Morgunblaðið - 13.09.1960, Side 10
10
MORGVTSBLAÐIÐ
Þriðjudagur 13. sept. 1960
Guðrún
Pálma-
dóttir
írá Æsustöðum
. j
— mnming
HINN 21. júli síðastliðinn and-
aðist merkiskonan Guðrún
Pálmadóttii á Blönduósi, 82 ára
að aldri.
Þessi merka og vinsæia kona,
var að mörgu iayti svo sérstæð
með vinsældir fórnfýsi og per-
sónuleika, að flestum er kynnf-
ust henni, verður hún minnis-
stæð, því vildi ég flytja henrn
látinni nokkur kveðjuorð.
Guðrún var fædd að Gauts-
dal í Bólstaðarhlíðarh-eppi 4.
jan. 1878. Foreldrar voru: Sig-
ríður Gísladóttir frá Eyvindar-
stöðum í Blöndudal, sem var ein
af mörgum þekktum systkinum
þaðan, og Pálmi Sigurðsson,
bóndi að Valdarási í Víðidai.
Þegar Guðrún var 18 ára flutt
ist hún með foreidrum sínum að
Æsustöðum í Langadai, þar sem
foreldrar hennar bjuggu siðan
til 1914.
Æsustaðir er hlýleg og falleg
jörð í einu veðursælasta byggð-
arlagi sýslunnar það vofu því
nokkur umskipti að fara þangað
frá Gautsdal þar sem kaldara
næddi oft og færri bar að garði,
því Æsustaðir eru við þjóðbraut.
Á Æsustöðum átti Guðrún svo
samfellt heimili í 24 ár og bar
þar að höndum gleði og sorgir,
eins og oft vefst saman, á lífs-
leiðinni.
Á meðan Pálmi og börn nans
borough, er ekki þota, eins og
svo oft áður. Þetta er fremur
lítil flugvél knúin tveimur
hverfilhreyflum, AVRO 748
frá Hawker Siddley verfcstmiðj
unum — og Bretar gera sér
nú góðar vonir um að ein-
mitt þessi flugvél verði arf-
taki DC-3.
Margar verksmiðjur hafa
spreytt sig á þeirri raun að
framleiða frambærilegan arf-
taka DC-3, en ekki tekizt hing
að til. Þess vegna hefur DC-3
orðið langlífari en allar aðrar
tegundir. Tuttugu og fimm ár
\ eru liðin síðan fyrstu vélarn-
ar þeirrar tegundar voru fram
leiddar og enn þann dag í dag
gegna þær þýðingarmiklu hlut
verki á stuttum flugleiðum um
allan heim, Engin flugvél hef-
r þar
ur reynzt hagkvaemari í rekstri
og öruggari á stuttum vega-
*“ lengdum, enda framleiddu
Douglasverksmiðjurnar þús-
undir DC-3 og til skamms tíma
voru DC-3 vélar notaðar meira
í farþegafluginu en nokkur
önnur flugvélategund.
Flugfélög um víða veröld
hafa sent fulltrúa sína hingað
til Farnborough að þessu sinni
til þess að skoða AVRO 748 og
einn þeirra, sem flugvélasýn-
inguna sótti m.a. í þeim til-
gangi að sjá þessa vél, var örn
Ó. Johnson, framkv.stj. Flug-
félags íslands.
— Það er af og frá að við
hugsum til þess að kaupa
þessa nýju flugvél á meðan
hún er óreynd Okkar stefna
hefur verið sú að láta reynslu
annarra skera úr um hæfni
nýrra flugvéla. Hins vegar
fylgjumst við vel með öllum
þeim tegundum, sem koma á
markaðinn og hugsanlegt er,
að leyst gæti DC-3 af hólmi.
Ég skoðaði þessa vél og ég
mun fylgjast vel með því
hvernig hún reynist, sagði
Örn.
AVRO 748 hefur verið aug-
lýst geysimikið. Allsherjar
augslýsingaherferð er hafin og
einkum er lögð áherzla á
hversu rammbyggð hún sé, en
einföld í smíði. „Við gerum
okkur grein fyrir því, að við
erum ekki þeir fyrstu, sem
framleiða arftaka DC-3“, segja
framleiðendur „en við höfum
lært af reynslu þeirra“.
Þessi nýja vél flaug ekki
fyrr en í sumar og enn hefur
hún ekki verið tekin í notkun
í farþegaflugi. Þetta er því í
fyrsta sinn að hún er á flug-
sýningu.
AVRO 748 tekur 44 farþega,
eða 4.5 tonn af flutningi. Hún
er með loftþrýstiútbúnaði eins
og allar nýjar farþegavélar,
bezta flughæð verður 20.000
fet (sama og Visrount) og með
alflughraðinn 426 km. Nota-
gildi hennar er bezt á 4—800
km. flugleiðum, en hún getur
flogið fullhlaðin alt að 1.500
km án þess að taka edsneyti.
Þessi nýja flugvél er knúin
tveimur Rolls-Royce hverfil-
hreyflum og er ætlað að notast
við stuttar og jafnvel ófull-
gerðar flugbrautir. Lendingar-
hraðinn er ekkf mikill og þeg-
ar hún var sýnd hér í dag
lenti hún í meðvindi en hafði
stöðvazt á nokkrum lengdum
sínum. Stélið er mikið og stýr
isflöturinn að sama skipi mik-
ill vegna hins litla lendingar-
hraða.
Fáar flugvélar hafa verið
jafnmikið á lofti hér í Farn-
borough og AVRO 748. Full-
trúar tuga flugfélaga hafa
skoðað hana og farið í stuttar
flugferðir. Og verður það e.t.
v. þessi rennilegi farkostur,
sem leysir DC-3 af hólrni
heima á íslandi? — h.j.h.
kominn arftaki
ráku búskap á Æsustöðum, var
það heimili mjög vel þekkt fyrir
frábæra gestrisni, alúð og hlý-
legar viðtökur þeirra er að garði
bar. Varð það eftirsóttur án-
ingar- og gististaður ferðamanna
einkum að vetrarlagi. því hvergi
þótti betra að koma með lúna og
svanga langferðahesta, en þang-
að. Varð heimilið því aikunnur
gististaður landpósta ug ferða
manna.
Systkini Guðrúnar voru 4,
öll glöð og hlý í viðmóti, með
fjölhæfa hæfileika og skemmti-
lega framkomu. Tveir bræður
hennar Jón og Gísli létust á
miðjum aldri, svo nú eru aðeins
eftir Jósefína húsfreyja í Holti á
Ásum og Sigurður Pái nason,
kaupmaður á Hvammsturgu, er
var fyrsti garðyrkjuráðunautur
í sýslunni, og hinn stóri triágarð
ur á Æsustöðum bar vitr.i um
brautryðjandastarf hans, fyrir
áratugum síðan, er siðar var
annazt um af þeim systkinum
er dvöldust þar lengur.
Árið 1903 giftist Guðrún Zop-
haníasi syni Einars Andréssona
frá Bólu, vel greindum og list-
fengum manni,. skáldmæltum og
vinsælum. En eftir aðeins 3 ára
sambúð andaðist hann, og var
það þungbær reynsla fyrir Guð-
rúnu að standa ein eftir með
tvo syni þeirra kornunga.
Þessi ungu hjón byrjuðu bú-
skap á Æsustöðum, sama ár og
þau giftu sig í sambýli viö for-
eldra hennar.
Eftir lát eiginmannsins hélt
Guðrún áfram oúi sínu á sama
stað til ársins 1921. Faðir henn-
ar andaðist 1914 Árið 1918 gift-
ist hún í annað sinn Benedikt
Benónýssyni og fluttust þau að
Bjarnastöðum í Þingi árið 1921.
Þau sli.tu samvistum nokkru síð-
ar. Hélt þó Guðrún búi sinu á-
fram til ársins 1928, að sonur
hennar Pálmi tÓK við jörðinni.
Hún eignaðist eigi börn er upp
komust í síðara hjónabandi, en
ól upp tvo fóstursyni er hún
gekk í móðurstað. þá Þ irbjörn
Ólafsson bílstjora hjá Lands-
bankanum og Sigurjón dónsson
á Stóru-Giljá.
Framh á bls. 17.
Hvað var verðmœti hlutanna úr
almennu innbúi, sem voru í sýningar-
giugga Málarans í Bankastrœti ?
Getraun þessi átti að vekja sérstaka athygli á, að verð-
mæti allra hluta nafa stórhækkað í verði síðustu mánuði.
Hún átti líka að minna á; að brunatryggingarupphæðin
þarf að vera í samræmi við verðmæti innbúsins. Margt
fólk hefur ekki gert sér þetta ljóst, fyrr en það hefur
misst eigur sínar í eldsvoða og hafið innkaup á ný fyrir
tryggingarupphæðina.
Verðlaun kr. 5.000 —
Getrauninn er lokið og var verðmæti hlutanna,
Samtals kr. 64.660.18
Enginn þátttakandi gat upp á þeirri upphæð nákvæm-
lega, en sá sem var næst þeirri upphæð fær verðlaunin
kr. 5.000.—