Morgunblaðið - 27.08.1960, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 27.08.1960, Blaðsíða 1
20 siður og Lesbók 47 árgsngur 194. tbl. — Laugardagur 27. ágúst 1960 Prentsmíðia Morgunblaðsins Vaxandi ■ ■ agreinmgur milli Rússa og Kínverja LONDON, 26. ág. — (Reuter) — Enn hefir komið fram ný sönnun þess, að Sovétríkin og Kauða-Kína greinir mjög á um afstöðuna til „auðvalds- ríkjanna“ svonefndu. — Virt- ur rússneskur sérfræðingur í málefnum Asíu, E. Zhukov, hefir í grein í Pravda varað kommúnistaríkin við að „flytja út byltingu“ til Asíu-, Afríku- eða Suður-Ameríku- ríkja. — Varði greinarhöfund- ur skelegglega kenningu Krús jeff um möguleika á friðsam- legri sambúð ríkja með óskylt stjórnkerfi, — en kínversku kommúnistarnir hafa mjög gagnrýnt þá afstöðu hans, sem kunnugt er. Er talið, að nú dragi til meiri háttar ó- samlyndis milli forystu rúss- neskra og kínverskra komm- únista út af þessu. • „ALRANGAR KENNISETNINGAR“ Zhukov réðst mjög að „ófor- betranlegum kreddumönnum“, sem telji, að kenningin um frið- samlega sambúð muni tefja þró- unina í nýlendum og öðrum þeim löndum heimsins, sem dreg- izt hafa aftur úr í þróuninni. Kvað hann þetta fólk hafa hengt sig í „alrangar kennisetningar“. — Svo virtist af ummælum Zhukovs, sem Kínverjar hafi Framh. á bls 2. ] ■ . ........................................’■ Neyðar- ástandi aflétt PRETORIA, Suður-Afriku, 26. ágúst. (Reuter) — Dómsmála- ráðherra Suður-Afriku, Fran- cois Erasmus, tilkynnti í dag, að hinn 31. þ.m. gengi úr gildi neyðarástand það, sem lýst var yfir í landinu 30. marz s.l., níu dögum eftir að 67 Afríku- menn voru drepnir í óeirðun- um í Sharpville. Alls hafa rúmlega 10,500 manns verið handteknir, sam kvæmt lögum þessum. Hafa flestir þegar verið látnir laus ir — og búizt er við, að þeir, sem enn eru í haldi, fái frelsi um mánaðarmótin. — Dóms- málaráðherrann sagði, að á- standið í landinu væri nú svo rólegt orðið, að lög þessi væru ekki lengur talin nauðsynleg. Enn ein yfirlýsing Lumumba: Herliö S.Þ. hypji sig — jafnskjótt og Belgir eru á brott ur Kongó LEOPOLDVILLE, 26. ág. — (Reuter). — Lumumba forsætisráðherra lýsti því yfir á blaðamannafundi í dag, að gæzlulið Samein- uðu þjóðanna yrði að hverfa á braut úr Kongó, „jafnskjótt“ og allir Belg- ir eru farnir þaðan. — „Við kærum okkur ekki um, að hernám Sam. þj. komi í staðinn fyrir hið belgiska hernám“, sagði hann. — Þá sagði Lumumba, að hersveitir sínar væru að koma sér fyrir í stöðvum sínum í Kasai-héraðinu til þess að tryggja þar frið og öryggi, en höfðingi Baluba- manna, Albert Kalonji, hefir lýst yfir stofnun Ægileg flóð í Indlandi CALCUTTA, Indlandi, 26 ágúst. (Reuter) — Hin miklu flóð sem geisa þessa dagana í Orissa-fylk inu í austanverðu Indlandi, hafa valdið gífurlegu tjóni. — Var í dag talið, að um 1/3 íbúa hefði orðið fyrir meiri eða minni bú- sifjum af völdum flóðanna — en íbúarnir eru um 15 milljónir. Eru þetta mestu flóð, sem vitað er um á þessum slóðum. — Þús- undir fólks eru heimilislausar, og vitað er um a.mk. 47 dauðs- föll af völdum þeirra. — Flóðin eru nú sögð nokkuð í rénun. Þessar upplýsingar eru hafðar eftir Radhanath Rath, einum aðal ráðamanni Orissa-fylkisins, sem kominn er til Delhi til þess að leita aðstoðar ríkisstjórnarinnar. Sagði hann, að þúsundir naut- gripa hefðu drukknað í flóðunum — og líkur benda til, að nokkur þorp hefðu bókstaflega þurrkazt út. — Flóðin hafa náð yfir um 5 þúsund fermílna svæði. óháðs ríkis í hluta héraðs- ins, sem nefnist „Náma- ríkið“. — ★ — Lumumba sagði fréttamönn um, að komizt hefði upp um njósnasamsæri í Brazzaville, höfuðborg Kongó-lýðveldisins (fyrrum Franska Kongó). Þar hefðu Belgir komið sér upp „aðalstöðvum, með aðstoð franskra yfirvalda" og borgin væri miðstöð „njósnanets“, sem næði yfir til Leopoldville. Af þessum sökum hefði stjórn sín slitið öllu sambandi við Kongó-lýðveldið og tekið fyr- ir samgöngur milli Brazza- ville og Leopoldville. — Það voru útsendarar „samsæris- manna“ sem skipulögðu and- mælin gegn Lumumba í gær — að sögn hans sjálfs. • „Stela demöntum" Lumumba sagði, að hersveitlr Framh. á bls. 2. Vestur-þýzka stjórnin vill Kjarnavopn fyrír herínn BONN, 26. ág. — (NTB-AFP) — Vestur-þýzka ríkisstjórn- in gaf í dag út tilkynningu, þar sem hún lýsir samþykki sínu við innihald bæklings, sem yfirmenn varnarmálanna gáfu út fyrir viku og dreift var til allra v.-þýzkra her- sveita. — Þar var krafizt al- mennrar herskyldu og talið nauðsynlegt að búa v.-þýzka herinn kjarnorkuvopnum. — ★ — í yfirlýsingu stjórnarinnar er neitað þeim ásökunum, sem fram hafa komið innan- lands og utan, að herforingj- arnir hafi með fyrrnefndum bæklingi blandað sér í stjórn- mál ríkisins. — ★ — í tilkynningunni, sem gef- in var út eftir viðræður þeirra Adenauers og Strauss, varn- armálaráðherra, er það skýrt tekið fram, að sjónarmið sér- fræðinganna varðandi varn- armálin séu í fullu samræmi við öryggismálastefnu ríkis- stjórnarinnar sl. fimm ár. í fyrradag blessaði Jóhann- es páfi XXIII 3,500 þátttakend ur í Olympíuleikunum á torgi heilags Péturs í Rómaborg. Þetta var ákaflega hátíðleg at höfn, og auk Olympíukeppend anna voru viðstaddir um 200 þúsund lieimamenn og ferða- menn hvaðanæva úr heimin- um. — Þessi mynd var tekin við þetta hátíðlega tækifæri, þegar páfinn blessaði keppend ur og hvatti þá til að sýna drengilegan leik. Lífstíðarfang- elsis krafizt BERLÍN, 26. ágúst. (Reuter — Hinn opinberi ákærandi austur- þýzka ríkisins hefir krafizt þess, að Manfred Gerlach, sem sakað- ur er um njósnir fyrir leyniþjón- ustu Vestur-Þýzkalands. verði dæmdur til lífstíðarfangelsis. Gerlach hefir játað sekt sírtA, að sögn a-þýzku fréttastofunnar ADN. — Ákærandinn sagði, að hann hefði gert áætlanir um end urreisn auðvaldskerfis í A-Þýzka landi og fall kommúnistaríkj- anna. Reggio di Calabria, ftalíu, 2W. gúst. — Domenico Galati, 33 ára gamall bóndi og þriggja barna faðir framdi óhugnanlegt sjálfs morð í dag. Hann lokaði sig inni í herbergi og skaut sig, með hálf tíma millibili, fyrat tvisvar í kviðinn og tvisvar í síðurnar, áður en hann sendi síðustu kúl- una gegnum höfuðið. Í þróttamaður lézt á Olymp- íuleikunum (Sjá íþróttir bls. 18)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.