Morgunblaðið - 24.07.1960, Side 1

Morgunblaðið - 24.07.1960, Side 1
24 síður Lumumba á vesturleið í brezkrí herþotu I fylgd með bandariskum fjármálamanni Accra, 23. júlí. LUMUMBA er nú á leið til New York þar sem hann von- ast til að iá tækifæri til að ávarpa Öryggisráðið. Hann hafði viðkomu í Accra, höf- uðborg Gnana, og ræddi við Nkrumah. Brezki flugherinn lét Lumumba í té Comet-þotu til ferðarinnar og með ráðherranum var 15 Powers / „heila- Jb votti" Washington, 23. júlí. FRANCIS POWERS, bandaríski flugmaður- inn á U-2 þotunni, sem skotin var niður yfir Rússlandi, er nú í „heila- þvotti“ í fangabúðum Rússa. Hann kemur fyr- ir rétt hinn 17. ágúst að því er Ráðstjórnin til- kynnir. Að undanförnu hefur þess jætt æ meira í bréfum frá Powers til ættmenna sinna í Bandaríkjunum, að hann gengst nú undir hinn alræmda ,heilaþvott“ Rússa. Powers mun ekki aðeins reiðubúinn ti'l að játa allt, sem Rússar saka hann um, þegar til rétt- arhaldanna kemur, heldur mun hann að öllum líkindum gefa yfirlýsingu um að harn hafi verið „afvegaleiddur af icapitaliskum og hernaðarleg- am öflum í Bandaríkjunum" Bandaríska sendiraðinu hef- ur ekki tekizt þrátt fyrir marg itrekaðar tilraunir að fá leyfi Rússa til að senda mann til viðtals við Powers. Herter, utanríkisráðherra, hefur upp- ýst, að ekki sé hægt að styðj- »st við nein alþjóðalög til að jvinga Rússa til að veita við- tal. í Washiqgton er búizt við jví, að Powers-réttarhöldin 'erði ekkert annað en svið- ett áróðursleikrit. Rússar 'erði þá búnir að lama allt sið erðisþrek flugmannslns og lann fari með „aðalhlutverk- ð“ eins og viljalaust verkfæri. En réttarhöldin geta komið lússum óþyrmilega í koll, ef ^owers verður aðeins „heila- Jvegin málpipa" kommúnista, segir Washington Post. Það getur orðið þ*im jafndýrt spaug og að splundra ,,topp- fundinum“. manna nefnd auk bandarísks fjármálamanns, Edgar Detwiler, sem í gær gerði samning við Kongóstjórn um að takast á hend ur hluta þess uppbyggingar- starfs, sem nú er fyrir höndum. Alþjóðlegt uppbyggingarstarf Ekki var gefin nein opinber tilkynning um viðræður þeirra Lumumba og Kkrumah, en talið er víst, að aðalefni umræðnanna hafi verið samningarnir við Detwiler. Haft er eftir Lum- umba, að hann ætli að leita að- stoðar bandariskra, brezkra, franskra, v-þýzkra og japanskra fjármálamanna í uppbyggingar- starfinu. Öllum þjóðum verði leyft að taka þátt í því. Lumumba á funð Hammar skjölds Lumumba hélt áleiðis til Lond- on frá Accra. Þaðan fer hann til New York og er væntanlegur vestur um hafið á morgun. Hammarskjöld hefur frestað Kongó-för sinni af þessum sök- um, en til Leopoldville ætlaði hann að koma á mánudaginn. Hefur hann kvatt ráðgjafa sína til fundar og búa þeir sig nú und ir viðræður við Lumumba og hans menn. Fyrírmæli til Peronista BUENOS AIRES, 23. júlí. — Lög- reglan gerði upptæka tösku, sem í vikunni var send frá Havana til sendiráðs Kúbu hér í borg. Voru í töskunni bréf eg ýmis fyrir- mæli frá útlægum Peronista til „neðanjarðarhreyfingarinnar" í Argentínu og byltingarskóla, sem starfræktur er á vegum hennar. -□ gtBbóh fylgir blaðinu ekki um þessa helgt Formenn hinna einstöku deilda Norrænu menningarmálanefndarinnar, taldir frá vinstri (sitj- andi): Nils Gustav Rosén (S), próf. Edwin Linkomies (F), (standandi), próf. Ólafur Björnsson (1), Trond Hegna (N) og Albert Michelsen (D). Norræn mermingar- mál til umræðu hér — Nær 40 fulltrúar frá öllum Noróurlöndunum á fundi NORRÆNA menningarmála nefndin byrjaði fundi í Al- þingishúsinu árdegis í gær og mun halda áfram störfum til þriðjudags. Það er aðalfundur nefndarinn- ar, sem hér er haldinn að þessu sinni, en þeir fara fram sem næst áilega og eru haldnir til skiptis í iöndunum, síðast í Finnlandi. Ráðgefandi um menningarmál Norræna menningarmálanefnd in var stofnuð árið 1948 og er ætl að það hlutverk, að vera ríkis- stjórnum landanna ráðgefandi um norræna samvinnu á vett- vangi menningarmála. Er nefnd- inni skipt i þrennt og fjallar hver hluti hennar um einn eftirtalinna málaflokka: 1) vísindi, þ. á. m. háskólamenntun, 2) almenn skóla mál eða 3) alþýðufræðslu, listir og bókmenntir. Mörg mál til afgreiðslu Nefndinni hefur orðið nokkuð ágengt í ýrnsum efnum, m. a. að því er snertir samræmingu há- skólaprófa á Norðurlöndum, sem gerir stúdentum kleift að stunda einstaka hluta náms síns við sinn hvern háskólann. Mikill fjöldi mála liggur fyrir fundi menningarmálanefndarinn- ar hér og verður starfa nefndar- innar nánar getið að fundi lokn- um. Fulltrúar á fundinum í Norrænu menningarmála- nefndinni eiga nú sæti 6 fulltrúar frá hverju landi, og þátttakend- ur i fundinum hér eru þessir: Danmerkur-deild: Albert Mich- elsen deildarstjóri, K. B. Ander- sen, þingmaður, Marius Buhl, þingmaður, Uffe Grosen, skóla- meistari, og prófessor Peter Skautrup; ennfremur Helge Thomsen, ritari, og Olaf Waage, háskólaritari. Finnlands-deild: Prófessor Ed- win Linkomies, Kaarlo Kajatsalo, rektor, prófessor Matti Koskenni- emi, R. H. Oittinen, aðalforstjóri, J. O. Tallqvist, fil. mag. og dr. Framh. á bls 2. „Eitthvað oð gerast í Berlín"? LUNDÚNUM, 23. júlá fReuter): t gærkveldi gaus upp þrálátur orðrómur, bæði á meginlandi Ev- rópu og í Bretlandi, þess efnis, að „eitthvað sé að gerast í Vest- Sendiherrann rekinn heim Hiti kominn í Eichmann-málið Buenos Aires, 23. júlí. SENDIHERRA ísraels í Argentínu ferðbjóst í skyndi í dag, því síðdegis í gær lýsti argentínska stjórnin hann „óæskilegan“ í landinu. — Deila Argentínumanna og ísraelsmanna út af Eich- mann-málinu hefur þar með náð hámarki. Eichmann í sjúkrakörfu? Argentínustjórn þykist fullviss um að sendiherrann hafi verið potturinn og pannan í brott- námi hins fyrrverandi þýzka nazistaforingja. Leikur grunur á því, að hann hafi verið íluttur sem „sjúklingur" með ísraleskri flugvél, sem flutti heim ísrael&ka sendinefnd, sem var viðstödd há- tíðahöldin vegna 150 ára afmæl- is argentínsku byltingarinnar gegn Spánverjum. Sótti sendiráð ísraels í Buenos Aires sérstaklega um að heimil- að yrði að flytja nokkra sjúkl- inga með þessari flugvél, en nú staðhæfir sendiráðið, að engir sjúklingar hafi verið sendir vegna ónægs undirbúnings þeirra, sem um sjúklingana sáu. Hins vegar hefur ekkj verið borið til baka, að Eichmann hafi verið með þessari flugvél. ur-Berlín* — og lögffu margir þá merkingu i orffasveiminn, aff Rússar og Austur-Þjóffverjar væru jafnvel aff undirbúa vopn- affa árás á Vestur-Berlín. ★ Fréttamenn Reuters geiðu gangskör að því að kanna, hvað hæft væri í orðrómi þessum, en hvorki utanríkisráðuneyti Banda ríkjanna, blaðafulltrúi forsetans, James Hagerty, né fulltrúar Vest urveldanna í Berlín vissu ti-1 þess að neitt slfkt væri í aðsigi. ★ Formælandi varnarmálaráðu- neytis Vestur-Þýzkalands sagði svo í dag, að sér væri „algerlega ókunnugt ‘ um að nokkuð benti til þess, að Rússar og Austur- Þjóðverjar undirbyggju árás á Vestur-Berlín. — Áður hafði ann ar formælandi ráðuneytisins upp- lýst, að í og umhverfis A.-Ber- lín væru nú yfir 14.000 a.-þýzkir hermenn og vopnaðir lögreglu- menn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.