Morgunblaðið - 09.09.1960, Page 2
2
MORCUNBLAÐIÐ
Föstudagur 9. sept. 1960
Rúbluklerkur Brúsuskeggju
r—t mfkla peningu, tm
iyjjjf'jbrír atllr mjSjs ðrlátir.
hefúr gí-ngú)
“p: iilíu’rí vonum. Þaö hef-
M þeim aukna (Urísku
l“ vítíö liigt í . metri kostn-
jííBÆi £>#& ti&rí vej-rna aö
jVSttÍBi# jW**1 mfiira fé.
Mynd þessi er úr Þjóðvilj-
anum í gær. Hún er af séra
Sigurjóni Einarssyni, gjald.
kera samtaka Brúsastkeggja.
Sigurjón hefur áður annazt
rúbluviðskipti fyrir heims-
kommúnismann, eins og sést
af orðum Þjóðviljans hér við
hliðina eru húsbændur hans
nú „mjög örlátir".
Radorkerfi varnar-
lidsins veitir al-
menna flugþjónustu
í GÆR var tíðindamönnum út-
varps og blaða boðið til Kefla-
víkur og var ætlunin að flogið
yrði til radarstöðvarinnar H2,
sem staðsett er á Langanesi. Ekki
gafst flugveður þangað norður,
en tjaðamenn nutu leiðsagnar
og fyrirgreiðslu Major Keefe yf
irmanns upplýsingarþjónustu
vallarins og voru þeim sýnd
helztu mannvirki á Kefiavíkur-
flugvelli, svo og radarstöðin við
Sandgerði Hl, eins og hún er
kölluð, en það er „the looking
eye“, sjónaugað, fyrir varnir norð
ur-Atlantshafsríkjanna hér á
landi.
Heimsóknin í H1 var mjög
fróðleg og skemmtileg og sýnir,
að varla nokkur farkostur getur
hreyft sig í tuga mílna fjarlægð
frá landinu eða yfir því, án þess
að þetta sjónauga fylgist með
honum.
Fréttamenn komust að raun
um, að starf radarstöðvarinnar á
Langanesi, er mjög þýðingar-
mikið og er vart hægt að gera
sér grein fyrir hvernig radar-
kerfi Nato-stöðvarinnar á íslandi
vinnur fyrr en kostur hefur gef-
izt á að heimsækja Langanesstöð
ina. Þess má geta að hinar full-
komnu radarstöðvar vamarliðs-
ins hér á landi veita mjög þýð-
Menntaslióla-
bekkur á ísafirði
ISAFIRÐI, 1. sept. — Ákveðið
hefir verið að starfrækja n. k.
vetur við Gagnfræðaskólann á
Isafirði framhaldsdeild með
námsefni 1. bekkjar menntaskóla.
— Menntamálaráðherra hefir
heimilað starfrækslu deildarinn-
ar og mun ríkið væntanlega
greiða hlutfallslegan kostnað við
kennsluna. Deildin er enn ekki
fullskipuð, en umsóknir þurfa að
berast hið fyrsta. Menntaskólinn
á Akureyri hefir lofað að taka
gild próf frá þessari deild, ef
fylgt verður námsefni samsvar-
andi deildar í M. A.
Á árunum 1949—52 starfaði
slik deild við gagnfræðaskól-
axm, en þá fékkst ekki heimild
til starfrækslunnar áfram. Á sl.
Alþingi fluttu þingmenn Vest-
fjarðakjördæmis frv. til laga um
stofnun menntaskóla fyrir Vest-
firði með aðsetri á ísafirði. Frv.
var ekki afgreitt, en væntanlega
verður þessu máli haldið vak-
andi á næsta þingL GK.
ingarmiklar upplýsingar fyrir al
mennt flug yfir Norður-Atlants.
hafi, enda hafa þær yfir að ráða
fullkomnustu tækjum sem völ er
á, til að geta leyst það starf af
hendi.
f gærkvöldi var lokið keppni
í 117 greinum á Olympíuleikun-
um og skiptust verðlaunapening
ar þá milli þátttökuþjóða sem
hér segir;
Gull Silfur Bronz
Bandarikin 32 15 15
Rússland 29 19 19
Þýzkaland 10 19 11
Ítalía 10 8 6
Tyrkland 7 2 0
Ástralía 6 7 6
Ungverjaland 4 7 5
Pólland 3 5 10
Bretland 3 4 10
Danmörk 2 2 1
Rúmenía 2 1 4
Tékkóslóvakía 2 1 3
Nýja Sjáland 2 0 0
Búlgaría 1 3 2
Svíþjóð 1 3 2
Austurríki 1 1 0
Grikkland 1 0 0
Noregur 1 0 0
Japan 0 5 4
Frakkland 0 2 2
Belgía 0 2 1
Sviss 0 2 1
Holland 0 1 3
Persía 0 1 3
Suður-Afrika 0 1 2
Arabíuýíðv. 0 1 1
Formósa 0 1 0
Ghana 0 1 0
Kanada 0 1 0
Portugal 0 1 0
Singapore 0 1 0
Finnland 0 0 3
Argentína 0 0 2
Vestur Indíur 0 0 2
Brasilía 0 0 1
írak 0 0 1
Júgóslavía 0 0 1
Mexikó 0 0 1
Pakistan 0 0 1
Krúsjeff heldur til
New York
MOSKVU, 8. sept. —
— Nikita Krúsjeff ræddi í
IV2 klst. við bandaríska sendi-
herrann Llewellyn Thompson
í dag, skv. beiðni hins síðar-
nefnda, en þeir áttu allhvöss
orðaskipti í veizlu í Kreml í
gærkvöldi. — Skv. ummælum
Thompsons eftir fundinn,
ræddu þeir m. a. um flug-
mennina tvo af RB-47 vélinni
bandarísku, sem skotin var
niður af Rússum 1. júlí sl. —
Á það er bent, að Krúsjeff
mun halda áleiðis til New
York um helgina, til að sækja
Allsherjarþingið — en Eisen-
hower forseti sagði í gær, að
eitt af skilyrðunum fyrir því,
að hann gæti rætt við Krús-
jeff vestra, væri það að flug-
menn þessir yrðu látnir laus-
ir. — Að skoðun fréttaritara
hefir ekki orðið árangur af
fundi Thompsons og Krús-
jeffs í þessu efni.
Mikið föruneyti
Krúsjeff heldur ekki einn
síns liðs til New York. Banda-
ríska sendiráðið gaf í dag vega-
bréfsáritanir fyrir fylgdarlið
hans, 138 manns, þ. á. m. eru
t. d. ritstjórar „Pravda“ og
„Isvestia“, og að auki 32 full-
trúa á Allsherjarþingið — og
nær 200 manna skipshöfn á
„Baltika", sem flytur allt liðið
vestur um haf.
Ar „Skipunin er: —
Skjótið!“
í fyrrnefndri veizlu í gær-
kvöldi, sagði Krúsjeff m. a. að
Rússar hefðu vitneskju um „nýja
flugógnun" Atlantshóifsbandalags
ins — það hygðist senda flugvél
í næsta mánuði yfir Svartahafið.
„En við erum viðbúnir,“ sagði
Krúsjeff, „og skipunin er: Skjót-
ið hana niður!“ — Spurði þá
Thompson, hvort Krúsjeff ætti
virkilega við það, að sérhver er-
lend flugvél, sem flygi yfir
Svartahaf, yrði skotin niður —
og tók forsætisráðherrann sig þá
á: „Nei, nei, ég á við, ef farið
er yfir umráðasvæði okkar."
Glatt á hjalla
Urðu talsverð orðaskipti
milli þeirra í þessu sambandi, og
ræddi Krúsjeff sífellt um flug-
vélamar U-2 og RB47, sem Rúss-
ar hafa skotið niður sem njósna-
Á ÁTTUNDA tímanum í gær-
kvöldi varð það slys að tveggja
ára gamall drengur, Hróbjartur
Ágústsson, féll út um glugga af
þriðju hæð.
Hróbjartur er sonur Ágústar
Arasonar, Leifsgötu 10. Féll
hann út um gluggann á íbúð for-
eldra sinna, sem búa á þriðju
hæð og ofan í garðinn. Yar þetta
mikið fall, því hár kjallari er
undir húsinu.
Drengurinn var fluttur á Slysa
varðstofuna og þaðan á Landa-
kotsspítala. Meiðsli hans reynd-
ust þó minni en við hefði mátt
búast, því hann slapp með lær-
brot.
Yfirburðasigur
— Óvænt úrslit
Einkaskeyti frá Atla Seinars-
syni: — RÓM, 8. sept.: —
Mesti yfirburðarsigur Olym-
píuleikanna var unnin í dag
af rúmenzku stúlkunni I. Bal-
as, er hún vann hástökk
kvenna með 1,85 m, sem er
aðeins sentimetra lægra en
Olympíumetið. Er Balas var
orðin ein eftir í keppninni var
hækkað fjórum sinnum fyrir
hana eina.
Óvæntasti sigur Olympíu-
leikanna í dag var sigur Rúss
ans Cybulenko í spjótkastinu
Pólverjinn Sidlo hafði sett
Olympíumet í undankeppn-
inni, en komst samt ekki í sex
manna úrslitin.
Sigur Bolotnikov í 10.000 m
hlaupinu var glæsilegastur og
var hanan ákaft hylltur, er
hann hljóp heilan hring á vell
inum, eftir hlaupið.
flugvélar — en Thompson reyndi
að komast hjá háværum deilum
og bað Krúsjeff að lokum að
horfa „fremur fram en aftur“. —-
Lét þá forsætisráðherrann skjót-
lega fylla glösin af freyðandi
kampavíni — og skáluðu menn
nú í vinsemd. — Glatt var ann-
ars á hjalla í veizlu þessari.
Drengurinn litli var ekki sá
eini sem datt úr talsverðri hæð í
gær. Sjúkrabíllinn flutti þrjá
aðra á Slysavarðstofuna eftir falL
Um morguninn datt Eyþór Bolla
son ofan af vinnupalli við Kassa
gerðina og skrámaðist á höndum
og fótum. Og um kl. hálf sjö
datt Júlíus Gíslason ofan af skúr
þaki í Hafnarstræti og kvartaði
hann um verk í baki og Kristinn
Sveinbjarnarson datt, er hann
var að klifra.
— Kongó
Frh. af bls. 1
kváðu ekki komið að honum.
Þingforseti skar svo úr um það,
að beðið skyldi eftir Bomboko
utanríkisráðherra, sem var næst-
ur á mælendaskrá — og frest-
aði fundi.
* KVENMAÐUK „VIÐ
STÝRIГ?
Loks kom Bomboko og sagði
hann m. a. í ræðu sinni, að
Kongó hefði losað sig úr greip-
um eins herrans — aðeins til
þess að ganga í greipar annars.
Fullyrti hann, að það væri
kvenmaður nokkur, frú Andree
Blouin, sem raunverlega héldi
um stjórntaumana — hún skrif-
aði ræður í nafni forsætisráð-
herrans og pantaði flugvélar og
flutningabíla frá Sovétríkjunum
— án þess að sjálfur forsetinn
hefði einu sinni fengið vitneskju
um það. — Bomboko kvaðst hafa
staðið að brottvikningu Lum-
umba vegna þess, að algert
stjórnleysi hefði raunverulega
ríkt í landinu — en það væri
hættulegast af öllu, að erlendar
þjóðir sannfærðust um, að
Kongómenn gætu ekki stjórnað
sér sjálfir.
með nær 140 manna „hirð" um sig
(Reuter)
Tveggja ára drengur féll
út um glugga á 3. hœð
í NA /5 hnútar \ vf S\/50hnútar X Snjókoma p Oót V SJcúrir ÍC Þrumur W.:ti Kutíaski! Hihski! Ht Ha9 Lœq9
I Nú keppast eiginlega þrjár
S lægðir um veðrið hér á landi.
| Ein er yfir Grænlandshafi,
i kyrrstæð og kraftlítil orðin.
\ önnur (990 mb) er um 600
S km suður af Ingólfshöfða og
s hreyfist norður eftir með mikl
| um hraða. Má búast við að
S hún valdi snöggum veður-
S breytingum á Austurlandi og
J mikilli rigningu. Þriðja lægð-
; in (980 mb) er suðvestur af
S Hvarfi á Grænlandi. Hún er
S kröftug og stefnir hingað, en
) á langa leið fyrir höndum enn
S Þá.
S Yfirleitt eru hlýindi hér í
'i nágrannalöndunum, víðast 17
^ stig á meginlandinu, 14 í Fær
s eyjum, 11 í Reykjavík og 14
) í Gander á Nýfundnalandi.
Veðurhorfur kl. 22 í gær- ^
kvöldi: s
SV-land og Faxaflói, SV- i
mið og Faxaflóamið: SV- |
stinningskaldi og skúrir en s
bjart á milli fram eftir morg- S
undeginum, allhvass SA og !
rigning annað kvöld. ^
Breiðafjörður og Vestfirðir, s
Brelðafj.mið og Vestfj.mið: )
Breytileg átt, skúrir en bjart ■
á milli. (
Norðurland til Austfjarða, S
Norðurmið til Austfj.miða: !
Breytileg átt og rigning í nótt, ^
SV stinningskaldi og rigning s
í nótt, SV stinningskaldi og )
léttskýjað á morgun. ^
SA-land og SA-mið: Léttir (
til með allhvassri vestan átt S
í nótt, SV-kaldi og skúrir á )
morgun. (
— ★ —
Eftir þingfundinn sagði Bom-
boko, að hann sæti enn í ríkis-
stjórninni — en frétzt hafði, að
Lumumba hefði rekið hann.
Bomboko kvað lögreglumenn
tvisvar hafa ráðizt inn í íbúð
sína, án minnstu heimildar, en
þegar hann mætti ekki á réttum
tíma til þingfundar í dag, var
talið að hann hefði flúið und-
an mönnum Lumumba, sem
hefðu átt að handtaka hann.
Lumumba svaraði utanríkis-
ráðherra sínum með því að lýsa
hann sekan um landráðastarf-
semi — hann hefði borið ábyrgð
á því, að Belgir hófu íhlutun
sína í Kongó. Ásökunum forsæt-
isráðherrans var tekið með mikl-
um mótmælahrópum í þingsaln-
um, og var greinilegt, að flestir
öldungadeildarmenn voru hon-
um fremur andsnúnir. Þeir
greiddu honum hins vegar at-
kvæði síðar, sem fyrr segir —
eftir að þingsalurinn fylltist af
hermönnum.
— ★ —
Það var upplýst í kvöld, að
herstjórn S. þ. hefði látið loka
öllum flugvöllum í Katanga fyr-
ir öllum nema flutningavélum
samtakanna. Stjórnin í Katanga
og belgiski ræðismaðurinn hafa
mótmælt þessum aðgerðum, en
S. þ. hafa ekki gefið neina skýr-
ingu. Margir halda, að þetta
standi í sambandi við það, að í
gær kom flugvéi frá Beigíu til
Elísabethviile, hlaðin níu lestum
af vopnum og skotfærum.