Morgunblaðið - 13.01.1961, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 13.01.1961, Blaðsíða 5
, Föstudagur 13. janúar 1961 MORGUNBLAÐIÐ 5 MENN 06 * = mi£FN/= MOSKVUBÚAR, sem eiga' að venjast vetrum með gnægð af mjúkum snjó, eru nú mjög gramir yfir hinu duttlungafulla veðurfari, sem % hefur verið í Moskvu það j sem af er þessum vetri. í stað hins mjúka hvíta i snævar, sem fallið hefur til jarðar með hæfilegu milli- bili og fært borgina í hvítan i hjúp, skiptast nú á slyddur, i rigningar og þoka. Veður- j stofur borgarinnar segja að j þetta hafi aðeins komið fyr-f ir þrisvar síðastliðin 75 ár. j Þetta veitir Moskvubúum þó ii enga huggun og þeir nöldra án afláts yfir veðurfarinu. Það eina sem er til að minna á hinn venjulega vet- ur eru útstillingar í glugg- um stórverzlananna. Þar er komið fyrir haugum af glitr- j andi bómull í kringum furu- tré. Rússar halda ekki jólin hátíðleg 24.—26. desember og gerðu það ekki heldur fyrir byltinguna. Það vegna mismunarins, sem er á Júlíanska- og tímatalinu og er aðfanga- dagskvöld í Rússlandi 7. jan. Eftir byltinguna reyndu rússnesku yfirvöldin að draga úr hátíðahöldum um jólin. En á miðjum þriðja tug aldarinnar, þegar unga kynslóðin virtist ekki lengur tengja hið skreytta jólatré við fæðingu Krists, var það innleitt aftur undir nafninu nýjárstré og sett upp á gamlárskvöld og kveikt á því þá. Á þessum tíma skiptast allir á gjöfum. Vandræðaleg- ir menn koma inn í hinar skreyttu verzlanir og spyrja afgreiðslufólkið hvort „henni“ myndi geðjast að þessari teg und ilmvatns. Kvenfólkið leitar í búðunum að hlutum, sem „honum“ myndi þykja gaman að eiga. í verzlunum heyrast ó- ánægjuraddir ef nýjustu lög- in eru ekki til á hljómplöt- um. í bókabúðunum er allt- af mjög mikil ös og eftir- spurn eftir bókum hefur aukizt svo mikið að bóka- verzlanirnar hafa sett upp litla söluturna víðsvegar á götum borgarinnar. Sú bók, sem mest eftirspurn var eft- ir í ár var nýútkomin, með fjórum leynilögreglusögum eftir Georges Simenon. Einn- ig var mjög mikil eftirspurn eftir bókinni „Tunglið og tí- eyringurinn", eftir Maug- ham. Nýlega var opnuð sérstæð verzlun í Moskvu, og selur hún eingöngu hluti handa fólki til þess að nota við giftingar. Einnig mun önnur ný stofnun vera opnuð í þessum mánuði, það er „The Wedd- ing Palace", eða hjónabands- höllin. Fólkið hefur í mörg ár kvartað undan hinum litlu og óskemmtilegu hjóna- bandsskrifstofum og hefur Moskva nú fylgt fordæmi, sem Leningrad gaf og tekið veglegt hús frá 18. öld og endurbætt það í þeim til- gangi að gera það að hjú- skaparskrifstofu, sem er í alla staði hin veglegasta. Fólk í Rússlandi gengur yfirleitt í hjónaband á aðal- hátíðisdögum þjóðarinnar, þ. e. a. s. 1. maí, á byltingaraf- mælinu 7. nóvember og 1. janúar. Giftingarnar fara fram að kvöldi til og síðan er vinum og ættingjum boð- ið til veglegrar veizlu. Það veldur fólki töluverð- um erfiðleikum að halda slíkar veizlur, því að húsa- kostur þess er yfirleitt mjög takmarkaður. Er því alltaf að verða algengara að fólk taki á leigu sali í veitinga- húsum borgarinnar og haldi veizlurnar þar. ★ 7. janúar í ár, sem endra- nær, eru allir Moskvubúar vel undir það búnir að halda jólin hátíðleg, hús- mæðurnar hafa gert allsherj- arhreingemingu og búið til mikið af góðum mat. Það eina sem vantar er vetrar- snjórinn. I’r.jar náðargjafir hefur himininn gef- ið mönnunum: Hugsjónina, kærleik ann og dauðann. P. Rosegger. Einu ógnir, er fylgja dauðanum eru þær, sem lífið hefur skapað. — Enskt. I>eir vænglr, sem bera góðann mann til himins eru dauðinn og ástin. — Michelangelo. Þegar ein hurð lokast, opnast önnur. — Cervantes. Söfnin Listasafn ríkisins er lokað um óákv tíma. Þjóðminjasafnið er opið sunnud., þriðjud., fimmtud. og laugard. frá kl. 1,30—4 eh. Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74 er opið þriðjud., fimmtud. og sunnud. frá kl. 1,30—4 e.h. Minjasafn Reykjavíkurbæjar, Skúla túni 2, opið daglega frá kl. 2—4 e.h. nema mánudaga. Bæjarbókasafn Reykjavíkur sími: 12308 — Aðalsafnið, Þingholtsstræti 29a Útlán: Opið 2—10, nema laugard. 2—7 og sunnud. 5—7 Lesstofa: Opin 10—10 nema laugard. 10—7 og sunnud. 2—7. Útibúið Hólmgarði 34: Opið alla virka daga 5—7. Útibúið Hafsvallagötu 16: Opið alla virka daga frá 17.30—19.30. Bókasafn Dagsbrúnar, Freyjugötu 27, opið föstud. 8—10 e.h., laugard. og sunnud. 4—7 eh. Bókasafn Hafnarfjarðar er opið kl. 2—7 virka daga, nema laugard. þá frá 2—4. Á mánud., miðvikud. og föstud. er einnig opið frá kl 8—10 e.h Skipadeild SÍS.: — Hvassafell er á leið til Drammen. Arnarfell er á ísa- firði. Jökulfell er á leið til Rvíkur. Dísarfell er í Malmö. Litlafell er í Faxaflóa. Helgafell er á leið til Reyðarfjarðar. Hamrafell er í Helsingborg. Eimskipafélag íslands lif.: — Brú- arfoss er á Fáskrúðsfirði. Dettifoss er í Vestmannaeyjum. Fjallfoss er í R- vík. Goðafoss er í Keflavík. Gullfoss fer í dag frá Hafnarfirði. Lagarfoss er á leið til Cuxhaven. Reykjafoss er á leið til Rotterdam. Selfoss er á leið til Rvíkur. Tröllafoss er á Siglufirði. Tungufoss er í Árhus. H.f. Jöklar: — Langjökull er í Rvfk. Vatnajökull er á leið til Rotterdam. Hafskip h.f.: — Laxá fór í gær frá Santiago áleiðis til Havana. Skipaútgerð ríkisins: — Hekla fór frá Rvík í gær vestur um land í hringferð. — Herjólfur fer frá Rvfk kl. 21 í kvöld til Vestmannaeyja. — Þyrill fór frá Karlsham 7. þ.m. áleiðis til Siglufjarðar. — Skjaldbreið er í Rvílc. — Herðubreið er á leið til Rvík- ur frá Austfjörðum. Loftleiðir hf.: — Leifur Eiríksson er væntanlegur frá Glasgow og London kl. 21.30, fer til New York kl. 23.00. Flugfélag íslands hf: — Hrímfaxi fer til Oslóar, Khafnar og Hamborgar kl. 8.30 í fyrramálið. Innanlandsflug: í dag til Akureyrar, Egilsstaða, Húsavíkur, ísafjarðar. Sauð árkróks og Patreksfjarðar. •í FYiíiR nokkru barst blað- inu bréf frá japönskum unglingi, 17 ára gömlum, og segir þar m. a.: — Mig langar til að kynnast þjóð ykkar og þessvegna skrifa ég þetta bréf. Það er sagt að „austur sé austur og vest- ur sé vestur4* og þegar ég lít á landakort sé ég hve lönd okkar eru fjarlæg hvert öðru, skilin af út- höfum og meginlöndum. Enn fremur er menning, lifnaðarhættir og hugsun- arháttur mjög ólíkur. Við höfum fræðzt nokkuð um menningu Evrópuþjóða af kennurum okkar, en nú langar mig til að fræðast um ísland frá íslendingum sjálfum og þessvegna skrifa ég þetta bréf. Ég vona að einhver Jslending- ur muni vilja skrifast á við mig og fræða mig um land og þjóð. Nafn þessa unglings og heimilisfang er: Hiroshi Takagi, 26 Torigoe, Kana- gawa-ku, Yokohama City, Japan. — Hann skrifar á ensku. Kópavogur 2ja herb. íbúð til leigu í risi. Reglusemi áskilLn. — Tilb. sendist afgr. Mbl. fyrir laugardag merkt: „Kópavogur 1049“. Vandaður pels (Kanadískar muskrat) að- eins notaður, til sýnis og sölu. Árni Einarsson dömukls. Hverfisgötu 37. Tek að mér að sníða og sauma dömu- kjóla og barnafatnað. — Uppl. í síma 15904. Geym- ið auglýsinguna. Skuldabréf Höfum kaupendur að ríkis tryggðum skuldabréfum og 5—6 ára fasteint.abréfum. Símar 23136 og 15014. Kitchen Aid hrærivél SENDUM HEIM miðstöð og Barton þvotta- vél til sölu. Uppl. ! síma 13373. Sími 12693. Jafetsbúð Fálkagötu 13. Til leigu Vanur 3 herbergi og eldhús í Skerjafirði til leigi. Uppl. í síma 15127 milli 6—8. Meiraprófsbílstjóri óskar eftir vinnu strax. Uppl. í síma 34336. Hafnarfjörður Pfaff (notuð) Óska eftir 2ja herb. íbúð til leigu nálægt Sólvangi. Sími 50051. Zig-Zag-saumavél í tösku til sölu. Sanngjarnt verð. Uppl. í síma 34703. Atvinnurekendur Stúlka óskar eftir vinnu. Margt kemur til greina, vön afgreiðslustörfum og símavörzlu. Tilb. sendist Mbl. sem fyrst, merkt: i „Atvinna 1046“. Til sölu 8 manna matborð (teak) kr. 1800,00, Eins manns svefnsófi með rúmfata- geymslu kr. 2,850,00 o.fl. lítið notað. Uppl. í síma 36862 Hfálfundafél. ÓÐIIMN Kvikmyndasýning verður i Tripolíbíói sunnndaginn 15. janúar kl. 13,15 fyrir börn félagsmanna. Aðgangur ókeypis. — Aðgöngumiðar afhemtir i Sjálfstæðishúsinu föstudaginn 13. jan. kl. 20,30—22 Skemintincfndin Sauðfjárböðun Samkvæmt fyrirmælum laga ber að framkvæma þrifaböðun á öllu sauðfé hér í lögsagnarumdæminu. Út af þessu ber öllum sauðfjáreigendum hér í bæn- um að snúa sér nú þegar til eftirlitsmannsins með sauðfjárböðunum Stefáns Thorarensen lögregluþjóns sími 15374, eða til Gunnars Daníelssonar, sími 34643. Skrifstofa borgarstjórans í Reykjavík 11. janúar 1961. lltsala Utsala á lífstykkjum og fl. vörum hefst í dag. LÍFSTYKKJAGERÐIN SMART Laugavegi 143- Lögtök Samkvæmt úrskurði uppkveðnum í fógetarétti Keflavíkur í dag, að kröfu samábyrgðar fslands á fiskiskipum verða lögtök látin fram fara á ógreidd- um bráðafúaiðgjöldum í Keflavík fyrir árið 1959 á kostnað gjaldenda að 8 dögum liðnum frá birt- ingu úrskurðar þessa. Keflavík, 12. janúar 1961. Alfrcð Gíslason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.