Morgunblaðið - 09.09.1960, Side 23
Föstudagur 9. sept. 1960
MORGVNBLAÐIÐ
23
Wilma Rudolph vin
sælasti keppandinn
Heimsmet í 4x100 m boðhlaupi kvenna
1 MILL.IRIÐL.I 4x100 metra boð-
hlaups kvenna, sem íram fór í
fyrradag, kom í ljós að banda-
ríska sveitin var í sér flokki,
enda setti hún heimsmet, 44,4
sek.
í úrslitunum, sem fram fóru
í gser, varð það enn á ný létt fyrir
Vi'ilmu Rudolph, sem hefir unnið
mestar vinsældir kvennakepp-
enda Ólympíuleikanna, að
tryggja bandarísku sveitinni sig-
ur yfir þýzku sveitinni, sem var
feðal-keppinautur hennar.
Með léttum og hreinum hlaupa
stíl tryggði hún Bandarikjunum
og sér sjálfri um leið þriðju gull-
vevðlaunin. Hún tók við keflinu
nokkru á eftir þýzku stúlkunni,
sem hljóp lokasprettinn á móti
og var harður keppinautur. Hún
■hafði forustuna við fyrstu skipt-
inguna, en við aðra skiptinguna
hafði bandaríska sveitin unnið
upp forskotið. Við aðra skipting-
una misstu brezku stúlkurnar
keflið og voru þar með úr keppn
inni.
Við síðustu skiptinguna var
þýzka sveitin aftur fyrst, en
Jutte Heine gat ekki haldið for
skotinu og Wilma Rudolph brun-
aði fram úr henni og kom þrem
metrum á undan í mark.
Pólska sveitin hljóp einnig vei
og varð þriðja. Kom pólska stúlk-
an H. Richter tveim me’trum á
undan hinni frægu Irina Press
í mark.
Tímar þriggja fyrstu voru 44.5
I>ýzka sveitin hljóp mjög vel — 44.8 og 45.0 sek.
Fanfalegur lokasprettur
ur í 10 km hlaupi
Timinn á siðasta hring eins og
i spretthlaupi
10 km hlaupinu á Olympíu-
leikunum lauk með stórkostleg-
um Iokaspretti. Þegar bjallan
hringdi og gaf til kynna aS einn
hringur væri eflir, voru fjórir
menn fremstir í einum hóp,
Rússarnir Bolotinikov og Desj-
atsikov, Þjóðverjinn Grodotski
og Ástraliumaðurinn David
Power.
Um leið og bjallan glumdi tók
Rússinn Bolotnikov kipp og
geystist fram úr hinum. Hinir
reyndu að fylgja honum eftir og
hófst nú æðisgenginn enda-
sprettur.
En enginn hafði neitt við Rúss-
anum, sem hljóp þennan síðasta
og 25. hring sinn á ótrúlegum
túma, 57 sekúndum. En Þjóð-
verjinn Grodotski gerði sitt ýtr-
asta og þrátt fyrir lokasprett
Rússans kom hann aðeins 5 sek-
úndum á eftir honum í mark, og
Ástralíumaðurinn einni sekúndu
þar á eftir.
Tími Rússans var 28,39,6, sem
er aðeins 1,8 sek. lakara en heims
metið en 13,4 sek. betri tími
en hið gamla heimsmet, er Rúss.
inn Kuts setti í Melbourne 1956.
Skiptingar í forustu.
Bolotnikov tók forustuna
öllu hlaupinu var stöðugt að
breytast röð keppendanna. Þeg-
ar búið var að hlaupa 1500 m
tók Bolotnikov fjörkipp og hljóp
fram úr forustuhópnum. En
Marokkómaðurinn fylgdi honum
einn fast eftir. Þó leið ekki á
löngu þar til hinir hlaupararnir
voru komnir samhliða og nú
undir forustu Ungverjans Ihar-
os.
Þegar fjórir hringir voru eft-
ir fór að draga til úslita. Þá jók
Ástalíumaðurinn Power ferðina
og aðeins þrír hlauparar fylgdu
honum eftir. Bolotnikov, Grod-
otski og Desjatjakov. Þessir
fjórir skutu nú hinum hlaupur-
unum alllangt aftur fyrir sig.
Einbýlishús
7 herb. með húsgögnum, á
j fallegum stað við sjóinn, til
leigu, frá 1. okt. til 14. maí.
Tilboð merkt: „906“, sendist
afgr. Mbl. hið fyrsta.
Þriðja síðasta hringinn hafði
Grodotski forustuna. Þeir hlupu
næst síðasta hringinn á 66 sek-
úndum og síðasta hringinn hófst
lokaspretturinn og fór Rússinn
hann á þeim fáheyrða tíma 57
sekúndum.
Glíma keppenda og
stjórnenda.
Eftir að fremstu hlaupararnir
komust í mark hófst hinn venju
legi ruglingur við markið. Sum-
ir lökustu hlaupararnir voru
tveimur hringum á eftir og stjórn
endur hlaupsins rugluðst í hring
ferðum þeirra. Glíma hófst milli
hlaupara, sem hættu hlaupi og
sögðust búnir og dómara, sem
héldu því fram að þeir ættu einn
hring eftir. Orsakaði þetta há-
vaða og læti bæði á leikvangin-
um og áhorfendapöllunum.
Sýniiiii á eftir-
*/ 4?
prentnnum
ÍSAFIRÐI, 7. sept.: —Sl. sunnu
dag var opnuð hér í bæ sýning
á málverkaeftirprentunum Helga
fells og ennfremur nokkrum
málverkum eftir Jóhannes S.
Kjarval, bæði eldri og nýrri mál
verkum. Sýning þessi er á veg-
um bókaverzlunar Jónasar Tóm
assonar hér í bæ, sem um þess-
1 ar mundir er 40 ára og hefur
þess verið getið í fréttum blaðs-
ins fyrr.
Björn Th. Bjömsson, listfræð-
ingur sá um uppsetningu mál-
verkanna og á sunnudagskvöld-
ið hélt hann fyrirlestur um
íslenzka myndlist. Hóf hann að
ræða um Sigurð Guðmundsson,
málara, og rakti síðan þróun ís-
lenzkrar myndlistar til dagsins
í dag. Jafnframt skýrði hann
— Landbúnaðar-
nefnd
Frh. af bls. 1
Reykjavíkur um síðir, meira en
tveimur sólarhringum of seint,
sagði hann: „Ég hef barizt í fjór
um styrjöldum. Þetta var sú
fimrnta!"
Gallar á dreifingarkerfi
Nefndin athugaði skýrslur um
málefni, sem lögð verða fyrir
næsta þing Evrópuráðsins, en
það verður haldið í Strasbourg
(Strassburg) dagana 21.—30.
september. Meðal þeirra var ein
um fiskimál Evrópu, sem Rann-
veig Þorsteinsdóttir hefur tekið
saman. Þar kemur m. a. fram, að
gallar á dreifingarkerfi margra
Evrópuríkja hindra meiri sölu
fiskafurða í álfunni. Þegar fisk
urinn kemst loks á markað í sum
um þessara landa, er hann orðinn
alltof dýr í verði. Skorað verður
á einstakar ríkisstjórnir að kippa
þessum málum í lag með ýmsu
móti, svo sem með því að greiða
fyrir fiskuppboðum, flutningi,
fiskafurða, gæðamati og svo-
kölluðum „köldum keðjum“, en
svo nefnast fullkomin dreifingar
kerfi á matvælum, sem fela í sér
frystigeymslur og frystivagna.
Auka á áróður fyrir aukinni fisk
neyzlu og samræma stefnu ein-
stakra ríkisstjórna í framleiðslu-
og viðskiptamálum.
ísland og Bretland
staðfestu sáttmálann
Nendarmenn éru „sannfærðir
um að ekki þurfi nema smávægi-
legar breytingar (á viðskipta-
málum) til þess að bæta aðstöðu
íslenzka fiskiðnaðarins“. Þá er
minnt á nauðsyn þess, að ríkin
staðfesti sáttmálann um fisk-
veiðar í Norðaustur-Atlantshafi,
sem öll Evrópuríkin hafa skrifað
undir, en hann hefur ekki enn
verið staðfestur á þingum þátt
tökuríkjanna, nema á íslandi og
Bretlandi.
Þá var rætt um það, hvort unnt
yrði að gera samning meðal ríkj-
anna um framleiðslu og sölu á
vínum, brenndum vínum og öli,
og gengið frá bráðabirgðaskýrslu
um skelfiskaklak í Evrópu. Þá var
rætt um allsherjarstefnumið Ev-
rópuríkja i landbúnaðarmálum
með sérstöku tilliti til þess,
■hversu dreifa megi afgangsfram-
leiðslu landbúnaðarafurða meðal
vanþróaðra þjóða, þar sem mat-
\æiaframleiðsla er of lítil.
Að lokum kváðust nefndar-
menn vona, að upplýsingar þær,
sem þeir öfluðu þér hér, megi
stuðla að aukinni samvinnu Ev-
rópuríkja, en það er höfuðverk-
efni Evrópuráðsins, — á sviði
landbúnaðar og fikveiða, en sú
samvinna leið aftur af sér aukna
varanlega velmegun allra þjóða,
sem lönd Norðurálfu byggja.
— Furðulaxinn
Framh. af bls. 24.
neðan við neðstu brúna á Skjálf
andafljóti og var hann lifandi
í netinu, er hann náðist. Var
annar lax í netinu í sama skipti,
en veiðimaðurinn var Theódór
Árnason á Rauðuskriðu.
ýmsar myndir eftir hina ýmsu
málara. Erindið var bæði fróð-
legt og skemmtilegt, enda er
Björn þekktur fyrir skemmti-
legan flutning.
Sýningin er í barnaskólahús-
inu og verður opin fram á næstu
helgi. —GK.
Soðinn niður.
f fréttatilkynningu Veiðimála-
stofnunarinnar um þennan lax
segir m. a."
„Eins og áður segir eru teg
undir Kyrrahafslax fimm tals-
ins og er bleiklaxinn einn þeirra.
Er hann minnstur vexti og
ýmsu öðru frábrugðinn þeim.
Hann verður að jafnaði um 50
cm. langur og tekur það hánn
2 ár að ná þeirri stærð. Heim-
kynni bleiklaxsins eru norður
hluti KyrrabafsB meðfram strönd
Asíu, allt frá Beringssundi að
aðlægum sjávarsvæðum að norð
an og suður að flóa Péturs mikla,
að honum meðtöldum, við strönd
Ameríku og Sacramento ánni.
Hann gengur upp í ár á Komm-
andor- Aleuta- og Kurileyjum, á
Sakahlin, Hokkadíó og norður
hluta Hondo. Hann finnst í mjög
litlum mæli í ánum Mackenzie,
Kolyma, Indigírka, Jana og Lena.
Bleiklaxinn verður alltaf kyn-
þroska hálfs annars árs. Hann
er farfiskur, lifir í sjó, hrygnir
í ám og deyr að hrygníngu lok-
inni, eins og allar tegundir Kyrra
hafslax gera. Bleiklaxinn geng-
ur í ár til hryngningar á tíma-
bilinu frá því í júní til október,
mismunandi frá einum stað til
annars. Bleiklaxinn er mjög
mikið veiddur í sjó og fer mest-
ur hluti feiðinnar til niðursuðu.
3 laxar komnir til rannsóknar
Það var Sigurður Pétur Björns
son, sparisjóðsstjóri á Húsavík,
sem gerði viðvart um fiskinn og
sá um að koma honum til rann-
sóknar og á hann þakkir sk’.lið
fyrir sinn góða þátt í því máli.
Þess má og geta að það var ein-
mitt Sigurður Pétur, sem bjarg-
aði Grímseyjarlaxinum, stærsta
laxi, sem veið6t hefur her á
landi svo vitað sé með vissu, frá
eyðileggingu á sínum tíma.
Frá því fréttin um þennan
merka lax kom fram, hafa Veiði
málastofnunni borizt til athug-
unar 2 aðrir bleiklaxar, sem báð
ir veiddust á stöng. Annan þeirra
veiddi Bjarni Ingimarsson, skip-
stjóri. í Vatnsdalsá í Húnavatns-
sýslu, 27. ágúst og hinn veiddi
Jón Jónsson, frá Ytra-Lóni, í
Miðfjarðará við Bakkaflóa, 28.
ágúst. Báðir þessir fiskar vory
rúml. 50 cm. að lengd. Það voru
Aðalbjörn Arngrímsson á Þórs-
höfn og Kjartan Sveinsson,
skjalavörður í Reykjavík, sem
komu fiskunum á framfæri.
Bleiklaxarnir munu verða rann
sakaðir ýtarlega með tilliti til
aldurs, vaxtar og fleiri atriða,
og mun síðar verða gerð frekari
grein fyrir þessu merkilega land
námi nýrrar fisktegundar hér á
landi.
Veiðimálastofnunin vill vin-
samlegast biðja þá, sem kynnu
að verða varir við einkennilega
fiska í veiðinni, að vigta þá og
mæla og taka hreistur af þeim.
(Hreistrið er tekið ofan við rák-
ina á miðjum fiskinum undir
afturhluta bakuggans), og senda
Veiðimálastofnuninni, Tjarnar-
götu 10, Reykjavík, ásamt upp-
lýsingum um veiðistað og tima
og sömuleiðis lýsingu á fiskin-
um“.
Berjaspretta
afbragðs góð
ISAFIRÐI, 1. sept. — Allir ís-
firzku bátamir, sem fóru til síld-
veiða í sumar, eru nú komnir
heim. Afli var mjög misjafn.
Mestan afla hafði Guðbjörg,
skipstjóri Asgeir Guðbjartsson,
með 5438 mál og tunnur. Er
hásetahlutur kr. 29 þúsund.
Berjaspretta hefir verið með
afbrigðum góð í sumar og verð-
ur það gott búsílag, sem margar
húsmæður fá nú í sultu og saft.
GK.
Vélvirkjameistari
með margra ára yfirmannsþjálfun í járnsmíða- og
bifreiðaiðnaði, óskar eftir atvinnutilboði. — Upp-
lýsingar í síma 22753 næstu daga.
Héraðsvötn og Vatnsdalsá.
Loks má geta þess. að blað-
inu er kunnugt um að Bjarni
Ingimarsson dró fyrir nokkrum
dögum bleiklax norður í Vatns-
dalsá og var hann geymdur í
hraðfrystihúsinu á Kirkjusandi,
þar sem fræðimenn skoðuðu
hann. Og auk þess veiddist einn
í Héraðsvötnum, eins og sagt var
frá í blaðinu í gær.
KABUL, Afganistan, 8. sept. —
Allmiklar olíulindir hafa fundizt
í norðanverðu landinu, um 50
mílur frá rússnesku landamær-
unum.
Undirritaður þakkar sjötíufimm ára þátttöku 5/9
1960.
Andrés Johnson.
Innilega þakka ég öllum vinum og vandamönnum, sem
heiðruðu mig með gjöfum og árnaðaróskum á sjötugs
éifmæli mínu 1. september.
Ari Magnússon
Ég þakka kærlega öllum, sem sýndu mér fagurt
hugarþel á sextugs afmæli mínu.
Arngrímur Björnsson
Þeim, sem glöddu mig í tilefni af 75 ára afmælinu
28. ágúst sL með skeytum, blómum, gjöfum og slepju-
lausum vinahótum, þakka ég hjartanlega.
Drottinn blessi ykkur ölll.
SIG. ARNG RÍMSSON
ÓLAFUR ÞORLEIFSSON
lézt að heimili sínu Þorkötlustöðum, Grindavík, 7. sept.
Ragnheiður Jónsdóttir og börn hins látna
Sonur minn og faðir okkar
TRVGGVI MAGNCSSON
listmálari,
lézt aðfaranótt 8. september.
Fyrir hönd systkina og annarra vandamanna.
Anna Eymundsdóttir,
Þórdís Tryggvadóttir, Sturla Tryggvason.
GUDLAUG VIGFÚSIKÍTTIR
frá Geldingalæk,
andaðist að kvöldi 7. september í Landakotsspítala.
F. h. vandamanna,
Nikulás Einarssonar, Pétur Einarsson.