Bandaríkjunum. Þeir
sem hlotið hafa námsstyrk frá
stofnuninni nú í vor þurfa ekki
að sækja um þessa ferðastyrki,
Umsóknir um styrki þessa
skulu hafa borizt Fulbrightstofn-
uninni fyrir 10. júní n.k. Með
umsókn sinni þarf umsækjandi
að láta fylgja afrit af skilríkjum
fyrir því, að honum hafi verið
veitt innganga í háskóla eða aðra
viðurkennda æðri menntastofnun
í Bandaríkjunum. Þá þarf hann
að ganga undir sérstakt próf í
enskri tungu. Þá þarf umsækj-
andi að geta sýnt, að hann geti
staðið straum af kostnaði vð nám
sitt og dvöl meðan hann er í
Bandaríkjunum. Umsækjendur
fkulu vera íslenzkir ríkisborgar-
ar.
Umsóknareyðublöð fyrir styrki
þessa er hægt að fá hjá Mennta-
málaráðuneytinu, Stjórnarráðinu,
hjá skrifstofu Menntastofnunar
Bandaríkjanna, Laugavegi •!§, 2.
hæð og hjá Upplýsingaþjóhustu
Bandaríkj anna, sama stað á 5.
hæð. Umsóknir má senda í póst-
hólf stofnunarinnar. nr. 1059,
Reykjavík.