Morgunblaðið - 24.07.1960, Qupperneq 15
Sunnudagur 24. júlí. 1960
MORGVNBLÁÐIÐ
lb
lettir magar
eða sultur
og seyra
í B Ú A R jarðarinnar eru
nú nær 3.000 milljónir. Eft-
ir 20 ár verður talan senni-
lega orðin 4.000 milljónir
— og um aldamótin næstu
má gera ráð fyrir, að jarð-
arbúar verði orðnir 6 millj-
arðar að tölu. — 6.000 millj
ónir manna, sem þurfa að
borða sig metta á degi
hverjum — ef vel ætti að
vera. En því miður verð-
ur varla því að heilsa. Á-
standið i þessum efnum er
ekki glæsilegt nú — og það
eru fleiri en mestu svart-
sýnismennirnir, sem ala
þann geig í brjósti, að ekki
reynist unnt að bæta svo
um á næstu 40 árum, að
heimurinn geti gefið öllum
börnum sinum nóg að bíta
og brenna, þegar að aldar-
skiptunum kemur.
★ „íbúðarhús“
fyrir fiska
Talið er, að um þriðjung-
ur jarðabúa lifi nú í nábýli
við hungurvofuna — og eftir
aðeins 20 ár verður sem sagt
að öllum líkindum 10 til 12
þús. millj. munnum fleira að
fæða en nú. — Að þessum
sökum fylgjast menn af áhuga
með öllum tilraunum og til-
lögum, sem miða að því að
auka möguleika til fæðuöf 1-
unar — einnig hinum djörfu
og óvenjulegu tillögum fors-
töðumanns haffræðasafnsins í
Monaco, hins heimsfræga
froskmanns Jacques-Yves
Cousteau. — Cousteau vill
koma á fót ,neðansjávar-bú-
görðum“. — Þegar skip sekk-
ur á einhverjum hinna „eyði-
legustu“ staða í hainu, fer oft
svo, að eftir eitt eða tvö ár
er flakið orðið iðandi af lífi,
segir hann — og dregur af eft-
irfarandi ályktun: — Hafið er
ótrúleg lífsuppspretta — og
þetta líf er hægt að rækta með
skipulögðum hætti. — Og
Cousteau hefir ekki látið sitja
við orðin tóm — hann er, á-
samt starfsmönnum sínum,
byrjaður að reisa „íbúðarhús"
fyrir fiska og aðrar verur hafs
ins á sjávarbotninum undan
strönd Monacos. — Hann
reisir hús þessi úr steinsteypt-
um plötum á nokkrum hæð-
um, og gerir ráð fyrir, að mis-
munandi tegundir taki sér ból
festu á hverri hæð.
— ★ —
Sérfræðingar ýmsir hafa lát-
ið orð falla um það, að gaman
verði að fylgjast með þessari
frumlegu tilraun — en fáir
eru trúaðir á, að verulegur,
hagnýtur árangur verði af
henni. — Eitt af dönsku blöð-
unum spurði fyrir nokkru
um álit dr. pilh. Fr. A. Bruun
á þessu, en hann, er einlhver
frægasti sérfræðingur Dana á
sviði lífrænnar haffræði. —
Hann kvaðst ekki trúaður á,
að slikir „neðansjávar-búgarð-
ar“ gætu orðið til þess að
leysa að nokkru verulegu leyti
vandamál fæðuskortsins í
heiminum.
Eitthvað verður
að gera
— Það er hins vegar rétt,
sagði hann, að menn verða að
snúa sér að því að nýta auð-
æfi hafsins í miklu ríkara
mæli en nú er gert, ef leysa á
þetta mikla og álvarlega
vandamál. — Ég er enginn sér
stakur bölsýnismaður, en ég
er samt mjög áhyggjulullur
vegna þess, hve lítinn áhuga
virðist að finna hjá þeim, sem
með völdin fara, á þessu við-
fangsefni — og því, sem við
gætum kallað „næst-nánustu“
framtíð. — En hér verður eitt
hvað að gera, og það fyrr en
seinna.
+ Gras hafsins
Það virðist kannski fráleit
hugmynd, en ég hygg nú samt
að sá dagur muni koma, að
sérstaklega útbúnum kjarn-
orkustöðvum verði komið fyr-
ir á hafsbotni til þess að hita
upp hafið og auka þar með
fiskigengdina. — Hinar ör-
smáu plöntur, sem við stund-
um nefnum gras hafsins, eru
sá grunnur, sem allt annað líí
í höfunum byggist á. Þær
geta aðeins þrifizt í efstu lög-
im sjávarins, varla meir en
100 metra niður, eða svo langt
sem sólarljósið nær — en á
víðáttumiklum hafsvæðum
íínnast ekki næg næringar-
efni í þessum efstu 100 m sjáv-
arins, til þess að gras hafs-
ins geti gróið þar. Það þarf
fosfót og nítröt til þess að
þrífast, og af þeim efnasam-
böndum er nóg niðri í haf-
djúpunum — á 2 — km dýpi.
Ef þau geta gorizt upp undir
yfirborðið, tekur lífið að
blómgast í ótrúlegum mæli.
Þetta sést t. d. vel undan
strönd Perú, þar sem haf-
straumar gera það að verk-
um, að djúpsjórinn stígur stöð-
ugt upp á yfirborðið. Og þarna
eru einhver auðugustu fiski-
mið heimsins.
^ Ómaksins vert
Sú hugmynd að hita upp
hafdjúpin, þannig að sjórinn
þar stígi upp, er því að mín-
um dómi alls ekki svo fráleit,
sem margir hafa viljað vera
Eftir 40 ár mun
jarðarbúum hafa
fjölgað um
helming. —
Verða kjarnorku-
stöðvar reistar
á hafsbotni til .
þess að auka
fiskistofnana og
metta hina mörgu
munna?
láta. — Ef unnt væri t. d. að
koma fyrir kjarnorkustöð til
þess að hita upp sjóinn á 4
km dýpi í Saragossahafinu
við Bermúda, þar sem sjávar-
hitinn er aðeins %—2 gráð-
ur; þannig að hin nítrat- og
fosfatríki djúpsjór bærist upp
til yfirborðsins, mundi það
sannast, að fádæma fiskigengd
yrði fyrr en varði á þessum
slóðum. — Ég get að vísu
ekkert um það sagt, hvort
þetta er tæknilega mögulegt,
og þá hvernig — en mín skoð-
un er sú, að það sé ómaksins
vert, og meira en það, að
gera víðtækar rannsóknir þar
að lútandi. Mætti að mínum
dómi verja eigi minna fé til
þess að rannsaka þetta mál en
veitt hefir verið til þess að
ljósmynda „bakhlið" tungls-
ins og senda gervi'hnetti á
braut um sólina okkar, segir
hinn danski vísindamaður.
Hafið er mikil auðs- og lifs-
uppspretta — og til þess
horfa margir, þegar rætt er
um hinn uggvænlega mat-
vælaskort í heiminum og
hraðfara fjölgun mannkyns
ins.
‘ K enmaður
ræður Ceylon
COLOMBO, 21. júlí: — Frú
Sirimavo Bandaranaike var
fagnað svo innilega i dag, er
hún tók við forsætisráðherra-
embætti á Ceylon í dag, að
hún brast í grát og lá snökt-
andi frammi fyrir máiverki af
hinum látna eiginmanni í 10
mínútur.
Þetta er I fyrsta sinn í sög
unni, að kvenmaður gerist
forsætisráðherra. Ekkja Band
aranaike, sem myrtur var 1
september sl., er 44 ára göm-
ul og byrjaði stjórnarferil
sinn á því að taka sér einn-
ig embætti utarrt-íkis- og varn-
armálaráðherra. Flokkur henn
ar „Frelsis-flokkurinn“ vann
í síðustu kosningum 75 sæti
af 151 í fulltrúadeildinni. Tal-
ið er, að það sem úrslitum
kosninganna réði hafi eink-
um verið áróður anlstöðu-
flokkanna þess efnis, að óhugs
andi væri að setja kvenmann
í forsætisráðherrastól, því
frúin valdist til forystu flokks
síns skömmu eftir að maður
hennar var myrtur.
Pólverju vísuð
úr lundi
OSLO, 20. júlí (Reuter) —
Einn af starfsmönnum pólska
sendiráðsins hér, Jan Mlyn-
arski, hefur verið beðinn um
að yfirgefa landið. Skýrði
talsmaður norska utanríkis-
ráðuneytisins frá þessu í dag.
Þessari ráðstöfun var svarað
um hæl með því, að Pólverj-
ar óskuðu eftir að skrifstofu-
stjóri norska sendiráðsins í
Varsjá, Reidar Ullevold, yrði
á brott úr landinu.
Samkvæmt upplýsingum frá
norsku lögreglunni, hefur
Mlynarski • átt samstarf við
Stanislav Bocewski, norskan
ríkisborgara af pólskum upp-
runa, sem nýlega var dæmd-
ur í 1 árs fangelsi fyrir njósn-
ir í þágu austræns ríkis.
—- Á humarveiðum
Framh. af bls. 14.
þess má humarinn ekki ver»
nema tveggja nátta gamall er
hann kemur á land. Á heimleið-
inni sefur áhöfnin, að einum und
anskildum, sem stendur vakt I
brúnni, — fyrsta hvíldin eftir
næstum tveggja sólarhringa törn.
Laust upp úr hádegi leggst „Há-
steinn“ að bryggjunni á Stokks-
eyri eftir vel heppnaða veiðiferð,
með 2 tonn og 88 kíló af krabba
— tvö tonnin eru leturhumar ——
landkrabbinn, fréttamaður MbL
vegur 88 kílo.
~nöa
Höfum opnað uítur
eftir sumarfríið
Tjarnarhárgreiðslustofan
Lokað
frá 23. júlí til 2. ágúst
Jón Jóhansson & Co.
heildverzlun
Jjod'JCalikUfca
Tannkrem.
Til sölu
RENNIBEKKUR 2 nietrar milli odda og SMIJRLYFTA
fyrir stóra bíia. — Tilboð leggist inn á al'gr. Mbi. merkt:
„Tækifærisverð — 0504“.
Húsbyggjendur
Gröfum húsgrunna, skurði og fl. — Uppmokstur híf-
ingar, sprenginga.r. — Vanir menn — Sími 32889.
Sparifjáreigendur
Avaxta sparifé á vinsælan og
öruggan hátt. Uppl. kl. 11—12
f.h. og 8—9.
Margeir J. Magnússon
Stýrimannastíg 9. Sími 15385.