Morgunblaðið - 13.01.1961, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 13.01.1961, Qupperneq 14
MORCUNBLAÐIÐ Föstudagur 13. janúar 1961 ja Svavar Pálsson viðskiptafræðingur: lim veltuútsvar og skatt- fríðindi kaunfélaga i MÁLGÖGNUM samvinnu- «nanna hefir að undanförnu ver- ®5 haldið uppi látlausum áróðri •il þess að verja skattfríðindi •amvinnufélaganna og hamast Kegn þeirri breytingu útsvars- Jga, sem fól í sér afnám veru- •legs hluta þeirra fríðinda. t Skattamálin hafa jafnan í þess om skrifum verið gerð að tilfinn ingam.álum og sum af þeim eru (treinilega ætluð börnum: Góði f maðurinn fátækari í sögunni er * «amvinnureksturinn og vondi . ríki macUrinn er einkarekstur- ' inn. Þegar umræður um vanda- *öm þjóðmál eru komin niður á - |>etta stig, er að sjálfsögðu ekki i fcægt að taka mark á þeim. B Nú bregður hinsvegar svo við • «ð ágæt grein um skattamálin er birt í Tímanum 4. jan. sl. skrifuð af Guðmundi Skaftasyni lögfr. á Akureyri. Veltuútsvarið Aðalatriði greinar G.S. er að sýna fram á að veltuútsvör séu óhæfur mælikvarði á gjaldþol og •greiðslugetu atvinnufyrirtækis. Kemst hann að þeirri niðurstöðu að veltuútsvarið sé stighækkandi gjald af tekjum, þar sem stig- hækkunin sé „öfug við hlutfallið milli ágóðans og veltunnar". Þetta er alveg rétt og má eins segja þetta þannig að sá, sem sel ur lítið og veitir litla verzlunar- þjónustu fyrir hátt verð (háa á- lagningu) fær lítið útsvar, en sá, sem selur mikið og veitir mikla verzlunarþjónustu fyrir lítið gjald fær hátt útsvar. Á þetta hefir verið bent margsinnis í skrifum um veltuútsvarið og það jafnan af öllum talið hrein ó-1 faæfa. En vekja má athygli á því að veltuútsvarið var einnig slæmt áður en farið var að leggja það á félagsmannaveltu kaupfélaga. Með bráðabirgðabreytingu út- svarslaganna er aðeins verið að láta eitt yfir alla ganga í þessu efni. Annað aðalatriði greinar G. S. sýnist mér vera að hann telur „að 40—45% skattur af tekjum sé ekki óeðlilegur og vel fram- kvæmanlegur". Ég skil þetta svo, að G.S. telji skatta (og útsvar samanlagt) sem séu mikið hærri en þetta vera óeðlilega og skattaálagningu þá lítt framkvæmanlega. Ég er þessu áliti G.S. algerlega sammála og hefi ekki heyrt nokk urn mann, sem hefir þekkingu á íslenzkum skattamálum halda því fram að hægt sé að koma þeim málum í viðunandi horf, með þeim gífurlegu háu skatt- stigum, sem nú gilda. (25% tekjusk. -f 20—30% tekjuútsvar i;4- veltuútsvar). y Veltuútsvarið miða ég í þessu sambandi við tekjur eins og G. S. því það er ekki hægt að leggja útsvar á veltu. Veltan ein segir ekkert um gjaldþol og greiðslu- getu fyrirtækis. Veltuútsvar í nú- gildandi formi verður aðeins lagt á og greitt af tekjum eða af eign. Þeir sem halda öðru fram eru þá svipaðir karlinum, sem keypti þorskhausana fyrir 5 aur. stykk- ið og seldi þá fyrir 4 aur. og ætl- aði sér að græða á veltunni. N-. 4' Mælikvarðinn / Á einum stað í grein G.S. er [ komizt svo að orði: jí „Þegar gera á grein fyrir hvort félag njóti skattfríðinda eða , hvernig beinir skattar hvíli á því er að sjálfsögðu fyrsta atriðið að gera sér ljóst hvaða mæli- kvarða eigi að nota. Frá sjónar- jmiði íyrirtækisins verður mæli- kvarðinn á skattbyrðina sá hversu mikill hluti hreinna tekna þess fer til greiðslu á sköttum". Þetta má til sanns vegar færa, en ég tel rétt að sýna einnig hvað verður af því fé, sem neyt- endur greiða til atvinnufyrirtækj anna fyrir vöru eða þjónustu. Ætla má að vegna verðlags- ákvæða sé verð vöru jafnhátt hvort sem það er samvinnufélag eða einkafyrirtæki sem selur hana. Sýna má svo hve mikið af verðinu er greitt út til opin- berra þarfa í sköttum og útsvör- um, og má skv. þessu fá góðan samanburð. Nú læt ég þetta atriði liggja milli hluta, en ef gengið er inn á að réttasti mælikvarðnn á skattabyrðinni sé sá, hversu mik ill hluti hreinna tekna fer til greiðslu skatta, virðist einsætt að reikna verði tekjurnar á sama hátt hjá samvinnufélögum og hluta- og sameignarfélögum. Þetta virðist mér G. S. ekki gera í þeim töflum um skatt- og útsvarsgreiðslur sem hann birtir í grein sinni. Hann segir „að þau 8 hlutafélög, sem hafa yfir 100 þús. kr. hreinar tekjur og eru því sambærilegust kaupfélögun- um að tekjuhæð, greiða að með- altali 48.2% af tekjum sínum í skatta, en hliðstæð tala hjá kaup félögunum er 96.2%“. Eftir þessu ætti að telja að skattbyrði kaupfélaganna væri tvöfalt þyngri en þeirra hlutafél aga, sem um ræðir. Þessi niður- staða er fengin fram með því að draga vexti af stofnsjóðsinnstæð- um og tillag til stofnsjóðs frá tekjum kaupfélaganna eins og þar væri um að ræða bein út- gjöld. Hinsvegar eru varasjóðs- tillög hlutafélaganna ekki dregin frá hreinum tekjum þeirra í töfl- unni sem birt er. í báðum tilfell- um er þó um ágóðaráðstöfun að ræða en ekki rekstrargjöld. Um þetta atriði erum við G.S. ekki sammála. í töflu í grein G.S. er sýnt að hreinar tekjur Kaupfélags Ey- firðinga séu tæpar 2 millj. kr. og skattar alls rúmlega 1% millj. króna. í þessu tilfelli reiknar G. S. að skattbyrði megi teljast 76.7%. Ef ég áætla nú að vextir og tillög til stofnsjóðs, sem áður hafa verið dregin frá séu alls 1% millj. kr. þá ætti að reikna tekjur KEA 3% millj. kr. Álagð- ir skattar eru þá um 45% af tekj- um eða heldur lægra en það sem lagt er á hlutafélögin. Skattbyrði KEA er því nú eitthvað svipuð og hlutafélaganna átta sem um ræðir hér að ofan. Þannig hefir breyting útsvarslaga orðið til þess að jafna skattbyrðar kaup- félaga og hlutafélagá meira en áður var. Ennfremur er það við skýrslu- gerð G.S. að athuga að saman- burður milli félaganna einmitt á þessu ári, mun vera heldur óhag stæður hluta og sameignarfélög um vegna þeirra breytinga á út- svarslögum að greitt útsvar sé frádráttarbært við útreikning tekjuútsvars. Hið háa útsvar hlutafélaganna frá fyrra ári kemur þetta ár til frádráttar og lækkar útsvar þeirra. Útsvör kaupfélaganna voru hinsvegar lág árið áður og þessvegna hafa þau lítinn frádrátt þetta ár. Ekki er þó víst að þetta skekki mynd ina af samanburði á skattbyrð- inni neitt verulega. Stofnsjóðir Það sem ber á milli er í raun- inni þetta: G.S. lítur á stofnsjóðsinnstæð- una sem viðskiptainneign og af- sláttur og vextir, sem árlega reiknast viðskiptavini til tekna verða þá bein gjöld hjá kaupfél- aginu, sem draga ber frá við á- kvörðun hreinna tekna. Stofn- sjóðsinnstæðan er talin eign fél- agsmanns en lánuð til langs tíma til kaupfélagsins. Ég tel hinsveg ar að það fjármagn, sem safnast upp í stofnsjóðúm kaupfélaga sé með öllum einkennum eigin fjár magns í fyrirtæki. Venjulega er því fjármagni, sem bundið er í eignum fyrirtæk- is skipt í þrjá megin flokka, þ.e. lán til skamms tíma, lán til langs tíma og eigið fé. Lán til skamms tíma teljast vera þær skuldir, sem falli í gjalddaga innan eins árs, lán til langs tíma þau sem eru umsamin til lengri tíma (10— 20 ára) og greitt af þeim reglu- lega, en eigið fé er venjulega bundið í fyrirtæki svo lengi sem það starfar. Oft er þó einhver hluti þess greiddur út t.d. sem arður eða eigandi dregur stund- um út eitthvað af því fjármagni sem hann á þar. Nú mun því haldið fram að stofnsjóðsinnstæð ur séu lán til langs tíma frá fél- agsmanni til kaupfélagsins. Svo er þó ekki, vegna þess að ein- kenni langra lána er að þau end- urgreiðast reglulega og með unv samdri upphæð hvert sinn og þá jafnframt greiddir út vextir. Stofnsjóðsinnstæðan stendur inni í fyrirtækinu árum og áratugum saman og skrifast árlega upp, sem nemur reiknuðum vöxtum og íillögum, en örlítið greiðist út þegar viss skilyrði er uppfyllt. Þegar fyrirtæki gerir upp reikn- inga til þess að stjórnendur geti athugað fjárhagsstöðu í árslok og gert sér grein fyrir breytingum sem orðið hafa á liðnu tímabili, er fjármagn þess flokfeað eins og áður var getið. Lán til skamms tíma eru borin saman við veltu- fjármuna-eign til þess að reikna út greiðslugetu fyrirtækisins. T sambandi við þessa athugun er reiknað hve mikið reiðufé fer út úr fyrirtækinu til greiðslu af- borgana af löngum lánum og til nýrra fjárfestinga og ennfremur hverjar afskriftir og nettótekjur verða til aukningar greiðslugetu. f þessu sambandi koma tillög og vextir til stofnsjóðs inn sem bein aukning á greiðslugetu alveg eins og um aukningu eigin fjár væri að ræða. Heildarsumnea stofnsjóðsinn- stæðna hækkar með hverju ári sem líður því útborganir eru venjulega aðeins lítill hluti af nýjum tillögum og reiknuðum vöxtum. Þessir fjármagnsreikningar í bókum kaupfélaga bera því öll einkenni eigin fjár. Bersýnilegt er að stjórnendur stærsta sam- vinnufélagsins í landinu líta svona á málin og það réttilega að mínum dómi. > í reikningum SÍS er fjármagn það sem bundið er í eignum fyr- irtækisins flokkað í þá þrjá liði sem áður getur og eru stofnsjóðs innstæður hvorki taldar til lána til skamms tíma né lána til langs tíma, heldur til eigin f jár. Það sannar þó ef til vill betur en nokkuð annað, að ekki er hægt að telja tillög og vexti, sem reiknaðir eru árlega til hækk- unar stofnsjóði, sem hver önnur rekstrargjöld, að með því móti eru stjórnendur samvinnufélags algerlega sjálfráðir um hvort þeir láta félögin greiða tekju- skatt eða ekki. Allan rekstrar- hagnað er hægt að skrifa yfir i stofnsjóð og félagið þar með eert skattlaust. Svavar Pálsson Við alla stjórn fjárreiða sam- vinnufélags er alltaf rétt að líta á stofnsjóðsinnstæðu sem eigið fé. Stofnsjóðsféð er til íullrai ráðstöfunar stjórnar fyrirtækis- ins eins og eigið fé. Það er raun veruleikinn burtséð frá öllu laga- formi. Eign eía ekki eign. Þessu hafa svo margir viljað mótmæla með því einu að segja að frá lagalegu sjónarmiði sé enginn vafi á að stofnsjóðsinn- stæða sé eign félagsmanns. Ég held að einnig frá þessu sjónar- miði geti leikið vafi á hvort það er félagsmaður eða félagið sjálft sem er hinn raunverulegi eigandi stofnsjóðsinnstæðunnar. Nú er efni og innihald eignar- réttarins skýrt svo að hann veiti eiganda vissar aðildir um eign sína. Hin fyrsta er sú, að eigandi megi ráða yfir og nota eignina, hin önnur að eigandi megi ráð- stafa eigninni með löggerningi og hin þriðja að eignin sé grund- völlur lánstrausts eigandans. Allan þann tíma sem stofn- sjóður stendur inni hjá kaupfél- aginu ræður félagsmaður ekki yfir henni og notar hana ekki og sá tími getur verið mjög langur oft áratugir. Hann getur aðeins fengið greidda innstæðuna ef viss skilyrði er uppfyllt. Að þessu leyti svipar innstæðunni til annarra skilyrðisbundinna fjár- réttinda, sem ekki teljast til eigna. Þá er heimildin til að ráðstafa eigninni með löggerningi alveg tekin af félagsmanni. Stofnféð verður ekki „selt né af hendi lát- ið á annan hátt, nema með sam- þykki félagsstjórnar". (1. 46/1937 25. gr.). Þetta gerir raunverulegt verð gildi stofnsjóðsinnstæðunnar í höndum félagsmanns að svo til engu, en hefir fullt gildi fyrir samvinnufélagið sjálft. Hversu mjög sem félagsmanni lægi á að nota þetta fé í eigin þarfir og fá það greitt eða fá lán út á það og veðsetja þá innstæð- una, þá er það ekki hægt. Þó getur hann fengið það greitt ef hann verður t.d. fátækrastyrks- þurfi eða er orðinn gjaldþrota. Og aðeins með hinu síðastnefnda er hægt að segja að þessi eign félagsmanns sé grundvöllur láns trausts hans. En þá ber einnig að hafa hitt í huga að stofnsjóðsinn- stæðan er einnig grundvöllur lánstrausts sjálfs kaupfélagsins, þar sem nota má hana til greiðslu á töpum félagsins, ef aðrir sjóðir nægja ekki til þess. Segja má því að hið ytra form eignarréttarins yfir stofnsjóðsinn stæðu tilheyri félagsmanni, en efni hans og innihald er nær allt horfið yfir til samvinnufélagsins sjálfs. / Breytingar á skattalögum Af því sem hér hefir verið sagt er augljóst að þörf er breytinga á ákvæðum skattalaga um stofn- sjóðstillög. Þau ber að skoða sem ágóðaráðstöfun en ekki rekstrargjöld og sömuleiðis reikn aða vexti af stofnsjóðsinnstæð- um. Reiknaðir vextir af eigin fé er ekki frádráttarbær gjöld. Það hefir tíðkazt um allangt skeið að ýms önnur félagssam- tök hafa leikið sama leikinn að gera raunverulega ágóðaráðstöf- un að rekstrargjöldum í bókhald inu með því að færa upp séreign arsjóði á nafn viskiptavina og síðan er fénu haldið kyrru til afnota í fyrirtækinu sjálfu. Með þessu eru fengin fram gjöld í bókhaldinu og samtökin skjóta sér þannig undan eðlilegri skatt- greiðslu. Þetta verður ekki lagfært með því einu að breyta ákvæðum skattalaga um stofnsjóðstillög. Almenn ákvæði um afslátt og endurgreiðslu þarf að setja, sem gildi jafnt fyrir samvinnufélög sem önnur félagsform. Ákvæðin mættu vera t.d. eitthvað á þessa leið: Til frádráttar skal færa sér hvern afslátt eða endurgreiðslu sem fyrirtæki greiða viðskipta- vinum, en þó því aðeins að af- slátturinn eða endurgreiðslan sé raunverulega greidd út. ( Ber þá að skoða afsláttinn sem beina leiðréttingu á því verði sem áður var reiknað. Séu nokkr ar hömlur lagðar á afsláttinn eða endurgreiðslu, þannig að hún sé ekki til frjálsrar ráðstöfunar hvers einstaks viðskiptavinar, skal ekki leyfa slíkan afslátt til frádráttar við ákvörðun skatt- skyldra tekna. Misrétti. G.S. bendir á að misrétti eigl sér stað milli einstakra fyrir-\ tækja án tillits til réttarformsins, Þetta er rétt, en það misrétti hlýzt af álagningu veltuútsvars. ins og bendir G.S. réttilega á það. Ég er sammála G. S. um að koma beri í veg fyrir slíkt. En það á líka að koma í veg fyrir allt annað misrétti í álagn- ingu skatta — og ég fæ ekki bet- ur séð en að réttarformið hafi í þessu efni mikla þýðingu. Fyrirtæki rikis og bæjar- og sveitarfélaga eru flest öll skatt- frjáls að mestu leyti. Samvinnu- félögin hafa allt fram til þessa notið mjög verulegra skattfríð- inda og njóta enn sbr. ákvæði um stof nss j óðstillög. Hlutafélög greiða skatta eftip öðrum reglum en sameignarfélög o.s.frv. Réttarformið hefir allt til þessa dags verið látið skipta miklu máli við álagningu skatta. Rekstrarhagkvæmni Mér virðist G.S. vera mér sam- mála um það að stefna beri a8 því að gera allar skattbyrðar at- vinnurekstursins í landinu sem jafnastar og koma í veg fyrip sérhvert misrétti í þessu efnL Þetta ber að gera og hefir miklu viðtækari þýðingu en þá að full- nægja öllu réttlæti. Ef einstökum fyrirtækjum ep hlíft við greiðslu skatta gerir það þeirn e. t. v. mögulegt að starfa áfram og auka starfsemi sína þó þau séu rekin á óhagkvæman hátt. Þau fyrirtæki, sem bezt eru rekin geta eins og nú er málum skipað orðið að draga saman rekstur sinn eingöngu vegna 6- hæfilegra skatta, en önnur lif- að og dafnað í skjóli skattfríð- inda þó þau sói fjármunum sín- um og alþjóðar í óhagkvæman rekstur. Nú hafa verið gerðar ýmsap róttækar ráðstafanir í efnahags- lífinu til þess að auka framleiðni atvinnuveganna. Eftir er þó ein- hver þýðingarmesta ráðstöfunin og sú sem mest m.un auka hag- kvæmni í rekstri fyrirtækja, en það er breytingar á skatt- og úts varslöggj öf inni. Heilbrigð skattapólitík er skil- yrði fyrir bættum afköstum at- vinnufyrirtækjanna og verður að komast í framkvæmd nú þegar ef viðreisn efnahagslífsins á að ná tilgangi sínum að fullu. En án hennar verða lífskjör alls altnenn ings í landinu ekki bætt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.