Morgunblaðið - 27.08.1960, Blaðsíða 8
a
MOKCVTSfíl. 4ÐIB
Laugardagur 27. 5,gúst 1960
Við bjarka-
ilmogárnið
*^*——mi^^mm^m^m^mmmmmmmmmmmmmmmmmm
fór kirkjuvigslan
fram að Kálfafelli
i Fljótshverfi
Fyrsta embœttisverk
biskups í Skafta-
fellsprófastsdœmi
ÞAÐ var austanstormur og mist-
ur yfir Skeiðarársandi skyggði á
jökulinn, þegar herra bi.skupinn
ásamt föruneyti sínu ók austur
Fljótshverfið til kirkjuvígslu á
Kálfafelli, sunnudaginn 21. ágúst
síðast liðinn.
En inni í hinni litlu en fögru
og nýuppgerðu kirkju var hlýtt
og bjart og notalegt. í gluggum
er litað gler, svo að dagsbirtan
verður mild og hátíðleg þegar
hún blandast saman við bjarm-
ann frá 20 kertaljósum á nýjum
vegglömpum og gamalli einkar-
fallegri ljósakrónu á miðju lofli.
Fólkið fyllir kirkjuna og meira
en það. — Kirkjugestir eru um
þriðjungi fleiri en söfnuðurinn.
(í sókninni eru 62 búsettir). Vígsl
an fer fram með venjulegum
haetti, formaður kirkjukórasam-
bands prófastsóæm isins, Óskar
Jónsson í Vík stjórnar sön.g, sem
er mikill og góður, sæmilega al-
tnennur og einraddaður eins og
kirkj usöngur á að vera. Sóknar-
presturinn stígur í stólinn. Svo er
aitarisganga — altarisgestir 11.
II.
Þetta var indæl stund, og nú
hefst annar þáttur þessa fagnað-
ardagss Fljótahverfinga. Konur í
söínuðinu veita öllum af mikilli
rausn og prýði, þrátt fyrir erfið-
ar aðstæður í gömlu skólahúsi,
sem þarna hefur lengi staðið, autt
Og hrikalegt, frekar af vilja en
mætti. En þetta tekst allt með
ágætum enda er þetta undirbúið
á hinn kunna gestrisnisheimili
kirkj ubóndans Björns Stefánsson
ar og konu hans Valgerðar Páls-
dóttur.
m.
Nú er aftur gengið til kirkju.
Þar hefst samkoma, sem formað-
trr sóknarnefndar, Ólafur J. Jóns-
son bóndi í Teygingalæk stjórnar.
Hann þakkar öllum, sem að upp-
byggingu kirkjunnar hafa unn-
iö. Hann þakkar gjafir og les
•keyti, sem hafa borizt og hann
Kálfafellskirkja í Fljótshverfi.
biður Guð að blessa söfnuðinum
þetta fallega Guðshús. Sóknar-
presturinn, sr. Gísli Brynjólfsson
prófastur, flytur erindi, segir
sögu kirkjunnar og getur í fáum
orðum þeirra presta, sem sátu
á Kálfafelli frá Skaftáreidum og
þar til prestakallið var iagt nið-
ur rið 1880.
Sr. Valgeir Helgason í Ásum
flytur ljóð, sem hann hafði ort
í tilefni dagsins. Þar segir m. a.:
„Þökkum Drottni þennan dag
þökkum honum góðan hag,
að lifa hon.um lán er mest,
að leita hans er hverjum bezt“.
Páll Pálsson cand. theol.,
Reykjavík flytur ávarp. Hann
minnist tengsla sinna við þenn-
an stað. Þar var faðir hans fædd-
ur, þar var afi hans síðastur
presta: ,,Mér finnst það heiður
að vera Skaftfellingur. Hingað í
hérað þykist ég geta rakið allt
það bezta, sem mér hefur verið
innrætt á liðnum árum. Guðs
blessan yfir land og lýð. Þetta
er arfur minn frá nánustu ætt-
mennum mínum hér. Hann vil ég
varðveita, því að það er gæfa
mín að hafa séð lifað og starfað
í þessum anda. Þar hef ég hauk
á hendi“.
Frú Guðríður Páisdóttir flytur
kveðju frá Prestsbakkasókn. Hún
lýsir gleði sinni yfir því að fá
að taka þátt í þessari hugnæmu
athöfn og biður fyrir starfinu í
kirkjum prestakallsins, sem báð-
ar hafa nú verið fegraðar svo sem
bezt má verða.
Óskar Jónsson talar um gildi
hins fórnfúsa starfs fyric söfnuð
og einstakling. Allir eiga að
leggja sig fram — fórna — til
að efla hið góða og fagra. Það
Enska knattspyrnan:
Newcastle — Fulham 7:2
ONNUR umferð ensku deildarkeppn- Tranmere — Swindon 2:2
innar fór fram í þessari viku, og urðu Brentford — Watford 2:1
úinriit leikanna þessi:
1. deild.
Blackpool — Tottenham 1:3
West Ham. — Aston Villa 5:2
Arsenal — Preston 1:0
Blackburn — N. Forest 4:1
Bolton — Wolverhampton 0:2
Cardiff — Sheffield W. 0:1
Chelsea — Leicester 1:3
Everton — Manchester U. 4:0
Manchester City — Burnley 2:1
Newcastle — Fulham 7:2
W.B.A. — Birmingham 1:2
2. deild.
Stoke — Sunderland 0:0
Sheffield U. — Plymouth 3:0
Swansea — Huddersfield 2:0
Brighton — Leyton Orient 1:1
Leeds — Bristol Rovers 1:1
Lincoln — Rotherham 0:1
Luton — Portsmouth 1:0
Middlesbrough — Derby 1:1
Norwich — Charlton 4:0
Southampton — Liverpool 4:1
Scuntorpe — Ipswich
3. deild
Chesterfield — Buer 2:2
Colchester — Grimsby 1:1
Coventry — Bradford City 2:2
Halifax — Torquay 3:2
Hull — Newport 5:1
Bristol City — Bournemouth 1:0
Walsall — Southend 5:1
Reading — Barnsley 0:1
Shrewsbury — Port Vale 1:1
4. deild
Barrow — York 1:1
Bradford — Chester 1:0
Hartiepools — Peterborough <iJt
Mansfield — Rochdale 0:2
Miilwall — Accrington 2:2
Carlisle — Stockport 1:4
Doneaster — Southport 0:1
Oldham — Aldershot 0:2
Chrystal Palace — Darlington 3:2
Gillingham — Crewe 0:0
Workington — Northampton 0:0
Fimm lið í 1. deild, þ.e. Tottenham.
Wolverhampton, Blackburn, Sheffield
W. og Newcastle hafa unnið báða leik-
ina en W.B.A., Chelsea, Preston og
Manchester United hafa enn ekki feng-
ið stig. — I 2. deild er Rotherham
eina liðið, sem hefur unnið báða leik-
ina en Lincoln er eina liðið sem ekki
hefur fengið stig. — 13. deild hafa
Barnsley og Brentford unnið báða leik-
ina og í 4. deild hafa Aldershot. Chryst
al Palace. Peterborough, Southport,
Stockport og Bradford unnið háða
leikina.
þurfa prestarnir að muna. Þá
mun starf þeirra bera árangur.
Að lokum ávaroar biskupinn
kirkjugesti, lýsir ánægju sinni
yfir athöfnum þessa dags, þakk-
ar öllum áheyrn og þátttöku og
biður söfnuði og kirkju blessunar
Guðs. Svo lýkur athöfninni með
játningu Hallgríms: Son Guðs
ertu með sanni.
IV.
Sóknarnefnd Kálfafellssóknar
skipa nú: Ólafur J. Jónsson, for-
maður, Björn Stefánsson, Kálfa-
felli og Björgvin Stefánsson
Rauðabergi. Safnaðarfulitrúi er
Jón Jónsson, Teygingalæk, með-
hjálpari, Bergur Helgason, Kálfa-
felli.
Þess skal getið til viðbótar því,
sem áður hefur verið sagt um
endursmíði kirkjunnar, að kirkju
bekkir voru teiknaðir af frú
Gretu Björnsson og smíðaðir á
verkstæði Valdimars Björnssonar
og Jóns Valdimarssonar, Vík í
Mýrdal. Þeir teiknuðu einnig við
bygginguna og sáu um alla efn-
isútvegun, en smiður var Sveinn
Björnsson á Fossi eins og fyrr
er sagt. — G. Br.
“SKAK ■
MINNINGARMÓT Aronz Nimzo Önnur leið er t. d. 3.
e4;
wich hefur verið teflt í Khöfnl4. Rd4, c5; 5. Rb3, f5; 6. d3, Be6,
nuna um miðjan mánuðinn.
Þangað var boðið Petrosjan,
Geller, Stáhlberg, Pietsje, Goldz,
Orbaan, Barendrengt af út-
lendingum, en heimamenn eru
B. Larsen, J. Enevoldsen, A.
Nielsen, B. Andersen, S. Hamm-
ann, Klövig, E. Pedersen. Úrslit
urðu þessi: 1. Petrosjan 11%,
2. Geller 10%, 3. G. Stáhlberg
9%, 4. Larsen 8. Frammistaða
Stáhlbergs er mjög athyglisverð,
þegar tekið er tíllit til þess að
hann hefur átt við langvarandi
heilsuleysi að stríða, og er
sannarlega ánægjulegt að sjá að
þessi gamla kempa er komin í
gang á nýjan leik. Larsen hefur
ekki ennþá tekizt að endur-
heimta sitt gamla form á ný. En
hér á eftir kemur skák sem
bregður upp ljósi af þeim Lar-
sen sem tefldi í Moskva 1956
og fékk þá bezta árangur á 1.
borði.
Hvítt: B. Larsen.
Svart: E. Geller U. S. S. R.
Kóngsindversk vöm
(Júgóslavneska afbrigðið) með
skiptum litum!
1. g3. Larsen hefur um árabil
lagt sérstaka rækt við þennan
leik, og oft náð mjög góðum ár-
angri. Sennilegt þykir mér að
hann vilji sýna það svart á
hvítu að Réti heitinn hafi haft
á röngu að standa 1925, þegar
hann lýsti því yfir að þessa
byrjun tefldi hann ekki aftur,
eftir að hafa tapað skák með
þessari byrjun fyrir Aljechin.
(Ein frægasta skák Aljechin).
Hugmyndin með 1. g3 er nokkuð
margþætt, en í mörgum og ef
ekki lang flestum tilfellum sú,
að lokka andstæðingkin fram
með miðborðspeð sín, en þá
sprengir hvítur upp miðborðið
með gagnsókn á miðborðinu og
í sumum tilfellum á drottning-
arvæng, eða hvorttveggja, eins
og í þessari skák. Útkoman er
því sú, að hvítur teflir oftast
Kóngs-indverska vörn, eða
Aljechin vörn með leikvinning.
1. — d5; 2. Bg2, e5; 3. Rf3, Rc6;
Jósef J. Björnssyni reistur
minnisvnrði nð Hólum
FYRIR tæpu ári ákváðu búfræð-
ingar frá Hólum, nemendur
Jósefs J. Björnssonar, fyrsta
skólastjóra Bændaskólans, sem
kenndi við skólann um 50 ára
skeið, að reisa honum minnis-
varða heima á Hólum.
Var þá til gipsmynd (brjóst-
mynd) af Jósef, í eigu afkomenda
hans, en mynd þá hafði Ríkharð-
ur Jónsson myndhöggvari gert.
Var hún fengin til þess að gera
afsteypu í eir eftir henni. Því
var iokið erlendis í vetur, en x
sumar hefur stöpull verið gerður
eftir teikningu Ríkharðs og er
hann nú fullgerður og eirmyndin
komin þangað, sem henni er ætl-
að að standa. Hefur minnismerki
þessu verið valinn staður þar
sem húsakynni Búnaðarskólans
stóðu er hann hóf störf undir
stjórn Jósefs árið 1882.
Framkvæmdanefnd sú, er fyr-
ir máli þessu hefur staðið, hefur
í samráði við skólastjórn Bænda-
skólans á Hólum — ákveðið að
afhjúpun minnisvarðans fari
fram síðari hluta dags, sunnu-
daginn þann 11. september n.k.
Það er tilgangur Hólasveina,
með þvi að reisa minnisvarða
þennan í fyrsta lagi heiðra minn-
ingu hins mæta manns, er við
þröng kjör og erfið skilyrði hóf
brautryðjandastarfið og kenndi
þar í hálfa öld, og í öðru lagi að
reisa á Hólastað varða, sem minni
á þann áfanga, er þegar hefur
genginn verið hinum fornfræga
stað til vegsauka og íslenzkri
bændamenntun og bændamenn-
ingu til gagns og góðs.
Nánar verður tilkynnt síðar
með hvaða sniði athöfnin fer
fram 11. september, en þess er
vænzt, að Hólamenn mæti við
þetta tækifæri heima á Hólum.
Héroðsmót Sjólfstæðismanna
í V-Borðastrondasýsla
PATREKSFIRÐI, 22. ágúst. —
Héraðsmót Sjátfstæðismanna í
V-Barðastrandarsýslu var haldið
að Tjaldborg á Patreksfirði kl.
20.30 sl. laugardag. Jóhannes
Árnason stud. jur. setti mótið og
var kynnir þess. Ræður fluttu
Gísli Jónsson atþingismaður og
ÞorvaLdur Garðar Kristjáneson
lögfræðiogur. MiiUi ræðanna söng
Árni Jónsson, óperusönigvari með
undirleik Hafliða Jónssonar. Að
ræðulokum komu fram þeir Gunn
ar Eyjóifsson leikari og Ómar
Ragnarsson og skemmtu við góð-
ar undirtektir. Siðan var stiginn
dans. Hljómsveit Baldurs Geir-
mundisisonar lók fyrir dansinum.
Fjölmenni var mikið og fór
akemmtunin hið bezta fram.
en þá hefur hvítur náð að
„fiankettera" biskupinn á g2,
sem er oft á tíðum hagkvæmt í
Aljechin-vörn. 4. 0-0, Rf6. Hér
er einnig hægt að leika 4. — Be6;
5. d3, f6; 6. e4, Rge7 ásamt Dd7
og 0-0-0. 5. c4, d4; Ef Geller
hefði verið að tefla upp á að ein-
falda stöðuna og jafna sem
fyrst, þá gat hann leikið 5. —
dxo4; 6. Da4, Bd7; 7. Dxc4, Be6;
8. Dc2, Be7 og staðan virðist í
jafnvægi. Eða 5. — dxc4; 6. Da4,
Rfd7!; 7. Dxc4, Rb6; 8. Dc2 og
þá Be7 með skemmtilegri og
möguleikaríkri stöðu fyrir svart.
6. d3, Bd6; 7. Ra3, 0-0; 8. Hbl,
He8; 9. Rc2, a5; Hernaðaráætlan-
ir beggja liggja ljóst fyrir. Hvít-
ur leggur áherzlu á að knýja
fram b4, en svartur að leika e4.
10. b3 Ekki 10. a3 vegna a4 10 —
h6; 11. a3, Bf5; 12. b4, axb4; 13.
axb4, Dd7; 14. b5, Rd8; 15. e3!
Miðborðssprenging á réttu augna
bliki. 15. — dxe3; 16. Rxe3, Bh7;
Hér virðist mér Geller spenna
bogann of hátt. Betra var 16.—
Bh3; t. d. 17. d4, exd4; 18. Dxd4,
Bxg2; 19. Kxg2, b6 og staðan er
nokkuð jöfn Það er augljóst að
Geller sættir sig ekki við jafn-
tefli 17. Bb2, c6; 18. Hal, Hxal;
19. Dxal, cxb5; 20. Rxe5, Dc7;
21. Rf3, Be7; 22. Hcl, bxc4;
23. dxc4, Db6; Sennilega nauð-
synlegt vegna hótunarinnar Rd5
og g7 hangir. 24. Rd5, Rxd5;
25. cxd5, Bf8; 26. Bd4, Db3;
27. Re5, b5 Svartur á enga góða
vörn lengur. T. d. 27. — Bf5 til
þess að hindra Rd7 þá 28. g4 og
biskupinn verður að hörfa til
h7 og 27. — Db5 yrði svarað með
Hc7. 28. Rd7, Ba3;
Staðan eftir 28. — Bf8—a3,
29. Bxg7! Larsen fær tækifæri
á snoturri lokasenu 29. — Bxcl;
Hvað annað? 30. Rf6f, Kxg7;
31. Rxe8f, Kf8; 32. Dh8f, Ke7;
Ef 32. — Bg8; 33. Dg7f, Kxe8;
34. Dxg8, Ke7; 35. d6f, Kxd6;
36. Dxd8 og skákar síðan Bcl af,
33. d6f, Kd7; 34. Rf6f, Kc8;
35. Bh3t Einkennandi fyrir
svona sókn, er að allir hvítu
mennirnir komast í sóknina með
leikvinning. 35. — Kb7; 36,
Dxd8, Ddlf; 37. Kg*. Dd3;
38. Bc8f, Ka8; 39. Da5f og Geller
gafsf upp, því hann verður mát
í öðrum leik.
Skákeinvígi þeirra Friðriks og
Freysteins lauk þann 23. ágúst
með allstórum sigri hjá stór.
meistaranum 5:1, en þau urðu
líka úrslit fyrra einvígis Frið-
riks við Pilnik, svo að eftir at-
vikum þarf Freysteinn ekki að
vera óánægður með vinninga-
hlutfallið. Aftur á móti er á-
stæða fyrir Freystein að vera
óánægðan með taflmennsku
sína í heild, því hún var vægast
sagt lélegur af Skákmeistara ís-
lands. Ég efast ekki um að
Freysteinn getur betur én þetta,
en það er mitt álit, að hann
eigi að reyna að leggja meiri
áherzlu á leikfléttur, því skák-
stíll hans er of einhæfur til þess
að valda stórmeistara veruleg-
um áhyggjum.
Landskeppni Rússa og V-
Þjóðverja lauk með sigri Rússá
51:13.
Ingi R.