Morgunblaðið - 04.12.1960, Side 5
Sunnudagur 4. des. 196C
HtORCVNTtL 4Ð1Ð
5
hefð,^ mundum við tæplega
standa þeim svo fjarri í dag,
sem raun ber vitni. Þá væri
ástæða til að ætla, að sumum
hinna pólitísku óhappaverka,
sem við höfum orðið vitni að
tvo síðustu áratugi, hefði verið
afstýrt í tæka tíð.
Það leiðir af því sem ég hef
sagt ,að ég ætla listinni mikið
vald og mikla þýðingu í sam-
félaginu. Það er ekki fyrr en
á síðari árum, að ég hef kom-
izt að þessari niðurstöðu, og
það næstum því gegn vilja mín-
um. Því hún leggur óhemju á-
byrgð á herðar listamannsins.
Listin verður að vera óháð,
ekki aðeins ríkisvaldinu og
hinni pólitísku skipulagningu
og fjárhagslegum hagsmunum,
heldur einnig í sambandi við
prentun, gagnrýni og lesendur,
allt sem myndar opinbera skoð-
un. Og þetta er alls ekki auð-
velt í nútíma þjóðfélagi. Með
hverju árinu sem líður verður
erfiðara að viðhalda einstaklings
hugsjón lýðræðisins. Einnig í
þessu landi verðum við að berj-
ast gegn vaxandi tilhneigingu
til þeses að steypa allt í sama
mót, auk hinnar ört vaxandi
kaupsýslu, sem er bölvun listar-
innar í hinum vestræna heimi.
Það er napurt fyrir rihöfund að
verða aðeins eins konar jóla-
sveinn, sem verður árlega að
setja bókapakka sinn innan um
önnur leikföng, það sem hann
verður þegar gleymskunni að |
bráð. Og þegar einhver toll-
þjónn kemur djarfmannlega
fram á sjónarsviðið og krefst
þess, að bókmenntirnar séu and-
legt heilsumeðal til afslöppunar
og værðar, veit maður ekki hvort
heldur skal hlæja eða gráta.
Nytsemdarstefnan er einnig við
lýði hjá okkur.
Listamaður hefur ekki leyfi
til að gera samkomulag við þessi
niðurjöfnunaröfl, því það eru
ekki hvað sízt þau, sem við
eigum að berjast gegn. Maður
verður að segja við sjálfan sig,
að maður þjóni einhverju sem
er hafið yfir svo stundleg fyr-
irbæri, sem smán og framgang,
yfir hina hverfulu listdóma, yf-
ir hina breytilegu tízku, yfir
| óseðjandi kröfur lesenda, að
nokkru leyti um þjáningarlaus-
an skemmtilestur og að nokkru
leyti um andlega uppbyggingu
og siðrænar leiðbeiningar. Það
er óhjákvæmilegt að leggja á
sig erfiði til að tileinka sér list,
því það er ekki hlutverk listar-
innar að staðfesta fordóma og
venjuhugmyndir, heldur brjóta
þær niður. Hún leysir ekki
vandamál, heldur setur fram
vandamál. Hún getur heldur
ekki barizt fyrir trú á hjálp-
ræði ákveðinna trúarbragða eða
pólitískra kenninga, án þess að
loka augum og eyrun fyrir mik-
ilvægum hliðum raunveruleik-
ans. Listamaður er hvorki sálu-
sorgari, uppalandi eða spámað-
ur. Hann getur ekki sagt mÖnn-
um, hvað þeir eigi að hugsa,
hverju þeir eigi að trúa, eða
hvemig þeir eigi að lifa lífi
sínu. Hlutverk hans er að lifa
og lýsa samtíð sinni, vera vit-
und hennar og samvizka. Listin
er mynd mannsins af sjálfum
sér, og hvað verður um mann-
inn, ef hann er sleginn blindu,
ef hann stendur ekki stöðugt J
andspænis góðu og illu í sjálf- i
um sér? I
Ég sagði í upphafi, að hin <
miklu hugsjónahugtök væru að-
eins hluti af heild, að hugsjón-
in um manninn væri ein. Á
sama hátt er hægt að segja að
frelsið sé eitt. Ef marxisti held-
ur því fram við mig, að and-
legt frelsi sé ekki til staðar, -
þar sem frelsi frá neyð og ótta
og vanþekkingu sé ekki fyrir
Framhald á bls. 12.
"* *£* ’< "<
V - - ‘ ~
, <v's' V'
S •*.«***«* xc****^**-
MILLI SPJALDA ÞESSARAR BÓKAR getið þér rakið slóð
fornleifafræðinganna í heillandi frásögnum og töfrandi mynd-
um. Þessi bók er eins og ógleymanleg kvikmynd. Um leið og
þér lesið lýsingar af aragrúa spennandi augnablika í lífi forn-
leifafræðinganna, þegar þeir koma niður á löngu týnda fjár-
sjóði eða dýrgripi frá tímum horfinna kynslóða, getið þér einnig
skoðað úrvals Ijósmyndir af þeim fornmenjum og sögustöðum
sem sagt er frá. #
ÞÉR GANGIÐ um rústir Pompei-borgar og fylgist með bygg-
ingu pýramídanna miklu, skyggnizt inn í grafhýsi faraóanna og
skoðið musteri inkanna. Hér eru meira en 300 myndir, þar af
16 myndasíður í eðlilegum litum. Bókin er 360 blaðsíður, 17x23
cm og kostar kr. 380.00 innbundin.
SKOÐIÐ eintak af bókinni hjá bóksala yðar. Þér munuð sannfær-
ast um að þetta er ein fallegasta og eigulegasta gjafabók, sem
þér getið fengið til að gefa góðvini í jólagjöf.
Bókaforlag ODDS BJÖRNSSON