Morgunblaðið - 13.09.1960, Side 6
MORCVNBLAÐ1B
Þriðjudagur 13. sept. 1960
Á LAUGARDAG efndi samfylk
ing þeirra, er vilja að varnarlið
hverfi úr landi, til útisamkomu
á Brúsastöðum. Samkoman haíði
verið auglýst lengur og ræki-
legar en dæmi þekkjast til hér
á landi, og mun kostnaður við
hvern mótsgesta hafa L'umið a.
m. k. 600 krónum.
Á föstudag og fyrri hluta laug
ardags sátu um 250 manns á
fundi í veitingaskála Valhallar
og gengu frá „ávarpi til ísiend
inga“. Er þar andmælt dvöi
hins bandaríska varnarliðs, þar
sem hún sé siðferði þj^'iarinnar
hættuleg. enda sjáist hennar
merki í „aukinni lausur.g, tjár-
málaspillingu og málskemmd-
um“. Baráttan gegn hinu síðast-
nefnda hófst samdægurs á síðum
Þjóðviljans, þar sem hagyrðingur
stuðlar v á móti w í kvæðis-
korni eftir sig.
„Stendur í brekku . . . .“
Samkoman skyldi hefjast kl.
3, en bíða varð alllengi eftir því,
að fína fólkið í Valhöll lyki mat
sínum. Landvættir voru fund-
armönnum fúlar og jus i þá
regni. Stóðu Brúsaskeggir 1
brekku og biðu foringja sinna
svo lengi. að sumir óttuðust að
þeir yrðu að mosahrúgu eins og
karlinn forðum. Ekki mættu
fleiri til fundar en rúm.ega 800
manns, og munu það hafa orðið
kommúnistum og fylgdarsvein-
um þeirra allsár vonbrigði. Sam-
koman var haldin við kvos eina
litla og var skjaldar.nerkj uni
kaupstaða og héraða raðað um-
hverfis. Tilætlunin var að menn
skipuðu sér við merkin. en þau
höfðu verið staðsett það langt
utan hinna endanlegu fundar-
marka, að slíkt þótti ekki íært.
Sýnir það með öðru, að færri
komu til Brúsastaða en búizt
hafði verið við
Fundurinn fór sæmilega
fram, þótt skipulag væri nokk-
uð í handskolum. T. d. var söng-
fólkið látið syrgja gegn vindi,
svo að lítið heyrðist til þess. Að-
alræður héldu Sverrir Kristj-
ánsson og Gils Guðmundsson, en
auk þess var lesið upp og ávörp
flutt. Að lokum samþykkti fund
arfólk fyrrgreint ávarp og stofn-
aði með sér samtök, sem vinna
eiga að framgangi hugðarefna
þess. Er ráðgert, að talað verði
við alla íslenzka kjósendur um
varnarmál og þeir beðnir að
skrifa undir skjal þess efnis, að
þeir séu á sama máli og Brúsa-
staðafólk. >á er fyrirhugað að
ganga í vor um Suðumes.
Spjöll unnin.
Þau spjöll voru unnin á Þing-
völlum þennan dag. að málað
var efst á Almannagjárvegg og
hurð í Valhöll orðin „Ami go
home“ (Bandaríkjamaður farðu
heim), en þetta er vígorð í kom-
múnista í löndum, þar sem
bandarískt lið dvelst. Þykir
mönnum, að lítil virðing fyrir
helgi staðarins felist í þessum
spellvirkjum.
Á sunnudagskvöld hélt Brúsa-
staðaliðið útifund I Reykjavík
niðri við Tjörn. Kom lið kom-
múnista þar saman og slangur
af forvitnu fólki. Mjög greir.i-
legt var, hve fundur þessi var
miklu verr sóttur en fundur
sömu aðilja í sumar að aflokinni
gönguferðinni um Suðurnes. —
Fimm _áhugamenn um varnarmál
fluttu þar ávörp, en Bjöm Guð-
mundsson flutti „statistik" um
giftingar íslenzkra kvenna og
bandarískra ríkisborgara. — Að
lokum buðu foringjar öllum til
veizlu í Lido.
Hver borgar brúsann?
Óyggjandi fregnir eru fyrir
því að kommúnistar hafi boðið
fólki í miörgum bæjum ferðir til
Brúsastaða fram og til baka, því
að kostnaðarlausu. , Stingur það
óneitanlega í stúf við yfirlýsingu
í forystugrein Þjóðviljans á
sunnudaginn, að þar hafi farið
fólk, sem lagt hefði á sig mikið
erfiði og kostnað af „brennandi
áhuga á sjálfstæðismáium þjóð-
arinnar". Síðar í sömu forystu-
grein er talað af vandlætingu um
fólk, sem ferðist á kostnað ríkis-
sjóðs. En þeir, sem á máli komm-
únista hafa „brennandi áhuga á
sjálfstæðismálum þjóðarinnar“
skyldu þó aldrei ferðast á kostn-
að erlends ríkisvalds?
SYNDIÐ 200 METRANA
/ ísbirninum í gœrdag
UM HELGINA komu hingað á
vegum Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna tveir Englend-
ingar, sem eiga að ferðast milli
hraðfrystihúsa S.H. og kenna
starfsliði þeirra flökun þess
flatfisks, sem nú berst á land
með tilkomu dragnótaveið-
anna.
Mennirnir tóku báðir til
starfa í frystihúsi ísbjarnarins
hf. í gærmorgun. En þegar
ljósmyndari Mbl. kom þar upp
úr hádeginu var annar þeirra
farinn suður til Keflavíkur, en
á miðri myndinni sézt hvar
hinn, John Pollard, leiðbeinir
tveim flökurum í ísbirninum.
Báðir hafa Englendingar
þessir mikla æfingu í starfi
sínu, enda hafa þeir starfað
um árabil hjá fyrirtækinu
Brekkes Ltd. í Hull. (Um dag-
inn var einmitt samtal við
framkvæmdastj. þess hér I
blaðinu.
Gert er ráð fyrir að þessir
menn starfi á vegum S. H. um
a. m. k. tveggja mánaða skeið
og munu þeir aðallega kenna
llökun flatfisks eins og fyrr
er sagt.
Þeir munu einnig kenna
flökun bolfisks eftir því sem
nauðsyn krefur. Eru bundnar
miklar vonir við starfsemi
þessara manna hér.
Hæsta vinningar
Happdrættis
Háskólans
LAUGARDAGINN 10. septem-
ber var dregið í 9. flokki Happ-
drættis Háskóla íslands. Dregn-
ir voru 1,105 vinningar að fjár-
hæð 1,405,000 krónur.
Hæsti vinningurinn, 100.000
krónur kom á fjórðungsmiða nr.
29,173. Tveir fjórðungsmiðar
voru seldir í Borgar.ieu einn
fjórðungur í Grafarnesi og einn
í umboði Guðrúnar Ólafsdóttur
og Jóns St. Arnórssonar Banka-
stræti 11 í Reykjavík.
50,000 krónur komu einnig á
fjórðúngsmiða númer 23,123.
Tveir fjórðungar voru seldir í
umboði Arndísar Þorvaldsdótt-
ur, Vesturgötu 10, Reykjavík. —
Einn fjórðungur á Þórshöfn og
annar í Hnífsdal.
10,000 krónur:
4,605 — 7520 — 23232 — 32061
— 39980 — 40139 — 43788 —
50625.
5,000 krónur:
1812 — 2095 — 2999 — 4998 —
13093 — 16275 — 18322 — 20247
— 23218 — 29991 — 28772 —
29172 — 29174 — 34359 — 35126
— 36598 — 36761 — 41716 —
45825 — 47898.
* Rimla fyrir opnu
gluggana
Um daginn var frá því skýrt í
fréttum að lítið barn hefði
dottið út um glugga á þriðju
hæð. Sem betur fer slasaðist
það minna en hefði getað orð
ið, slapp með lærbrot.
í þessu sambandi kom móð
ir nokkur að máli við Vel-
vakanda, til að koma á fram-
færi hvatningu til fólks sem
býr með börn á efri hæðum
húsa, um að setja rimla í opnu
gluggana. Þetta er ofur auð-
velt. Sjálf kvaðst kona þessi
hafa einn slíkan hættulegan
glugga. Hún fékk sér þrjár
koparstengur, eins og þær,
sem notaðir eru í klæðaskápa
og maður getur með lítilli
fyrirhöfn sett upp sjálfur, því
á endanum er útbúnaður til
þess. Úr því þurfti hún ekki
að óttast að bamið kynni að
detta út, þó það færi eitt upp
á loftið.
Slíkir rimlar virðast á mjög
fáum stöðum fyrir gluggum
húsa, hvort sem það nú staf-
ar af því að fó k býr ekki með
börn hátt uppi eða þá að það
tekur áhættuna. íbúðarblokk
irnar fara sífellt hækkandi,
komnar upp í 10 hæðir. Það
er vissulega óhugnanlegt að
hafa börn sín svo hátt uppi,
nema tryggilega sér frá glugg
um gengið, annað hvort að
alls ekki sé hægt að opna þá
eða rimlar eða grindur séu
fyrir þeim sem opnast. Börn
eru of fljót að klifra upp í
glugga til þess að öruggt sé að
treysta því að hægt sé að gæta
þeirra.
• Þriðjungur til
fæðukaupa
í síðustu viku var Velvak-
andi að velta því fyrir sér
hvort við fslendingar notuð-
um meiri eða minni hluta af
tekjum okkar til fæðukaupa
FERDIIM AND
~X~ I nrjr/nnr
=-~
CopyrígV.I P. I. B. Bo* 6 Copenhogen
en aðrar þjóðir, sem samkv.
skýrsiu sameinuðu þjóðanna
nota allt upp í 55% til þeirra
hluta. *
Nú hefir húsmóðir ein sent
mér blöð úr heimil.\?dagbók-
inni sinni, þar sein skráð eru
útgjöldin í tvær vikur Þar er
um fjögurra manna tjó’skyldu.
að ræða, þ. e. a. s., þriðja
barnið hefur nýlega bætzt við
en er ekki enn farið pð borða.
Og niðurstaðan er sú að fjöl-
skyldan notar um þriðjung-
inn af tekjunum til matar-
kaupa. Af reikningi snnarrar
vikunnar sé ég að olia er tai-
in með, en tóbak er aftur á
móti þar fyrir utan. Þriðj-
ungur af tekjunum er heldur
meira en Danir nota til þess-
•ara þarfa, og svipað eða að
eins ívið meira en flestar
þjóðir í Norður-Evrópu, sem
nota til jafnaðar 28—32% af
tekjum sínum í mat. Finnar
eru aftur á móti lángt fyrír
ofan þetta, þeir eyða 41% af
tekjunum til fæðu, og ýmsar
fjarlægari þjóðir ennþá
meira.
Þetta eina dæmi, sem að
eins er tekið í tvær vikur
sannar auðvitað ekkert, en
búreikningurinn er fróðlegur
til athuganar. Tekjurnar virð
ast eitthvað mismunandi, aðra
vikuna kr. 1.316,20, hina
1.773.76 og þessar tvær vikur
kostar maturinn 507,20 og
564,95, og segir konan að fæð-
iskostnaður sé kr. 300—700 á
viku. Fjölskyldan virðist
borða kjöt 2—3 svar sinnum
í viku, annars fisk, mjólkur-
matur er um 65 kr. útgjóld
á viku, og hreinlætisvörur
26 krónur. Aðrir liðir smærri.
Fundur á
Brúsastöðum